Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2001, Side 15
5
Unnur Steinsson
Það má fullyrða það að í
öllum kosningum um feg-
ursta fólkið undanfarin ár
hafi Unnur Steinsson
verið ofarlega á blaði. Hér
er hún efst kvenna og á
það vel skilið. Unnur er
ein af þessum ódauðlegu,
það er ekkert sem dregur
úr fegurð hennar.
6
Linda Pétursdóttir
Linda Pétursdóttir er líka ein af þessum ódauðlegu. Hún
er áberandi f þjóðfélaginu og starfsins vegna heldur hún sér
í góðu formi. Hvemig ætti fyrrum alheimsfegurðardrottning
svo sem nokkum tímann að geta hætt að vera falleg? Spyrj-
ið bara Fjölni.
7
Racnheiður Elín Clausen
Það er ekki að ástæðulausu að Ragnheiður var fengin
til að sýna tignum erlendum gestum land og þjóð fyr-
ir nokkrum árum. Ekki einasta er Ragnheiður bráð-
myndarleg heldur er hún einstaklega sjarmerandi.
Allir þekkja hana af skjánum en í eigin persónu
hækkar stúlkan um nokkra flokka. Þetta er orðið á
götunni og þessu vill fólk kynnast.
8
Ólafur Racnar Grímsson
Forseti vor er líklegast sá
óvæntasti á listanum. Stað-
reyndin er samt sú að fólk
kann að meta virðuleikann
sem fylgir forsetaembættinu.
Það fílar að sjá hann með sam-
ankrepptar hendumar af-
henda börnum hvatningar-
verðlaun. Margir vonast jafn-
vel til að Dorrit hefði aldrei
komið til sögunnar. Athyglis-
verðasta staðreyndin við það að
Ólafur kemst á listann er
samt sú að hann fékk 40% at-
kvæða sinna ffá karlmönnum.
10
Racnheiður Guðnadóttir
Öskubuskan á listanum er Ragnheiður
Guðfinna Guðnadóttir. Ragnheiður sigraði
glæsilega í keppninni um Ungfrú Island en
varð að hætta við keppnina út af því að hún
var með barni. Og hvað hún var enn glæsi-
leg þegar hún tilkynnti um óléttuna. Þá sá
fólk fyrst hve náttúran var gjafmild á þetta
eintak. Islensk fegurð af bestu gerð.
9
Þórhallur Gunnarsson
Þarna er máttur sjónvarpsins hvað augljósastur. Þórhallur hefur
verið fastagestur í sjónvarpi undanfarin ár og hefur fengið kvenþjóð-
ina að skjánum. Hann þykir einstaklega sjarmerandi (sumir segja
meira að segja klígjulega sjarmerandi) og fólk kaupir hvað hann er
að segja, eða heldur það alla vega. Hann er kannski ekki að segja
neitt merkilegt en er fólk nokkuð að hlusta hvað sjónvarpsfólkið seg-
ir í raun?
Þessi
komust
ekki á blað
Það er alltaf for-
vitnilegt að bera
saman nýjar og
gamlar kannanir
um smekk landans
á kynþokkafuilu
fólki. Að þessu
sinni eru þónokkur
andlit sem virðast
dottin út sem oft
hafa trónað ofar-
lega í könnunum
sem þessari. Þótt
eitt atkvæði hafi
hlotið þá er vert að
geta Stefáns Jóns
Hafstein hér þar
sem í síðustu könn-
un sem Helgarblað
DV gerði fyrir
nokkrum misserum
trónaði þessi skör-
ungur á toppi lista
kynþokkafuUra
kalla. Annar dreng-
ur sem oft hefur
verið að bítast um
toppsæti vinsælda-
lista sem þessa er
Ingvar E. Sigurðs-
son. Hann kemst
ekki á blað og sjálf-
sagt einhver konan
sem lyftir brúnum
yfir því. Ólöf Rún
Skúladóttir er
hvergi nefnd, auk
þess sem dalandi ár-
angur Völu Flosa-
dóttur virðist
einnig draga úr
kynþokka hennar.
Bergþór Pálsson
virðist ekki eiga
upp á pallborðið hjá
landanum og sömu
sögu má segja um
yfirmann íslensku
kirkjunnar Karl
Sigurbjömsson
enda kynþokki
hans látið á sjá í
þeim gusti sem leik-
ið hefur um guðs-
manninn. Sendi-
herrahjónin Jón
Baldvin og Bryn-
dis Schram hafa oft
verið vinsæl í
draumórum íslend-
inga en eru það
ekki að þessu sinni.
Sama má segja um
borgarstjórann
Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur.
Poppdívan Móeið-
ur Júníusdóttir er
annað fómarlamb
flöktandi skoðana
Frónbúa á kyn-
þokka, sem og
glæsikvendiö
Tinna Gunnlaugs-
dóttir. Fegurðar-
samkeppnin Ungfrú
Island.is virðist ekki í takt við þjóðarsálina því sigur-
vegari síðustu keppni, Kolbrún Helgadóttir er hvergi
nefnd í könnun Fókuss. Einhver kynni að halda að
Margrét Rós Gunnarsdóttir, fréttaskutla á Skjá ein-
um, ætti heima hér á opnunni en svo er ekki. Auk
þess sem einhver
hefði haldið að
Ragnhildur Gísla-
dóttir hefði komist
á lista þar sem hún
geislar sem aldrei
fyrr. Að lokum er
Björgvin Hall-
dórsson eitthvað
aö dragast aftur úr í
kynþokkakapp-
hlaupinu. Fleiri
verðugir kandídat-
ar komust ekki á
lista en svona er
þetta með árstíða-
bundnar sveiflur í
fegurðarskyni kald-
lyndra klakabúa.
26. október 2001 f ó k u s
15