Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 15 I>v Greind á við hnetu Bókmenntir Um svipað leyti og snjónum tók að kyngja niður í Reykjavík með tilheyrandi ófærð og ves- eni las undirrituð eftir- farandi setningu í glæ- nýrri bók: „...þegar snjó- ar er minn tími runninn upp. Ég á jeppa.“ (12) Þetta er eitt „snilldar- kommentið" af mörgum sem hrýtur af vörum Dagbjarts Þórarinssonar, aðal- söguhetju Sigurvegarans eftir Magnús Guðmundsson. Dagbjartur þessi, eða Daddi eins og hann er kallaður, leiðir lesendur i allan sannleika um hverni'g menn eiga að bera sig að á leiðinni á toppinn og hvaða að- ferðum best sé að beita á leiðinni til virð- ingar, fjár og frama. Galdraformúlan sem lagt er upp með er sú að gera aldrei neitt fyrir neinn nema sjálfan sig, neita sér um viðkvæmni og sleppa tilgangslausu dekri við hagsmuni annarra, þar með talda ætt- ingja og vini (6). Ef þessu er fylgt er næsta víst að sigrinum sé náð. Hér er að vísu að- eins tekið mið af veraldlegum gæðum en samkvæmt hugmyndum Dadda kemur andleg og líkamleg vellíðan í kjölfar þeirra. Sá (karl)maður sem á fallegt hús, pott í garðinum, snotra konu, meðfæri- lega krakka (sem fá litla umhyggju því þá læra þau betur að bjarga sér sjáH) og er í vel launaðri vinnu við að gera ekki neitt hefur enga ástæðu til annars en vera hamingjusamur. Þessi maður þarf aðeins að sinna einu verkefni: að viðhalda virð- ingunni svo hann geti haldið áfram að safna auði við að gera ekki neitt. Það er reyndar heilmikið verk sem krefst útsjónarsemi og út- pældrar harðstjórnar. Daddi er gaurinn sem er sjaldan glaðari en þeg- ar allt er að fenna í kaf því þá getur hann í krafti valdsins (jeppans) svínað fyrir hina aumingjana. hans hlut. Hann hlustar „skilningsríkur" á jafnréttishjal kvenna sem honum líst vel á um leið og hann hugleiðir plott til að kom- ast undir pils þeirra. Hann mætir með hlut- tekningarsvip í jarðarfarir og erfidrykkjur fólks af göfugu ætterni sem er honum alls- endis óskylt og lætur sig hafa að mæta reglulega í hádegisverð með karlmönnum sem hampa verðleikum sinum með gull- kortum og eðalvögnum. Allt þetta gerir Daddi með bros á vör á meðan hugurinn ólgar af reiði og fyrirlitningu í garð allra „aumingjanna" sem hann neyðist til að um- gangast til að viðhalda stöðu sinni. Magnús Guðmundsson Sigurvegarinn er allnýstárleg ádeila á peningahyggju og valdagræögi. Kemur síðan allt of seint í vinnuna af því hann þurfti að „hjálpa" svo mörgum sem sátu fastir á víð og dreif um borgina. Hann stillir upp vinnu- legu umhverfi í skrifstofunni með útkrotuðum blöðum síðan í árdaga, en passar sig á því að láta aðra púla fyrir hrósinu sem kemur ævinlega í hans Ruddaskapur, óskammfeilni og mannfyr- irlitning Dadda skemmtir lesanda til að byrja með, en hægt og sígandi fara eiturpill- ur hans og ofvaxið sjálfstraust að fara ískyggilega i taugarnar á honum. Ekki síst vegna þess að Dadda verður hvergi á í messunni og fær því ekki þau maklegu málagjöld sem „skúrkum“ sæmir! Um leið sýnist tilgangi sögunnar náð, þeim að af- hjúpa þann kaldhæðnislega veruleika að ekki virðist þurfa nema greind á við hnetu, smá klækindi, netta siðblindu og dágóðan arf frá tengdapabba til að lifa af - og sigra. Sigurvegarinn er að hluta til dulbúin og allnýstárleg ádeila á peningahyggju og valdagræðgi en kannski fyrst og síðast írónískur og kvikindislegur umsnúningur á jákvæðu hugarfari, vinnuhörku og dugnaði sem engu skilar! Þó er lopinn þæfður um of. Stórmennskubrjálæði Dadda er orðið end- urtekið efni í lokin og innst inni á lesandi svolítið erfitt með að trúa öllum sigrum En í þeim vafa felst kannski aðalblekking sögunnar? Sigríður Albertsdóttir Magnús Guömundsson: Sigurvegarinn. Forlagið 2001. Andspænis náttúrunni Bókin handa myndlistar- sinnuðum vinum erlendis er komin: Confronting Nat- ure sem Listasafn íslands gefur út með enskum texta í tilefni samnefndrar sýn- ingar á verkum 24 is- lenskra listamanna í Corcoran-safninu í Wash- ington DC í Bandarikjunum. Sýningin var opnuð i október og er stærsta kynning á íslenskri mynd- list í Bandaríkjunum til þessa. í bókinni eru greinar um íslenska myndlist eftir sérfræðinga frá íslandi og Bandaríkjunum, sérstakar kynning- ar á öllum listamönnunum og 38 litmyndir af verkum þeirra. Þeir sem skrifa texta í bókina eru Ólafur Kvaran, forstöðu- maður Listasafns Islands, Jacquelyn Days Serwer, yfir- sýningarstjóri Corcoran-safns- ins, Arthur C. Danto heimspek- ingur, Auður Ólafsdóttir list- fræðingur og Martica Sawin listgagnrýnandi. Kynntir eru listamennirnir Þórarinn B. Þor- láksson, Ásgrímur Jónsson, Jón Stefánsson, Jóhannes Kjarval, Júlíana Sveinsdóttir, Jóhann Briem, Gunnlaugur Scheving, Louisa Matthiasdóttir, Svavar Guðnason, Jóhann Eyfells, Jón Stefánsson: Hraunteigur við Heklu Ein fjölmargra mynda af listaverkum í bókinni. Nína Tryggvadóttir, Krist- ján Davíðsson, Erró, Sig- urður Guðmundsson, Steina Vasulka, Finnbogi Pétursson, Ragna Róberts- dóttir, Helgi Þorgils Frið- jónsson, Georg Guðni Hauksson, Sigurður Árni Sigurðsson, Hrafnkell Sig- urðsson, Brynhildur Þor- geirsdóttir, Katrín Sigurð- ardóttir og Ólafur Elíasson. Á bókarkápu er mynd af „Fjallamjólk" Jóhannesar Kjarval. Tónlist DVA1YND E.ÓL. Guömundur Kristmundsson víóluleikari Verkiö sem hann lék eftir Atla Heimi hristi upp í áheyrendum. Hneyksli? Guðmundur Kristmundsson víóluleik- ari frumilutti klukkutíma langt tónverk eftir Atla Heimi Sveinsson á Caput-tón- leikum í Listasafni Reykjavíkur á laugar- daginn var. Verkið bar nafnið „Melodía fyrir víólu og aðrar hljóðlindir aö vild“ og hófst á einfaldri, reikandi laglínu sem í sjálfu sér var ekkert óþægileg áheyrnar. En síðan leið meira en hálftími og bar ekk- ert til tíðinda annað en að téð laglína gnauðaði í salnum án teljandi framvindu eins og þráhyggja af verstu sort. Að vísu var kveikt á græjum fljótlega og spiluö upptaka af ílutningi Guðmundar á tón- smíð Atla, en þannig voru „tveir“ viólu- leikarar að spila það sama megnið af tím- anum. Það virtist þó ekki hafa neinn merkjanlegan tilgang annan en að breiða úr laginu. Er áheyrendur voru farnir að ókyrrast allverulega hætti Guðmundur leik sínum, en upptakan hélt áfram. Atli Heimir stóð þá á fætur, gekk fram á sviöið og tók ásamt Guðmundi að beija slagverk sem stillt hafði verið upp. Voru þeir kumpánar þarna að leika sér drykklanga stund við að dangla í alls konar tól, en á meðan spilaði víólan undir í hátölurunum. Svo endaði tónverkið en áheyrendur skjögruðu út úr salnum, greinilega komnir með ógeð. Er rætt var við tónleikagesti i hléinu á eftir var augljóst að Atli hafði valdið tölu- verðu hneyksli. Af óljósum ástæðum fannst undirrituðum þessi furðulegi gjörn- ingur þó ekkert leiðinlegur; hann var ágæt tilbreyting frá öðru sem flutt var á þessari tónleikaröð Caput-hópsins, en henni lauk um helgina. Tónskáld taka sig yfirleitt alltof hátíðlega, og það er ágætt að eitt- hvert þeirra hristi aðeins upp i fólki. Mönnum hættir líka til að festast í fyrir- fram ákveðnum hugmyndum um hvernig tónlistin EIGI að vera, og því eflaust kom- inn tími til að áheyrendur fái annað sjón- arhorn. Guðmundur flutti verk eftir þrjú önnur tónskáld, Svein Lúðvík Björnsson, Paul Hindemith og Luciano Berio. Fyrst var snyrtilega samin tónsmíð eftir Svein Lúð- vík sem bar nafnið „Tveir“, þar næst hin margslungna sónata Hindemiths opus 25 nr. 1 og loks Sekvenza VI eftir Berio. Sekvenza Berios er yflrgengilega erfið og lék Guðmundur hana af tæknilegu öryggi og fltonskrafti, og má segja hið sama um sónötu Hindemiths, sem var túlkuð skáld- lega og af mikilli innlifun. Óneitanlega voru þetta áhugaverðir tónleikar og - þökk sé Atla - með þeim eftirminnilegri á árinu. Jónas Sen ___________Menning Umsjón: Silja A&alsteinsdóttir Kötturinn með hattinn kötturinn MEB > hattinn w Hin geysi- vinsæla barna- saga i bundnu máli eftir dr. Seuss, Köttur- inn með hatt- inn, er komin út hjá Iðunni í nýrri þýðingu Böðvars Guð- mundssonar. Eins og allir sem komnir eru til ára sinna muna er þessi köttur ein- stakur hrekkjalómur, hugmynda- ríkur með afbrigðum þegar kemur að því að stríða fólki og ögra prúð- um viðhorfum og steingeldum hug- myndum um mannasiði. Hann heimsækir okkur Siggu systur einn ömurlegan rigningardag þeg- ar mamma er í bænum, sýnir frá- bærar fjölleikakúnstir með gull- fiskinn í skálinni og aðra heimilis- muni og kynnir okkur fyrir tveim- ur ótuktarpeyjum sem setja allt á annan endann. Draslið er yfir- gengilegt! En þegar sést tU mömmu kemur kötturinn á vettvang ak- andi á stórvirku vinnutæki: Já, köttirm sáum viö síöan sópa, laga og þrífa og allt var aftur í skorðum, undirskál, sloppur og hrífa, blœvœngur, bolli, terta, bœkurnar, skip og diskur, i skálina sína einnig skutlaöist okkar flskur. Aftur gerói hann allt saman gott og hattinum lyfti og hélt á brott. Ekki ónýtt tæki það á sum heim- ili. Ný þýðing Böðvars er munn- töm, lipur og fyndin. 'C WSSÍItSi- % NARN I A Sigling Dagfara Muninn endur- útgefur nú fimmtu ævintýra- bókina um töfra- landið Narníu eft- ir C.S. Lewis, Siglingu Dagfara í þýðingu Kristínar R. Thorlacius. Játvaröi og Lúsí er enn á ný stefnt inn í Narn- íu, í þetta sinn gegnum mynd af skipinu Dagfara. Með þeim er leiö- inlegi frændinn Elfráður Skúti. Börnin fara í sögulega sjóferð með Kaspían konungssyni og fylgdar- liði hans austur undir heimsenda þar sem leitað er að vinunum sjö sem hurfu fyrir löngu. Narníubækurnar eru löngu orðnar sígildar og eru gefnar út aftur og aftur um allan heim. Þær eru sjö alls. Æskubækur Æskan gefur út tvær litiar létt- lestrarbækur með myndum, Stefndu hátt, Rósa! eftir Hazel Hutchins og Dagur risabani eft- ir Budge Wilson. Rósa er ákveðin í þvi að verða besti söngvari í heimi og tekur því fagnandi þegar tónlistarkenn- arinn býður henni að syngja fyr- ir bekkinn. En hún getur ekki æft sig af því í næstu íbúð eru nýfæddir tvíburar sem eiga bágt með svefn og svo reynist snúið að finna lag sem hún ræður við og texta sem hún kann. En það er um að gera að sníða sér stakk eftir vexti... Dagur er enginn venjulegur mömmustrákur, hann er afskap- lega hugmyndaríkur drengur og sést ekki alltaf fyrir. Einn daginn leika þeir Símon sér svo innlifað að það er bæði kallað á lögguna og sjúkrabílinn ... Letur er stórt og skýrt. Sesselja Halldórsdóttir þýddi og stað- færði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.