Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Qupperneq 32
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 <* Sveitarstjóri: Neitar aö flytja af snjó- flóðasvæði Friögerður Baldvinsdóttir, svéit- arstjóri i Súðavík, neitar að rýma hús sitt sem er á yfirlýstu snjóflóða- svæði og hefur svo veriö um árabil. Almannavarnarnefndin á ísafirði hefur fundað vegna kergju sveitar- stjórans enda hafa yfirvöld áhyggj- ur af búsetu Friðgerðar á hættu- svæðinu í Súðavík. Fyrir liggur kauptilboð frá hreppnum í hús sveitarstjórans en tilboðið er án tímamarka og því situr Friðgerður sem fastast. Sýslumaðurinn á ísa- firði getur lítið aðhafst og kýs að bíða átekta. Sjá nánar bls. 37. Þungatakmarkanir: Allar undanþágur afturkallaðar „Á meðan þetta ástand varir er gamla reglan í gildi og allar undan- þágur sem menn hafa haft eru aftur- kallaöar," segir Björn Svavarsson hjá Vegagerð ríkisins en Vegagerð- in hefur hert tökin varðandi þunga- takmarkanir á þjóðvegum landsins og fylgist vel með að þær séu virtar. „Þetta gildir um meginþorra allra vega landsins og hámarksþunginn er 39 tonn og 23 tonn fyrir vörubíla. Á Vestfjörðum en þetta þó eitthvað stífara sums staðar. Frost er víða að fara úr vegunum og ástand þeirra því varasamt en strax og frystir aft- ur verður þessum takmörkunum aflétt," sagði Bjöm. -gk Smáralind Sá fyrsti kominn og tólf á leiðinni Stekkjastaur laumaöist til byggöa í gærkvöid og fór víöa meö pokann sinn fram eftir nóttu. Hér launar hann reykvískri stúlku þægðina á síöustu dögum og ekki aö efa aö fleira góögæti fer ofan í sama skó á næstu dögum. Ú thverf af rambo ð: Ánægja með frumkvæðið Aðalfundur Hverfasamtaka Graf- arvogs, sem haldinn var í gær, lýsir í ályktun sinni ánægju með það framkvæði sem formaðurinn hefur sýnt að undanfórnu með að stofnað verði til sérstaks úthverfaframboðs í borginni. Nauðsynlegt sé að radd- ir fólks í úthverfum heyrist betur og meira í umræðu um borgarmálin. „Það er heilmikill áhugi fyrir út- hverfaframboði. Við höfum einnig sett okkur í samband við fólk í Árbæ og Breiðholti og kannað áhuga þess fyrir svona framboði," segir Hallgrímur N. Sigurðsson, for- maður hverfasamtakanna. Hallgrímur staðfestir þær heim- ildir DV að fulltrúar D- og R-lista hafi sett sig í samband við Grafar- vogsfólk og reynt að hafa áhrif á að úthverfaframboð yrði ekki að veru- leika. -sbs Vissi alltaf að strák- arnir myndu ná í mig - segir Jón Björnsson sem féll útbyrðis af togaranum Kaldbak í Eyjafirði í gærkvöldi „Mín fyrsta hugsun þegar ég gerði mér grein fyrir því að ég var á leið út- byrðis var að ég þyrfti að losna frá vírnum strax og ég kæmi í sjóinn. Það gekk mjög vel og þótt skipið fjarlægð- ist mig var ég alltaf sannfærður um að strákarnir myndu koma og ná í mig og ég sagði upphátt að ég ætlaði ekki að fara núna,“ segir Jón Björns- son, skipverji á togarnum Kaldbak frá Akureyri, en honum var bjargað í Eyjafirði í gærkvöldi eftir að hafa fall- ið útbyrðis þegar skipið var á leið út fjörðinn. Togarinn var á útleið skammt utan Svalbarðseyrar. Eftir björgunina var farið með Jón á Fjórð- ungssjúkrahúsið en að lokinni skoðun fékk hann að fara heim. Hann var ótrúlega vel á sig kominn en marinn og þrekaður eftir þessa lífsreynslu. „Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því hvað gerðist en vír sem verið var að láta renna útbyrðis slóst í mig og kippti mér aftur úr og niður rennuna. Þegar ég var kominn í sjóinn losaði ég mig við úlpu, gúmmíbuxur og stígvél sem þyngdu mig og svo reyndi ég bara að halda ró minni. Það var talsverð alda en ég geri mér ekki grein fyrir hversu miki,l“ segir Jón en sunnan- hvassviðri var í Eyjafirði í gærkvöldi. Jón segist ekki gera sér grein fyrir því hversu langt skipið hafi fjarlægst sig áður en því var snúið við. „Ég fylgdist hins vegar vel með og sá þeg- Jón Björnsson „Fyrsta hugsunin var aö ég þyrfti aö losna frá vírnum þegar ég kæmi í sjóinn. “ ar skipinu var snúið og að strákamir voru komnir með kranann í gang. Þá vissi ég að þeir voru að gera gúmmi- bátinn kláran. Þegar báturinn var kominn í sjóinn og þeir tóku stefnuna til min kallaði ég eins og ég gat og þeir sögðu mér að þeir hefðu heyrt í mér. Strákarnir stóðu sig rosalega vel, ég er þeim afar þakklátur og sendi þeim minar bestu kveðjur," sagði Jón í morgun. Hann er 39 ára gamall, gift- ur og þriggja barna faðir. „Það stóðu sig allir mjög vel við þessar aðstæður, bæði Jón sem féll út- byrðis og strákarnir um borð. Jón los- aði sig við þungan fatnað og eyddi ekki kröftunum í neitt óþarfa svaml. Strákarnir hentu út bjarghring með ljósi sem Jón náði reyndar ekki í og þeir komu léttabátnum í sjóinn á al- veg ótrúlegum hraða. Svo hjálpaði það að Jón var með hvitan skíðahjálm sem glampaði á og það auðveldaði að finna hann. Það hjálpaðist allt að og Jón var ekki nema um 10 mínútur í sjónum. Ég er mjög ánægður með mina menn og hvernig þeir brugðust við,“ sagði Víðir Benediktsson, skip- stjóri á Kaldbak, þegar DV ræddi við hann í morgun. -gk Samtök atvinnulífsins samþykkja áframhaldandi viðræður við ASÍ: Búist við samkomulagi í dag - styrking krónunnar hvetur okkur, segir Ari Edwald Búist er við að samkomulag Sam- taka atvinnulífsins og Alþýðusam- bands íslands, um aðgerðir til að koma í veg fyrir uppsögn launaliðar samninga í febrúar, geti náðst í dag. Stjórn Samtaka atvinnulifsins sam- þykkti á fundi sínum í gær að halda áfram viðræðunum við Alþýðusam- bandið en sem kunnugt er snúast þær fyrst um aö viðbótarlífeyris- greiðslur atvinnurekenda verði í formi fasts framlags og að launa- hækkun sem koma á til fram- kvæmda um áramótin 2002/2003 verði heldur hærri en um hafði ver- ið sammið. Ari Edwald vildi í gær ekki tjá sig um það hvað bæri á milli en kvaðst vongóður um að samningar myndu nást i dag, miðvikudag, en menn væru að ná utan um einstök atriði í þessu samkomulagi. Ljóst er að aðkoma ríkisstjórnarinnar liggur fyrir en hún mun felast í yfirlýsingu sem gefin verður út um þau atriði sem áður hafa verið tiunduð hér í blaðinu. Það hefur blásið miklu lífi í þess- ar viðræður allar að fréttir af við- ræðunum hafa haft mjög jákvæð áhrif á þróun íslensku krónunnar sem styrktist um 2,7% í gær og var gengisvísitalan komin niður í 145,1 stig við lokun í gær. „Þetta hefur vitaskuld verið okkur mikil hvatn- ing að ljúka þessu. Eftir því sem maður heyrir hjá markaðsaðilum eru þessar viðræður taldar vera yf- irgnæfandi skýring á þessari þró- un,“ segir Ari Edwald. -BG Ari Edwald. Útiljós Rafkaup Ármúla 24 • S. 585 2800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.