Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 11 r>v Norðurland ^ Niðurstöður fjárlaga fyrir árið 2002: Ahyggjuefni fyrir FSA - sagði Halldór Jónsson, forstjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri DV-MYND GK Ráöherrann mættur Jón Kristjánsson heilbrigöisráöherra var mættur á ársfund FSA í gær og ávarpaöi samkomuna. Halldór Jónsson, forstjóri Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri, sagði á ársfundi sjúkrahússins í gær að fjárlög næsta árs, sem afgreidd hefðu verið á Alþingi, væru vissulega áhyggjuefni fyrir starfsemi FSA. „Gert er ráð fyrir flötum niður- skurði sem nemur 1% eða 25 milljón- um og verðlagshækkanir, sem ekki voru bættar á yfirstandandi ári, flytj- ast óbættar til næsta árs og virka í reynd sem flatur niðurskurður," sagði Halldór og honum var greini- lega ekki skemmt yfir niðurstöðum fjárlagafrumvarps Alþingis. „Fjárveiting til nýbyggingar er lækkuð úr 35 milljónum í 10 milljón- ir. Er sú lækkun ekki í neinu sam- ræmi við það samkomulag sem gert var í desember í fyrra um flýtifjár- mögnun við Islenska efðagrein- ingu,“ sagði Halldór. Hann sagði ljóst að fjárveitingar næsta árs lækkuðu að raungildi ef ekki tækist að finna leiðir til að styrkja rekstur- inn og tryggja áframhaldandi upp- byggingu þjónustunnar. „Sjúkrahúsið er langstærst þeirra sjúkrahúsa sem eru utan Reykjavík- ur og er ætlað mikilvægt hlutverk í heilbrigðisþjónustu á Norður- og Austurlandi og á sumum svæðum á landsvísu. Sjúkrahúsið er sér- greinasjúkrahús og varasjúkrahús landsins alls. Það er því nauðsyn- legt að fjárveitingar til sjúkrahúss- ins séu í samræmi við þá starfsemi og þá þjónustu sem sjúkrahúsinu er ætlað að veita á hverjum tima. Fjórðungssjúkrahúsíð á Akureyri þyrfti að gera ráð fyrir aukinni starfsemi á næsta ári. Við hljótum að velta fyrir okkur hvað gerist ef þjónustan sem óskað er eftir er ekki veitt á FSA. Svarið við þessu er ein- falt: Þjónustan er og verður í boði í Reykjavík, innan og/eða utan veggja sjúkrahúsa þar. Við hljótum þvi að leita allra leiða til þess að sú þjónusta sem mögulegt er að veita á FSA verði þar í boði og okkur sé gert kleift íjárhagslega að standa undir henni,“ sagði Halldór. Ársfundurinn i gær var fyrir árið 2000 en það ár varð 39,2 milljóna króna halli á rekstri FSA en þá er ekki tekið tillit til aukafjárveitingar að fjárhæð 41,4 milljónir króna. Á árinu var fjöldi sjúklinga 5.873, skurðaðgerðir voru tæplega 3.500 og fæðingar 441. Komur á slysadeild voru um 9.300. Stöðuheimildir voru 461 en meðaltal setinna staða 493. Á yfirstandandi ári stefnir í nokkum halla af rekstri sjúkrahússins en hann skýrist eingöngu af auknum kostnaði vegna hvíldarákvæða í samningum EES, mikilla kostnaðar- hækkana, gengisbreytinga og hækk- unar launakostnaðar. -gk Frá Raufarhöfn. Sparisjóður Þórshafnar og nágrennis: Ekki opnað á Raufarhöfn - en stefnt að opnum á Kópaskeri í lok janúar Slökkviliðið á Akureyri: Vill tækjabíl Slökkviliðið á Akureyri hefur tví- vegis á nokkrum dögum orðið að beita klippum til að ná slösuðu fólki út úr bifreiðum eftir mjög harða árekstra en tækjabíll slökkviliðsins er orðinn mjög gamall og úr sér genginn þannig að þeir sem starfa á honum gætu vel hugsað sér betra vinnutæki. „Við erum að berjast í því að fá nothæfan björgunarbil undir klipp- urnar en það gengur hægt, því mið- ur,“ segir Tómas Búi Böðvarsson, slökkviliðsstjóri á Akureyri. „Við erum með í þetta gamlan sjúkrabíl sem er orðinn mjög þreyttur. Bíllinn hefur mjög slæma aksturshæfileika og við getum engan veginn fylgt sjúkrabilunum eftir á honum eins og þyrfti að gera. Við erum að horfa til þess að geta fengið góðan bíl í þetta verkefni," segir Tómas Búi. -gk Mettúr: 220 mil|jónir á 7 vikum í gærmorgun hófst löndun úr frysti- togaranum Akrabergi i Immingham í Englandi en Akraberg, sem gert er út frá Færeyjum í samvinnu Samherja hf. og færeyskra aðila, kom þá til hafnar með rúmlega 472 tonn af frosn- um afurðum, aðallega þorski, að verð- mæti um 220 milljónir íslenskra króna. Akraberg var 35 daga í veiði- ferðinni. Frá þessu var sagt á heimasíðu Samherja og þar sagði Gústaf Bald- vinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Samherja, að þetta væri í fyrsta skipti sem skipið landaði í Englandi. Akrabergið er væntanlegt til Akureyrar eftir nokkra daga. -gk „Við höfum ekki uppi nein áform um að opna útibú á Raufarhöfn eins og einhvers staðar hefur komið fram. Við ákváðum að opna útibú á Kópaskeri eftir að hafa fengið um þaö beiðni frá heimamönnum. Eftir að það var ákveðið vorum viö spurðir um Raufarhöfn en við sögö- um að það væri ekkert í skoðun aö opna þar. Við viljum að heimamenn hafi að því frumkvæði ef eitthvað slíkt á að gerast því við erum ekki að fara á þessa staði vegna þess að við teljum svo mikla gróðavon þar,“ segir Guðni Hauksson, sparisjóðs- stjóri Sparisjóðs Þórshafnar og ná- grennis. Guðni segir að smábið verði á að sparisjóðurinn opni á Kópaskeri. „Við ætlum að reka útibúið í hús- næði íslandspósts og vera í sam- vinnu við það fyrirtæki. Þeir eru nú á bólakafi í að afgreiða jólapóstinn og við munum bíða þar til þeim önnum lýkur. Eftir áramótin förum við síðan á fullt í flutninginn sem ég reikna með að taki 2-4 vikur þannig að í lok janúar ættum við að vera búnir að opna á Kópaskeri." Nokkuð hefur verið rætt um að mikill slagur muni verða milli Landsbankans og Sparisjóðsins í Öxarfirði en flutningur sparisjóðs- ins þangað kom i kjölfar þess að Landsbankinn tilkynnti um niður- skurð í starfsemi og mannahaldi og það var sveitastjórnin sem átti frumkvæðið að því að sparisjóður- inn opnar þar útibú. Menn hafa því gert því skóna að Öxarfjarðarhrepp- ur a.m.k. muni flytja viðskipti sín til sparisjóðsins og Guðni segir að það sé vissulega mikilvægt að ná sem mestum viðskiptum. „Það eru hins vegar engin skilyrði frá okkar hendi að einhverjir komi í við- skipti. Við ætlum hins vegar að sýna betri þjónustu en Landsbankinn og ná þannig til okkar viðskiptum," segir Guðni. -gk Fyrstu önn ÚA-skólans lokiö: Um þriðjungur starfsfólks á námskeiðum Höfuðstöövar Útgeröarfélag Akureyringa hf. Útgerðarfélag Akureyringa hf. réðst í það metnaðarfuUa verkefni á haustdögum að stofnsetja ÚA-skól- ann með það að markmiði að bjóða öllu landvinnslufólki sínu upp á úr- val af námskeiðum og var Símennt- unarmiðstöð Eyjafjarðar ráðin til aö hafa umsjón með skólanum. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Fyrstu önn skólans er lokið og var boðið upp á alls 30 námskeið fyrir ÚA og dótturfyrirtæki þess um ailt land. Um 30% af starfsfólki Út- gerðarfélagsins sóttu þessi nám- skeið sem að mati Katrínar Dóru Þorsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Símenntunarmiðstöðvarinnar, verð- ur að teljast mjög góð þátttaka. í ÚA-skólanum hafa verið í boði margvísleg námskeið þar sem starfsfólki hefur gefist tækifæri til þess að auka færni sína, bæði í leik og starfl. Námskeiðunum var skipt í „persónuleg námskeið" þar sem lögð var megináhersla á að styrkja stöðu þátttakenda í starfi en ekki síður í samfélaginu sem slíku. ÚA hefur greitt þessi námskeið niður um 60% og flestir eiga rétt á að sækja um styrk til sins stéttarfélags fyrir hinum hlutanum, þ.e. 40%, hafi þeir ekki þá þegar nýtt sér það. Hinn flokkurinn var „tómstunda- námskeið" og greiðir ÚA allt að 50% af þeim námskeiðum. Að sögn Katrinar Dóru er megin- markmiðið með ÚA-skólanum að byggja upp markvissari þekkingu innan fyrirtækisins og stuðla þannig að virkari þátttöku starfs- manna og aukinni samkeppnis- hæfni fyrirtækisins. -gk Notaðir bílar hjá Suzuki bilum hf. Suzuki Baleno Wagon 4x4 Skr. 5/98, ek. 51 þús. Verð kr. 1050 þús. Suzuki Baleno Wagon 4x4 Skr. 7/98, ek. 85 þús. Verð kr. 960 þús. Suzuki Jimny JLX 4x4 Skr. 6/00, ek. 28 þús. Verð kr. 1290 þús. Suzuki Jimny JLX 4x4 Skr. 5/99, ek. 47 þús. Verð kr. 1090 þús. Suzuki Vitara JLX, ssk. Skr. 9/95, ek. 105 þús. Verð kr. 990 þús. Suzuki Vitara JLX, bsk. Skr. 5/97, ek. 115 þús. Verð kr. 990 þús. Daihatsu Terios SX 4x4 Skr. 10/98, ek. 35 þús. Verð kr. 990 þús. Daihatsu Terios SX 4x4 Skr. 5/99, ek. 53 þús. Verð kr. 990 þús. Subaru Impreza 2,0 4x4 Skr. 11/99, ek. 31 þús. Verð kr. 1580 þús. Sjáðu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI ---................ SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17, simi 568-5100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.