Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Síða 4
4
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002
Fréttir
Framsóknarmenn láta gera skoðanakönnun um sæti á R-listanum:
Hálfopið prófkjör hjá Samfylkingu
- Vinstri grænir frestuðu uppröðunarmálum vegna handboltaáhuga
Vinstri grænir, framsóknarmenn
og Samfylking samþykktu öll um
helgina að sameinast undir merkj-
um R-listans fyrir borgarstjórnar-
kosningamar í vor. Talsmenn fylk-
inganna fagna þessu skrefi en enn
hafa ekki allir tekið afstöðu til röð-
unarforms á lista. Vinstri grænir
frestuðu ákvörðunartöku um þau
mál, m.a. vegna „handboltafiör-
ings“, að sögn Sigríðar Stefánsdótt-
ur, formanns Reykjavíkurfélags
Vinstri grænna. Skoðanakönnun
verður hins vegar meðal framsókn-
armanna en prófkjör hjá Samfylk-
ingunni.
Sigrún hættir
Alfreð Þorsteinsson, 1. maður
framsóknarmanna í R-listanum, lýsti
um helgina vilja til að vera í forystu
framsóknarmanna áfram en Sigrún
Magnúsdóttir, sem verið hefur borg-
arfulltrúi frá árinu 1986, hefur
ákveðið aö hætta
þátttöku í stjórn-
málum. Alfreð
sagði í samtali
við DV í gær að
mikil eftirsjá yrði
að Sigrúnu enda
hefði hún unnið
geysilega gott
starf á þessum 16
árum. Hann segir
reiknað með
bindandi niðurstöðum fyrir 4 efstu
sætin i skoðanakönnun flokksins.
Varaborgarfulltrúarnir Óskar Bergs-
son og Guðrún Jónsdóttir hafi lýst
yfir um helgina að þau sækist eftir
að komast inn á listann.
Allir oddamenn áfram
Stefán Jóhann Stefánsson, for-
maður kjördæmafélags Samfylking-
arinnar í Reykjavík, segir að eftir
nokkra yfirlegu hafi verið sam-
Sigríður Stefán Jóhann
Stefánsdóttir. Stefánsson.
þykkt að efna til prófkjörs meðal
flokksmanna og annarra sem styðja
flokkinn. Nokkuð góð sátt hafi verið
um þá leið þótt fleiri tillögur hafi
komið fram. Menn hafi m.a. rætt
lokaðra prófkjör en niðurstaðan
hafi orðið bindandi prófkjör fyrir 3
efstu sætin meðal flokksmanna og
annarra sem lýsa stuðningi við
Samfylkinguna.
Allir þrír oddamenn Samfylking-
arinnar, Helgi Hjörvar, Steinunn
Valdís Óskarsdóttir og Hrannar B.
Arnarsson, hyggjast gefa áfram kost
á sér.
Uppröðun hjá VG-framboðinu?
Sigríöur Stefánsdóttir segir að
hjá Vinstri grænum hafi einkum
tvær tillögur komið fram um upp-
röðun. Annars vegar hafi verið
rætt um tilnefningarleið svokall-
aða þar sem félagsmenn tilnefni
einstaklinga og uppstillingamefnd
vinni út úr því og skili fyrir félags-
fund. Hins vegar hafi komið fram
tOlaga um prófkjörsleið en Sigríð-
ur segist persónulega á móti próf-
kjörum. Henni hugnist hins vegar
fyrri leiðin ágætlega. Þar sé meiri
von til að fá inn „nýtt fólk og
spennandi" eins og hún orðar það.
Samkvæmt heimildum DV
hyggjast allir flokkarnir þrír verða
tilbúnir með leiðir sínar fyrir 23.
febrúar nk. -BÞ
Þorsteinsson.
Vill láta athuga um siglingar til Vestmannaeyja á loftpúðaskipi:
Siglingartíminn yrði tíu mínútur
- segir ísólfur Gylfi Pálmason sem flytur þingsályktunartillögu um málið
„Ég tel þetta mjög raunhæfan
möguleika sem nauðsynlegt er að
prófa. Síðast var loftpúðaskip reynt
á siglingu milli lands og Eyja 1968.
Síðan hefur orðið mikil þróun í
þessum málum eins og raunar öll-
um samgöngutækjum," sagði Isólfur
Gylfi Pálmason, þingmaður Fram-
sóknarflokksins á Suðurlandi, sem
er fyrsti flutningsmaður þingsálykt-
unartillögu um að samgönguráð-
herra verði falið að skoða kosti og
galla þess að taka upp siglingar á
milli Vestmannaeyja og Landeyja-
sands á svifnökkva. Lagt er til að
niðurstöður liggi fyrir ekki síðar en
1. nóvember nk. „Eftir að göng
komu undir Ermarsund og Stóra-
beltisbrúin losaði um mikið af
svifnökkvum væri hugsanlega hægt
að fá þá leigða til að byrja með á
hagstæðu verði. Einnig eru þeir á
söluskrá ásamt varahlutum;" sagði
ísólfur Gylfi. Hann segir að
svifnökkvar eigi að henta vel við ís-
lenskar aðstæður, Auðvitað geti
dottið út einstakir dagar í þeirra
DV-MYND NH
Allsherjarhöfn
ísólfur Gylfi á Bakkaflugvelli sem yröi meö tilkomu loftpúöaskips einnig
lendingarstaður þess.
ferðum, eins og gerist með þeim
kostum sem eru í boði á milli lands
og Eyja í dag. ísólfur Gylfi segir að
með svifnökkva eigi siglingin á
milli að taka um tíu mínútur, til
samanburðar er Herjólfur á þriðju
klukkustund að fara á milli Eyja og
Þorlákshafnar. Svifnökkvar þurfa
ekki höfn til að leggjast að, þeim er
hægt að sigla upp á sandinn og losa
þá og lesta þar. ísólfur telur
svifnökkva vera álitlegan kost í því
kapphlaupi um tíma sem er í dag.
„Við erum alltaf að reyna að bæta
samgöngur og stytta vegalengdir,
þessi möguleiki á að geta komið til
móts við íbúa Vestmannaeyja og þá
sem þangað fara i styttri ferðatíma,
þessi skip geta einnig flutt bíla og
annan vaming svo að með þeim er
ekki bara verið að tala um styttingu
á ferðatíma fyrir þá sem aðeins
þurfa að komast á milli, þeir sem
eru akandi geta líka komist á fljótan
og þægilegan máta á milli,“ sagði
ísólfur Gylfi Pálmason þingmaður
Sunnlendinga. -NH
Vont veður setti strik í reikninginn um land allt:
Ofærð og útafakstur í ofsaveðri
Það var víða sem veðurhamurinn
kom bUum út af um helgina. Á láug-
ardagsmorgun fauk einn út af undir
Ingólfsfjalli. Ökumaður, sem var
einn í bílnum, var fluttur á slysa-
deUd en meiðsl hans voru ekki mik-
U. BUlinn er hins vegar heilmikið
skemmdur. í nágrenni Akureyrar
fóru sex bílar út af vegna veðurofs-
ans um helgina. Að sögn lögreglunn-
ar á Akureyri urðu engin meiðsl á
fólki í þessum tUvikum enda voru
ökumennirnir allir á lítilli ferð
vegna slæms skyggnis. Hjá Þverholti
við Laugarholt varð árekstur tveggja
bUa á föstudagskvöldið vegna slæmr-
ar færðar. Meiðsl ökumanna bfl-
anna, sem voru einir á ferð, voru
ekki teljandi en bílamir eru mikið
skemmdir. Á Vestfjörðum var kolvit-
laust veður og ófært miUi þéttbýlis-
staða á laugardag en þar sem Veður-
stofan hafði gefið út viðvörun hélt
fólk sig að mestu leyti innandyra svo
lítið var um það að bifreiðaeigendur
lentu f óhöppum. Að sögn lögregl-
unnar á Isafirði var í nógu aö snúast
hjá henni um helgina við að taka á
móti símtölum frá áhyggjufullu
fólki, sem og að keyra fólk tU vinnu
á heUbrigðisstofnanir á laugardag.
Lögreglan á Hólmavík hafði einnig i
nógu að snúast vegna óveðursins en
hún varð að hjálpa þremur bUum
ofan af Steingrímsfjarðarheiði að-
faranótt laugardags. -snæ
Vinstri grænir gegn frelsi í áfengissölu
- þverpólitískt mál aö öðru leyti, segir 1. flutningsmaöur
VUhjálmur Egilsson, 1. Uutningsmað-
ur frumvarps um afnám á einkasölu
ÁTVR á vínsölu, segist telja málið
þverpólitískt en þó séu Vinstri grænir
væntanlega á einu máli um að leggjast
gegn afnámi ÁTVR. Á þinginu í fyrra
lagði Vilhjálmur einnig fram frumvarp-
ið en þá komst það ekki á dagskrá. Nú er
hins vegar 1. umræða hafin en síðan fer
málið í nefnd. „Sumir reyna aUtaf að
koma í veg fyrir að málið komist áleið-
is,“ sagði VUhjálmur i samtali við DV í
gær.
VUhjálmur segist ekki vera búinn að
kanna tU hlítar hvort meirihluti sé fyrir
breytingunum en einstakir menn innan
stjómarandstöðunnar séu líklegir til að
styðja það fyrir utan vinstri græna.
Hann segist ekki vita til að þingmenn
SjálfstæðisUokksins leggist gegn málinu
en útUokar þó ekkert f þeim efnum.
Verður einokun ATVR afnumln?
Frumvarp til laga um frelsi í áfengissölu veröur lagt fram á Alþingi.
„Viðskiptavinimir gera sífeUt aukna
kröfu um þjónustu og þess vegna þjónar
einokun ríkisins á smásöluverslun með
áfengi ekki lengur þeim tUgangi að tak-
marka aðgang viðskiptavinanna að vör-
unni,“ segir í greinargerð með frum-
varpinu. Einrtig segir: „Markmiðið með
rekstri einkasölu ríkisins á áfengi hefur
verið að draga úr neyslu þess með tak-
mörkuðum aögangi að því. Með sífeUt
fleiri útsölum og bættri þjónustu hefur
þetta markmiö smám saman vikið og
fyrirkomulag starfseminnar líkist æ
meira venjulegum einokunarrekstri þar
sem leitast er við að uppfyUa þarfir við-
skiptavinanna, án þess þó að kosta of
miklu tU. Aldrei verður þó sambærUeg-
ur möguleUci til þjónustu við viðskipta-
vini hjá einokunaraöUa og þegar fleiri fá
tækifæri tU að þjóna markaðnum."
-BÞ
Formaður efnahags- og
viðskiptanefndar:
Vonbrigði að fá
ekki vaxtalækkun
Vilhjálmur Egilsson, formaður
efnahags- og viðskiptanefndar Al-
þingis, lýsir meiri bjartsýni en
Seðlabankinn
varðandi verð-
bólguna á næstu
mánuðum.
Seðlabankinn
telur að rauða
strikið svokall-
aða muni ekki
halda í vor en
Vilhjálmur segir
enga ástæðu til
að örvænta
strax. „Þeir hljóta að spá eftir
bestu sannfæringu en ég myndi
halda að gengið styrktist á næstu
mánuðum en það myndi hjálpa
verulega. Svo
hefur hægt mjög
á eftirspurn á
ýmsum sviðum.
Margir eru að
borga skuldir
sínar þessa dag-
ana,“ segir Vil-
hjálmur.
Hann er hins
vegar ósáttur við
aö bankinn skuli
ekki lækka stýrivexti og segir að
hann hafi talið svigrúm til þess
fyrir lifandi löngu.
Helstu rök Birgis Isleifs Gunn-
arssonar seðlabankastjóra fyrir
þvi að lækka ekki vexti er ótti við
verðbólgu en Vilhjálmur telur að
verðbólgan sé að fara það hratt
niður að vaxtalækkun geti orðið á
sama tíma. -BÞ
Vilhjálmur
Egilsson.
Birgir ísleifur
Gunnarsson.
Ofsinn yfirstaðinn:
Ornuðu sér við
rekavið
Skaplegasta veður var komið víð-
ast hvar á landinu í gærkvöld eftir
áhlaupið á laugardag. Helstu leiðir
á landi voru orðnar færar og flug-
samgöngur gengu greiðlega fyrir
sig. Snjóflóðahættu sem var á
nokkrum stöðum á landinu hafði
veriö aflýst - og veðurspá næstu
daga er bærileg. Rafmagn er víðast
hvar komið á að nýju en selta á lín-
um og staurabrot í stormi urðu þess
valdandi að víða fór rafmagn af.
Þannig fór rafmagn af Strandasýslu
stafna á milli en kappsamir starfs-
menn Orkubús Vestfjarða voru bún-
ir að kippa málum víðast hvar í lið-
inn i gær. Þó var enn rafmagnslaust
á norðanverðum Ströndum og hafði
svo verið alveg síðan á fostudags-
kvöld
„Við erum öllu vön hér og kipp-
um okkur ekki upp við rafmagns-
leysi. Hér höfum við dísilrafstöð og
margir kynda húsin með spýtna-
kötlum sem í eru settir rekaviðar-
stubbar. En nú er rafmagn komið
alveg norður fyrir Trékyllisheiði og
þá fer væntanlega að rætast úr
þessu,“ sagði Guðbjörg Þorsteins-
dóttir í Bæ í Árneshreppi í samtali
við DV í gærkvöld.
Mesta tjónið í veðurofsanum um
helgina varð í Keflavík. Þar urðu
miklar skemmdir á varnargarði við
höfnina og nokkur hundruð metra
langur kafli af Ægisgötu hvarf í sjó-
inn. Ljóst þykir að endurbætur á
veginum kosti fleiri milljónir. -sbs
Lést í bílslysi
Maðurinn sem lést í bílslysi á
Gemlufallsheiði síðdegis á föstudag
hét Sófus Oddur Guðmundsson og
bjó á Þingeyri. Hann var fæddur
1957 og lætur eftir sig eiginkonu og
þrjú börn á aldrinum sex til nítján
ára. Lögreglan á ísafirði sendi frá
sér fréttatilkynningu vegna slyssins
og segir þar að allt bendi til að
snörp vindhviða hafi feykt bifreið-
inni, sem Sófus ók, út af veginum.
Hafnaði hún nokkra tugi metra fyr-
ir neðan veginn, þar sem vegurinn
upp á heiðina Önundarfjarðarmegin
er í allbrattri hlíð. Talið er að öku-
maðurinn hafi látist samstundis.
-sbs