Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2001, Qupperneq 8
Gunnar Larus
Hjólmarsson
altmuligmaður
Efnið og andinn fellur nú eiginlega undir
sama hatc í dag, er það ekki? Maðurinn er ekki
eins aðgreindur núna og á tímum Biblíunnar,
sem betur fer. Tölvan er mun skemmtilegri
gluggi en glugginn sjálfur. A skjánum get ég
flakkað milli heimshluta á 33600 bps, sankað
að mérdrasli og látið hugann reika. Ef ég horfi
út um gluggann sé ég bara lauf falla og fólk
koma heim til sín með innkaupapoka. Gott
er að stinga diskum í tölvuna og þá dugir ekk-
ert minna en að eiga svona 1500 stk. til að
velja úr. Ég átti annað eins af plötum en lét
freistast af tækniframförum og losaði mig við
megnið af vinýlnum en dauðsé eftir því í dag.
Andinn
A andlega sviðinu er fátt uppbyggilegra en
að hafa skýra framtíðarsýn og ekki láta lífið
slugsast áfram eins og aumingi. Gott er að
hafa í takinu a.m.k. þrjár ástæður til að hlak-
ka til. Hjá mér hefur stefnan lengi verið sett
á sól og sumaryl í Kyrrahafinu. Til að efla til-
hlökkunina kom ég mér upp korti af Kyrra-
hafinu og hef keypt öll National Geography
í Kolaportinu þar sem minnst er á eyjar í
Kyrrahafinu. Til að vera ávallt viðbúinn hef
ég einnig sankað að mér hawaii-skyrtum og
ukulele-gíturum. Það er aldrei að vita nema
maður lendi í að þurfa að spila sig út úr hættu-
legum aðstæðum á Puka Puka.
Segulbaridyypóla í fyrlrtiídtíiuyiörfuin
Musteri AAammons númer tvö er risið á höfuðborgarsvæðinu.
Smáralind var opnuð fyrir rúmum tveim vikum með pompi og prakt
og hefur sú opnun vakið mikla athygli þótt sjálfsagt sé sú athygli
ekki alltaf á þeim nótum sem eigendur hafa ætlast til. Fókus hefur
komist að meiru.
Kynferðislegur kapítalismi
íslenski hluti internetsins hefur verið rauðglóandi frá
því nokkrum dögum fyrir opnun Smáralindar. Astæðan er
ekki sú að fólk hafi verið að segja hvað öðru frá nýjum er-
lendum og eksótískum stórverslunarkeðjum með útlenskur
verðum. Né heldur nýju bíói eða bandarískri veitinghúsa-
keðju sem þakkar guði að það sé föstudagur, alla daga vik-
unnar. Nei. Það sem kom netsjúkum frónverjum, sem og
öðrum, í stafrænt stuð var útlitshönnun Smáralindar. A
loftmyndum mátti sjá að þetta musteri frjálsrar verslunar
var hannað í líki reðurs svo ekki fór á milli mála.
VlÐSKIPTAVINIR EÐA SÆÐISFRUMUR
Það eru sjálfsagt flestir orðnir þreyttir á þeirri umræðu.
En nú hefur nýju lífi verið blásið í vangaveltur um hönn-
un Smáralindarinnar. 1 vikunni rak ljósmyndari Fókuss
augun í óvenjulegt mynstur á gólfi verslunarmiðstöðvar-
innar. Það er staðsett í þeim hluta byggingarinnar sem lík-
ist mest kónginum á lífrænum tvífara hennar. Við nánari
athugun líkist mynstrið óneitanlega sáðfrumu sem virðist
vera í miðjum klíðum við að hlykkjast út úr byggingunni,
akkúrat í rétta átt.
Hvað það er sem veldur því að þetta gerist allt saman er
ekki gott að segja en hér eru samt nokkrar kenningar sem
upp hafa komið um ómeðvitaðar, að sjálfsögðu, meiningar
með þessu mikla mannvirki. Ein er sú að óafvitandi eru
viðskiptavinir verslanna Smáralindar litlar sætar sæðis-
frumur sem eru að pumpa auknu lífi í dalandi efnahags-
kerfi Islands með aukinni neyslu. Onnur kenning gæti
verið eitthvað á þá leið að sá eða þeir sem teiknuðu húsið séu
ómeðvitað örgustu kommar og hafi alveg óvart sýnt fram á
hvernig kapítalisminn misþyrmir óæðri enda verkalýðsins
með því að láta hann eyða launum svita síns í óþarfa hluti
einstaklingshyggjunnar í stað þess að leggja þá til samfélags-
ins og heildarinnar.
Fokkmerki Satans
Þriðja kenningin gæti haft eitthvað með að aðstandendur
byggingarinnar hafi lesið yfir sig af Freudískum kenningum
og séu uppteknir af reðuröfund, fallusartáknum og öðrum
ósóma sem Freud kom inn í orðabækur heimsins. Langsótt
kenning er sú að Satan hafi verið puttana ( málunum og að
Smáralindin sé ekkert annað en langvarandi og vel lagaður
fingur handa Guði, á góðri íslensku, fokkmerki. Síðan getur
náttúrlega bara vel verið að þetta hafi allt saman verið alger-
lega óvart. Sama hver ástæðan er þá ber að fagna svo vel
formaðri byggingu sem Smáralind og njóta veru hennar hér
næstu árhundruðin, því hún er jú til marks um viðreisn (s-
lensks viðskipta- og efhahagslífs.
OllJRHI-T.IIJU IlVi'ltS» \GSI\S
Hvernig er ég svona? Er ég að gera eitthvað
fyrir þig. Ég get alveg gert meira, sjáðu...
... sést nokkuð í þú veist, þarna, æi það sem
allar segulbandsspólur eru með. Ég er dálítið
viðkvæm fyrir því...
r
"N
... og pabbi maður. Hann yrði alveg
sjóðsegulbandvitlaus.
A NOS f
f ó k u s
8
26. október 2001