Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Blaðsíða 28
36
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2001
Tilvera DV
1 1 f i ft
íímIi
Hirðisbréf
biskups rætt
Sr. Sigurður Pálsson mun leiða
opinn leshóp sem fjalla mun um
Hirðisbréf biskups í Hallgríms-
kirkju í kvöld og næstu þrjú
miðvikudagskvöld. Hirðisbréf
biskups kom út snemma á þessu
ári og þar er margt athyglisvert
sem áhugavert er að ræða, segir
í fréttabréfi frá kirkjunni.
Krár
■ SÓLON A GÁUKNUM Hliómsveit-
in Sólon spilar á Gauknum.
Kabarett
■ SKEMMTIKVOLDNokkrar af.....
þekktari listakonum landsins koma
fram á skemmtun í Salnum í kvöjd.
Dagskráin verður fjölbreytt. Auk Ás-
geröar Júníusdóttur mezzosópran-
söngkonu koma fram listakonumar
Stelnunn Birna Ragnarsdóttir, Bryn-
dís Halla Gylfadóttir, Auöur Haf-
steinsdóttir, Áshildur Haraldsdóttir,
Sigrún Eövaldsdóttir, Ólöf Ingólfs-
dóttir, Gjörningaklúbburinn, Kristín
Omarsdóttlr, Margrét Lóa Jónsdótt-
ir, Helga Braga Jónsdóttir og Þór-
unn Lárusdóttir.
■ DANSINN DUNAR Á vegum
Unglistar mun dansinn duna í
Tjarnarbíói í kvöld. Þar munu,
nemendur frá Listdansskóla Islands,
Klassíska listdansskólanum,
Jazzballettskóla Báru, Dansskóla
Birnu Björnsdóttur, Danshópurinn
Ok og strákarnir í danshópnum
Götudans dansa af hjartans
lyst.Dagskráin byrjar kl. 20.30.
Fundir og fyrirlestrar
■ FRÆÐSLUFUNDUR A KELOUM
Fræösiufundur verður á Keldum á
morgun, fimmtudag, kl. 12.30 á
vegum Háskóla íslands. Þar flytur
Bergljót Magnadóttir, líffræöingur á
Keldum, erindi sem hún nefnir:
Ovenjuleg komplement virkni þorska-
og barrasermis. Fræöslufundurinn
veröur á bókasafni Keldna og eru
allir velkomnir.
■ (UM)HEIMUR AUSTUR-LANDA
Magnús Þorkell Bernharösson,
lektor í miðausturlandafræöum viö
Hofstra-háskólann í New York,
verður gestur á rabbfundi
Sagnfræöingafélags íslands í kvöld.
Magnús mun fara nokkrum oröum
um stöðu miöausturlandafræða í
fræöaheiminum, fjalla um eigin
rannsóknir, sem einkum hafa beinst
aö þjóðerni og þjóöernishreyfingum í
þessum heimshluta. I lokin mun
hann fjalla um þróun mála í
Miðausturlöndum á undanförnum
árum, einnig í Ijósi nýliöinna
atburða. Fundurinn er haldinn í
aöalfundarsal ReykjavíkurAkadem-
íunnar að Hringbraut 121 og hefst
kl. 20.30.
SÍÐUSTU FORVÖÐ
■ VERA SORENSEN I GALLERII
REYKJAVIK Vera Sörensen sýnir
málverk sín í Galleríi Reykjavík,
Skólavörðustíg 16 til 27. okt.
■ FRUMHERJAR í ÍSLENSKRI
MYNDLIST Svnineunni Frumherjar
íslenskrar myndlistar lýkur í
Listasafninu á Akureyri sunnudaginn
4. nóvember. Hún er unnin í
samvinnu við Listasafn Islands.
■ KRISTJÁN DAVÍÐS í 18 GALLERÍ
Sýningu Kristjáns Davíðssonar i 18
galleri lýkur laugardaginn 27.
október.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Minn heimur og þinn í Salnum:
Eins og lítil listahátíð
- segir Ásgerður Júníusdóttir söngkona
DV-MYND E.ÓL.
Skipuleggjandi kvöldsins
Ásgeröur Júníusdóttir söngkona hefur seitt til sín fjöida kvenna sem er margt til lista lagt.
„Þama er mörgum greinum lista
blandað saman, tónlist, dansi, leik-
list, myndlist og skáldskap. Þetta
er eins og lítil listahátíð," segir Ás-
gerður Júníusdóttir messósópran-
söngkona um skemmtidagskrána
Minn heimur og þinn sem flutt
verður i Salnum í kvöld. Ásgerður
er skipuleggjandi dagskrárinnar í
samvinnu við Smekkleysu og
Kópavogsbæ og konur eru þar í öll-
um hlutverkum, bæði sem flytjend-
ur og höfundar ljóða og laga. Af
tónlistarflytjendum má nefna auk
Ásgerðar, Steinunni Bimu Ragn-
arsdóttur, Bryndísi Höllu Gylfa-
dóttur, Auði Hafsteinsdóttur og Ás-
hildi Haraldsdóttur. Leikkonan
Helga Braga skemmtir og kynnir
verður kollegi hennar, Þórunn
Lárusdóttir. Dagurinn er ekki val-
inn af handahófi, 24. október, sjálf-
ur kvennafrídagurinn. Einkunnar-
orðin gætu þvi sem best verið:
Áfram stelpur!
Aö körlum finnist sér ekki
ofaukið
„Það er mjög góður hópur sem
kemur þarna fram, sannkallað ein-
valalið," segir Ásgerður og bætir
við: „Samt vona ég að körlum finn-
ist sér ekki ofaukið og þeir komi til
að hlusta og njóta.“
- Þegar haft er orð á að þeir ættu
að minnsta kosti að geta notið þess
að horfa á allar þessar fallegu kon-
ur hlær Ásgerður og tekur því vel.
Hún segir líka dagskrána eiga að
vera við hæfi fólks af báðum kynj-
um og á öllum aldri. „Ég veit um
fólk sem ætlar að koma með börn,
enda byrjum við kl. 20 og verðum
bara í um það bil klukkutíma.“
Skúlptúrar í staö blóma
Sjálf mum Ásgerður syngja
nokkur lög af nýjum diski sem
Smekkleysa gefur út í næsta mán-
uði. Þar eru eingöngu ljóð og lög
eftir íslenskar konur. „Það er
ákveðin nýsköpun á plötunni því
helmingur efnisins er nýr. Slíkt
leiðir oft af sér frekari nýsköpun
og hún kemur fram á þessari
kvöldvöku okkar I Salnum. Til
dæmis er þar sólódansverk sem
var samið sérstaklega af þessu til-
efni. Það er eftir Ólöfu Ingólfsdótt-
ur. Hún dansar það við lag eftir
Karólínu Eiríksdóttur sem Sigrún
Eðvaldsdóttir leikur á fiðlu.
Svo verða upplestrar. Ég fékk
tvær skáldkonur sem eru að gefa
út bækur núna til að lesa upp. Þær
eru Kristín Ómarsdóttir og Mar-
grét Lóa Jónsdóttir." Ásgerður
kveðst hafa ákveðið að hafa skúlp-
túra eftir Brynhildi Þorgeirsdóttur
á sviðinu í staðinn fyrir blóma-
skreytingar og segja megi að þama
verði líka hönnunarsýning því
hún ætli að vera í nýjum kjól eftir
Rögnu Fróðadóttur. „Ekki má svo
gleyma Gjörningaklúbbnum sem
ætlar að fremja magnaðan gjörn-
ing,“ segir Ásgerður. Þegar henni
er líkt við seiðkonu sem hafi náð
að galdra til sín allar þessar lista-
konur segir hún: „Ég vona að þetta
verði verulega skemmtilegt. Það
var það sem ég hafði í huga, fyrst
og fremst." -Gun.
Bíógagnrýni
Krimmar eins og
verða verstir
Sambíóin - Sexy Beast
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Logan mættur
Ben Kingsley sýnir snilldartakta í hlutverki hins samviskulausa Don Logan.
Meö honum á myndinni erJulianne White.
Það er friður og ró yfir fyrstu at-
riðunum í Sexy Beast. Við erum
stödd á Spáni á heimili glæpa-
mannsins Gary (Ray Winstone) sem
sestur er í helgan stein og eigin-
konu hans DeeDee (Amanda Redm-
an), fyrrv. klámmyndastjömu. Þau
lifa af tekjum fyrri ára, hafa það
gott í einbýlishúsi með sundlaug.
Þeirra helstu vinir eru Aitch (Cavin
Kendall) og Jackie (Julianne
White), sem einnig koma úr sama
geira atvinnulífsins og eru einnig
hætt í glæpum og lifa kyrrlátu lífi i
stanslausri sól. Eina sem truflar
friðsældina eru martraðir sem Gary
fær, martraðir sem minna hann á
fyrra líf.
Kvöld eitt eru öll fjögur stödd á
veitingastað þegar Jackie segir að
Don Logan (Ben Kingsley) hafl hringt
og hann sé á leiðinni til þeirra. Það
kólnar snögglega og hrollur fer um
viðstadda. Gary veit að það er aðeins
ein ástæða fyrir komu Logans. Logan
vill fá hann í vinnu. Hræðsla þeirra
er skiljanleg þegar Logan birtist.
Samviskulausari og brjálaðri verða
þeir ekki í kvikmyndum og túlkun
Ben Kingsleys á þessum glæpamanni
sem kominn er til að sækja Gary er
meistaraverk svo ekki sé meira sagt.
Andrúmsloft myndarinnar breytist
nú úr friðsæld í taugaþrungna
spennu þar sem Logan tekur ekki nei
fyrir svar, um leið og hann leiðir
áhorfandann í heim sem fjórmenn-
ingarnir héldu að þau væru búin að
loka á.
Bretar hafa á undanförnum árum
verið iðnir við kolann þegar kemur
að gangstermyndum og Sexy Beast
fer nánast beint á toppinn í þessum
geira. Myndin hefur það meðal ann-
ars við sig sem margar skortir, hún
byggir á fáum en sterkum persón-
um og heldur uppi magnþrunginni
spennu og taugastríði sem helst alla
myndina út. Skipa má Sexy Beast í
tvo hluta, Costa Del Sol og London.
í fyrri hlutanum er það Ben
Kingsley sem með magnaðri túlkun
sinni á Don Logan gerir það að
verkum að við finnum vel fyrir
þeirri hræðslu sem samskipti ann-
arra við hann býður upp á. Og bara
atriðið um nóttina þegar Logan
stendur fyrir framan spegilinn og
talar við sjálfan sig segir okkur að
það stoppar ekki neitt þennan mann
nema byssurkúlur. Þegar svo hann
hverfur af sjónarsviðinu um stund
er eins og frostinu linni.
Þegar Gary er kominn til London
og orðinn þátttakndi í stórráni þá er
það annar gangster, Teddy (Ian
McShane), sem sér um að halda
hræðslunni við og sjálfsagt hefur
Gary aldrei verið jafnnálægt dauð-
anum og þegar hann lendir í sam-
skiptum við hann þar sem þeir eru
einir.
Sexy Beast er frumraun Jonathan
Glazer, sem hefur verið að gera
góða hluti í tónlistarbransanum,
meðal annars með hljómsveitinni
Radiohead. Öfugt við marga starfs-
bræður hans vestanhafs, sem koma
úr sama geira, nær hann algjörlega
að losa sig við áhrifin úr mynd-
bandabransanum og leikstýrir af út-
sjónarsemi krimmamynd sem er
þétt og áhrifamikil. Sexy Beast hefði
samt aldrei orðið jafnsterk og raun-
in er ef ekki væri fyrir leik þriggja
aðalleikaranna, Ray Winstone, Ben
Kingsleys og Ian McShane. Kingsley
kveður að vísu alla í kútinn þegar
hann er í mynd, en túlkun Winsto-
ne á Gary, fyrrum harðjaxl, sem
orðinn er háður letilíflnu og finnur
fyrir hræðslu sem hann fann ekki
fyrir áður er einnig mjög góð. Hann
er á nálum allan tímann og það sést.
Til að mynda í lokaatriðinu með Ian
McShane er lítill töggur orðinn eftir
í honum. McShane er í sams konar
hlutverki og Kingsley, grimmur og
samviskulaus, McShane talar
minna en augun og hreyfingar
leyna ekki eðlinu. Fínn leikur hjá
Ian McShane.
Sexy Beast er sterk og áhrifamik-
il kvikmynd. Það eina sem truflaði
mig var sjálft ránið, eins myndrænt
og það er: Af hverju tóku þeir ekki
vatnið úr lauginni?
Leikstjórl: Jonathan Glazer. Handrit:Louis
Mellis og David Scinto. Kvikmyndataka:
Ivan Bird. Tónlist: Roque Banos. Aöal-
hlutverk: Ray Winstone, Ben Kingsley,
lan McShane, Amanda Redman, Julianne
White, Cavan Kendall og James Fox.