Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Qupperneq 6
6
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002
DV
Fréttir
Hringvegurinn:
Ellefu einbreiðar
brýr breikkaðar í ár
- 700 milljónir veittar í verkefnið
Vegagerðin áformar fram-
kvæmdir við breikkun ellefu ein-
breiðra brúa á hringveginum á
þessu ári. Alls verða 700 milljónir
króna í heild veittar í þetta verk-
efni í ár, það er breikkun brúa og
vegagerð henni samfara. Þegar ár-
ið er úti verður búið að breikka
flestar þær brýr sem reynst hafa
ökumönnum hættulegastar í gegn-
um tíðina.
Áttatíu einbreiðar brýr eru á
hringveginum í dag. Breikka á
fjórar slíkar í Vestur-Skaftafells-
sýslu í ár: brúna á Skaftá við
Kirkjubæjarklaustur og þrjár sem
eru yfir ár i Fljótshverfi. Brúin yf-
ir Þverá í Rangárvallasýslu verður
breikkuð en langstærsta verkefnið
er bygging nýrrar stórbrúar yfir
Þjórsá við Þjótanda, nokkru neðar
en gamla brúin er. Á og við gömlu
brúna hafa raunar orðið á síðustu
árum flest þau slys sem rekja má
beint til einbreiðra brúa á hring-
veginum, að sögn Rögnvalds Gunn-
arssonar, forstöðumanns fram-
kvæmdadeildar Vegagerðarinnar.
Aðrar brýr sem breikka á eru
svo brýrnar yfir Vatnsdalsá i Aust-
ur-Húnavatnssýslu, Reykjadalsá í
Suður-Þingeyjarsýslu, Skálá í
Berufirði og Hólmsá á Mýrum í
Austur-Skaftafellssýslu. Ellefta
brúin sem breikka á á þessu ári er
yfir Norðurá í Borgarfirði, uppi
undir sporði Holtavörðuheiðar, en
við hana varð einmitt hörmulegt
banaslys sl. fimmtudagskvöld.
Lengi var staðan sú að flestar og
hættulegustu einbreiðu brýrnar
voru á Norðurlandi vestra. Gerð
hefur verið gangskör að breikkun
þeirra og ekki er langt síðan brýrn-
ar yfir Víðidalsá og Gljúfurá í
Vestur-Húnavatnssýslu voru gerð-
ar tvíbreiðar. Af hættulegum brúm
á Norðurlandi vestra er nú aðeins
eftir Síkárbrú í Hrútafirði og í
framkvæmdir við hana verður far-
ið á árinu 2003.
Kirkjubæ j arklaustur:
Hálsbrotinn
mótorhjóla-
maður
Ökumaður mótorhjóls, sem talinn
var hálsbrotinn, var fluttur með
sjúkrabíl frá Kirkjubæjarklaustri til
Reykjavíkur á föstudagskvöldið eft-
ir byltu sem hann fékk á hjóli sínu.
Óhappið varð í Landbroti hjá
Kirkjubæjarklaustri þar sem hópur
fólks á torfæruhjólum var að leika
sér. Að sögn lögreglunnar á Vík er
talið að ökumaðurinn, sem er á fer-
tugsaldri, hafi lent í mislægð með
fyrrgreindum afleiðingum. -snæ
Húsbruni í
Hrísrima
Rétt eftir miðnætti aðfaranótt
sunnudags kom upp eldur í Hrísrima
í Reykjavík. Slökkvilið var kallað á
vettvang og var töluverður eldur í
íbúðinni þegar það kom að. Vel gekk
að slökkva hann en miklar skemmd-
ir urðu á íbúðinni. Heimilisfólk sak-
aði ekki en ein kona var flutt á slysa-
deild vegna gruns um reykeitrun.
Talið er að eldurinn hafi kviknað út
frá logandi kerti. -ÓSB
Friðsöm
þorrablót
Þrátt fyrir útborgunarhelgi var
frekar rólegt i miðbæ Reykjavíkur
um helgina, ef frá eru taldir nokkr-
ir smápústrar. Sömu sögu er að
segja frá Akureyri en þar hélt fólk
sig heima vegna veðurs. Þorrablót
voru haldin bæði á Austurlandi og í
Þingeyjarsýslunni og fóru þau öll
vel fram. Það var helst að það væri
erill hjá lögreglunni á Selfossi en
þar í bæ virtust nokkrir hafa eytt
laununum sínum í óþarflega mikið
magn af áfengi. -snæ
Flutningabílstjóri á Akureyri:
Er illa við ein-
breiðu brýrnar
- Norðurárbrú í Borgarfirði er verst
DV-MYND -SBS
Bíllinn og bílstjórinn
„Þaö er léttir að hverri einbreiöri brú sem hverfur, “ segir Siguröur Magnús-
son á Akureyri, bílstjóri hjá Flytjanda.
„Ég viðurkenni aldrei að ég hræð-
ist einbreiðar brýr en vissulegar er
mér illa við þær,“ segir Sigurður
Magnússon, flutningabílstjóri hjá
Flytjanda á Akureyri, við DV. Hann
keyrir leiðina suður til Reykjavíkur
mjög oft og við ýmsar aðstæður.
Einbreiðu brýrnar á leiðinni eru að
visu ekki nema sjö eftir en jafn-
mörgum of margar, segir Sigurður.
Hann telur suma kafla leiðarinnar í
raun og sann vera krákustígar og
undrar hvers vegna pólítískur vilji
til að setja meiri peninga og kraft í
vegabætur sé ekki meiri.
„Það er léttir að hverri einbreiðri
brú sem hverfur. Allar eru þær
slæmar en sumar verri en aðrar,“
sagði Sigurður. Hann tilgreinir sér-
staklega brú í Garðsgili í Norðurár-
dal í Skagafirði. „Öðrum megin við
brúna er blindhæð og hinum megin
blindbeygja. Bæði af hæðinni og úr
beygjunni er svo stuttur spotti að
ekki sést hvort bíll er að koma á
móti. En þarna í 15 kílómetra löng-
um Norðurárdalnum eru fjórar ein-
breiðar brýr, vegurinn mjór og slys
þarna hafa orðið fjöldamörg. Samt
er beðið með framkvæmdir þarna
ár eftir ár,“ segir Sigurður.
Bugðóttur krákustígur
Hann telur ástæðu þessa dráttar á
framkvæmdum kunna að vera þá að
Norðurárdalur sé nærri kjördæma-
mörkum. Því sé minni pressa á
þingmenn en ella að veita peningum
til vegabóta á þessum slóðum, enda
atkvæði varla í húfi. Sama gildir
um brú yfir Norðurá í Borgarfirði,
upp undir sporði Holtavörðuheiðar,
þar sem varð hörmulegt banaslys í
síðastliðnum mánuði. Segir Sigurð-
ur að oft séu aðstæður fyrir sig þar
erfiðar þegar ekið sé á 26 tonna
vöruflutningabíl með viðlíka þung-
an vagn í eftirdragi. „Það ætti ekki
að vera neitt mál að byggja upp nýja
brú á þessum stórhættulega stað,“
segir Sigurður. Hann undirstrikar
einnig hve nauðsynlegt sé að gera
bragarbót á veginum frá Gljúfurá og
upp fyrir Hreðavatn í Borgarfirði,
það sé bugðóttur krákustígur sem
beri afls ekki umferðarþunga dags-
ins í dag.
-sbs
£ öJíiVu/ÍijJJ
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 17:25 17:02
Sólarupprás á morgun 09:56 09:40
Síödegisflóð 24:04 04:37
Árdegisflóö á morgun 05:13 09:46
luEíjcS wSíSÍíi
Kalt áfram
Norðlæg átt, 5-10 m/s. Dálítil él við
norðurströndina og suðaustanlands,
en annars skýjað meö köflum og úr-
komulítið. Frost verður á bilinu 0 til
10 stig, miidast suöaustanlands.
Veöríð á
EEuSEíuj
El fyrir noröan
Noröur og norövestan átt 10-15
m/s. Él noröan til en léttskýjað
syðra. Frost 2 til 10 stig.
Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur
Hiti -4* Hiti 0” Hitr 0”
til -18” til -4" til-4"
Vindur: Vindur: Vindur:
10-15"'’ 5-8 ■ -/ - 5-8 m/s
Noröan- og norð- Noröan- og norö- vestanátt, víöa austanátt, 5-8 10-15 m/s og m/s og snjó- él noröan tll en koma eöa élja- léttskýjaö sunn- gangur noröan til an tll. Frost en skýjaö sunn- 4-18 stig, kald- an til. Hiti 0-3 ast noröan- stig austast en lands. annars frost. Austan og norö- austanátt og víöa él eöa snjö- koma, einkum þó noröan og austan tll. Vœgt frost.
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinnlngsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviöri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviöri >= 32,7
SWufTrh !Ú. 5
AKUREYRI -5
BERGSSTAÐIR -5
BOLUNGARVÍK -7
EGILSSTAÐIR 0
KIRKJUBÆJARKL.
KEFLAVÍK
RAUFARHÖFN
REYKJAVÍK
STÓRHÖFÐI
BERGEN
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
ÓSLÓ
STOKKHÓLMUR
ÞÓRSHÖFN
ÞRÁNDHEIMUR
ALGARVE
AMSTERDAM
BARCELONA
BERLÍN
CHICAGO
DUBLIN
HALIFAX
FRANKFURT
HAMBORG
JAN MAYEN
LONDON
LÚXEMBORG
MALLORCA
MONTREAL
NARSSARSSUAQ
NEW YORK
ORLANDO
PARÍS
VÍN
WASHINGTON
WINNIPEG
1
-3
0
-2
3
7
6
7
5
8
7
8
16
11
13
14
4
3
-12
13
14
0
10
12
16
-11
-12
1
17
13
11
-3
-20