Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001
31
DV
Tilvera
Dýrin í Hálsaskógi - :
Láttekkieinsoð-
úsértekkiðanna ★ ★★
Hefðbundnum
útsetningum
gefið langt nef
Drjúgur fjöldi
íslendinga hefur
eflaust hlustað á
Dýrin í Hálsa-
skógi í æsku og
jafnvel þurft svo
að ganga f gegn-
um sífellda hlust-
un síðar sem foreldrar. Kannski ekki
eins sjálfviljugir og fyrrum. Áhrif
Thorbjöms Egners í tali og tónum á
íslensk börn og foreldra eru sennilega
órannsökuð fræði. Leikrit hans og
söngvar hafa skapað ómælda ánægju
meðal barna en trúlega líka vænan
skammt af pirringi hjá hinum eldri
vegna ofspilunar. Sá sem þetta ritar
er ekki mjög vel að sér f Hálsaskógar-
fræðum. Sum lögin á diskinum sem
hér er til umfjöllunar hljóma mjög
kunnuglega en önnur ekki. Það er
óvitlaus hugmynd hjá saxófónleikar-
anum Óskari Guðjónssyni og félögum
hans að gera upp þennan menningar-
kima með þeim hætti sem hér er gert.
Tiltækið er bara nokkuð vel heppnað.
Líklega flokkast svona músík undir
tilraunir en á það ber að líta að til-
raunamúsík á borð við þessa hefur
verið við lýði árum saman. Má velta
því fyrir sér hvort slíkur stimpill
verði á svona músík um eilífðaraldur.
Hvers vegna tilraunamúsík? Aðal-
lega vegna þess að hefðbundnum út-
setningum er gefið langt nef. Bara það
að sleppa bassaleik gerir músíkina
undarlega áheymar, eykur á tilfinn-
inguna fyrir henni sem tilviljana-
kenndri uppákomu. En það er ekki
þar með sagt að allt sé þetta bara
frjáls performans. Ljóst er að svo er
ekki - ekki alveg, í það minnsta. Það
skemmtilega við diskinn er að hann
minnir á drullukökubakstur, kofa-
smíði og fleira sem krökkum flnnst
gaman að. Það er eins og spilurunum
hafi tekist að ná sambandi við barnið
í sjáifum sér.
Óskar sleppir sér sjaldnast langt frá
laglínunni en skoðar hana stundum
hikandi eða (djúpt?) hugsi. Saxófónn-
inn segir: en skrýtið. Einkennilegar
hljómaraðir koma úr gftar Eðvarðs
Lárussonar og af og til er spilið eins
og verið sé að núa saman tveimur rör-
bútum. Trommuleikur Matthiasar
Hemstock eykur enn á þessa tilfinn-
ingu fyrir vangaveltum um efnið
fremur en afgerandi afstöðu til þess.
Saman virðast þeir félagar sammála
um að vera ekki alltaf sammála. Nið-
urstaðan er kostuleg og allnokkuð
frumleg músik sem hlýtur að höfða
sérstaklega vel til þeirra sem hlust-
uðu sér til óbóta á Dýrin á einhverju
aldursskeiði. Maður hefði viljað hafa
hröðu lögin lengri en kannski var
búið að segja allt á einni mínútu. Pét-
ur Grétarsson tók upp herlegheitin á
Revox og TEAC upptökutæki sem
voru nokkuð vinsæl til heima- og bíl-
skúrabrúks á áttunda áratugnum.
Auk þess lék Pétur á vatnsfón(l).
Ingvi Þór Kormáksson
DV-MYNDIR: HARI
Þeir voru helðraðir
Ágúst Guömundsson, Arngrímur Hermannsson og Lýöur Guömundsson voru aö sjálfsögöu ánægöir meö viöurkenning-
ar sínar.
Viðskiptamenn ársins og Frumkvöðullinn:
Ágúst, Lýður
og Arngrímur
Að viðstöddu fjölmenni í hádeg-
inu á Grand Hóteli í gær voru Við-
skiptamönnum ársins 2001 veittar
viðurkenningar ásamt Frumkvöðli
ársins 2000. Þeir sem urðu fyrir val-
inu þetta árið eru Ágúst Guðmunds-
son, stjórnarformaður Bakkavarar
Group hf„ og Lýður Guðmundsson,
forstjóri félagsins. Þá hlaut Arn-
grímur Hermannsson, stjórnarfor-
maður íslenskra ævintýraferða, við-
urkenningu sem Frumkvöðull árs-
ins. Það eru DV, Stöð 2 og Við-
skiptablaðið, sem veita þessar við-
urkenningar.
Bakkavarar-bræður vöktu mikla
athygli þegar þeir gerðu stærstu
kaup íslendinga á erlendu fyrirtæki
er þeir keyptu breska fyrirtækið
Katsouris Fresh Food Ltd. Og að
flestra mati hafa stjórnendur
Bakkavarar brotið blað í íslenskri
viðskiptasögu með þessum kaupum.
Arngrímur Hermannsson, stjórn-
arformaður íslenskra ævintýra-
ferða, leiðir íslenskar ævintýraferð-
ir sem urðu til fyrir réttu ári þegar
Qögur fyrirtæki sem sinna afþrey-
ingu i ferðaþjónustu á íslandi sam-
einuðust í eitt. Þá hefur Arngrímur
nýlega fest kaup á þeim hluta Sam-
vinnuferðar-Landsýnar sem sér um
innanlandsferðir.
-HK
Viðskiptaráðherra afhendir viðurkenningu
Vatgerður Sverrisdóttir viöskiptaráðherra afhenti viöur-
kenningarnar. Hér afhendir hún Arngrími Hermannssyni,
frumkvööii ársins, sína viðurkenningu.
Þrír úr viðskiptalífinu
Meöal gesta á Grand Hóteli voru taliö frá vinstri, Þórólfur
Árnason, forstjóri Tal, Hreinn Jakobsson, forstjóri SKÝRR
og Ragnar Birgisson, framkvæmdastjóri Stöövar 2.
Málin rædd
Lýöur Guömundsson, forstjóri
Bakkavarar, ræöir málin viö Hrein
Jakobsson, forstjóra SKÝRR.
JEr
frd 18. og 19. öíd.
(juímundur Jíennannsson úrsmiðut
Bœjaríímfi • S. 554 77711 • www.wr.is
Æiliiifliam:
Smáauglýsingar
550 5000
Kennsluforritið Ævar:
Komið í alla grunnskóla
Kennsluforritið komið í notkun
Áhugasamir nemendur viö tölvuna og farnir aö nota
Ævar.
Sævar Þór
Jónsson, fram-
kvæmdastjóri
Juventus hugbún-
aðarhúss, afhenti
Birni Bjamasyni
menntamálaráð-
herra síðasta ein-
takið af kennslu-
forritinu Ævari
sem dreift hefur
verið ókeypis í
alla grunn- og
framhaldsskóla
landsins. Afhend-
ingin fór fram í
Langholtsskóla og
Björn Bjarnason
afhenti síðan
Hreiðari Sig-
tryggssyni skólastjóra eintakið. Þá
var sýnd bráðabirgðaútgáfa af
næsta Ævari. í framtíðinni mun
verða hægt að gefa forritinu radd-
skipanir og þá á forritið einnig að
geta svarað. Starfsmenn Juventus
hugbúnaðarhúss og Voiceera segja
að með forritinu geti íslenskt
menntakerfi boðiö nemendum hér-
lendis upp á sambærilegan búnað
og gerist erlendis.
Björn lýsti yfir ánægju sinni með
það frumkvöðlaverk sem hefur ver-
ið unnið. Hann var einnig ánægður
að sjá að þróun á forritinu væri nú
þegar komin af staö. Nemendur i
Langholtsskóla voru hæstánægðir
með forritið og töldu það gera náms-
efnið mun skemmtilegra ásamt þvf
að vera góð æfing.
Aukin ökuréi
■HKHI
Kennsla á leigu-, vöru- og hópbifreiðog vömbifreið með eftirvagn.
Nútíma kennsluaðstaða og aldeilis frábærir kennarar.
Innritun alla miðvikudaga, áfangakerfi.
Námslok trvggð
Lofum verklegum prófum áður en
tyær vikur eru liðnar frá bókiúgú námi,
Nú er rétti tíminn til að afla sér nýrra atvinnumöguleika!
Hringdu núna og láttu bóka big!
Sími 567-0300
Þarabakka 3,109 Reykjavík &
OKU
5KOMNN
IMJODD