Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Síða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001
Útlönd
DV
Ákærður fyrir hryðjuverk
Zacarias Moussaoui, marokkóskur
Frakki, hefur verió ákæröur fyrir
árásirnar á Bandaríkin í september.
Fyrsta ákæran
fyrir hryðjuverka-
árásirnar vestra
Bandarísk yfirvöld hafa ákært
franskan ríkisborgara af
marokkóskum uppruna, Zacarias
Moussaoui, fyrir aðild að hryðju-
verkunum í New York og Was-
hington 11. september síðastliðinn. í
þessari fyrstu ákæru vegna
árásanna er Moussaoui gefið að sök
að hafa lagt á ráðin með Osama bin
Laden, nítján flugræningjum og öðr-
um um að myrða þúsundir manna.
Réttað verður yflr hinum 33 ára
gamla Moussaoui í alríkisdómstóli í
Alexandriu í Virginíu en ekki í her-
dómstóli eins og Bush forseti hafði
lagt til að gert yrði við útlendinga
sem tengjast árásunum. Moussaoui
á yfir höfði sér dauðadóm.
Moussaoui, sem var flugnemi,
hefur verið í haldi sem vitni frá því
eftir hryðjuverkaárásirnar.
Ræddu kjarnorku-
og efnavopn við
Osama bin Laden
Tveir pakistanskir kjarnorkuvís-
indamenn, sem eru í haldi yfir-
valda, hafa viðurkennt að hafa rætt
vítt og breitt um kjamorku-, efna-
og sýklavopn við Osama bin Laden,
að því er bandaríska blaðið Was-
hington Post hafði í morgun eftir
pakistönskum embættismönnum.
Embættismennirnir sögðu að við-
ræðurnar hefðu verið á fræðilegum
grunni, eins og þeir komust að orði,
og engar visbendingar væru um að
þær hefðu leitt til framleiðslu vopna
af neinu tagi.
Vísindamennirnir, sem hafa ver-
ið í yfirheyrslum i tvo mánuði,
sögðu upphaflega að þeir hefðu hitt
bin Laden aðeins til að ræða við
hann um hjálparstarf í Afganistan.
Tvímenningarnir breyttu framburði
sínum hins vegar nýlega.
Liösmenn al-Qaeda sömdu um skilyrðislausa uppgjöf í gær:
Létu ekki sjá sig
á umsömdun tíma
Sprengjuflugvélar bandaríska hers-
ins, af gerðinni B-52, héldu í morgun
áfram árásum á skotmörk í fjalllendi
Tora Bora í suðurhluta Afganistans
og hófust þær klukkustund eftir að
frestur liðsmanna al-Qaeda-samtaka
Osama bin Ladens til að gefast upp
rann út klukkan 08.00 að staðartíma í
morgun. Liðsforingjar samtakannna
höfðu i gær samþykkt að gefast upp
fyrir andstæðingum sínum og leggja
niður vopn, en þegar ekkert hafði sést
til liðsmanna al-Qaeda á umsömdum
tíma var loftárásum haldið áfram.
Mohammed Lad, foringi hersveita
Norðurbandalagsins á svæðinu, sagð-
ist eftir árásirnar þó eiga von á því að
liðsmenn al-Qaeda gefist upp fyrr en
síðar. „Þeir gætu verið seinir fyrir, en
árásirnar í morgun ættu þá að ýta við
þeim. Þeir samþykktu i gær að gefa
sig fram í 20 til 40 manna hópum og
við erum tiibúnir að taka við þeim,“
sagði Lal og bætti við að samið hefði
verið um það að þeir kæmu vopnlaus-
I viöbragðsstöðu
Hermenn Noröurbandalagsins bíöa
þess aö hefja lokaárásina á
liössveitir ai-Qaeda-samtakanna.
ir að eftirlitsstöðvum Norðurbanda-
lagsins og þaðan yrðu þeir fluttir með
herbílum til þorpsins Agom, í næsta
nágrenni þar sem þeir verða vistaðir
til að byrja með.
Að sögn Lals hefur fréttamönnum
verið haldið frá helsta átakasvæðinu í
Tora Bora, en það sem eftir er af liðs-
sveitum al-Qaeda hefst nú við í gili í
nágrenni heilasvæðisins í Spin Gar í
Hvítufjöllum. „Við vitum ekki hvort
sprengjurnar í morgun lentu í gilinu,
en þaðan heyrðust þó miklar drunur
og skothvellir. Við vitum ekki enn þá
hvað er að gerast á svæðinu eða hverj-
ir hafa verið að skjóta," sagði Lal.
Mohammad Zaman, yfirmaður
varnarmála hjá Norðurbandalaginu,
sagði í morgun að ef liðsmenn al-Qa-
eda legðu ekki þegar niður vopn yrðu
þeir að taka afleiðingunum. „Þarna er
aðailega um arabíska liðsmenn sam-
takanna að ræða, sem geta aðeins
bjargað lífi sínu með því að gefast
skilyrðislaust upp. Við vitum ekki
enn hvað þeir eru margir, en þeir
verða síðan afhentir Sameinuðu þjóð-
unum, sem munu væntanlega dæma í
málum þeirra," sagði Zaman.
♦aamkvæmt könnun DV á siilu allra bóka vikuna 3. - 9. desember
REUTER-MYND
Fórnarlambanna minnst í New York
Sekkjapípuleikari úr rööum lögreglunnar í New York leikur lagiö Amazing
Grace á meöan slökkviliðsmenn og verkamenn viö rústir World Trade Center-
turnanna á Manhattan hlusta. Þrír mánuöir voru í gær frá árásunum.
Stríðsglæpadómstóllinn í Haag:
Milosevic ákærður
fyrir þjóðarmorð
Slobodan Milosevis,
fyrrum forseti Júgóslavíu
var í gær leiddur fyrir
stríðsglæpadómstól Sam-
einuðu þjóðanna í Haag í
þriðja sinn, þar sem hon-
um var birt ákæra í þriðja
sinn og núna m.a. fyrir
þjóðarmorð gegn Bosníu-
múslímum og Króötum.
Það tók rúma klukku-
stund að lesa Milosevic
ákæruna sem var í 29 lið-
um, þar sem hann er
ákærður fyrir þjóðar-
morð, morð og pyntingar í
Bosníustríðinu á árunum
1992 til 1995. í ákærunum
kemur fram að Milosevic beri ábyrgð
á morðum þúsundum Bosníu-
múslíma og Króata sem yfirmaður
hersins, auk þess sem
þúsundir hafi þurft að
lifa við hungur, mengað
vatn, vinnuþrælkun,
ónóga læknishjálp og
stöðugt líkams- og and-
legt ofbeldi.
Eins og áður neitaði
Milosevic öllu samstarfl
við dómstólinn og kaus
að þegja við dómsupp-
kvaðninguna, en áður
hefur hann neitað öllum
sakargiftum og sagt alla
dómsmeðferðina ólög-
lega. Það kom því í hlut
dómara að gefa út yfir-
lýsingu um sakleysi for-
setans fyrrverandi, sem segir að sér
beri að þakka að friður komst loksins
á í Bosníu.
Slobodan Mllosevic
Slobodan Milosevic
var í gær ákæröur
fyrir þjóöarmorð.
hægrisveifla
Anders Fogh
Rasmussen, forsæt-
isráðherra Dan-
merkur, notaði
tækifærið þegar
hann hitti norræna
kollega sína hjá
ESB til að vísa á
bug öllum fullyrð-
ingum um að umtalsverð hægri-
sveifla hafl orðið í Danmörku eftir
kosningarnar í síðasta mánuði.
Örlög ABM ráðast senn
Svo kann að fara að bandarísk
stjórnvöld tilkynni þegar á morgun
að þau hyggist falla frá ABM-gagn-
flaugasamningnum sem gerður var
við Sovétríkin árið 1972.
Ekki donsk
Blóðug átök á Sri Lanka
Sextán menn féllu og 23 særðust í
tveimur árásum skæruliða tamíla á
stöðvar lögreglu og hers í morgun,
fyrstu stórárásunum frá kosningun-
um í síðustu viku.
Kínverjar hamast
Kínverjar eru enn að hamast við
að endurskrifa gömul lög til að þau
uppfylli kröfur Heimsviðskiptastofn-
unarinnar (WTO) sem Kínverjar
gengu í í vikubyrjun. Mörg erlend
fyrirtæki bíða með óþreyju eftir að
komast inn á kínverskan markað.
Argentína á hengifluginu
Argeniínsk stjómvöld reyna af
öllum mætti að ná pólitískri sam-
stöðu um aðhaldsaðgerðir í efna-
hagsmálum til að koma í veg fyrir
að skuldir falli og gjaldmiðillinn
rýrni.
Bush hugar að næsta leik
George W. Bush
Bandaríkjaforseti
sagði í gær að
næsta forgangsat-
riði í stríðinu gegn
hryðjuverkamönn-
um væri að koma í
veg fyrir að svoköll-
uð þrjótaríki geti
breitt út gjöreyðingarvopn. Þar á
forsetinn við ríki á borð við írak og
Norður-Kóreu.
Norðanmenn taka Ástrala
Hermenn Norðurbandalagsins í
Afganistan hafa handtekið ástralsk-
an mann sem hlaut þjálfun hjá al-
Qaeda-hry ðj u verkas veitunum.
Enn lækka vextirnir
Alan Greenspan,
seðlabankastjóri í
Bandaríkjunum, hef-
ur enn einu sinni
lækkað vexti vestan
hafs til að reyna að
örva efnahagslífið.
Vaxtalækkunin er
hin ellefta á árinu
og millibankavextir eru nú 1,75 pró-
sent og hafa ekki verið lægri i 40 ár.
Ferðamaður út í geim
Bandaríska geimvísindastofnun-
in NASA og félagar hennar í alþjóð-
legu geimstöðinni hafa fallist á að
28 ára Suður-Afrikumaður fái að
fara í geimstöðina sem ferðalangur.
Rabbani hefur áhyggjur
Burhanuddin Rabbani, sem er
forseti Afganistans að nafninu til,
lýsti í morgun yfir áhyggjum sínum
yflr samkomulaginu um nýja stjóm-
skipan í landinu sem gerir það að
verkum að hann missir embættið.