Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2001, Blaðsíða 26
34
MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2001
I>V
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Jónmundur Guðmarsson
efsti maður á lista sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi
9P ára__________________________
Ingrid K. Baldvinsdóttir,
Hátúni lOa, Reykjavík.
75 ára__________________________
Jón Kárason,
Holtagötu 1, Akureyri.
Sveinn Jónsson,
Hjallalandi, Sauöárkróki.
70 ára__________________________
Guðmunda Hjartardóttir,
Hrannarstíg 8, Grundarfiröi.
Tómas Kristjánsson,
Hraunbraut 32, Kópavogi.
60 ára _________________________
Guðný Kristrún Óskarsdóttir
kennari,
áður Suðurhvammi 4, Hafnarfiröi,
nú Sólheimum 27, Reykjavík.
Hún verður aö heiman.
Elín Kristjánsdóttir,
Hlíðarbyggö 1, Garöabas.
Lísbet Bergsveinsdóttir,
Sigurhæö 13, Garöabæ.
Tryggvi Magnússon,
Eskihlíð 31, Reykjavík.
Ulrich Schmidhauser,
Ægisíöu 60, Reykjavík.
50 ára__________________________
Anna Pálína Magnúsdóttir,
Stillholti 14, Akranesi.
Esther Guðmundsdóttir,
Reykjanesvegi 2, Njarövík.
Guðfinna Reimarsdóttir,
Hátúni 2, Keflavík.
Helga Geirmundsdóttir,
Starengi 10, Selfossi.
Helgi Hermannsson,
Kaupvangsstræti 14, Akureyri.
Katrín Guðjónsdóttir,
Háholti 7, Keflavík.
Magnús Eric Kolbeinsson,
Lerkigrund 7, Akranesi.
Magnús G. Guðmundsson,
Oddgeirshólum 4, Selfossi.
Steinþór Steinþórsson,
Girkihvammi 11, Kópavogi.
40 ára__________________________
Arturo Dionisio Caamic,
Vesturgötu 53b, Reykjavlk.
Ásþór Guðmundsson,
Hafnarbraut 24, Höfn.
Dagbjört Magnúsdóttir,
Birkiteigi 14, Keflavík.
Kristín Guðmundsdóttir,
Blöndubakka 13, Reykjavlk.
Fólk í fréttum
Jónmundur Guömarsson, stjórn-
málafræðingur og fjárfestingar-
stjóri, fékk flest atkvæði í prófkjöri
sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi
vegna sveitarstjórnarkosninganna.
Starfsferill
Jónmundur fæddist í Reykjavík
8.3. 1968 en flutti tveggja ára á Sel-
tjamarnesið og ólst þar upp. Hann
lauk stúdentsprófi frá MR 1988, BA-
prófi í heimspeki og stjórnmála-
fræöi frá HÍ 1992 og M.Phil.-prófi í
alþjóðastjórnmálum frá Oxford-há-
skóla á Englandi 1994.
Jónmundur stundaði almenn
verkamannastörf á sumrin með
námi, var framkvæmdastjóri kvik-
myndafyrirtækisins Veni-Vidi
1994-95, hóf störf við menntamála-
ráðuneytiö 1995, var þar deildar-
stjóri frá 1996 og jafnframt verk-
efnastjóri nýrrar aðalnámskrár
grunn- og framhaldsskóla og nýrrar
skólastefnu Björns Bjarnasonar, var
aðstoðarmaður menntamálaráð-
herra 1998-99, rekstrarstjóri Virtual
State Production Ltd 1999-2001 og er
fjárfestingarstjóri íslenska hugbún-
aðarsjóðsins frá 2001.
Jónmundur var kjörinn í bæjar-
stjórn Seltjarnamess 1998, er for-
maður skólanefndar frá sama tíma
og forseti bæjarstjórnar frá 2001 og
situr í stjórn Strætó bs. fyrir hönd
Seltjarnamesbæjar. Hann var full-
trúi íslands í stýrinefnd Evrópu-
ráðsins um fjölmiðla 1998-2000, í
nefnd á vegum Norrænu ráðherra-
nefndarinnar um stjómmálarann-
sóknir, í stjórn Fulbright-stofnunar-
innar á íslandi 1999-2000, tengiliður
menntamálaráðuneytis við Einka-
væðingarnefnd ríkisstjórnarinnar
1999-2000 og hefur setið í fjölda op-
inberra nefnda.
Jónmundur hefur skrifað fjölda
greina um hagmál og stjórnmál.
Hann þýddi ritin Hugleiðingar um
hagmál, eftir Ludwig von Mises,
útg. af Stofnun Jóns Þorkálssonar
1991, og Maðurinn og ríkisvaldið,
eftir Herbert Spencer, kemur út á
vegum Hins íslenska bókmenntafé-
lags á næstunni.
Fjölskylda
Jónmundur kvæntist 22.8. 1992
Margréti Gísladóttur Blöndal, f.
19.4. 1968, húsmóður. Hún er dóttir
Gísla Blöndal, raftæknifræðings hjá
Orkuveitum, og Guðrúnar Hlínar
húsmóður Þórarinsdóttur, skóla-
meistara á Akureyri, Bjömssonar
og Margrétar Eiriksdóttur.
Börn Jónmundar og Margrétar
eru Þórarinn, f. 7.7. 1990; Pálína
Ingibjörg, f. 26.2.1997; Ragnhildur, f.
28.9. 1998; Sveinn, f. 30.3. 2001.
Systkini Jónmundar eru Halldóra
Guðmarsdóttir, f. 8.12. 1976, nemi
við HR;Pétur Kristinn Guðmars-
son, f. 25.12. 1978, nemi við HR.
Foreldrar Jónmundar eru Guð-
mar Marelsson, f. 30.5. 1945, sölu-
stjóri við Heildverslun Daníels
Ólafssonar, og Pálína Ingibjörg Jón-
mundsdóttir, f. 25.6. 1942, mennta-
skólakennari.
Ætt
Kjörforeldrar Guðmars: Marel
Magnússon, sjómaður og síðar
lengst af vörubílstjóri á Þrótti, einn
þeirra sjómanna sem saklausir voru
grunaðir um njósnir af breska hern-
um í Baltica-málinu, og Guðbjörg
Pálsdóttir húsmóðir.
Pálína Ingibjörg er dóttir Jón-
mundar, skipstjóra í Reykjavík,
Gíslasonar, trésmiðs og formanns í
Reykjavík, Guðmundssonar, b. í
Jórvik í Flóa, bróður Arnþrúðar,
ömmu Kristins í Geysi, afa Kristins
Björnssonar, forstjóra Skeljungs.
Guðmundur var sonur Hannesar, b.
í Stóru-Sandvík, Guðmundssonar,
bróður Guðrúnar, langömmu Sal-
varar, ömmu Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar. Móðir Guðmundar
var Vigdís Steindórsdóttir, b. í
Auðsholti, Sæmundssonar og Arn-
þrúðar Nikulásdóttur, systur Guð-
nýjar, ættmóður Kaldaðamesættar-
innar, langömmu Guðmundar, afa
Guðna Jónssonar prófessors, föður
Bjarna prófessors. Móðir Gísla var
Guðríður Sæmundsdóttir, hrepp-
stjóra í Auðsholti, Steindórssonar,
bróður Vigdísar.
Móðir Jónmundar skipstjóra var
Ástrós Jónasdóttir, b. á Læk í Flóa,
bróður Þorvalds, föður Ágústs,
alþm., fóður Guðna ráðherra. Jónas
var sonur Bjöms, b. á Bollastöðum,
Björnssonar, b. á Læk, Þorvaldsson-
ar, b. í Auðsholti, bróður Knúts,
langafa Hannesar þjóðskjalavarðar
og Þorsteins hagstofustjóra, Þor-
steinssona og Tómasar Guðmunds-
sonar skálds. Þorvaldur var sonur
Björns, b. í Vorsabæ á Skeiðum,
Högnasonar, lrm. á Laugarvatni,
Björnssonar, bróður Sigríðar, móð-
ur Finns Jónssonar biskups,
langafa Ole póstmeistara, fóður Vil-
hjálms Finsen, stofnanda og rit-
stjóra Morgunblaðsins.
Móðir Pálínu var Halldóra Þor-
steinsdóttir, sjómanns í Stykkis-
hólmi, bróður Elís í Vatnabúðum,
afa Hólmfríðar Gísladóttur, fyrrv.
formanns Ættfræðifélagsins. Þor-
steinn var sonur Gísla, b. á Vatna-
búðum, Guðmundssonar, b. í Naust-
um, Guðmundssonar. Móðir Guð-
mundar var Guðríður Hannesdóttir,
Bjarnasonar og Guðrúnar Gríms-
dóttur. Móðir Guðrúnar var Oddný,
systir Magnúsar, sýslumanns í Búð-
ardal, langafa Kristínar, ömmu
Gunnars Thoroddsen. Oddný var
dóttir Ketils, pr. i Húsavík, Jónsson-
ar og Guðrúnar Magnúsdóttur, syst-
ur Skúla fógeta. Móðir Þorsteins
var Katrín Helgadóttir, b. á Hrafn-
kelsstöðum, Jóhannessonar og Sess-
elju Björnsdóttur frá Mánaskál.
Móðir Sesselju var Elín Guðmunds-
dóttir, systir Sigurðar, langafa Val-
týs Stefánssonar, ritstjóra Morgun-
blaðsins, afa Stefáns Thors, skipu-
lagsstjóra ríkisins. Systir Valtýs var
Hulda skólastjóri, móðir Guðrúnar
Jónsdóttur, formanns Menningar-
málanefndar Reykjavíkurborgar.
03
■OD
c/>
O
550 5000
XXD
03
'03
jn
550 5727
Þverholt 11,
105 Reykjavfk
Sjötíu og fimm ára
Ólafur Friðrik Ögmundsson
fyrrv. frystihússtjóri
Ólafur Friðrik ögmundsson,
fyrrv. frystihússtjóri, Álftarima 24,
Selfossi, er sjötíu og fimm ára í dag.
Starfsferlll
Ólafur fæddist á Kornhóli í Vest-
mannaeyjum og ólst upp í Eyjum.
Hann lauk barnaskólaprófi í Eyjum,
fór síðan þrettán ára til sjós og
stundaði sjómennsku næstu sjö ár-
in.
Ólafur og kona hans hófu sinn
búskap í Vík í Mýrdal 1947. Þau
bjuggu að Felli í Mýrdal á árunum
1953-64 en fluttu þá aftur austur í
Vík. Þau fluttu til Homaíjarðar 1987
og áttu þar heima til 1994 er þau
fluttu á Selfoss þar sem þau hafa bú-
ið síðan.
Ólafur stundaði akstur hjá Kaup-
félagi Skaftfellinga 1947-76, hóf störf
hjá frystihúsinu í Vík 1976 og var
þar frystihússtjóri til 1987, var vél-
stjóri við frystihúsið Skinney á
Homafirði 1987-94 er hann flutti á
Selfoss.
Fjölskylda
Eiginkona Ólafs er Guðbjörg Guð-
laugsdóttir, f. 27.6. 1929, húsmóöir.
Hún er dóttir Guðlaugs Gunnars
Jónssonar, f. 8.2. 1894, d. 24.4. 1984,
pakkhúsmanns hjá Kaupfélagi Skaft-
fellinga i Vík í Mýrdal, og k.h., Guð-
laugar Matthildar Jakobsdóttur, f.
24.8. 1892, d. 6.2. 1938 húsmóður.
Börn Ólafs og Guðbjargar eru ög-
mundur Ólafsson, f. 23.5. 1940, vöru-
bílstjóri í Vík í Mýrdal, en kona
hans er Helga Halldórsdóttir og eiga
þau þrjú böm; Alda Guðlaug Ólafs-
dóttir, f. 25.6.1949, bankastarfsmaður
í Reykjavík, en maður hennar er
Kjartan Kjartansson og eiga þau þrjú
börn; Lilja Guðrún Ólafsdóttir, f.
20.9.1950, matráðskona í Hveragerði,
en maður hennar er
Björn I. Friðriksson og
eiga þau fjögur börn;
Erna Ólafsdóttir, f. 2.11.
1953, bóndi í Pétursey í
Mýrdal en maður henn-
ar er Eyjólfur Sigurjóns-
son og eiga þau fimm
böm; Guðlaugur Jón
Ólafsson, f. 18.9. 1955,
skrifstofumaður og á
hann þrjú börn; Baldur
Ólafsson, f. 6.9. 1960,
iðnaðarmaður á Hvolsvelli, en kona
hans er Kristín Erna Leifsdóttir og
eiga þau þrjú börn; Halla Ólafsdóttir,
f. 19.12. 1961, bóndi í Þórisholti í
Mýrdal, en maður hennar er Guðni
Einarsson og eiga þau fjögur börn;
Jón Geir Ólafsson, f. 12.12. 1964,
bóndi í Gröf í Skaftártungum, en
kona hans er Ólöf Ragna Ólafsdóttir
og eiga þau þrjú börn.
Systkini Ólafs: Jón Sveinbjörn Ög-
mundsson, f. 3.8. 1924, d. 19.7. 1945;
Margrét Ögmundsdóttir, f. 9.8. 1925,
húsmóðir í Reykjavík;
Sigurður Ögmundsson,
f. 18.12. 1928, d. 25.4.
1987, skipstjóri í Vest-
mannaeyjum; Ágúst Ög-
mundsson, f. 6.4. 1932,
vélstjóri í Danmörku;
Guðbjörg Ögmundsdótt-
ir, f. 11.10. 1933, hús-
móðir í Vik í Mýrdal;
Sigurbjörn Ögmunds-
son, f. 29.5. 1935, trillu-
sjómaður í Hrísey; Mál-
fríður Ögmundsdóttir, f. 25.11. 1939,
starfsmaður Tryggingastofnunar í
Reykjavík; Þóra Björg Ögmundsdótt-
ir, f. 16.6.1944, verslunarmaður á Sel-
fossi; Jón Ögmundsson, f. 18.9. 1945,
vélsmiður við Búrfellsvirkjun, bú-
settur á Rauðalæk í Landsveit.
Foreldrar Ólafs voru Ögmundur
Ólafsson, f. 6.6.1894, d. 29.9.1995, vél-
stjóri í Vestmannaeyjum, og k.h.,
Guðrún Jónsdóttir, f. 17.5. 1899, d.
16.3. 1992, húsmóðir.
Ólafur er að heiman.
lát
Marta Kristjánsdóttir, Munkaþverár-
stræti 2, Akureyri, lést á Fjóröungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri sunnud. 4.11.
Hörður Ólason, Bólstaöarhliö 44,
Reykjavík, lést á Landspitala Hringbraut
sunnud. 28.10. Útförin fór fram I kyrr-
þey aö ósk hins látna.
Anna Pálmadóttir, Skriöustekk 12,
Reykjavík, lést á heimili sínu 4.11.
'’orgeröur Bjarnadóttir, Árskógum 6,
f Reykjavík, lést á líknardeild Landspítal-
ans I Kópavogi laugard. 3.11.
Þóra Stefánsdóttir, áöur Vallargerði 14,
Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð aöfaranótt sunnud. 4.11.
Ketill Jónsson, fyrrv. verslunarmaöur,
Heiöarbóli 57, Keflavík, lést á hjúkrun-
arheimilinu Víöihlíö 5.11.
Georg Bernhard Michelsen bakara-
meistari, Miöleiti 1, lést 3.11.
Merkir Islendingar
Vilhjálmur Finsen, stofnandi og ritstjóri
Morgunblaðsins, fæddist í Reykjavík 7.
nóvember 1883. Hann var sonur Ole Peter
Finsen, póstmeistara þar, og s.k.h., Mar-
íu Þórðardóttur, háyfirdómara Jónas-
sen. Ole Peter var bróðir Hannesar
Steingríms Finsen, landfógeta og amt-
manns í Færeyjum, síöar stiftamt-
manns í Danmörku, föður Niels
Ryberg Finsen, nóbelsverðlaunahafa í
læknisfræði. Ole Peter og Hannes voru
synir Ólafs landsyfirdómara, sonar
Hannesar, biskups í Skálholti, Finnsson-
ar, biskups í Skálholti Jónssonar.
Vilhjálmur lauk stúdentsprófi i Reykja-
vík 1902, cand.phil.-prófi í Kaupmannahöfn
1904 og las málfræði og hagfræði um skeið.
Hann varð blaðamaður við Politiken í Kaup-
mannahöfn 1906 og þáði þá hollráð ritstjór-
ans varðandi dagblaðarekstur á íslandi.
Hann starfaði hjá Marconi-félaginu
1907-1913 og varð þá fyrsti lofskeyta-
maður á Norðurlöndum. Hann stofnaði
Morgunblaðið 1913, ásamt Ólafi
Björnssyni í ísafold. Rekstur blaðsins
gekk fyrst erfiðlega en Vilhjálmur og
fyrsti blaðamaður hans, Ámi Óla,
festu blaðið í sessi með áreiðanlegum
erlendum fréttum 1914, við upphaf fyrri
heimsstyrjaldar. Vilhjálmur ritstýrði
Morgunblaðinu til 1922 og varð seinna
sendiherra íslands í Svíþjóð. Þrjá ævisögu-
legar bækur eftir hann komu út 1953-1958.
Vilhjálmur lést 11. október 1960.
Vilhjálmur Finsen
Selma Siguröardóttir veröur jarösungin
frá Seljakirkju miövikud. 7.11. kl.
13.30.
Útför Slobodan Bakic verður gerö frá
Dómkirkjunni miövikud. 7.11. kl. 15.00.
Árni Eyþórs Valdimarsson, fyrrv. skip-
herra, Flyörugranda 18, veröur jarösung-
inn frá Fossvogskirkju 7.11. kl. 13.30.
Jón Jörundsson, Seilugranda 10,
Reykjavlk, veröur jarösunginn frá Foss-
vogskirkju miövikud. 7.11. kl. 15.00.
Egill Marteinsson raffræöingur, Háaleit-
isbraut 137, Reykjavlk, verður jarösung-
inn frá Dómkirkjunni 7.11. kl. 15.00.
Unnur Ágústsdótir Schram veröur
jarðsungin frá Dómkirkjunni I Reykjavlk
föstud. 9.11. kl. 13.30.
Rósa Pálsdóttir, Grandavegi 47, veröur
jarðsungin frá Laugarneskirkju fimmtd.
8.11. kl. 13.30.