Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Side 32
 FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað I DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2001 Svæðisútvarp RÚV: Aftur morg- unútvarp ^ Aðeins nokkram vikum eftir að út- varpsráð ákvað að skera niður morg- unútsendingar svæðisútvarpanna á Akureyri og Egilsstöðum hefur ráðið aftur ákveðið að taka þær upp frá og með 1. desember nk. Ekkert morgun- útvarp hefur verið frá síðustu mán- aðamótum og var þeirri ákvörðun harðlega mótmælt, m.a. hjá bæjar- stjórnum víða um land. Þá sagði for- maður útvarpsráðs í samtali við DV að ákvörðunin myndi samt standa en raunin er önnur, sbr. bókun útvarps- ráðs í gær. „Við fögnum þessari ákvörðun," sagði Sigurður Þór Salvarsson, deild- arstjóri svæðisútvarpsins á Akureyri, og svaraði aðspurður að hann liti svo ^ á sem um varnarsigur væri að ræða. Morgunútvarp hefur verið alla virka morgna frá Akureyri en einu sinni í viku á Egilsstöðum. -BÞ Borgarendurskoðun: Innsigli átti að rjúfa á hádegi Þrettán starfsmenn áttu að mæta í vinnu á skrifstofu Borgarendurskoð- unar á hádegi þegar rjúfa átti innsigli á vinnustaðnum eftir að ótti hafði '3 vaknað um miltisbrandssmit á mánu- dag. Símon Hallsson borgarendurskoð- andi sagði við DV að öllu fólkinu liði vel og líkur bentu til að niðurstöður sýnatöku yrðu neikvæðar. Einn starfs- maður fékk reyndar ofnæmiseinkenni vegna fúkkalyfja í gær en við því var brugðist og fékk viðkomandi aðra teg- und lyfja en hinir tótt Simon sagði að þar sem skrifstof- urnar hefðu verið lokaðar hefði starfs- fólkið farið í vettvangsskoðun í gær - verið við störf utan skrifstofunnar - og m.a. farið til Orkuveitu Reykjavíkur i þeim tilgangi. Símon sagði að opnunin á hádegi væri ákveðin í samráði við heilbrigðis- og lögregluyfirvöld. -Ótt Rafkaup Ármúla 24 • S. 585 2800 Kaffibarinn innsiglaður: Framkvæmda- stjórinn horfinn KaíTibarinn, einn þekktasti veitingastaður borgarinnar, hef- ur verið innsigl- aður. Á skilti sem sett hefur verið á inngang- inn er sagt að lokað sé vegna breytinga en á bak við skiltið er innsigli sýslu- mannsins í Reykjavík. Stað- urinn innsiglað- ur að kröfu Toll- stjóra vegna vörsluskatta upp á nokkrar millj- ónir króna. Stærstu eig- endur Kaffibars- ins eru Ingvar Þórðarson athafna- maður og Baltasar Kormákur leik- stjóri. Þá er Damon Albarn, söngv- ari Blur, meðal eigenda. Ekki tókst að ná í Ingvar Þórðar- son athafnamann sem haft hefur veg og vanda af rekstri staðarins. Heimildir DV herma að hann sé horfinn af landi brott. „Hann er týndur,“ sagði einn þeirra sem vel þekkir til Ingvars. Sam- kvæmt heimild- um DV er Ingv- ar staddur í Englandi. Baltasar Kor- mákur, sem skráður er for- ráðamaður Kaffibarsins, sagði í samtali við DV í morg- un að hann hefði frétt af lokuninni i gær. Sjálfur hafi hann engin afskipti af rekstrinum og hann nær ekki sambandi við Ingvar framkvæmda- stjóra þrátt fyrir tilraunir. „Örlög barsins eru ekki ráðin. Ég verð að borga þessa skuld sjálfur en lögfræðingar mínir eru að skoða þessi mál og fara ofan i reksturinn," segir Baltasar sem hefur enga skýr- ingu á hvarfi framkvæmdastjórans. -rt DV-MYND PJETUR Kemst ekki leiöar sinnar Maöurinn í hjólastólnum komst ekki ieiöar sinnar vegna jeppa sem lagt haföi veriö uppi á gangstétt efst á Laugaveginum. Þaö er hreint ótrúiegt hvaö menn geta veriö tillits- og skeytingarlausir og blindir fyrir þörfum annarra. Bíl- um á aö leggja í þar til gerð stæöi en ekki uppi á gangstétt. Dekkri efna- Skilafrestur í útboði Landssímans framlengdur til föstudags: Engin tilboð enn stað- fest við Verðbréfaþing - kemur í ljós hvort við skilum inn, segir Frosti Bergsson hjá Opnum kerfum Engin tilboð höfðu borist frá hugsan- legum kjölfestufiárfestum þegar skila- frestur gagna vegna söluútboðs Lands- símans rann út á mánudag. Verðbréfa- þing íslands hafði engar upplýsingar fengið um tilboðsgjafa þegar markaðn- um var lokað síðdegis í gær. VÞÍ leitaði eftir upplýsingum frá Landssímanum í gær eftir að DV fór að spyrjast tyrir um málið. Var það bæði vegna þess að auglýstur útboðsfrestur rann út á mánudag og einnig vegna óvissu um stöðu fyrirtækisins í ljósi frétta í DV í gær. Þar hótaði Jón Ólafs- son málsókn Norðurljósa ef fyrirtækj- um yrði mismunað um að taka þátt í út- boðinu. Landssíminn er skráður á svokölluð- um tilboðsmarkaði. Hann fékk ekki skráningu á Verðbréfaþinginu sjálfu eft- ir fyrsta hluta útboðs á sölu hlutabréfa Frosti Jakob Falur Bergsson. Garöarsson. þar sem aðeins seldust 5% í almennri sölu af þeim 15% sem nauðsynlegt var til að hljóta skráningu. í september var tilkynnt að 14 aðilar hefðu sýnt áhuga á að gerast kjölfestuftárfestar í Landssím- anum. VÞÍ hafði ekki borist staðfesting í gær um tilboð frá neinum þessara 14 aðila. Frosti Bergsson, stjórnarformaður Opinna kerfa sem eru nefnd sem líkleg- ur kjölfestufjárfestir, staðfesti við DV i morgun að frestur til að skila tilboðum hefði verið framlengdur fram til klukk- an fimm á fóstudag. Hann vildi ekkert tjá sig um deilur Norðurljósa vegna út- boðsins og taldi það beinast að einka- væðinganefnd en ekki Opnum kerfum. - Munuð þið skila inn tilboði? „Það mun bara koma í ljós. Ég held að það verði eitthvað að frétta af þessu öllu eftir helgina,“ sagði Frosti Bergsson sem staddur var í Svíþjóð. Jakob Falur Garðarsson vildi ekkert segja um það í gær hvort einhver tilboð hefðu komið. „Við munum ekki upplýsa neitt um málið. Einkavæðingarferlið er þó í mjög góðum gír,“ sagði Jakob Falur sem staddur var í London á fundi einkavæð- inganefndar. -HKr. - Sjá innlent fréttaljós bls. 6 hagshorfur Katrín Olafsdóttir, sérfræðingur í þjóðhagsspám hjá Þjóðhagsstofnun, segir yfirlýsingar Standard & Poor’s fjármálafyrirtækisins um efnahags- horfurnar á íslandi á næsta ári ekki koma mjög á óvart, enda sé niður- staða fyrirtækisins nokkuð á svip- uðu róli og þjóðhagsáætlun Þjóð- hagsstofnunar geri ráð fyrir, kannsk örlitið dekkri. Hins vegar hafi viðskiptahorfur erlendis versn- að síðan þjóðhagsáætlun var gerð. Á fundi hjá Félagi viðskiptafræð- inga og hagfræðinga í gær komst Már Guðmundsson, aðalhagfræð- ingur Seðlabankans, að þeirri nið- urstöðu að niðursveiflunni í efna- hagslifinu væri ekki lokið og horfur væru jafnvel aðeins dekkri en fram kemur í spá Þjóðhagsstofnunar. Loks segir Greiningardeild Kaup- þings að niðurstaða S&P sé áfall fyr- ir fjármálakerfið í landinu og fjár- lagafrumvarpið. Bolli Þór Bollason í fjármálaráðuneytinu segist hins vegar ósammála niðurstöðu S&P og telur að forsendurnar sem menn gefi sér þar séu allt of svartsýnar. Sjá fréttir á bls. 4 og 8 -BG Júlíus Vífill Ingvarsson ósáttur við grjótnám í Geldinganesi: Mestu spjöll sem unnin hafa verið - enginn bent á betri hafnaraðstöðu, segir Hrannar B. Arnarsson „Grjótnám í Geldinganesi er þegar orðið að mestu umhverfisspjöllum sem unnin hafa verið í landi Reykja- víkur. Það má öllum vera ljóst að af- leiðingar grjótnáms þarna verða miklu afdrifaríkari en ætlað var,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, borg- arfulltrúi sjálfstæðismanna, en borg- arráð felldi í gær tillögu sjálfstæðis- manna um að hætta þegar í stað grjótnámi í Geldinganesi. Júlíus segir engan vafa leika á að Geldinganesið sé eitt fallegasta bygg- ingarland borgarinnar sem enn hefur ekki verið deUiskipulagt og með Grjótnám í Geldinganesi Borgarstjórn áformar aö koma upp stórskipahöfn á þessu svæöi. Sjálf- stæöismenn eru því mótfallnir og segja landiö eitt fallegasta bygging- arland borgarinnar. grjótnáminu sé verið að ákvarða staðsetningu stórskipahafnar langt inn í framtíðina. „Það er gert ráð fyrir því í skipu- lagi borgarstjórnar að þarna verði stórskipahöfn. Embættismenn í hafn- arstjórn hafa sagt mér að ekki verði þörf fyrir höfn í Eiðsvik fyrr en eftir 30 til 40 ár. Danskir sérfræðingar sögðu að ekki yrði þörf fyrir slíka höfn á höfuðborgarsvæðinu fyrr en í fyrsta lagi eftir 50 ár,“ segir Júlíus. Hann segir 240 þúsund rúmmetra grjóts þegar hafa verið tekna úr Geld- inganesi og heimild meirihluta borg- arstjórnar sé fyrir að taka miUjón rúmmetra til viðbótar. Hrannar B. Arnarsson borgarfuU- trúi sagði í samtali við DV að það væri stefna borgarstjórnar að koma upp stórskipahöfn á þessum slóðum í framtíðinni. „Það hefur enginn sýnt fram á betra hafnarsvæði í Reykja- vík. Miðað við annað sem sjálfstæðis- menn hafa sagt um samkeppni sveit- arfélaganna finnst mér það skjóta skökku við ef þeir viija að borgin hafni þessum kosti i hafnarmálum tU framtíðar," sagði Hrannar B. Arnars- son. -aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.