Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 Viðskipti__________ Umsjón: Vidskiptabladiö SAMfélagið gerir stóra tölvuleikjasamninga SAMfélagið hefur gert einkasamn- inga við hin þekktu tölvuleikjafyrir- tæki Infogrames, Disney Interactive, Lego Media og BBC Multimedia um út- gáfu og dreifmgu tölvuleikja á íslandi. Að sögn Birgis Sigfússonar, fram- kvæmdastjóra Sammyndbanda, má segja að þetta séu fyrstu skref SAMfé- lagsins inn á tölvuleikjamarkaðinn en það hefúr til þessa einbeitt sér að út- gáfu kvikmynda í kvikmyndahús, á myndböndum og á DVD. „Við vorum reyndar með eitt ör- smátt umboð í íyrra en það er fyrst núna sem segja má að við séum að láta að okkur kveða á tölvuleikjamarkaðn- um. Með tilkomu þessara fjögurra um- boða mun SAMfélagið strax ná ákveð- inni fótfestu og markaðshlutdeild á tölvuleikjasviðinu, auk þess sem félag- ið mun auka veg sinn á íslenska af- þreyingarmarkaðinum enn frekar," sagði hann í samtali við Viðskiptablað- ið. Meðal tölvuleikja, sem SAMfélagið hefur nú fengið umboð fyrir, má nefna hinn geysivinsæla Civilization frá In- fogrames, Teletubbies frá BBM Multi- media, Harry Potter frá Lego Media og Atlantis: The Lost Empire frá Disney Interactive. Tveir síðastnefndu leik- imir eru byggðir á bíómyndum sem Sambíóin taka jafnframt til sýn- inga. Hefur Harry Potter þegar verið frumsýnd en Atl- antis verður tekin til sýninga nú um jólin. „Með því sjáum við fram á að ná fram samlegðaráhrifúm milli þessara tveggja deilda, og að þeir sem sjái myndirnar fái áhuga á tölvuleikjunum og öfugt,“ sagði Birgir. SAMfélagið samanstendur af Sam- bióunum, Sammyndböndum og Sam- fjölfóldun en auk tölvuleikjaumboð- anna er félagið með einkasamninga á útgáfú kvikmynda á myndböndum og DVD frá Wamer Bros, Walt Disney, Paramount, Universal, Dreamworks og fleiri aðilum. Enn fremur er félagið með dreifmgarrétt á kvikmyndum í kvikmyndahús frá fyrirtækjunum Wamer Bros, Buena Vista (Disney), UIP (Universal og Paramount) og fleiri. Árni Samúelsson. 28,5% tekjusamdráttur hjá Heklu á fyrstu sex mánuðum ársins 2001: 143 milljóna króna tap á rekstri Eimskip styrkir Umhyggju Undanfarin ár hefur Eimskip, eins og mörg önnur fyrirtæki, sent jólakort til viðskiptavina sinna og ýmissa samstarfsaðila. f stað þess mun félagið nú leggja kr. 500.000 í Styrktarsjóð Umhyggju. Hlutverk Styrktarsjóðs Umhyggju er að styrkja langveik börn og fjöl- skyldur þeirra sem orðiö hafa fyrir verulegum fjárhagsörðugleikum vegna veikindanna. Umhyggja er fé- lag sem vinnur að bættum hag sjúkra barna og fjölskyldna þeirra. í félaginu starfa foreldrar langveikra bama og fagfólk innan heilbrigðis- kerfisins. Umhyggja er jafnframt regnhlífarsamtök 13 foreldrafélaga langveikra bama, þ. á m. eru Ein- stök böm, Neistinn, foreldrafélag hjartveikra barna, SKB, styrktarfé- lag krabbameinssjúkra barna o.fl. „Við þökkum Eimskip kærlega fyr- ir stuðninginn og hlýhug í garð fé- lagsins,“ sagði Dögg. Káradóttir, framkvæmdastjóri Umhyggju, við móttöku styrksins. Ríflega 143 milljóna króna tap varð af rekstri Heklu hf. á fyrstu sex mánuðum ársins samkvæmt rekstrareikningi félagsins sem nú liggur fyrir i kjölfar skuldabréfaút- boðs félagsins. Þar kemur enn frem- ur fram að heildarrekstrartekjur Heklu-samstæðunnar fyrstu sex mánuði ársins drógust saman um 28,5%. Þetta kom fram í Viðskipta- blaðinu er kom út i morgun. Heild- arrekstrartekjur voru 3.977 milljón- ir króna en á sama tímabili árið 2000 voru þær 5.562 milljónir kr. Meginskýringin á lækkun rekstrar- tekna er sú að á fyrstu sex mánuð- um þessa árs hefur orðið verulegur samdráttur í sölu á nýjum bifreið- um hér á landi og mikil verðsam- keppni hefur verið á milli markaðs- aðila eins og segir í skýringum skráningarlýsingar skuldabréfaút- boðsins. Þess má geta að 68% af sölutekj- um félagsins verða til við sölu á nýj- um og notuðum fólksbifreiðum og því hefur samdráttur í sölu bifreiða bein áhrif á afkomu félagsins. Enn fremur má geta þess að 10% tekn- anna koma frá þjónustudeild bíla- sviðs, tæpur fimmtungur tekna (19%) kemur frá vélasviði og sala á lækningatækjum og raftækjum stendur undir um 2% tekna. Ýmis umboðslaun eru um 1% af tekjun- um. Rekstrargjöld fyrstu sex mánuði ársins lækkuðu um 22% og voru 4.103 milljónir. Rekstrartap fyrir fjármunaliði var 126 milljónir króna en á sama tímabili árið áður var rekstrarhagnaður 318 milljónir króna. Rekstraráætlanir Heklu hf. fyrir árið 2001 gera ráð fyrir að tap verði um 230 milljónir kr. á árinu. Þá má geta þess að eigið fé félagsins nam 1.361 milljón króna í lok tíma- bilsins samkvæmt árshlutareikn- ingi. Mettúr hjá Akraberginu - skipið væntanlegt til breytinga á Akureyri Hluthafafundur Hluthafafundur íTæknivali h/f, (AcoTæknivali h/f) kt. 530276-0239, Skeifunni 17, Reykjavfk verdur haldinn miövikudaginn 19. desémber 2001 kl. 17:00 íSkeifunni 17, ffundarsal f kjallara. Daqskrá 1. Tillaga um breytíngu á 1. gr. samþijkkta félagsins, nafn félagsins uerði AcoTækniual h/f. Dagskrá hluthafafundar og tillaga liggur frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til afhendingar. Stjórn Tæknivals h/f AcoTSaeknival Skeifunni 17 - Sími 550 4000 milljónir Eitt skipa Sam- herja, Akraberg FD- 10, landaði á föstu- dag metafla eftir túr í Barentshafi, þegar það kom að landi með rúm 472 tonn af frosnum afurðum, aðallega þorski, að verðmæti um 220 lenskra króna. Skipið, sem var um sjö vikur á veiðum, landaöi í Immingham í Englandi og var það í fyrsta sinn sem skipið hefur landað þar. Að sögn Gústafs Baldvinssonar, fram- kvæmdastjóra sölu- og markaðs- sviðs Samherja, er ástæða þess að ákveðið var að landa þar sú aö Sam- herji er að keppast við að koma fisk- inum á markað fyrir jól og því hefði verið ákveðiö að sigla þangað. Akraberg er gert út frá Færeyjum í samvinnu Samherja og færeyskra aðila. Eru allir skipverjar í áhöfn skipsins færeyskir. Aflinn í þessum mettúr fékkst í rússneskri lögsögu, austarlega á veiðisvæðinu í Barentshafi, en að sögn Högna Han- sens skipstjóra voru fá skip eftir á þeim slóðum þegar Akrabergið hélt Sígrænt eðaltré í haesta gaeðaflokki frá skátunum prýðir nú þúsundir íslenskra heimila. » 10 ára ábyrgð <* Eldtraust »•12 stœrðir, 90 - 500 cm » Þarf ekki að vökya Stálfótur fylglr » íslenskar leiðbeiningar » Ekkert barr að ryksuga f* Traustur söluaðili f* Trufiar ekki stofublómin f* Skynsamleg fjárfesting SmáralM, 1. Ihse® vðS Bandolag Íílenskra skóto heimleiðis. Akrabergið er væntanlegt til Akur- eyrar á allra næstu dögum þar sem fyr- ir dyrum standa breytingar á milli- dekki sem unnar verða hjá Slippstöð- inni. Aö þeim loknum heldur skipið aftur til Færeyja en ekki er búist við því að skipið haldi aftur í Barentshafið fyrr en í febrúar og þá í norska lögsögu. Að sögn Högna Hansens er framundan árstimi þar sem allra veðra sé von og því ekki eftirsóknarvert aö vera á þessum sióðum næstu vikurnar. Lífeyrissjóður bænda og LL í samstarf í gær undirrituðu Lífeyrissjóður bænda og Landsbankinn-Landsbréf samning um eignastýringu. Lands- bankinn-Landsbréf munu sjá um stýringu hluta verðbréfasafns sjóðs- ins að fjárhæð um 2,6 milljarðar króna frá næstu áramótum. Fram kemur í tilkynningu sem fé- lögin sendu frá sér vegna þessa að með samningi þessum vonast Líf- eyrissjóður bænda til þess að aukin fjölbreytni fáist í eignasafn sjóðsins, ávöxtun batni og góð áhættudreif- ing náist vegna mismunandi að- ferðafræði eignastýringafyrirtækja. Jafnframt verði rekstrarkostnaði sjóðsins haldið í lágmarki. Landsbankinn-Landsbréf fylgja fyr- irfram ákveðnum heimildum til fjár- festinga og er ávöxtun mæld reglulega og borin saman við viðmið. Lands- bankinn-Landsbréf hafa gert nokkra samninga af þessu tagi á undanfömum árum og hefúr fyrirtækið byggt upp víðtæka reynslu á þessu sviði. I>V HEILDARVIÐSKIPTI 2.868 m.kr. Hlutabréf 269 m.kr. Húsbréf 922 m.kr. MESTU VIÐSKIPTI © íslandsbanki 55 m.kr. © Össur 29 m.kr. © Marel 27 m.kr. MESTA HÆKKUN © íslenski hlutabréfasjóðurinn 4,4% © Landssíminn 4,1% © Hlutabréfasj. Búnaðarbanka 3,2% MESTA LÆKKUN © Íslandssími 6,7% © Marel 3,7% © Hlutabréfamarkaðurinn 3,6% ÚRVALSVÍSITALAN 1.098 stig Breyting O +0,02% Mesta styrking krónunnar á einum degi Krónan hefur aldrei styrkst eins mikið og hún gerði í gær eftir að nú- verandi fyrirkomulag millibanka- markaöar með gjaldeyri var tekið í gagnið í júlí 1997. Krónan sem end- aði í 148,95 við lokun markaðar á mánudaginn styrktist um 2,76% eða um 400 punkta í gær og endaði í 144,95 stigum. Heildarviðskipti gær- dagsins námu 12,5 milljörðum króna. Krónan hefur styrkst um 4,1% síðustu daga miðað viö lág- markið í síðustu viku en gengið fór þá hæst í 151,25 stig. Fram kemur i upplýsingum frá gjaldeyrisborði íslandsbanka að að- alástæða þessarar styrkingar er sennilega viðræður ASl, SA og stjórnvalda um að styrkja krónuna og lækka verðbólgu. Það sem hefur mest vægi í umræðunni eru tillögur ASÍ um aö ríkið taki erlent lán og greiði niður innlend lán. Einnig má telja aö fréttir af sölu Landssímans hafi hjálpað til. Viðskipti með krónuna hafa verið vel yfir meðallagi síðustu daga. Gengi krónunnar var óbreytt í fyrradag í 7 milljarða viðskiptum en hún styrktist á föstudaginn í 13 milljarða viðskiptum. Vextir í BNA í 40 ára lág- mark í dag Fyrsti samdrátturinn í áratug í Bandaríkjunum gæti leitt til þess að seðlabanki Bandaríkjanna lækkaði stýrivexti bankans niður í 1,75% í viðleitni sinni til að auka eftirspum í hagkerfinu. Ef af yrði yrðu þetta lægstu stýrivextir bankans í 40 ár, eða frá því í júlí 1961 þegar Kennedy var við völd. Bankinn hefur nú þegar lækkað vexti tíu sinnum á þessu ári, þar af voru fjórar vaxtalækkanir eftir 11. september. Mesta atvinnuleysi í 6 ár og áframhaldandi erfiðleikar í fram- leiðslu munu leiða til þess að Alan Greenspan seðlabankastjóri lækki vexti á morgun samkvæmt könnun Bloomberg-fréttastofunnar meðal 57 sérfræðinga á markaði. GENGH) KAUP SALA flÍDollar 104,550 105,080 IsSHpund 150,820 151,590 l*lkan. dollar 66,700 67,120 SS’Dónsk kr. 12,5690 12,6380 EBNorskkr 11,6910 11,7550 ESsœnsk kr. 9,9810 10,0360 HHn. mark 15,7401 15,8347 SjFra. franki 14,2672 14,3529 UÍBelg. ftanki 2,3199 2,3339 E3 Sviss. franki 63,3800 63,7300 i CShoII. gyllini 42,4677 42,7229 T^Þýskt matk 47,8500 48,1375 ' í lh. líra 0,04833 0,04862 j BAust. sch. 6,8012 6,8421 j i: .‘Port. escudo 0,4668 0,4696 ; • jSpá. peseti 0,5625 0,5658 I 1 * Ijap. yen 0,83190 0,83690 I B lírskt pund 118,830 119,544 SDR 132,4700 133,2600 HÍECU 93,5864 94,1488

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.