Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2001, Blaðsíða 20
Stuöbandalaginu á Mótel Venusl, Borgarnesi.
Allir velkomnir, einnig nærsveitungar nær og fjær.
í kvöld kl. 20 verður kvikmyndin Princess Diaries frumsýnd
í Kringlubíói, Bíóborginni, Borgarbíói Akureyri og Nýja bíói
Keflavík. Myndin kemur úr smiðju Walts Disneys en með
aðalhlutverk fara Julie Andrews, Anne Hathaway, Hector
Elizondo og Mandy Moore og leikstjóri er Garry Marshall.
fllvöru Öskubuskusaga
Myndin fjallar um hina feimnu
unglingsstúlku Miu Thermopolis
sem kemur frá San Francisco.
Hún lifir hefðbundnu lífi en það
tekur skyndilega stakkaskiptum
þegar hún fær óvænt þær fréttir
að hún sé prinsessa og hennar bíði
kóróna og allt tilheyrandi í land-
inu Genovíu. Mia hefur þá mikið
nám með hjálp ömmu sinnar,
drottningarinnar Clarisse Ren-
aldi, til þess að læra að hegða sér
líkt og prinsessu sæmir. Þeim
kemur þó ekki alveg saman því
Miu langar ekkert til þess að segja
skilið við sitt hefðbundna og vana-
fasta líferni á meðan ömma henn-
ar reynir að sannfæra hana um að
henni beri skylda til að læra að
hegða sér líkt og hefðarfrú. Hún
vill ala hana upp á nýtt til þess að
hún geti tekið við stjórnartaumun-
um í þessu fjarlæga landi. Mia
stendur því frammi fyrir erfiðustu
ákvörðun líf síns. Annað hvort
segir hún skilið við allt sem heitir
fjölskylda og vinir til þess að axla
þá miklu ábyrgð sem því fylgir að
verða prinsessan af Genovíu eða
hún afneitar konunglegum upp-
runa sínum.
Með hlutverk Miu fer Anna
Hathaway en ömmu hennar,
drottninguna, leikur óskarsverð-
launahafinn Julie Andrews. Sag-
an sem myndin er byggð á er skrif-
uð af Meg Cabot en handritið ger-
ir Gina Wendkos. Leikstjórn er í
höndum Garry Marshalls og fram-
leiðendur eru Debra Martin
Chase, Mario Iscovich og engin
önnur en söngkonan Whitney
Houston.
í kvöld sýna Smárabíó og Stjörnubíó kvikmyndina Evil
Woman með þeim Jason Biggs, Jack Black og Steve Zhan
í aðalhlutverkum.
Köld eru kvermardð
Darren Silverm-
an, Wayne Le Fessi-
er og J.D. McNm
gent hafa verið bestu
vinir síðan þeir
muna eftir sér. Þeir
voru saman í barna-
skóla þar sem þeir
voru algerir lúðar
sem stöðugt var gert
grín að og þeir héldu
áfram að vera vinir
þegar í gagnfræða-
skóla var komið en
þar lék Wayne með
fótboltaliði skólans,
J.D. var lukkudýr
þess og Darren að-
alklappstýran.
Núna er skólagöngu
þeirra lokið í bili en þeir hafa stofnað hljómsveitina
Diamonds in the Rough sem flytur lög eftir uppá-
haldstónlistarmanninn þeirra, Niel Diamond. Þeg-
ar þar er komið kynnist Darren hinni kynþokkafullu
Judith sem er eins konar Yoko Ono því hún kemur
inn í lif þeirra félaga með það markmið að skemma
vinskap þeirra og á endanum nær hún að brjóta
hljómsveitina upp. Wayne og J.D. reyna því að
koma Darren og gömlu kærustunni hans, Sandy,
saman og endur-
heimta þannig
vin sinn en Judith
hefur of sterk tök
á honum til þess
að það gangi upp.
Þeir ræna því
Judith og sviðsetja
dauða hennar með
von um að þá geti
Darren og Sandy
tekið saman aftur.
Allt fer svo að
sjálfsögðu á annan
endann.
Með hlutverk
Darrens fer Jason
Biggs sem lék í
American Pie og
Loozer en Wayne
er leikinn af Steve Zhan sem hefur helst unnið sér
það til frægðar að leika í kvikmyndum á borð við
That Thing You Do og You’ve Got Mail. J.D. er svo
leikinn af Jack Black sem hefur leikið í t.d. Enemy
of the State, I Still Know What You Did Last Sum-
mer og Bongwater. Amanda Peet fer svo með hlut-
verk Judithar en Sandy er leikin af Amöndu Det-
mer. Myndin er frumsýnd í kvöld kl. 20 í Smárabíói
og Stjömubíói.
Nú er mætt galvösk danska kvikmyndin „Italiensk for beg-
yndere“ og eins og nafnið gefur til kynna gerist hún að
miklu leyti á ítölskunámskeiði.
Enn ein Dogma-mynd...
Sögusviðið er smábær í Dana-
veldi þar sem fyrmefnt ítölsku-
námskeið fer fram og eins og er
nú smábæjarbúa von og vísa þá
er mikið um einsemd og ástarþörf
á svæðinu. Fyrir vikið umbreytist
ósköp eðlilegt ítölskunámskeið í
samkomustað einmana sálna sem
vilja finna sér rómantískan föru-
naut, helst varanlegan. Upp úr
þessu spretta ýmsar uppákomur,
misprenthæfar, og ýmislegt
skemmtilegt gerist sem fær góð-
vinkonu okkar hana Gróu á
Leiti til að masa viðstöðulaust...
Myndinni er leikstýrt af hinni
galvösku Lone Scherfig sem hef-
ur getið sér gott orð fyrir verk sín
allar götur síðan hún útskrifaðist
frá Den Danska Filmskole árið
1984. Lone þessi þykir hið mesta
ólíkindatól og ku vera með
húmorinn í lagi þannig að hver
veit nema hún sé með þessari
mynd að yrkja um eigin lífs-
reynslu á (tölskunámskeiði endur
fyrir löngu... Hitt er svo annað
mál að mikið er látið með það að
myndin sé „löggild" „Dogma“-
mynd sem þýðir væntanlega að
enn einu sinni getur maður ekki
setið fremst í salnum á danskri
kvikmynd. Er það allt nema vel
og er þá heldur dregið úr! Meðal
leikara í nýju hristi-myndinni
eru Anders W. Berthelsen,
Jesper Vestergaard, Peter
Gantzler, Lars Kaalund og svo
er Ann Eleonora einnig á vappi
þama einhvers staðar...
•Popp
■ BOKK Á VEGUM UWGUSTAR I kvöld ver&a
haldnir rokktónleikar á vegum Unglistar í Tjamar-
bíói kl. 20. Fram koma hljómsveitirnar Lúna,
Kuai, Sofandi, Úlpa og Fidel en sérstök gesta-
hljómsveit er Castor frá Seyðisfir&i.
•K1 ú b b a r
■ BENNIA 22 Dj. Benni mætir í búriö á Club 22
á miðnætti og spilar framúrskarandi djammtón-
list aö hætti hússins alla nóttina. Frítt er inn til
klukkan eitt eftir miðnætti og handhafar stúd-
entaskírteina fá frrtt inn alla nóttina.
■ SPORTKVÖLD Á SPOIUGHT Allir mæta i
strigaskóm og meö svitaband því Dj. Sesar mun
sjá tii þess að það verði brjáluð stemning á
Spotlight.
■ STLIÐ Á PÍANÓBARNUM Dj. Gelr Flóvent í
búrinu á Píanóbamum. Ávallt með ferskasta og
besta hiphopið og r'n’b'-iö í bænum þótt víðar
væri leitað. Októbertilboö á veigum (Irtill á 300,
stór á 400). Aðgangur kr. 500 eftir kl. 12 á mið-
nætti.
•Krár
■ ÞOTULH>H> Á CATAUNU Hin stórgóða hljóm-
sveit Þotuliöið ætlar að halda uppi stemningunni
á Catalinu í Kópavogi í kvöld. Fritt inn.
■ BSG Á PLAYERS Reynsluboltarnir i BSG, Bó,
Sigga og Grétar, sjá um rokk og ról á Players.
■ BUFF Á yÍDALÍN Buff mættir aftur á Vídalín
og í enn betra formi en í gær.
■ CAFÉ AMSTERDAM Dj Þróstur FM-týpa af
guðs náð, mun halda uppi fjöri fyrir þá sem ætla
sér að koma á Café Amsterdam í kvöld.
■ FJÖR Á NELLYS Dj. U Chef sér um sveitta
stemningu á Nellys Café.
■ FÓSTBRÆÐUR Á CELTIC CROSS Föstbræík
urnir Gunnar Ólason og Ingvar Valgeirsson spila
og syngja fyrir gesti Celtlc Cross.
■ GOTT Á GRAND ROKK JEVER stemning á
Grand rokk. Alltaf sama góða verðið. alveg ein-
stök tilfinning fyrir sálartetrið, sem og budduna.
■ LAND&SYNIR Á GAUKNUM Hreimur og fé-
lagar í Landi&sonum halda eina af seinustu tón-
leikum sínum á Gauki á Stöng áður en Bandarik-
in leggjast að fótum þeirra.
■ NICE Á VEGAMÓTUM N'iceTtvöld á gleði-
staðnum Vegamótum. Plötusnúðurinn Hólmar
gefur landanum smakk af partíi sem hann skipu-
leggur i New York. Margeir verður honum til halds
og trausts.
■ S&H Á GULLÓLDINNI Stuðdúettinn Sven-
sen&Hallfunkel eru mættir enn á ný á Gullöld-
ina.
■ SIXTIES Á KAFFl REYKJAVÍK í kvöld heldur
hljómsveitin Sixties aftur uppi fjörinu á Kaffi
Reykjavík. Gott stuð.
■ STEFÁN P OG ANNA VIL Knæpan Ásgaröur
býður upp á magnaða skemmtidagskrá um helg-
ina en Hljómsveit Stefans P mun leika fýrir gesti.
Altt verður að sjálfsögöu flæðandi eins og venju-
lega. Hver veit nema ástsælasta söngkona
landsins, Anna Vilhjálmsdóttir, mæti á svæðið?
•Böll
■ STÓRDANSLEIKUR í ÁSGARPI, GLÆ$IBÆ
Það verður mikið um dýröir í Ásgarði í Glæsibæ í
kvöld þegar nokkrir af hressari tónlistarmönnum
okkar stíga á svið og fagna vetri. Hljómsveit Stef-
áns Pé er mætt að nýju og að þessu sinni ásamt
Hallbergi Svavarssyni og Önnu Vilhjálms. Það
má svo sannarlega búast við stuði og stemningu
þarna í kvöld.
•Klassík
■ SUNGK) INN í SKAMMDEGIÐ Sungið Inn i
skammdegið með Jóhönnu V. Þórhallsdóttur og
góðum gestum í tónlistarhúsinu Ými fer fram í
kvöld, kl. 20.
•S veitin
■ BUTTERCUP Á HÓFN Stuðgrúppan Buttercup
mætir á Höfn í Hornafirði. Frá kl. 20-22 verður
spilað í félagsmiöstöðinni Þrykkjan fyrir ungling-
ana á staönum. Seinna um kvöldið verður slegið
upp stórdansleik á Hótel Höfn þar sem fram fer
lokahóf Sindra í fótboltanum. Bailið er opið öllum
sem eru orðnir 18 ára.
■ PJ SKUGGABALDUR Á CAFÉ MENNINGU.
DALVÍK i kvöld spilar DJ Skuggabaldur fleiri gulF
na smelli á Café Mennlngu. Ekki missa af
þessu!
■ DÚNDURSTUÐ í HHJFELU Stuðguttarnir í í
svórtum fötum spila sig sveitta á nýja staðnum
Iðufelli í Laugarási, Biskupstungum.
■ FORSOM Á HM-KAFFI Hljómsveitin ForSom
verður I stuði á HM-kaffi á Selfossi.
■ HUNANG Á N-1BAR Hljómsveitin Hunang sér
um fiöriö á N-1 Bar í Reykjanesbæ.
■ JÓN FORSETI Skemmtikrafturinn Jón forseti
heldur uppi fjörinu á Búöarklettum Borgamesi í
kvöld.
■ MÓTEL VENUS Herbie G. leikur í kvöld ásamt
■ NÝDÓNSK í SJALLANUM Hinir ódauölegu
popparar i Nýdanskri slá ekkert af í Sjallanum,
Akureyri.
■ STUÐ Á BREHHNNI Árneska poppstuðsveitin
Á móti sól rokkar feitt á Breiöinnl, Akranesi.
■ STUÐ í EGILSBÚÐ Evróvisjön-veislan heldur
áfram i EgHsbúð, Neskaupstað, eftir vel lukkaða
frumsýningu um seinustu helgi. íslensk og erfend
evrólög tekin með trompi. Dansleikur eftir sýn-
ingu með Kristjáni Euro og Spútnik. Miðaverð
1800 kr. og 18 ára aldurstakmark.
■ SÓLDÓGG í HÖLUNNI Stuðboltarnir i SóF
dögg rokka feitt í Höllinni, Vestmannaeyjum.
■ ÁLAFOSS FÓT BEZT Hljómsveitin Acoustic
leikur fyrir dansi í kvöld á hinum rómaða
skemmtistað, Álafoss föt bezt.
•Leikhús
■ BEÐH> EFTIR GOÐOT Hilmir Snær Guðnason
og Benedikt Erlingsson fara á kostum í leikritinu
Beðið eftir Godot sem sýnt verður í kvöld á íjöi-
um nýja sviðsins í Borgarieikhúsinu. Hefst sýn-
ingin kl. 20 og örfá sæti eru laus.
■ BLESSAÐ BARNALÁN Leikfélag Akureyrar
sýnir um þessar mundir verkiö Blessað barnalán
eftir Kjartan Ragnarsson og veröur þaö sett upp
í kvöld, kl. 20.
■ BLJÐFINNUR Barnaleikritiö Blíðfinnur eftir Þor-
vald Þorsteinsson, í leikgerð Hörpu Arnardóttur,
verður sýnt í dag, kl. 14, á stóra sviöi Borgarieik-
hússins.
■ PAUÐADANSINN í kvöld frumsýnir Borgar-
leikhúsiö verkiö Dauðadansinn eftir August
Strindberg í samvinnu við Strindberghópinn á litla
sviðinu og hefst sýningin kl. 20.
■ ENGLABÓRN I kvöld sýnir Hafnarfjaröarieik-
húsið verkið Englaböm eftir Hávar Sigurjónsson
og hefst sýning kl. 20. Athygli er vakin á því að
leikritið er stranglega bannað börnum.
■ KRISTNIHALD Leikritið Kristnihald undir Jökli
eftir Halldör Laxness verður sýnt i kvöld, kl. 20, á
stóra sviði Borgarieikhússins. Árni Tryggvason
fer á kostum í hlutverki Jóns primusar en tónlist
við verkið er eftir Quarashi.
■ SYNGJANPI í RIGNINGUNNI Leik og
söngverkið Syngjandi í rigningunni verður sýnt i
kvöld í Þjóðleikhúsinu á stóra sviði þess, kl. 20.
Meðal þeirra sem taka þátt í sýningunni eru
Selma Björnsdóttir og Stefán Karl Stefánsson.
■ VIUI EMMU Leikritið sívinsæla, Vilji Emmu,
verður sýnt í kvöld, kl. 20, á stóra sviði Þjóðleik-
hússins. Höfundur er David Hare.
•Kabarett
■ LADDI OG GEIRFUGLARNIR í LEIKHÚS-
KJALLARANUM í kvöld býður Laddi, e.þ.s. Þór-
hallur Sigurðsson, upp á frábæra skemmtun við
allra hæfi og hefst borðhald kl. 20 og sjálf sýning-
in ki. 22. Eftir sýninguna munu Geirfuglarnir leika
fýrir dansi fram eftir nóttu. Húsið verður opnað
fyrir gesti kl. 23.30 og aðgangseyrir er eins og
svo oft áöur 1000 krónur.
■ Ó BORG MÍN BORG Sýningin Ó borg mín borg
verður sýnd i kvöld kl. 20 á Hótel Borg. Kristján
Kristjánsson, KK, og Magnús Eirríksson sjá um
fjörið ásamt gestum.
•Fyrir börnin
■ PG MAGIC SHOW Á BROADWAY PG Magic
show, meö galdramanninum Pétri Pókus, er frá-
bær fjölskylduskemmtun. Sýningin í dag hefst
klukkan 15 og er miðaverð 1800 krónur fýrir fulf
orðna en 1200 krónur fyrir börn.
•Opnanir
■ GLOÐARAUGA Á HRINGTORGI i dag, kl. 15.
verður afhjúpað listaverkiö Glóðaraugaeftir Har-
ald Jónsson. Verkið verður á horni Suðurgötu og
Hringbrautar, gegnt hringtorginu við Þjóðminja-
safnið. Glóðarauga er unnið í nánu samstarfi við
vegfarendur, gatnamálastjóra og lögregluna í
Reykjavik.Verkið mun aðeins verða sýnilegt tíma-
bundið á þessum stað en I framtíðinni á það hins
vegar eftir að birtast í öðrum myndum víðs vegar
um höfuðborgina. Við afhjúpun verksins verður
boðið upp á léttar veitingar og eru allir velkomnir.
.Glóðarauga" er hluti í sýningaröðinni Ustamað-
urinn á hominu en aðstandendur hennar eru
myndlistarmennirnir Gabriela Friöriksdóttir og
Ásmundur Ásmundsson.
■ STÓRVIÐBURPIR í USTASAFNI ISLANPS
Opnuð verður yfirlitssýning á verkum Gunnlaugs
Scheving í dag í Ustasafni íslands. Markmið sýn-
ingarinnar er að gefa yfrrl'rt yfir alian listferil Gunn-
laugs Scheving (1904-1972) og gefur þar að líta
fiölda verka sem aldrei hafa verið sýnd opinber-
lega áður. Á sýningunni á veggjum safnsins eru
um 90 myndir Gunnlaugs, olíumálverk, teikning-
ar og tréristur frá árunum 1928-1970, en auk
þess eru sýndar myndir hans i stafrænum gagna-
grunni. Alls á Listasafn íslands tæplega 2000
verk eftir Gunnlaug (málverk, teikningar, vatnslita-
myndir, skissubækur oggrafikverk). Gunnlaugur
er af þeirri kynslóö sem fram kom í íslenskri
myndiist á fióröa áratugnum. Ný myndefni urðu
þessari kynslóð áleitin: Maðurinn við vinnu sína,
götumyndir og nánasta umhverfi. í list Gunnlaugs
er maðurinn ávallt í öndvegi, hvort sem um er aö
ræða stórsniðnar sjávarmyndir, draumkenndar
sveitalífsmyndir eða samsett þjóðsagnaminni.
Sýningin á verkum Gunnlaugs Scheving stendur
yfir i öilum sölum safnsins til 9. desember. í tik
efni sýningarinnar kemur úr bókin „Gunnlaugur
20
f ó k u s 26. október 2001