Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Page 8
8
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002
I>v
Fréttir
Fær styrk til smáríkjaseturs á Islandi:
Toluverð groska i
smáríkjarannsóknum
- segir frumkvödullinn Baldur Þórhallsson lektor
DV-MYND: BRINK
Frumkvööullinn
„Það er mikil gróska í smáríkjarannsóknum í Evrópu. Það hafa verið að
myndast mörg smáríki í Austur-Evrópu að undanförnu og eins eftir fall Sovét-
ríkjanna. Það er mjög spennandi að kynna sér hvernig þessum þjóðum geng-
ur að fóta sig í Evrópusamrunanum og í alþjóðakerfinu eftir að kalda stríðinu
er lokið, “ segir Baldur Þórhallsson hér i viðtalinu.
Fyrir skemmstu hlaut Baldur Þór-
hallsson, lektor í stjórnmálafræði við
Háskóla íslands, önnur verðlaun i hug-
myndasamkeppninni Upp úr skúffun-
um. Að henni standa Rannsóknarþjón-
usta Háskóla íslands og Nýsköpunar-
sjóður atvinnulífsins. Verðlaunin fær
Baldur fyrir hugmynd sína um að setja
á laggimar hér á landi rannsókna- og
kennslusetur um smáríki, þar sem
menn myndu beina kröftum sínum að
rannsóknum og kennslu um smáríki.
En hefur hugmyndin lengi verið i
deiglunni?
Siguröur Bogi
ma
Fréttaviðtalið
„Ég er búinn að velta þessu fyrir
mér um nokkurra ára skeið. í dag er
þó nokkur fjöldi fræðimanna í heimin-
um sem fæst við smáríkjarannsóknir.
Miðað við þær undirtektir sem ég hef
fengið vænti ég að setrið gæti hafið
starfsemi sína á næsta ári. Allir þeir
sem ég hef leitað til hafa sýnt mikinn
áhuga á að taka þátt í stofhun seturs-
ins. Mönnum fmnst líka spennandi að
miðstöð i þessum fræðum verði valin
staður á eyju hér úti í miðju Atlants-
hafmu.“
Áhugavert fyrir atvinnulífið
- Hefur verið sótt víðar um styrki
en til Rannsóknarþjónustu HÍ og Ný-
sköpunarsjóðs atvinnulífsins?
„Háskólasjóður Háskóla íslands hef-
ur styrkt framgang þessa máls, sem og
félagsvísindadeild HÍ. Ég er einnig að
fara að kynna þessa hugmynd fyrir op-
inberum aðilum, hagsmunasamtökum
atvinnulífsins og fyrirtækjum. Þegar
hefur verið sótt um stóran styrk til
Erasmus-áætlunar ESB. Fáist hann er
ætlunin sú að halda hérlendis nám-
skeið sumrin 2003 til 2005 og skoða
hvemig smáríki í Evrópu standa í al-
þjóðasamfélaginu. Ég vonast til þess að
ná nógu miklu flármagni til að hægt
verði að ráða forstöðumann til að
sinna starfseminni og ýta henni úr vör
en stefnt er að því að opna setrið á vor-
mánuðum árið 2003.“
- Ætlan ykkar er að öðru leyti sú að
fjármagna starfsemi setursins með því
að selja verkefni ykkar og þjónustu ...
„Já, hugmyndin er sú að umsvif set-
ursins, sem yrði sjálfstæð stofnun, ráð-
ist af þeim verkefnum sem unnið yrði
að á hverjum tíma. Tekjumar byggð-
ust á útseldri þjónustu. Ég sé fyrir mér
marga sem gætu haft hag að því að
kaupa slíka þjónustu. Þar horfi ég
meðal annars til skóla í smærri ríkjum
Austur-Evrópu sem kenna mætti við í
fjarkennslu héðan frá íslandi. Rann-
sóknir stofnunarinnar gætu einnig
verið áhugaverðar fyrir til dæmis
stjómsýsluna og fyrirtæki sem em í
viðskiptum við smærri ríki. Þau þurfa
að hafa á takteinum upplýsingar um
hver staða mála er í viðskiptalöndum
þeirra. Sömuleiðis finn ég að stjóm-
endur fyrirtækja sýna þessari hug-
mynd áhuga og telja þörfma vera til
staðar."
Rannsóknirnar þverfaglegar
- Nú er miðað við að rannsóknar-
setrið yrði sjálfstæð stofnun en væri í
tengslum við sfjómmálafræðiskor fé-
lagsvísindadeildar Háskóla íslands. Út
á hvað myndu rannsóknir á hinu póli-
tíska sviði við setrið ganga?
„Það er mikil gróska í smáríkja-
rannsóknum í Evrópu, það hafa mynd-
ast mörg smáríki í Austur-Evrópu á
undanfómu. Það er mjög spennandi að
kynna sér hvemig þessum þjóðum
gengur að fóta sig í Evrópusamrunan-
um og í alþjóðakerfmu eftir að kalda
stríðinu er lokið. Gróskan í rannsókn-
um á þessu sviði sést meðal annars í
auknum fjölda ráðstefna sem nú em
haldnar um smáríki og fjölda greina
sem um þau em að birtast í virtum
fræðiritum. Því tel ég að nú sé rétta
tækifærið til að hóa saman fræði-
mönnum til frekara rannsóknarsam-
starfs. Áhugi stúdenta á þessum mál-
Mín meginniðurstaða í
þeim rannsóknum er sú
að ríki hafi val að hve
miklu leyti þau taka þátt
í samrunanum í Evrópu.
Hins vegar verða þau öll
að bregðast við honum
með einum eða öðum
hœtti og laga sitt innra
stjórnkerfi að þróuninni.
um er einnig mikill. Nú um fjögurra
ára skeið hef ég verið með námskeið
um smáriki í alþjóðakerfinu við stjóm-
málafræðiskor Háskóla íslands. Nám-
skeiðið er haldið á ensku og sífellt
fleiri útlendingar sækja þau, tæplega
tuttugu slikir sl. haust.“
- Er gengið út frá því að rannsókn-
imar myndu alfarið miðast við rann-
sóknir í stjómmálafræðum?
„Nei, alls ekki. Rannsóknir sem
stefnt er að að stunda við setrið eiga aö
vera þverfaglegar. Sem dæmi má
nefna að fræðimenn sem koma að
stofnun setursins með mér koma úr
greinum eins og félagsfræði, lögfræði,
hagfæði, landafræði og ýmsum fleiri."
Hafa val í samrtmaþróuninni
- Hafa smáríki ef til vill verið að
styrkja stöðu sina á alþjóðavettvangi?
„Smáríkin em óskaplega misjöfn,
bæði að getu og í landfræðilegri stærð.
Stjómsýsluleg geta þeirra skýrir mjög
margt um styrk þeirra á alþjóðlegum
vettvangi. í rannsóknum mínum á síð-
ustu árum hef ég verið að skoða stöðu
þessara ríkja innan ESB og hvemig
þeim gengur að vinna að sínum mál-
um þar. Síðustu mánuði hef ég svo at-
hugað hvemig ríki utan sambandsins
hafa bmgðist við Evrópusamrunan-
um, lönd eins og ísland, Malta og
Liechtenstein. Mín meginniðurstaða í
þeim rannsóknum er sú að ríki hafl
val að hve miklu leyti þau taka þátt í
samrunanum í Evrópu. Hins vegar
verða þau öO að bregðast við honum
með einum eða öðrum hætti og laga
sitt innra stjómkerfi að þróuninni.
Samrunaþróunin hefur hvarvetna
áhrif.“
- Er vægi smáríkja í stjómmálum
heimsins ef tO viO að aukast?
„Það kann vel að vera. Það er at-
hyglisvert að sjá smáríki, eins og tO
dæmis Noreg og Sviþjóð, hvemig
þau hafa gert sig gOdandi innan Sam-
einuðu þjóðanna og hafa verið þar
áhrifamikil í áratugi. Samkvæmt
skOgreiningum teljast Norðurlöndin
öO tO smáríkja. Hins vegar fer skff-
greiningin á því hvað er smáriki eft-
ir því hvaða rOd eru borin saman
hverju sinni.“
Coca-Cola og kátir karlar
Bæjarstjórinn og forstjórinn svöluðu
þorstanum og fengu sér kók í gler-
flösku, norðlenska framleiðslu.
Akureyri:
Flöskukókið
er flaggskipið
„Við ætlum að blása nýju lífi í
glerið," segir Þorsteinn M. Jónsson,
forstjóri VífilfeOs. Hinn knái kók-
stjóri mætti norður á Akureyri i
gær og kaOaði á bæjarstjórann,
Kristján Þór Júlíusson, tO að taka í
notkun nýja vél sem fyllir á Coca-
Cola í glerflöskur. Sala á þessum
heimsvinsæla drykk í glerflöskum
hefur dregist mikið saman siðasta
áratuginn, farið úr tæplega 2,7 miOj-
ónum flaskna á ári niður í 500 þús-
und. Með nýjum áherslum í mark-
aðsstarfi stendur tO að breyta þessu.
Væntir Þorsteinn að auka megi sölu
á kóki í glerflöskum um aOt að 50
þúsund flöskur strax á þessu ári.
Kókflöskurnar nýju eru einnota
og innihalda 250 ml af þessum vin-
sæla drykk. Gömlu margnota gler-
flöskurnar voru 300 ml og 190 ml.
Glerflöskukókið að norðan verður
hins vegar selt á verði 190 ml flösku.
„Kók í glerflöskum er flaggskipið
okkar, í raun tákngervingur fyrir
Coca-Cola á íslandi," segir Þorsteinn
M. Jónsson. Hann segir fyrirtæki
sitt vera með umfangsmikla starf-
semi á Akureyri svo sem við fram-
leiðslu á bjór og léttöli - og nú tO
viðbótar við framleiðslu á kóki í
glerflöskum. -sbs
Víkverji í Vík:
Skoðar eldvarnir
Björgunarsveitin Víkverji, Vík í
Mýrdal, hefur síðustu daga farið í
öll íbúðarhús í hreppnum og skoðað
eldvarnir á heimilum. Þetta hefur
hún gert síðustu ár með þeim góða
árangri að engir stóreldsvoðar hafa
verið þar. f heimsóknunum eru yfir-
famir reykskynjarar og skipt um
rafhlöður ef þarf. Einnig er skoðað
hvenær slökkvitæki voru síðast yf-
irfarin og hvort eldvarnarteppi séu
tO staðar. Þá er farið yfir viðbrögð
við eldsvoðum, skoðaðar flóttaleiðir
og hvar fólk á að hittast úti. Á þeim
heimilum sem eldvarnarbúnaður er
ekki í lagi hefur björgunarsveitin
boðist tO að útvega það sem vantar
og setja búnaðinn upp á heimOinu.
Að sögn Grétars Einarssonar björg-
unarsveitarmanns eru viðtökur
íbúa mjög góðar og fólk ánægt með
framtakið. Við sama tækifæri er
farið yfir rýmingaráætlun vegna
Kötlugoss. -sbs
Grænlenskt
kvennaframboð
Samkeppni kynjanna um póli-
tískar áhrifastöður hefur ekki ver-
ið lögð á hOluna, a.m.k. ekki á
Grænlandi. Þar mun grænlenska
kvennaframboðið „Arnat Partiiat"
bjóða fram sérstaklega í kosning-
um tO Landsþingsins á árinu 2003.
Flokkurinn telur það vera hlut-
verk sitt að minnka þann mikla
mun sem nú er á þátttöku karla og
kvenna í stjórnmálum. Flokkurinn
lýsir því einnig yflr að þegar tak-
markinu, jafnmargar konur og
karlar í Landsþinginu, er náð
muni hann verða tilbúinn að sam-
einast öðrum flokkum.
Flokksfélagar í „Arnat Partiiat“
eru nú um 50. Ekki er ljóst enn þá
hve margir gefa kost á sér í kosn-
ingunum. En flokkurinn mun ekki
einungis hafa mjúk mál á stefnu-
skrá sinni, s.s. þarfir barna og fjöl-
skyldna. Helga Nielsen, ritari
flokksins, segir að flokkurinn
muni einnig taka afstöðu tfl ann-
arra málefna. Hjá því verði ekki
komist. -GG
ÚTBOÐ
Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í verkið
„Vatnsgjafi - Vatnspóstur“.
Verkið er tvískipt:
• Hönnun og smíði, í samstarfi við
Orkuveitu Reykjavíkur og ráögjafa, á
frumgerð Vatnsgjafans. Hönnunin felst í
smíði á hólk, grind og innviðum, ryðfrítt
stál, uppsetningu á vatns- og
frárennslislögnum, Ijósabúnaði,
virkjanabúnaði og tilheyrandi
rafmagnsbúnaði.
• Framleiðsla á fimmtíu
stykkjum.
Útboðsgögn fást á skrifstofu Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá
og með 4. febrúar 2002, gegn 10.000 kr.
skilatryggingu.
Opnun tilboða: 28. febrúar 2002, kl. 11.00, á
skrifstofu Innkaupastofnunar.
Reykjavíkur
Stýrishús smáríkisins
Baldur Þórhallsson segir að smáríkin séu óskaplega misjöfn, bæöi að getu
og í landfræðilegrí stærð. Stjórnsýsluleg geta þeirra skýri mjög margt um
styrk þeirra á alþjóðlegum vettvangi.