Alþýðublaðið - 25.03.1969, Side 4

Alþýðublaðið - 25.03.1969, Side 4
4 Alþýðublaðið 25. marz 1969 s i ÓIAFUR JÓNSSON SKRIFAR UM DAGBLÖÐIN 5. ALÞÝÐUBLAÐIÐ AÐ J^lþýðublaðið er minnsta dagblað- ið í Reykjavík, liefur minnsta útbreiðslu og lægst auglýsingahlut- fall, og hefur það ekki farið du!t að blaðið á við fjárhagslega erfið- leika. að etja að því skapi; þeirri frétt ier öðru hverju slegið upp í öðrum blöðum að nú sé Alþýðu- blaðið í þann veginn að gefast upp á sínu stríði. Alþýðublaðið er enn- fremur í nokkru minna broti en hin blöðin, dálkhæð 34 cm en er 36— 40 cm í hinum blöðunum, en ekk- ert tillit er tekið til þess við taln- ingu >lesmálsins hér á eftir heldur allt efni talið í heilum dálkum sem áður; blaðið var 16 síður daglega þessa viku en frá telst vikuleg út- varpsdagskrá sem fylgir því á laug- ardögum. Þegar athugun sú var gerð i á blöðunum og efni þeirra sem nú hefur verið lýst að mestu, var Alþýðublaðið í þann veginn að breyta í nokkru hátturn sínum, og valdist til athugunar fyrsta vika blaðsins í hinum nýju sniðum, 4/3—9/3. 'Má vera að efnisyfirlit blaðsins 'á meðfylgjandi töflu gefi að nokkru til kynna þann mun sem orðinn er á Alþýðublaðinu og væntanlega á eftir að verða meiri og gleggri þegar fram í sækir. A því kann framtíð blaðsins að velta bvort í fyrsta lagi breytingar þessar séu til þess fallnar að gera blaðið verulega frábreytt hinum blöðun- um í einhverju því sem máli skipt- ir, og í öðru lagi hvort sá munur sé líklegur til að laða aúkinn kaup- endafjölda að Alþýðublaðinu og með honurn væntanlega auknar auglýsingatekjur. I £ins og taflan um efni blaðsins ber með sér eru fréttir minni í Alþýðublaðinu en öðrum blöð- ■» um, einungis 19% af öllu efni þess, en eru 24—31% af efni annarra blaða. lafnframt var auglýsingahlut- fall blaðsins til muna lægra en ann- arra blaða, 17%, en er 25—31% annars staðar, og raunar furðulega lágt þessa viku; fast efni blaðsins og íþróttafréttir þess voru hins veg- ar í tiltölulega mjög svipuðum snið- : um og gerist í hinum blöðunum; fasta efhið 12% af öllu efni þess, en það er annars 10—14% af efni blaðanna; íþróttafréttir 4%, en þær eru annars 3—5% af öllu efni blað- anna. Um hið fasta efni blaðanna er þess að geta að kjarni þess er binn sami í þeim öllum: útvarps- dagskrá, framhaldssaga, dagbók með fundar- og messuboðum, trú- lofunar og hjúskaparfréttum og öðr- um nytsömum fróðleik, myndasög- ur og skrýtlur. Dagbækur blaðanna veita íesendum hagkvæma þjónustu sem 'þau rækja raunar mjög svo misjafnlega, en líka gætir tilhneig- ingar að lífga upp á hana með ýmis konar skemmtiefni; af því tagi eru grófar og klúrar innlendar skopmyndir í Morgunblaðinu og stundum í Tímanum ásamt venju- legum skrýtlum og skrýtlumynd- um; Alþýðublaðið vanrækir dag- bókina að mestu, en birtir daglegan spaugdálk og spaugsama kveðlinga, og þar er ennfremur sérstök fram- haldssaga og myndasaga fyrir börn. Barnaefni -nwn annars birtast viku- lega í Alþýðublaðinu og minnsta kosti alloft í Þjóðviljanum, en ó- reglulega eða alls ekki annars stað- ar. En hið fasta efni blaðanna er sem sagt að verulegu leyti afþrey- ingar og skemmtiefni. Fréttir voru minni í'AIþýðublað- inu en öðrum blöðum og erlendar fréttir svo.. sem engar þessa viku; hins vegar birti blaðið nokkuð af þýddum fréttafrásögnum og grein- um úm alþjóðamál auk innlendra fréttagreina og frásagna. Sé þetta efni taíið saman með sama hætti og í hinum blöðunum áður reynist innlerrt fréttaefni samtals 111 dálk- ar eða 24% af öflu efni blaðsins, en erlent 35 dálkar eða 8%; greinaefni Alþýðublaðsins, talið með sama hætti og í hinum blöðunum er þá 34%, 157 dálkar, en er 18—27% í öðr- um blöðum. En þessi greining er raunar ónákvæm og ófullnægjandi, og verður það enn ljósara af Al- þvðublaðinu en hinum blöðunum. Breyting sú sem Alþýðublaðið reyn- ir að gera á -sér er sem sé ekki síð- ur fólgin í meðferð efnisins en efn- isvali beinlínis: blaðið leggur mest upp úr Iéttu og læsilegu efni, velur sér efni ekki síður til afþreyingar og dægradvalar en vegna fréttnæmis, og leggur áherzlu á létta og læsilega meðferð fréttanna. Aherzla blaðsins á léttar fréttir og fréttameðferð kann raunar að koma betur fram að jafnaði en þessa viku sem hörmu- legar slysafréttir yfirgnæfðu önnur fréttaefni tvo daga af sex, en hið létta innlenda efni er jafnan fyrir- ferðarmikið inni ! blaðinu, svo sem í opnu þess með viðtölum og frá- sögnum af útvarpi, sjónvarpi, kvik- myndum, leikhúsum og léttum við- tölum — allt efni sem er samið og birt af einhverju timabæru tilefni og þykir kannski „fréttnæmt“ að vissu rnarki, en er engu síður ætlað til jórturs fremur en. fylli. Kann að vera áhorfsmál með köflum hvað teljast megi innlencl frétt eða frétta- frásögn og hvað létt innlent* efni, hvaða erlend fréttagrein eða frásögn og hvað létt erlent efni, slúður af svipuðu tagi og Vísir og Tímjnn á- stunda. Svipuð efni koma vissulega fyrir í öllum hinum blöðunutn sem öll leggja meira eða minna upp úr skemmti- og afþreyingarefni, en á- herzla Alþýðublaðsins á létt efni og efnismeðferð er það sem sterkast mótar svip þess eftir breytinguna. Bæði efnisval, efnismeðferð og um- "brot blaðsins er að þokast nær hátt- urn erlendra kvöldblaða en önnur íslenzk blöð hafa farið, þó Alþýðu- blaðið komi enn út að morgni dags. nú innlent fréttaefni og létt innlent efni talið saman annars vegar en erlendar fréttir og frásagn- ir og létt erlent efni hins vegar, reynist innlenda efnið samanlagt 154 dálkar, 33% af öllu efni blaðsins, en hið erlenda 66 dálkar, 14%, og hygg ég að þessar tölur veiti rétt- asta hugmynd um efni og efnis- hlutföll blaðsins með tilliti til þess sem áður sagði um meðferð efnis- ins. Eiginlegt greinaefni Alþýðu- blaðsins verður þá ekki jiema 19% af efni þess, 86 dálkar, eða því nær hið sama sem í Vísi. Þessi efnisþátt- ur, greinar um þjóðmál og menn- ingarmál og önnur greinaefni blaðs- ins, er hins vegar ósnortinn að kalla af þeim breytingum sem orðið hafa á blaðinu. Væri þó ærið svigrúm fyrir ný og frábrugðin viðhorf, nýj- ungar í éínisvali og meðferð hins alvörugefnara greinaefnis íslenzkra blaða eins og nánar verður vikið að. En Alþýðublaðið virðist litlu póli- tískara blað en Vísir, pólitískar frétt- ir litlar og óverulegar þessa viku. Greinar blaðsins um þjóðmál eru þó að langmestu leyti af svipuðum toga og hinna blaðanna, þingræður og greinar flokksmanna af eldri og yngri gerð auk hinna reglulegu forustugreina, en aukaleiðara vant- ar og vikulegt yfirlit yfir þjóðmál- in í sama stíl og hin blöðin birta; koma stuttir þættir ritstjóra og ráð- herra í stað þess í Alþýðublaðinu; þessi skrif virðast alls ekki mótuð af jafn einstrengingslegu flokks- og áróðurssjónarmiði og gerist í hin- um blöðunum nema Vísi. En sé þetta efni talið saman reynist það um það bil 32 dálkar, eða 7% af öllu efni blaðsins, en sama hlutfall var einungis 3% í Vísi. Hins má spyrja um Alþýðublaðið ekki síður en Vísi hvort blaðið reynist þá á- hugaverður skoðanamiðill á ein- hverjum öðrum sviðum en stjórn- málasviðinu. [ |nnlent fréttaefni og pólitík þeirra er það sem sterkast mótar svip dagblaðanna, slíkur sem hann er, óg þarf það engum á óvart að koma: það er tilgangur blaðanna að flytja fréttir, bera pólitískan boð- skap. Og stytta lesendum sínum stund: mjög verulegur hluti af efni þeirra er sem fyrr segir margs konar þjónustu og afþreyingareíni beint og óbeint. Alþýðublaðið, Tím- inn, Vísir virðast öll reyna að móta innlendan fréttaflutning sinn á sinn sérstaka hátt, hvert um sig með áherzlu á sina sérstöku efnisþætti, og það er þessi viðleitni sem helzt mótar þessum blöðum sérstakan svip; Alþýðublaðið leggur mest upp úr léttu fréttaefni og beinni afþrey- ingu, Vísir greiðri frásögn daglegra tíðinda, Tíminn almennum innlend- um fréttum með áherzlu á málefn- um samvinnuhreyfingar og bænda, oft með pólitískum undirtón. Þjóð- viljinn mótast hins vegar einkum af hinum pólitíska fréttaflutningi, og vanrækir önnur fréttaefni að því skapi; en svipfar Morgunblaðsins mótast að sínu leyti mest af stærð blaðsins og fyrirferð án þess sérstak- ur áhugi komi fram á meðhöndlun og tilreiðslu hinna innlendu frétta umfram annað efni, ritháttur oft furðu slappur og álappalegur ekki síður á frumsömdu efni en þýðing- um. En hin blöðin eiga vissulega

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.