Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Side 26
34
MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001
Islendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára_________________________________
Guörún Jónsdóttir,
Fannborg 8, Kópavogi.
Hún verður aö heiman.
85 ára_________________________________
Halldóra Guöjónsdóttir,
Gröf, Króksfjaröarnes.
Páll Jónsson,
Hátúni 10, Vík.
Svava S. Jónsdóttir,
Vesturgötu 7, Reykjavík.
Þuríöur Jóhannesdóttir,
Bragagötu 22a, Reykjavtk.
80 ára_________________________________
Rico Arthur Guidice,
Kirkjuteigi 11, Keflavík.
75 ára_________________________________
Hulda Guömundsdóttir,
Dalbraut 16, Reykjavík.
Hulda Svanlaug Bjarnadóttir,
Blómsturvöllum 8, Neskaupstaö.
Loftur Jónsson,
Hrísmóum 1, Garöabæ.
70 ára_________________________________
Stella B. Þorláksdóttir,
Nónási 4, Raufarhöfn.
60 ára_________________________________
Karl Sigurhjartarson,
Sólheimum 27, Reykjavík.
Magdalena Björgvinsdóttir,
Melgeröi 31, Reykjavík.
50 ára_________________________________
Gísli Sverrisson,
Túngötu 14, Hvanneyri, Borgarnes.
í tilefni afmælisins taka Gísli og Guörún
Ásta Einarsdóttir, kona hans, á
móti vinum og vandamönnum í
félagsheimilinu Brún, laugard. 15.12.
kl. 21.00.
Einar L. Guömundsson,
Suðurhólum 6, Reykjavík.
Guömundur Karl Jónsson,
Stangarholti 7, Reykjavík.
Ingibjörg Sigríður Jónsdóttir,
Efstasundi 81, Reykjavík.
Lilja Jóhannsdóttir,
Nónvöröu 14, Keflavík.
Ólafur Arnar Jónsson,
Herriðarhóli, Hella.
Ólafur Þóröur Harðarson,
Barmahliö 2, Reykjavik.
Sólveig B. Aöalsteinsdóttir,
Þverbrekku 4, Kópavogi.
Stefanía Diljá Reynisdóttir,
Torfufelli 21, Reykjavík.
Þorsteinn Unnsteinsson,
Miöleiti 3, Reykjavík.
40 ára_________________________________
Ásta Emma Ingólfsdóttir,
Skólatúni 6, Bessastaöahreppi.
Gísli Ósvaldur Valdimarsson,
Smyrlahrauni 14, Hafnarfiröi.
Guadalupe Galiegos Rosales,
Öldugötu 15, Reykjavík.
Hermann Rannver Jónsson,
Vesturgötu 18, Hafnarfiröi.
Kristján Þór Pétursson,
Sunnubraut 15, Garði.
Lárus Þór Guömundsson,
Bæjargili 98, Garöabæ.
Siguröur Hannesson,
Holtabyggö 2, Hafnarfirði.
Þórunn Gunnarsdóttir,
Krókamýri 80, Garðabæ.
Aðventu-Ieiðískrossar
12V - 34V
Sent í póstkröfu, sími 898 3206
Sigurbjörg Marteinsdóttir frá Sjónarhóli
i Neskaupstað er látin.
Regína Aöalsteinsdóttir, Torfufelli 9,
Reykjavík, lést á Landspítalanum viö
Hringbraut föstud. 7.12.
Sæbjöm Vignir Ásgeirsson, Ennisbraut
21, Ólafsvik, lést af slysförum föstud.
7.12.
Siguröur Kristjánsson listmálari lést á
Hrafnistu í Reykjavík miðvikud. 28.11.
sl. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey aö
ósk hins látna.
Magnús Þorbergsson húsasmiður, Kárs-
nesbraut 53, Kópavogi, lést á líknar-
deild Landspítalans í Kópavogi sunnud.
9.12.
Fólk í fréttum
Arngrímur Hermannsson
framkvæmdastjóri í ferðaþjónustu
Arngrímur Hermannsson.
Arngrímur hefur starfaö um árabil með Jöklarannsóknarfélaginu og
Flugbjörgunarsveitinni. Hann er þaulvanur ferðamaöur sem hefur farið í fjölda
jökla- og öræfarferðir og þvi vel kunnugur gersemum íslenskrar náttúru.
Arngrímur Hermannsson, stjórn-
arformaður íslenskra ævintýra-
ferða, var sæmdur viðurkenning-
unni „Frumkvöðull ársins” af DV,
Viðskiptablaðinu og Stöð 2.
Starfsferill
Arngrímur fæddist í Reykjavik
1.12. 1953 og ólst þar upp. Hann var
í Langholtsskóla, Breiðagerðisskóla
og Réttarholtsskóia, stundaöi nám
við lýðháskóla í Þýskalandi, útskrif-
aðist frá Röntgentæknaskóla ís-
lands 1976 og stundaði framhalds-
nám í röntgentækni í Svíþjóð.
Að loknu framhaldsnámi var
Arngrímur yfirröntgentæknir við
Borgarspítalann 1979-88. Hann hóf
störf við ferðaþjónustu á eigin veg-
um 1985 en það starf þróaðist í fullt
starf er hann stofnaði Addice - Add-
ís 1988. í janúar sl. var fyrirtækið
síðan sameinað þremur íslenskum
ferðaþjónustufyrirtækjum, Langa-
jökli, Vélsleðaleigunni Geysi og
Bátafólkinu, undir heitinu íslensk-
ar ævintýraferðir. Hjá fyrirtækinu
starfa nú um þrjátíu starfsmenn og
fjöldinn allur af verktökum. Hið
nýja fyrirtæki festi síðan kaup á
þrotabúi innanlandsdeildar Sam-
vinnuferða-Landsýnar.
Arngrímur hefur verið virkur
meðlimur í Jöklarannsóknafélaginu
og Flugbjörgunarsveitinni frá 1972
og hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa
fyrir hvoru tveggja, m.a. setið í
Landsstjórn björgunarsveita i tíu
ár. Hann hefur starfað að rannsókn-
arstörfum fyrir Raunvísindastofnun
og Landsvirkjun á jöklum íslands í
mörg ár, hefur farið íjölda leiðangra
og tekið þátt í björgunaraðgerðum
hérlendis og erlendis. Hann var í
vettvangsstjórn í nánast hverju út-
kalli í meira en áratug. Þá sat hann
í stjórn Starfsmannafélags Reykja-
víkurborgar um skeið, situr í nefnd-
um fyrir SAF - Samtök ferðaþjón-
ustunnar og situr í starfsnefnd,
skipaðri af ráðherra, um starfsleyfi
fyrir afþreyingarfyrirtæki.
Arngrímur og félagar hans í Flug-
björgunarsveitinni gengu yíir há-
lendið að vetrarlagi frá Egilsstöðum
ofan í Borgarfjörð, 500 km leið, á
tuttugu og tveimur dögum 1976. Tíu
árum síðar óku þeir sömu leið á
jeppum yfir jöklana þrjá á sjö dög-
um. Þeir félagar óku á jeppa upp á
Hvannadalshnjúk 1992 og óku
tvisvar yfir Grænlandsjökul 1999.
Þá fór hann fimm leiðangra til að
finna átt bandarískar flugvélar í
Grænlandsjökli á árunum 1983-92.
Fjölskylda
Arngrímur kvæntist 1976 Önnu
Hallgrímsdóttur, f. 2.12. 1954, fjár-
málastjóra íslenskra ævintýraferða.
Hún er dóttir Hallgríms Pétursson-
ar, verkstjóra í Reykjavik, og Krist-
ínar Þorvaldínu Salómonsdóttur
húsmóður sem bæði eru látin.
Synir Arngríms og Önnu eru
Hallgrímur Örn, f. 20.3. 1979, jarð-
fræðinemi við HÍ; Hermann, f. 10.11.
1981, háskólanemi; Haukur, f. 3.11.
1986, nemi.
Systkini Arngríms eru Henný
Hermannsdóttir, f. 13.1. 1952, dans-
kennari og verslunarmaður í
Reykjavík; Björn, f. 26.8.1958, starfs-
maður hjá Hugviti, kerfis- og hug-
búnaðarfyrirtæki, búsettur i
Reykjavík.
Arngrímur er sonur Hermanns
Ragnars Stefánssonar, f. 11.7. 1927,
d. 10.6. 1997, danskennara, og k.h.,
Unnar Amgrímsdóttur, f. 10.1. 1930,
danskennara.
Núverandi sambýlismaður Unnar
er Gunnar Valgeirsson flugvirki.
Ætt
Hermann var sonur Stefáns,
kennara og verkstjóra á Kirkju-
sandi, Sveinssonar, b. á Neðri-
Rauðalæk á Steinsstöðum í Öxna-
dal, Björnssonar, b. á Flögu í Hörg-
árdal, Jónssonar. Móðir Stefáns
kennara var Soffla Björnsdóttir, b. í
Flöguseli í Hörgárdal, Benedikts-
sonar.
Móðir Hermanns var Rannveig
Ólafsdóttir, frá Engilæk í Hjalta-
staðaþinghá í Norður-Múlasýslu,
Þorsteinssonar. Móðir Rannveigar
var Júlíana Jónsdóttir.
Unnur er dóttir Arngríms, skóla-
stjóra Melaskólans í Reykjavík,
Kristjánssonar, b. á Sigriðarstöðum
í Ljósavatnsskarði, bróður Helgu,
móður Jóns Péturssonar, prófasts á
Kálfafellsstað í Suðursveit. Kristján
var sonur Skúla, b. á Sigríðarstöð-
um, Kristjánssonar, og Elísabetar
Þorsteinsdóttur, systur Rósu, ömmu
Margrétar Thorlacius lækninga-
miðils og Magnúsar Thorlacius hrl.
Önnur systir Elísabetar var Guð-
rún, móðir Sigtryggs, fóður Karls,
skálds á Húsavík.
Móðir Elísabetar var Guðrún Jó-
hannesdóttir, b. í Leyningi, Hall-
dórssonar, b. á Reykjum í Fnjóska-
dal, Jónssonar, b. á Reykjum, Pét-
urssonar, ættfoður Reykjaættarinn-
ar.
Móðir Arngríms var Unnur Jó-
hannsdóttir, b. á Skarði í Grýtu-
bakkahr., Bessasonar. Móðir Unnar
Arngrímsdóttur var Henny Othelie,
f. Helgesen í Bergen, húsmóðir.
Fertugur
Kjartan J. Hauksson
kafari og framkvæmdastjóri í Kópavogi
Kjartan J. Hauksson, kafari og
framkvæmdastjóri Sjóverks ehf.,
Bakkabraut 5a, Kópavogi, varð fer-
tugur í gær.
Starfsferill
Kjartan fæddist á ísafirði og ólst
þar upp við Skipasmíðastöð Marsel-
íusar Bernharðssonar og í fjörunni
þar í kring. Hann var í Barnaskóla
og Gagnfræðaskóla ísafjarðar, lærði
stálvirkjasmíði við Vélsmiðjuna
Þór á ísafirði, lærði köfun í
Plymouth í Bretlandi 1985 og í Nor-
folk í Bandaríkjunum 1987, öðlaðist
kennsluréttindi í björgunarköfun
og lærði auk þess eiturefnaköfun í
Bandaríkjunum. Þá stundaði hann
nám i atvinnuköfun í Port William
í Skotlandi 1991. Þá hefur hann
stundað nám við Vélskóla Islands
og er meö vélstjóraréttindi þaðan.
Kjartan hóf ungur atvinnuköfun,
1976, er hann var fimmtán ára og
hefur stundaði köfun síðan að
meira eða minna leyti. Hann hefur
stundað verktakastörf um árabil og
hefur starfað við sæstrengjalögnun
og viðhald á sæstrengjum sl. tíu ár.
Hann stofnaði fyrirtækið Sjóverk
1993 og hefur starfrækt það síðan.
Kjartan hefur verið virkur félagi
í björgunarsveitum sl. tuttugu ár,
einkum með hjálparsveitum. Auk
þess var hann kennari við Björgun-
arskólann í fjölda ára og sá um köf-
unarnámskeið fyrir björgunarsveit-
ir í mörg ár.
Kjartan bjargaði tveimur drengj-
um frá drukknun á ísafirði er hann
var á unglingsárunum. Þá kom
hann fyrstur á vettvang er flugslys-
ið hörmulega varð í Skerjafirði 7.8.
2000.
Fjölskylda
Böm Kjartans eru Haukur Jakob,
f. 8.3.1984, nemi í Borgarholtsskóla;
Líf, f. 4.3.1985, nemi við MS; Saga, f.
28.7. 2000.
Systkini Kjartans eru Ari Daníel,
f. 1957, forstjóri í Noregi; Helgi, f.
1960, matvælatæknifræðingur í
Danmörku; Soffia, f. 1965, verslunar-
maður í Bolungarvík; Eyþór Páll, f.
1966, starfsmaður við prentsmiðj-
una Odda í Reykjavík.
Foreldrar Kjartans: Haukur S.
Daníelsson, f. 1932, d. 2000, vélstjóri
á ísafirði, og k.h., Valgerður Jakobs-
dóttir, f. 1936, forstöðumaður í
Kópavogi.
Ætt
Haukur var sonur Daníels Rögn-
valdssonar, skipasmiðs á ísafirði, og
k.h., Soffiu Helgadóttur.
Valgerður er dóttir Jakobs Krist-
jánssonar, b. í Reykjarfirði á Hom-
ströndum.
Upplýsingar vegna afmælisgreina í jólablað DV þurfa að
berast ættfræðideild eigi síðar en miðvikudaginn 19.12.
Merkir Islendingar
örn Arnarson er skáldanafn Magnúsar
Stefánssonar sem fæddist í Kverkártungu á
Langanesströnd 12. desember 1884, sonur
Stefáns Ámasonar, bónda þar, og Ing-
veldar Sigurðardóttur, frá Svínafelli I
Hjaltastaðaþinghá.
Örn var alinn upp í fátækt og stund-
aði lengi almenn störf sem til féllu, s.s.
sjómennsku og vegavinnu. Hann lauk
samt gagnfræðaprófi og kennaraprófi
og var skrifstofumaður og kennari síð-
ari árin, búsettur i Hafnarfirði.
Öm gaf út kvæðasafnið Illgresi 1925
sem varð mjög vinsælt. Hann var ekki
nýrómantíkus eins og menntaðir samtíma-
menn hans. í bókmenntasögu Kristins E.
Andréssonar er honum skipað á bekk með
skáldum sem ortu undir eldri áhrifum, s.s.
Jakobi Thorarensen og Guðmundi frá
Sandi. Hann var málsvari íslenskrar al-
þýðu og orti um brauðstrit hennar sem
hann þekkti af eigin raun. Þess vegna
er grunnt á þjóðfélagsádeilu og beiskju
í kvæðum hans þó hann sé gamansam-
ur og glettinn á yfirborðinu. Öm orti í
mjög hefðbundnum stíl, bjó yfir mik-
illi bragsnilld og er feikilega kjamyrt-
ur. Þekktustu kvæðin hans eru sjó-
mannskvæðin Stjáni blái og Hrafnistu-
menn, Rímur af Oddi sterka, ljóðið um
lítinn fugl á laufgum teigi, sem oft er
sungið við lag Sigfúsar Halldórs, og hið fal-
lega kvæði Þá var ég ungur sem hann orti til
móður sinnar skömmu fyrir andlát sitt 1942.
Örn Arnarson
Jarðarfarir
Ámi Helgason, Gullengi 33, Reykjavík,
verðurjarðsunginn frá Grafarvogskirkju
miðvikud. 12.12. kl. 13.30.
Útför Vals Sigurössonar frá Bergi við
Suðurlandsbraut, fer fram frá
Fossvogskirkju föstud. 14.12. kl.
15.00.
Tryggvi Helgason verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju fimmtud. 13.12. kl.
13.30.
Smáauglýsingar
550 5000