Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Qupperneq 28
36
MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001
Tilvera
ÐV
1 i f i
Átfíklar eiga erfiðar stundir:
Jólatónleikar
Fíladelfíu
Árlegir jólatónleikar verða í
Hvítasunnukirkjimni Fíladelfíu,
Hátúni 2 í kvöld. Um tvenna
tónleika er að ræða sem hefjast
kl. 20 og 22. Fram koma Lof-
gjörðarhópur Fíladelfíu, Gospel-
kompaniið og hljómsveitin
Godzpeed. Einsöngvarar eru Páll
Rósinkranz, Guðriin Gunnars-
dóttir, Þóra Gréta Þórisdóttir,
Kristín Ó. Gestsdóttir, Erna
Varðardóttir, Geir Jón Þórisson
og Hjalti Gunnlaugsson.
Krár og klúbbar
TVIHOFÐI A GAUKNUM Tvíhöfði,
Sigurjón og Jón Gnarr, sjá um aö
skemmta á sinn óborganlega hátt á
Gauki á Stöng. Partíbandiö Buff sér
um spilamennskuna.
JÓLASTEMNING Á SPOTLIGHT
Jólagleöi verður á Spotllght í kvöld.
Dj. Sesar veröur í jólastuði.
BÚGALÚ Á VÍDALÍN Fönkbandið
Búgalú leikur fönktónlist á Vídalín í
kvöld. Meölimir þess eru Steinar
Siguröarson, saxófónn, Þorgrímur
Jónsson, kontrabassi, Eric Qvick,
trommur og Ásgeir Ásgeirsson,
gítar. Tónleikarnir hefjast kl. 22.30.
Síðustu forvöð
SAMSYNING HJA OFEIGI Samsýn
ingu fimm ungra listamanna í List-
húsi Ófeigs lýkur í dag. Hafsteinn
Michael Guömundsson, Helgi Snær
Sigurösson, Kari Emil Guömunds-
son, Skírnir H. Einarsson og Stella
Sigurgeirsdóttir sýna verk sem unn-
in eru í ólíka miðla.
Fundir og fyrirlestrar
BRIDS A FRÆÐSLUKVOLDI
Fraeöslukvöld kvenna veröur í kvöld
kl. 19.30 í Hreyfilshúsinu við
Grensásveg. Þaö er hið fýrsta af
þremur í umsjón Guömundar Páls
Arnarsonar, bridgespilara. Spiluö
veröa 12 spil og þau síðan skoðuö
og rædd frá öllum sjónarhornum.
Klassík
JOLATONLEIKAR GOSPELSYSTRA
Gospelsystur halda tónleika í kvöld í
Langholtskirkju, undir stjórn
Margrétar J. Pálmadóttur. Þær
munu meðal annars flytja nýtt
jólalag eftir Björgvin Þ. Valdimarsson
við texta eftir stjórnandann.
Stúlknakór Reykjavíkur kemur einnig
fram á þessum tónleikum. Undirleik-
ari er Agnar Már Magnússon og
f Stefán S.Stefánsson leikur á flautu,
saxófón og slagverk. Tónleikarnir
hefjast kl. 20.30.
Bíó
AMERICAN PIMP I GALLERI
SKUGGA Skugeasvnine verður í
Gallerí Skugga, Hverfisgötu 39 í
kvöld. Bakatil í galleríinu veröur sýnd
hin umdeilda heimildarmynd
Hughes-bræöra, American Pimp.
BJörn Þór Vilhjálmsson, bókmennta-
fræöingur mun í stuttu spjalli veita
innsýn í ýmsa þætti myndarinnar og
oröiö veröur laust. Húsiö veröur
opnað kl. 20 og gefst gestum einnig
kostur á aö skoöa myndlistar-
'i sýningu þeirra Jóns Sæmundar
Auöarsonar og Páls Banine, „Séö
og heyrt".
Happdrætti
Bókatíðinda
Vinningsnúmer 12. desember:
96256
Borða deigið áður en það er bakað
„Jólin eru mjög erfitt timabil fyr-
ir fólk með átröskun enda eru þá
allir aö úða í sig góðgæti og sykur
verkar á átfíkla eins og áfengi á
alkóhólista. Því verða þeir að forð-
ast vissan mat,“ segir Inga Bjarna-
son leikstjóri. Með átröskun á hún
við lystarstol, lotugræðgi og ofát.
Allt eru þetta lífshættulegir sjúk-
dómar enda telja læknar átröskun
verða eitt stærsta heilbrigðisvanda-
mál þessarar aldar. Inga barðist
sjálf á tímabili við þennan sjúkdóm
þvi þegar hún var 24 ára þurfti hún
að grennast hratt fyrir sjónvarps-
kvikmynd sem hún var að leika i
úti í Bretlandi. „Ég var bara svo
heppin að ég fékk strax réttu með-
höndlunina," segir hún. Inga hefur
haldið námskeið fyrir stúlkur sem
berjast við lystarstol og lotugræðgi.
Áður hafði hún kynnt sér þessa
sjúkdóma í Bandaríkjunum og unn-
ið á meðferðarstofnun í Flórída sem
vann eftir svokölluðu 12 spora kerfi
OA-samtakanna, (Overeaters An-
onymous). Þau eru systursamtök
AÁ (Alcoholics Anonymous). „Ég
fór til náms í þessu vegna þess að
litil stúlka sem mér þótti vænt um
var haldin þessum sjúkdómi," segir
hún.
Hefur tröllatrú á nýju bókinni
Nýlega kom á markað hérlendis
bókin Matarfikn - Leið til bata með
12 spora kerfi OA-samtakanna. Hún
er eftir bandarískan höfund sem
segir frá þvi hvernig hann náði tök-
um á ofátsflkn sinni, léttist um 50
kíló og hefur viðhaldið þeim ár-
angri í 19 ár með hjálp samtakanna.
Inga sem er nýbúin að lesa bókina
segir hana taka öðru fram sem hún
hafi lesið um átröskun á íslensku og
hefur á henni tröllatrú. „Þeir sem
eru búnir að reyna 30-40 megrunar-
kúra ættu að lesa þessa bók. Hún
prédikar engar skyndilausnir en
hún er vel skrifuð og á eftir að
koma mörgum að gagni,“ segir hún.
Inga bendir á að hin fimmtíu ára
gömlu AA-samtök, sem byggi á
sömu aðferðum og lýst sé í bókinni,
hafi breiðst út um allan heim og
bjargað milljónum mannslífa. „Þeir
sem nota mat á óeðlilegan hátt eru
Bíógagnrýni
Fagnar nýrri bók um matarfíkn
Inga Bjamason hefur unniö meö stúlkum meö lystarstol og lotugræögi.
DV-MYND BRINK
álíka illa settir og alkóhólistar. Mat-
urinn stjórnar lífi þeirra. Þessi nýja
bók, Matarfíkn, hvetur fólk til að
vera í 12 spora kerfmu sem hefur
reynst svo gríðarlega árangursríkt.
Hún er góð uppsláttarbók og í henni
eru líka kaflar sem ætlaðir eru for-
eldrum, mökum, læknum og öðrum
sem láta sig þetta mál varða. Þess
vegna fagna ég henni,“ segir Inga.
Maturinn er notaður sem
deyfilyf
Inga segir átröskun hafa verið til
frá örófi. Það sanni skrif Hip-
pokratesar og Freuds. En ýmislegt í
okkar samfélagi ýti undir hana, svo
sem hraði og streita. „Þetta mikla
draslfæði sem flæðir yfir eykur líka
á vandamálið," segir hún og bætir
við að líklega sé tískan þó verst.
Hún hefur ýmis dæmi á takteinum
um slæm átröskunartilfelli, til
dæmis um konuna sem fór á fætur
á nóttunni til að hræra sér pönnu-
kökudeig og var búin að borða það
áður en það komst á pönnuna. Ekki
er minni þjáningin hjá þeim sem
ekki geta hugsað sér að setja neitt
inn fyrir sínar varir. Inga telur und-
irrót vandans oft vera innibyrgðar
og óuppgerðar tilfinningar, svo sem
hræðsla, reiði og sorg. „Maturinn er
notaður sem deyfilyf og allar höml-
ur bresta," segir hún. Hún segir
fyrsta skrefið í batanum vera það að
viðurkenna vanmátt sinn fyrir þess-
um veikleika. „Það er átak að segja
MMn|
„ég stjórna ekki eigin lífi. Ég verð
að gefast upp“. En leiðin út úr
ógöngunum er fólgin í OA-samtök-
unum sem bókin Matarflkn lýsir
svo vel og þau samtök hafa náð fót-
festu hér á landi.“
Sjúkdómur einmanaleikans
Inga segir að lokum að átfíkn hafi
gríðarleg áhrif á líf þess fólks sem af
henni þjáist. Þvi sé hættara við syk-
ursýki og kransæðastíflu en öðrum,
fyrir utan alla fordómana og vanlíð-
anina sem það eigi við að stríða.
„Þetta er sjúkdómur einmanaleik-
ans,“ segir hún og bætir við:
„Alkinn getur drukkið með félögum
sínum en maður ælir ekki með öðr-
um.“ -Gun.
Stjörnubíó - The Man Who Wasn’t Here: ★ ★ ★ ★
Glæpur og refsing í anda Coen-bræðra
Það eina sem maður getur örugg-
lega búist við af kvikmyndum eftir
þá Coen-bræður er að þær komi
manni á óvart. Þeir hafa daðrað við
flestallar kvikmyndategundir; film
noir, glæpamyndina, geggjuðu gam-
anmyndina o.s.frv. í þeirra nýjustu
kvikmynd, The Man Who Wasn’t
There, fara þeir aftur á sömu slóðir
og í Blood Simple - sinni fyrstu
mynd - film noir-hefðina. The Man
Who Wasn’t There tekur ofan hatt-
inn fyrir Hitchcock og bestu noir-
kvikmyndunum frá fimmta ára-
tugnum, eins og Double Indemnity
og The Postman Always Rings
Twice. Þar með er ekki sagt að þeir
steli neinu (þeir fá ekki einu sinni
lánað) en svart/hvítt andrúmsloft
kvikmynda þar sem glæpur er fram-
inn, að því er virðist fullkomlega,
en óheppnin eltir aðalpersónurnar
og þær enda króaðar af vegna smá-
atriða sem enginn tók eftir, lifir í
þessari mynd. Hér er glæpur fram-
inn en það er ekki beint hans vegna
sem glæpamaðurinn hlýtur refs-
ingu.
Billy Bob Thornton leikur Ed
Crane, rakara sem hefur aldrei ver-
ið ánægður í starfi, í hjónabandi, í
lífinu. Enda hefur hann sjálfur
aldrei tekið neina ákvörðun, hann
hefur bara ekki hreyft mótmælum
og þess vegna er hann nákvæmlega
í þessum sporum: að vera rakari hjá
mági sínum í Kaliforníu stuttu eftir
seinni heimsstyrjöld. Konan hans,
Doris (Frances McDormand), vinn-
ur sem bókari í verslun og heldur
Rakarinn Ed Crane
Billy Bob Thornton í hlutverki manns sem aldrei hefur veriö ánægöur í lífinu.
fram hjá honum með yflrmanni sín-
um, Stóra Dave Brewster (James
Gandolfini). Ed er nokkurn veginn
sama, hann fær sér bara aðra sígar-
ettu og horfir út í bláinn. En þegar
frekar vafasamur sölumaður (Jon
Polito) býður honum að verða félagi
sinn í þurrhreinsunarævintýri er
eins og Ed vakni úr dái eitt augna-
blik og fjárkúgar Stóra Dave til að
geta sett fjármagn í þurrhreinsun-
ina. Fjárkúgunin hrindir af stað at-
burðarás sem leiðir til svika og
morða og bæði kemur á óvart hverj-
ir drepa og hverjir eru drepnir.
The Man Who Wasn’t There er
svart/hvít og svo undurfallega tekin
og svo listilega er leikið með ljós og
skugga að maður situr agndofa af
aðdáun. Coen-bræöur hafa verið
þekktir fyrir stílvissar myndir og
þessi er engin undantekning - það
er heldur að hún fari skrefi lengra.
Handritið er frábært, spennuþrung-
ið en kryddað dökkum húmor á
óvæntum stöðum - söguþráðurinn
fer alltaf aðrar leiðir en maður býst
við og heldur manni límdum við
Sif
Gunnarsdóttir
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
tjaldið. Billy Bob Thornton býr yfir
leikhæfileikum sem ég hafði ekki
hugmynd um, hann er svo góður í
hlutverki hins þögla, keðjureykj-
andi og lokaða Ed Crane að það er
unun að fylgjast með honum. Stund-
um minnir hann örlítið á Hump-
hrey Bogart - bara dýpri. í kringum
hann eru leikarar sem fara vel með
hlutverk sín eins og Frances
McDormand í hlutverki drykkfelldr-
ar og svikullar eiginkonu, Tony
Shalhoub, sem úrræðagóður og
hraðmæltur lögfræðingur, Scarlett
Johannsson, í hlutverki unglings-
stúlku sem ekki er sakleysið upp-
málað, og góðkunningi sjónvarpsá-
horfenda, James Gandolfini, sem
Stóri Dave, og það verður nú að
segjast að hann minnir um margt á
Tony Soprano.
Það allra besta við myndina er
hversu róleg hún er. Sagan færist
áfram ákveðnum en afar hægum
skrefum. Það er enginn að flýta sér
á leiðarenda. Leikstjóri og handrits-
höfundar treysta sögunni, leikurun-
um og ekki síst okkur áhorfendum
fullkomlega til að fylgja persónun-
um alla leið. Og þvílík leið - og þvi-
líkur endir. Minnisstætt listaverk
sem ekki ætti að missa af.
Leikstjóri: Joel Coen. Handrit: Joel & Et-
han Coen. Kvikmyndataka: Roger Deak-
ins Tónlist: Carter Burwell. Aöalleikarar:
Billy Bob Thornton, Frances McDormand,
James Gandolfini, Michael Badalucco,
Scarlett Johansson, Jon Polito, Tony
Shalhoub o.fl.