Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Síða 9
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002
DV
Fréttir
Þingmaður Samfylkingar á Vesturlandi:
Fritt verði i Hvalfjarðargongin
- Vegagerðin yfirtaki skuldbindingar Spalar - skuldir hafa stórhækkað
Gísli S. Einarsson, þingmaður Sam-
fylkingarinnar á Vesturlandi, hefur
beint fyrirspurn til samgönguráð-
herra um niðurfellingu veggjalds í
Hvalfjarðargöng. Þingmaðurinn vill
m.a. vita hvort samgönguráðuneytið
hafi kannað hvort Vegagerðin gæti yf-
irtekið að fullu skuldbindingar Spalar
hf. og þar með rekstur Hvalfjarðar-
ganganna, eins og annarra samgöngu-
mannvirkja á íslandi og að umferð
um Hvalfjaröargöng verði gjaldfrjáls.
Einnig spyr Gísli hvort ráðherra telji
eðlilegt að Snæfellingar, Borgfirðing-
ar og Akurnesingar standi undir
meira en helmingsfjármögnun þessa
hluta hringvegarins um ísland.
í samtali við DV í gær sagðist Gísli
telja að tekjur ríkisins af Hvalfjarðar-
göngunum væru þegar orðnar milli
350 og 400 milljónir í formi 14% virð-
isaukaskatts án þess að ríkið hafi lagt
til annað en ábyrgð á 400 milljóna
króna láni.
„Það hafa mjög margir haft sam-
band við mig út af þessu máli. Fólki
fmnst ósanngjamt að þessi eini veg-
Ríkið stórgræðir á göngunum
Skuldir Spalar vegna Hvalfjarðarganga hafa hækkaö úr 4,5 milljörðum í 6 milljarða vegna gengisþróunar en á sama
tíma hagnast ríkið. Þingmaður Vesturlands telur tímabært að landsmenn fari frítt í gegn.
Varaformaður stjórnar Símans:
Ekki á móti sölu
- íhuga málið ef ekki fæst viðunandi verð
ekkert með söl-
„Það er vitaskuld fráleitt að
túlka orð mín þannig að ég sé á
móti sölu Símans. Ég vil að sjálf-
sögðu selja fyrirtækið og sú af-
staða min hefur ekkert breyst,"
segir Magnús Stefánsson, þingmað-
ur Framsóknarflokksins og vara-
formaður stjórnar Landssímans.
Talsverð umræða hefur verið um
afstööu Magnúsar í kjölfar um-
ræðu á Alþingi fyrr í vikunni þar
sem Magnús lét þau orð falla að
hugsanlega þyrfti að endurskoða
framgang mála varðandi þessa
einkavæðingu. „Það sem ég sagði
var einfaldlega það að ef þær frétt-
ir væru réttar, sem fluttar höfðu
verið í fjölmiðlum daginn áður og
þennan sama dag og umræðan fór
fram og gengu út á að ekki myndi
hægt að fá það verð sem menn
höfðu talað um fyrir fjórðungshlut
í fyrirtækinu, væri eðlilegt aö
staldra við og endurskoöa málið
gagnvart þessum kjölfestufjár-
festi,“ segir Magnús. Hann undir-
strikar að stjórn Landssímans hafi
Magnús
Stefánsson.
una að gera,
enda sé hún al-
farið í höndum
framkvæmda-
nefndar um
einkavæðingu.
Magnús segist
ekkert geta tjáð
sig heldur um
það hvaða af-
stöðu hann eða
framsóknarmenn taki til þess ef
ekki verður hægt að selja fyrirtæk-
ið til þessa kjölfestufjárfestis nema
með einhverjum afslætti annað-
hvort af verði eða skyldum, það
verði einfaldlega að koma í ljós.
Eins og fram kom hjá Magnúsi
hefur einkavæðingarnefnd verið
með málið til umfjöllunar og hefur
Hreinn Loftsson, formaður nefndar-
innar, sagt í DV að afsögn sin muni
ekki hafa nein áhrif á þetta sölu-
ferli. Davíð Oddsson hefur sam-
þykkt afsögn Hreins og mun hún
taka gildi síðar í mánuðinum. -BG
Forstjóraskipti hjá Kísiliðjunni:
Kísilduftið enn
á gulu Ijósi
Engin formleg ákvörðun hefur
verið tekin um hvort grænt ljós
fæst á framleiðslu kísildufts í Mý-
vatnssveit þar sem Kísiliðjan
starfar nú. Tilraunaframleiðsla í
Noregi lofar allgóðu um áframhald-
ið og er unnið í markaðsmálunum
þessa dagana, að sögn Gunnars
Arnar Gunnarssonar fram-
kvæmdastjóra. Ýmsir endar eru þó
óhnýttir og hefur t.d. ekki verið
samið um verð á raforku fyrir
kísilduftverksmiðjuna.
Ein höfuðástæða þess að fjárfest-
ar kísilduftverksmiðju horfa til
Mývatnssveitar er aðgangur að
gufuorku sem fengist hefur hingað
til gegn hóflegu gjaldi. Hins vegar
hefur Kísiliðjan ekki notið neinna
vildarkjara i raforkumálunum og
verður að líkindum kappkostað að
ná hagstæðari samningum en nú
eru í gildi. Þá eru ýmis óvissuatriði
sem tengjast framleiðsluferlinu en
Gunnar Örn segist þó bjartsýnn á
framhaldið, enda sé brýnt fyrir
samfélagið í sveitinni að kísildufts-
verksmiðjan verði að veruleika.
40-50 starfsmenn eru að störfum í
Kísiliðjunni og hefur verið búist
Gunnar Orn
Gunnarsson.
kafli á hringveginum skuli gjald-
heimtur þótt auðvitað hafi sveitarfé-
lög og einstaklingar staðið undir
framkvæmdinni á sínum tima. Borg-
nesingar, Akurnesingar og Snæfell-
ingar standa undir nærri 60% af fjár-
mögnuninni með sínum akstri í gegn-
um göngin," segir Gísli.
Spurður hvort sami hópur njóti
ekki á hinn bóginn einmitt góðs af
göngunum umfram aðra, segir Gísli
að svo sé vissulega en hins vegar séu
menn að grafa miklu dýrari göng eins
og t.d. Fáskrúðsfjarðargöngin en þar
sé engin gjaldtaka áformuð.
Talað hafði verið um að frítt yrði í
göngin eftir 25 ár frá opnun þ.e.a.s.
2023 og þótt umferð hafi orðið mun
meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir,
styttist ekkert í að landsmenn aki frítt
þama um að óbreyttu. Gengisþróun
hefur að sögn Gísla orðiö til þess að
skuldir hafa hækkað um 25%. „Ætli
skuld sem var innan við 4,8 milljarða
króna þegar göngunum var lokið sé
ekki komin upp í 6 milljarða? Það er
bara búið að borga upp lífeyrislánin
en svo koma stóra skuldbindingarnar
í haust.“
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
hera mun væntanlega veita svör nk.
miðvikudag. -BÞ
Suðurland:
Kjósa um sam-
einingu 23. mars
„Við ákváðum að fara út í viðræð-
ur nú þó að skammur timi væri til
stefnu. Hreppsnefnd Hraungerðis-
hrepps sendi nágrannasveitarfélögum
i Flóanum bréf í haust með beiðni um
sameiningarviðræður. Sveitarstjórn-
um Villinga- og Gaulverjabæjar-
hreppa þótti timinn of naumur svo að
aðeins við og Árborg vorum eftir og
nú höfum við ákveðið að ræða saman
þó að stutt sé til kosninga," sagði
Guðmundur Stefánsson, oddviti
Hraungerðishrepps, við DV.
Sveitarfélögin eiga þegar i sam-
starfi. Eldri börnum er til dæmis
ekið úr Hraungerðishreppi í skóla í
Árborg. -NH
Nýr framkvæmda-
stjóri hjá UÍA
Elma Guð-
mundsdóttir tók
um áramótin við
starfl fram-
kvæmdastjóra Ung-
menna- og íþrótta-
sambands Austur-
lands. Hún var val-
in úr hópi fimm
umsækjenda. Elma
sat um árabil í stjórn UÍA, var for-
maður sambandsins og varaformað-
ur, var fyrsta konan til að sitja í
landsmótsnefnd á vegum UMFÍ og
fékk silfurmerki KSÍ 1972 fyrir störf
að knattspyrnumálum. Hú hlaut
gullmerki ÍSÍ árið 1993 og fleiri veg-
tyllur hafa henni hlotnast. Hún var
bæjarfulltrúi í Neskaupstað um ára-
bil og þekkir vel til allra félagsmála
á Austurlandi. Elma hefur undan-
farin ár verið í stjórn Blakdeildar
Þróttar og situr nú i stjórn Blak-
sambands íslands. -JBP
við því að starfs-
mannafjöldi nýja
fyrirtækisins
yrði svipaður.
Gunnar Örn
lauk störfum hjá
fyrirtækinu í
gær eftir rúm-
lega tveggja ára
störf. Kristján
Björn Guðnason
iðnrekstrarfræð-
ingur hefur verið ráðinn í hans
stað en Gunnar segist fara sáttur
úr sveitinni enda hafi þau mark-
mið sem hann hafl sett sér gengið
eftir. Það sé líka ánægjulegt að
skilja við reksturinn i blómlegu
horfi en hvert framleiöslu- og sölu-
metið hefur verið slegið á fætur
öðru undanfarna mánuði.
Miklar breytingar eru fram und-
an hjá núverandi starfsmönnum
Kísiliðjunnar þar sem til stendur
að leggja niður kísilgúrvinnsluna
en hefa framleiðslu á kísildufti.
Gunnar Örn segir að samkvæmt
upphaflegri áætlun hafi verið búist
við ákvörðun um kísilduftverksmiðj-
una á fyrri hluta þessa árs. -BÞ
Trimform Berglindar 12 ára
Afþví tilefni bjóðum við núfyrstu tilboð ársins.
1. Árskort kr. 46.800 (12.000 kr. afsláttur)
2. Mánaðarkort, 10 ttmar, kr. 5.900 (3000 kr. afsláttur)
3. 15 tíma 6 vikna kort, kr. 9.900 + Absolute
Minceure,mótandi og stinnandi gel, að verðmæti
3.300 kr. (meðan birgðir endast)
Hringdu og pantaðu frían prufutíma
Sími 553 3818
Meðal þess sem við bjóðum upp á:
Vöðvabólgumeðferð
Byggist á 30 mín.
meðferð í hvert skipti.
Þú finnur strax mun
eftir einn tíma.
Grindarbotnsvöðvar
Þvagleki er algengt
vandamál hjá konum.
Tímar í Trimformi hafa
gefið góða raun ef um
slappa grindarbotns-
vöðva er að ræða
Vöðvaþjálfun
í Trimformi er hægt
að þjálfa upp alla
vöðva líkamans.
Auka vöðvaþol og
vöðvamassa.
Appelsínuhúð
Höfum margra ára
reynslu ( að vinna á
appelsínuhúð og eftir
10 tíma meðferð er
sýnilegur árangur.
Grenningarmeðferð
Ef tekið er vel á
samsvara 40 mínútur
í Trimformi kröftugri
10 tíma hreyfingu.
Munið vinsælu gjafakortin ,
Sláðu til, nýttu þér tilboðin
og byrjaðu strax.
Við höfum metnaðinn og reyttsluna.
Skráðu þig í netklúbbinn okkar,
ivzvw. trimform.is
Sendum nýustu tilboðin.
Tilboðin gilda til 15. febr. '02.
Grensásvegi 50
TRIM /NFORM
A n Ooið mái
Bercfndar
Opið mán.-fim. 8-22,
föstud. 8-20, laug. 10-14.