Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Qupperneq 18
26 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 Skoðun Hverjar jólabókanna heilla þig helst? Spurt á Akureyri Hlín Garöarsdóttir verslunarmaöur: Höll minninganna og Eyðimerkur- blómið. Er búin að lesa þá síðarnefndu. Einar Gíslason nemi: Sakamálafrásagnir og útkallsbækur Óttars Sveinssonar. Helgi Jóhannsson nemi: Ég er að leita að bók fyrir- foreldra mína, ætla að gefa þeim Bjórbókina. Birna Þórmundsdóttir nemi: Sakamálasagan eftir Arnald Indriða- son sem kemur út fyrir þessi jól. Siguröur Rúnar Marinósson verslunarmaður: Artemis Fowl eftir Eoin Colfer sem er saga í anda Harrys Potters. Hannes Gunnlaugsson: Ekkert farinn að spá í það, les helst DV. Þuríður Einarsdóttir skrífar: Þessa dagana er mikli umræða um búsetumál fatlaðra. Birst hafa fréttir af ótrúlega erfiðum aðstæð- um þar sem fatlaðir á miðjum aldri, með mikla þörf fyrir þjónustu, eru ennþá búsettir i heimahúsum, jafn- vel hjá öldruðum foreldrum sem ekki hafa lengur krafta til að annast börn sín. Á biðlistum fyrir húsnæði á Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu munu vera yfir 200 manns. Þarna er um að ræða einstaklinga með mjög mismunandi fötlun og mismikla þörf fyrir þjónustu, einstaklinga sem í mörgum tilfellum þurfa ein- ungis „venjulegt“ húsnæði en samt meiri aðstoð en við, „hin heil- brigðu“. Staðreyndin er sú að þegar mikill skortur er á húsnæði, sem í þessu dæmi er vegna tregðu og áhugaleys- is stjórnvalda, fá að sjálfsögðu þeir fyrst úrlausn sem eru i mestri þörf. í nokkuð langan tíma hefur verið í byggingu nýtt sambýli fyrir fatl- aða við Sólheima i Reykjavík, þetta sambýli er sérhæft, enda ætlað fyrir einstaklinga sem þurfa mikla þjón- ustu. Þeir einstaklingar sem þarna fá pláss eru nú þegar á sambýlum sem ekki henta þeim að öllu leyti. Þegar þeir flytja í hið nýja húsnæði munu losna pláss og mætti þá ætla að þeir sem lengst hafa beðið fengju þau. En það er ekkert gefið. Það eru nefnilega svo margir á biðlistum með aöstæður sem flokkast undir neyðarástand og skiljanlega verður að veita þeim úrlausn. Þetta verður til þess að þeir sem ekki eru í „brýnni þörf ‘ og eiga að- standendur sem ennþá geta sinnt þeim sitja eftir og eru oft komnir á miðjan aldur. En eins og máltækið segir „flýtur á meðan sekkur ei“ og á meðan einhver er til að veita þeim A sambýli fatlaöra Hverjir fá plássin sem losna? „Á tnedan eldast foreldrarn- ir og eiga stöðugt erfiðara með að hjálpa sínum börn- um. Þá getur áður en varir komið að því að þeir falli frá eða verði á einhvem hátt ófœrir um að sinna þessu hlutverki.“ lágmarksþjónustu búa þeir á „Hótel mömmu“. Margir þessir einstak- lingar þurfa ekki einu sinni sérhæft húsnæði og þurfa ekki mikla þjón- ustu, þeir geta bara ekki búið einir og hafa ekki tekjur til að eignast eða leigja húsnæði á almennum mark- aði. Því hlýtur að vera tiltölulega auðvelt að leysa vanda margra þeirra. íslenskt samfélag hefur sett sér þessar reglur en þegar að fram- kvæmdinni kemur þá brestur eitt- hvað og því mega allir þessir einstak- lingar sætta sig við biðtíma sem eng- inn getur sagt fyrir um hvað verður langur. Á meðan eldast foreldrarnir og eiga stöðugt erfiðara með að hjálpa sínum börnum. Þá getur áður en varir komið að því að þeir falli frá eða verði á einhvern hátt ófærir um að sinna þessu hlutverki. Er því von að spurt sé: Hvað þarf hann/hún að bíða lengi eftir að geta flutt að heiman? Hve lengi þarf að bíða? Helgarsport ASÍ og SA Jón Gíslason skrifar: Mikið mega launþegar á íslandi vera þakklátir forkólfum ASÍ og þá ekki síður forustu Samtaka at- vinnulífsins fyrir að eyða helginni í að ræða viðsjár í efnahagsmálum okkar Islendinga. Við vitum að ekki verður ráðum ráðið í þessu þjóðfé- lagi nema „vinnumarkaðurinn" sem svo er títtnefndur í fréttum, sé sáttur. Ekki má hækka launin, ekki má lækka skatta, og ekki má koma böndum á verðbólguna, nema um það skapist „þjóðarsátt". Þjóðarsátt yrði hins vegar aldrei um þessa þætti þjóðlífsins, mættu launþegar ráða. En með „helgar- sporti" forkólfa ASÍ og SA verða Nú munu því forkólfar áð- umefndra samtaka halda áfram í helgarsportinu eins og ekkert sé því þau hafa þegar ákveðið, þótt þau þori ekki að staðfesta það, að fresta öllum umrœðum um launaliði kjarasamn- inga til vors. “ gerðar heiðarlegar tilraunir til að reyra kjör launþega í viðjar vanans með enn einni þjóðarsáttinni. Og eftir standa launþegar á sokkaleist- unum eins og avallt áður eftir þjóð- arsáttir. Nú munu því forkólfar áður- nefndra samtaka halda áfram í helg- arsportinu eins og ekkert sé því þau hafa þegar ákveðið, þótt þau þori ekki að staðfesta það, að fresta öll- um umræðum um launaliði kjara- samninga til vors. Þá verður líka helftin af forkólfunum farin í frí til útlanda, og gagnvart fjölmiðlunum, sem eru ekki til stórræðanna, verð- ur gripið til gömlu klisjunnar: Ekki hefur náðst í alla samningsaðila, vegna sumarfría og þvi verður þvi ekki af fundum í helgarsportinu fyrr en með haustinu! - Svona er hægt að möndla og höndla endalaust i íslenska „frírík- inu“ sem virðist utan við lög og rétt siðaðra samfélaga á Vesturlöndum. pakka og blessa hann með skatta- lækkun eða lækkun trygg- ingargjaldsins á fyrirtækin þannig að í þessum efnum eru menn beinlínis að komast á beinu brautina líka. Svart- sýnistalið er því fyrir bí og Garri fær ekki betur séð en menn geti sleg- ist í hóp með Davíð og fyllst bjartsýni á framtíðina á ný. Það hlýtur þvf að vera í lagi að eyða og spenna, undir kjörorði dags- ins: Lifi Davíð, skítt með viðskiptahallann, skítt með skuldimar og upp með sólgleraugun! CyXi'fc Sólgleraugun upp Eitt af því sem Garri hefur lært af því að leggja ávallt við hlustir þegar Davíð Oddsson tal- ar er að gefa ekki upp vonina um að bjart sé fram undan í efnahagsmálum. Bölsýnismenn allra tíma og allra flokka hafa iðulega verið óþreytandi við að tala um erflða efnahagsstöðu og botnlaus vandamál fram undan, á meðan Dav- ið hefur verð sá sem talar í þjóð sína kjark og neyslueldmóð. Og Davíð hefur haft betur. Þjóðin er f eðli sínu bjartsýn og kýs frekar að ganga milli rekka í verslunum og tína vörur í körfuna sína með sólgleraugu á nefinu en að rýna á verö- merkingamar í skammdegisbirtu svartsýninnar. En þó Garri hafi um skeið verið kominn á fremsta hlunn með aö gefa upp vonina þegar fjárlaga- og niðurskurðarumræðan stóð sem hæst, þá má segja að vonin hafi á elleftu stundu verið höluð upp úr svatnættinu, því þótt þú gleymir Davíð, þá gleymir Davíð ekki þér. Viðsnúnlngur Og í DV í gær fékk Garri staðfestingu á mann- gæsku og snilli Davíðs. Mikill viðsnúningur hef- ur oröið á afkomu fyrirtækja á Verðbréfaþingi og eru þau nú í heildina búin að snúa bullandi tapi sem blasti við um mitt sumar yfir i dálag- legan hagnað. Þar er ekki fyrir að fara vesæld eða voli, þó vissulega sé afkoma einstakra fyrirtækja og einstakra greina misjöfn eins og gengur. En það eru útflutningsgreinamar sem mest munar um og sjávarútvegur- inn er náttúrlega í alveg blússandi uppsveiflu. Þar hafa menn ekki séö annað eins í áratugi og óstað- festar fregnir herma að meira að segja Kristján Ragnarsson sé far- inn að brosa af gleði í gegnum tár- in eins og fegurðardrottning - og telja sumir það eitt út af fyrir sig vera áttunda undur veraldar. Þjóðarsátt Ekki spillir það fyrir bjartsýni Garra að heyra að verkalýðshreyf- ingin hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að hóf sé best í öllu, líka kröfugerð. Þannig eru for- menn aðildarfélaga ASÍ búnir að gangast inn á eins konar þjóðar- sáttarleið sem sérfræðingar telja að sé bara þokkalega lfkleg til að lækka verð- bólguna og styrkja gengið. Ríkisstjómin undir forustu Davíðs mun svo koma inn í þennan Björgunarþyrlan TF-LÍF Nætursjónaukar bíöa samþykkis. Kerfið og þyrlan Magnús Magnússon skrifar: Dapurlegar fréttir vora þetta af sjó- slysunum tengdum Vestmannaeyjum og Ólafsvík. Fögnuður var þó mikill vegna frækilegrar björgunar eins manns úr Ólafsvík með þyrlu varnar- liðsins. Fróðlegt var að horfa á viðtöl við þann sem af komst, og björgunar- manna hans og einnig yfirflugstjóra Gæslunnar sem upplýsti að ekki væri enn komin nætursjónauki í vélar Gæslunnar og mættum við bíða enn um stund, jafnvel fram á næsta vetur. Kerfið sér um að gera þessa fram- kvæmd þunga og erfiða. Það þurfi að „samþykkja" tækin og „koma þeim fyrir“! Erum við virkilega að kafna í reglum og úttektum kerflsins? Hve langt getur þetta gengið? Ríkið á að spara T.Ó.K. skrifar: Það er alvarleg þróun hér, að við- skiptahallinn skuli vera orðinn efna- hagslífinu fjötur um fót. Kjarasamn- ingar fram undan og lítið sem ekkert er hægt að gera annað en sækja í vasa skattborgaranna. Ráðstafanir upp á gamla mátann ganga einfaldlega ekki lengur. Niðurskurður ríkisútgjalda er eina ráðið sem dugar til að koma efna- hagslíflnu í sæmilegt horf. Einstakl- ingar og fyrirtækin verða að skapa at- vinnu og nýja möguleika. Ekki ríkið. Vandi okkar er heimatilbúinn eins og OECD segir í skýrslu um efnahagsmál íslendinga. Það er þó ekki bót í máli að skilaboð fjármálaráðherra til þjóð- arinnar er „sparnaður". En sjálft rík- ið er að ausa út fjármunum ótæpilega í allt það sem það ætti ekki að koma nálægt. Flugleiðir Frysting eða launauppbót? Flugleiöir í frystingu? Friðrik Árnason hringdi: Hvað skyldu stjórnendur Flugleiða vera að hugsa? Eru þeir að ryðja braut- ina fyrir einhvers konar sáttagjörð eða þjóðarsátt fyrir aðila atvinnulífsins - eða ríkisstjórnina? Er ekki nóg komið af aðstoð til Flugleiða? Frysting launa starfsfólks í 18 mánuði nær varla fram að ganga, nema þá vegna þess að þetta sama starfsfólk sé orðið svo yflrþyrm- andi doflð af ógöngum félagsins. Væri nú ekki skynsamlegra fyrir Flugleiðir að hífa reksturinn upp með því að bæta starfsfólki upp undanfarin ótíð- indi með verulegri launauppbót? Það myndi þó peppa upp starfsandann. Þeir hlúa að tónlistinni Kolbrún skrifar: Mikið er ég sammála Sigurgeir bæj- arstjóra á Seltjarnarnes um að hætta að styrkja Sinfóníuna og beina fjár- mununum til tónlistarlífs innan bæj- arins. Auðvitað á ekki að taka fjár- muni úr bæjarsjóði hér á Nesinu til að styrkja Sinfóníuna. Það er tíma- bært að huga að þessum málum nú því það tekur sinn tíma að gera laga- breytingar í bæjarfélaginu. Svona eiga sveitarstjórar annarra sveitarfé- laga að hugsa. Gæta hagsmuna sveit- arfélagsins. Það kostar svita og tár að framleiða menningu, og það er svo sannarlega gert á Seltjarnarnesi. Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangið: gra@dv.is Eða sent bréf til: Lesendasíða DV, Þverholti 11, 105 Reykjavik. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.