Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Side 18
* 34 Skoðun MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002 DV Hugsarðu mikið um heilsuna? Hlynur Hafliðason nemi: Já, aðallega meö góðri hreyfingu. Einar Barkarson nemi: Nei, ég borða óhoitan mat og hreyfi mig ekki neitt. Ég tek þö lýsistöflur. Baldur Þórólfsson nemi: Já, ég æfi fótboita á hverjum degi. Andri Ólafsson nemi: Ég geri sem minnst af því. Atli Viðar Þorsteinsson nemi: Já, ég reyni aö hugsa mikiö um sjálf- an mig og borða mikiö af grænmeti og ávöxtum. Halldóra Þórsdóttir nemi: Nei, ég get ekki sagt það. Ég hreyfi mig nánast ekki neitt og borða bara alls kyns mat. Lofaður sé leik- húskíkirinn Hann kemur sér vel leik- húskíkirinn þar sem hann á við. Skaði að hann er ekki mikið til brúks hjá leikhús- gestum hér. Hann er þó talsvert not- aður i íslensku þjóðaróperunni, þar sem atburða- rásin flæðir frá degi til dags. Það versta er að flestir- horfa í hann öfugan. Þannig verða atburðirnir líka mátulega fjarlægir og að sama skapi marklitlir. í efna- hagsmálum þjóðarheildarinnar kemur þetta sér líka afar vel. Menn mikla ekki mikið fyrir sér yfir- drættina og skammtímalánin þegar horft er í kíkinn þann. Og það fer ekki mikið fyrir verðbólgudraugn- um þegar hann birtist við þessar að- stæður. En þá sjaldan fólki verður á að bera kikinn rétt að augum er eins og flóðalda skelli á þjóðfélagið og skyndilega kveður við samhljóma óp úr öllum áttum um að það þurfi að ná verðbófgunni niður. En hver á að ná henni niður? Fólkið, neyt- endur - eyðsluklærnar sjálfar? Auð- vitað ekki. Kíkinum er því snarlega snúið við, horft í hann öfugan til að sjá allt í sama smávæginu. Og hver er svo sem sekur? Ekki smákaupmaðurinn, hann er horfinn af horninu. Þá hljóta það að vera stórkaupmennirnir, stórmarkaðirn- ir og svo ríkisstjórnin að sjálfsögðu. Já, þá er óhætt að byrja slaginn. - Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að ná niður verðbólgunni! Þarna kom það. „Lækkun hins opinbera til að lækka þensluna." ASÍ-forustan heimsækir sveitar- „Allt það sem ríkið leggur fram til að lœkka þensluna nú kemur í bakið á al- menningi eftir nokkra mánuði og þá hefst sami slagurinn aftur. Nákvœm- lega eins. “ stjórnir, stórmarkaði, Reykjavíkur- borg. „Við ljúkum fundum fyrir helgina, það er búið að banka upp á hjá öllum stærstu sveitarfélögunum en margir taka jafnframt fram að þeir vilji fá að sjá hver ákvörðun rikisstjórnarinnar verður." -Það var og! Ríkisstjórnin bregst við ótt og títt. Það „kostar" 750 milljónir að lækka rostann í verðbólgunni. Kost- ar hverja? Okkur sjálf sem komum henni af stað, að sjálfsögðu. Ja hérna. Drottinn leiði drösulinn minn (verðbólguhestinn)! Hvers konar andskotans vitleysa er þetta sem endalaust ríður yfir þetta þjóðfélag? Getur enginn eða vill enginn átta sig á því að hér er einfaldlega fáviska og ofureyðsla þjóðarinnar allrar sem ræður ferð? Allt það sem ríkið leggur fram til að lækka þensluna nú kemur í bakið á almenningi eftir nokkra mánuði og þá hefst sami slagurinn aftur. Ná- kvæmlega eins. En nú er þjóðin í vímu yfir hand- boltaleikjum. Við heyrum gleðigrát- ur handan hafsins i frestuðum fréttatímum nauðungaráskriftar- innar dag eftir dag. Boltamennirnir eru hetjurnar. Forsetinn sendir innilegar hamingjuóskir: Þjóðin fagnar öll, Ólafur Ragnar Grímsson. Mörkin ein eru marktækur sigur þjóðarinnar. Annað er marklaust. - Drjúgur verður síðasti áfanginn. Geir R. Andersen blm. skrifar: Borgarstjórn og sundaðstaðan S.G. sendi þennan pistil:________________ Ég er móðir þriggja barna sem hafa æft og keppt í sundi. Ég hef sjálf lagt á mig vinnu við aðstoð á sundmótum og er alls ekki ánægð með þá aðstöðu sem Reykjavíkur- borg býður upp á fyrir sundfólkið. Mér finnst eðlilegt að Reykvík- ingar beini nokkrum spurningum til R-listans, borgarstjóra eða þeirra aðila sem eru í forsvari fyr- ir iþróttamálum í borginni, vegna loforða um innisundlaug í Laugar- dal. Mig minnir að það hafi verið kosningaloforð hjá R-listanum fyrir 4 árum og áður fyrir 8 árum að „Fari svo að R-listinn lendi í minnihluta í komandi borg- arstjómarkosningum eftir 8 ára stjómun borgarinnar hefur þá ekkert áunnist í því að unga fólkið og sundfélög- in í Reykjavík fái viðunandi œfinga- og keppnisaðstöðu i Reykjavik?" byggð yrði æfinga- og keppnislaug fyrir sundfélögin í Reykjavík. í öðru lagi hvort borgaryfirvöld gáfu ekki einhver frekari loforð varðandi byggingu keppnislaugar í tengslum við smáþjóðaleikana í Reykjavík og þá hver þau voru. í þriðja lagi hvort borgarstjóri telji að við erfiðar sundæfmgar og keppni úti við i hörðum vetrarveðr- um’ í Reykjavík sé viðunandi að- staða fyrir unga fólkið og sund- íþróttina i dag. Að lokum kasta ég fram eftirfar- andi spurningu til umhugsunar: Fari svo að R-listinn lendi í minni- hluta í komandi borgarstjórnar- kosningum eftir 8 ára stjórnun borgarinnar= hefur þá ekkert áunn- ist í því að unga fólkið og sundfélög- in í Reykjavík fái viðunandi æfinga- og keppnisaðstöðu í Reykjavík? Með kosningakveðju. Skipt um hlutverk > Þá er Sjálfstæðisflokkurinn kominn í stutt frí frá vangaveltum stjórnmálaáhugamanna um framboðs- mál í Reykjavík. Kastljósið beinist nú að Reykjavík- urlistanum og má búast við að þar muni innan tíð- ar hefjast mikil pólitísk vígaferli og bræðrabyltur. Sérstaklega á þó Garri von á spennandi tíðindum úr röðum Samfylkingarinnar því þar eru þrír nú- verandi borgarfulltrúar að berjast um tvö sæti og nýtt og öflugt fólk knýr á um að komast að lika. Þannig er ljóst að einhveijir hljóta að liggja sárir eftir og sú aðferð sem ákveðin hefur verið til að velja í sætin - hálfopið prófkjör - er sérstaklega vel til þess fallið að magna upp illindi og ágreining og ásakanir um vafasöm vinnubrögð. Tveir frambjóð- endanna, þeir Helgi Hjörvar og Hrannar B. Amars- son, eru raunar þekktir fyrir heilmikla skipulags- hæfileika og kunnáttu í að setja saman prófkjörs- vélar - eins og flestum er sjáifsagt í fersku minni frá fyrri prófkjörsátökum. Steinunn Valdís Óskars- dóttir og áskorandinn, Sigrún Elsa Smáradóttir, mega því hafa sig allar við ef þær ætla sér að eiga séns á sætum. Plottað í flokknum Á sama hátt má gera ráð fyrir hressilegum átök- . um hjá framsóknarmönnum en þar á bæ eru ekki ™ síður margir áhugasamir um þessi fáu borgar- stjórnarsæti flokksins á listanum. Að vísu hefur Sigrún Magnúsdóttir lýst því yfir að hún hyggist draga sig í hlé þannig að þar fækkar um einn kepp- anda. Alfreð Þorsteinsson mun hins vegar sitja áfram og teljast nokkuð öruggur en Guðrún Jóns- dóttir, Óskar Bergsson, Anna Kristinsdóttir og Vig- dfs Hauksdóttir gera öll tilkall til þess að hreppa sæti Sigrúnar. Aðferðafræði framsóknarmanna við valið er þó ekki eins opin og hjá Samfylkingunni og ekki líklegt að átökin muni verða mjög áberandi opinber. En því hatrammari munu þau hins vegar verða innanhúss þar sem allt mun byggjast á plott- um og bandalögum milli manna í fulltrúaráðinu. Þeir sem eru með góð sambönd i flokknum munu því að standa best að vígi og engin ástæða til að ætla að bræðrabyltumar verði eitthvað minni hjá Framsókn en hjá félögum þeirra í Samfylkingunni. R fyrir rifrildl? Trúlega munu átökin verða einna minnst hjá VG enda líklegast að það verði einfaldlega þeir Stein- grímur J. og ögmundur Jónasson sem ákveði sín á milli hverjir verði á listanum - þó látið verði líta út fyrir að eitthvert lýðræðislegt val hafi farið fram. Enda má reikna með að ágreiningsefnin úr ranni Framsóknar og Samfylkingar muni duga í fullan skammt fyrir Reykjavíkurlistann í heild. Það munu gefast næg tilefni til að rifja upp samskipti Ses- ars og Brútus- ar áður en yfir lýkur. Þau átök munu jafn- framt gefa Birni Bjarna- syni og félög- um kærkomið tækifæri til mikilla spek- úlasjóna mn átökin hjá R-listanum og hver veit nema Bjöm nái að spila út enn einni hugmyndinni um það hvað „R-iö“ stendur fyrir - nú gæti það t.d. staðið fyrir „rifrildi". í öllu falli er ljóst aö sjálfstæðismenn munu fagna því að vera lausir undan umræðunni um „heimaslátrun" eigin forustumanna og geta far- ið að benda á heimaslátrun hjá pólitískum andstæð- ingum sínum. Sjálfsagt finnst þeim hafa verið kom- inn tími til. CMfi Á Hringbrautinni Mikil breyting í vændum. Flugvöllurinn fer Davið Slgurðsson skrifar: Loks hefur verið ákveðið fyrir fullt og fast að Landspítalinn og allt með- fylgjandi verði við núverandi Hring- braut og þar niður af, niðri í Vatns- mýrinni. Þar með hverfur Umferðar- miðstöðin og þar með hverfur Hring- brautin eins og hún er í dag og færist niður fyrir Umferðarmiðstöðina og svo áfram þaðan í átt til suðausturs. Þetta þýðir auðvitað að Reykjavíkurflugvöll- ur er búinn að vera innan skamms. Ég hef alltaf sagt að flugvöllurinn fer þann sama dag og Reykjanesbrautin verður opnuð með tvöfóldum akreinum. Ákvörðunin um Landspítala - háskóla- _sjúkrahús rekur endahnútinn um ’Reykjavíkurflugvöll. Því er jafngott að gera þær ráðstafanir nú þegar með flutningi alls flugs til Keflavikur. Getgátur Brynjólfur Brynjólfsson skrifar: Mikill svartfugladauði hefur verið í fréttum undanfarið og hafa vísinda- menn verið með ýmsar getgátur um ástæður þessa. Héma kemur ein í við- bót. Stjómvaldsskipun um bann við að hirða svartfugl sem drepist hefir í net- um hefir orðið tO þess að fuglinn sekk- ur til botns f miklu magni og rotnar þar. Þarna geta verið alveg nýjar bakt- eríur sem koma inn í lífríkið sem valda því að fuglinn drepst. Þetta er al- veg ný uppákoma því aldrei áður hef- ir verið gerð svona óskynsamleg til- skipun síðan land byggðist. Eina leið- in tO að sarna þessa kenningu er að leyfa að hirða fuglinn aftur og sjá til hvort tíminn leysir ekki vandann. Langtímavextir ÍSIAND ' ’ .fflít tóKA J'-I NÝJA-SJÁLAND NOKSUÍ M KANADA MS fBAKKlAND 1 ífl bandabIkin ÁSTBALÍA ÍTAiÍA if, I POBTÚGAL BELGÍA ■■■ LÚXEMBOBG 3SI ausiubbIki IHS DANMÖRK finnland m SPÁNN (BLAND fiH* HOLLAND jglSli ÞÝSKALAND BBETLANÐ SVÍÞJÓÐ SVBS JAPAN' 0 2 4 6 8 10 12 Langtímavextir Veröbólguvextir - hvaö meö verö- bótaþættina? Nægir ekki Rósa Jónsdóttir hringdi: Mér fmnst einkennilegt hvernig fólk sem ætti að þekkja vel tO efnahagsmála talar i fjölmiðlunum. Jafnvel banka- fólk. Ég sá t.d. haft eftir einum háttsett- um hjá íslandsbanka að vaxtalækkun nú ætti að skila sér tO lánastofnana. Dettur honum í hug að einhver hálfs prósents eða svo lækkun vaxta skOi sér tO okkar sem erum að greiða af lánum þessa dagana, t.d. vegna íbúðarkaupa?. Auðvitað ekki. Það yrði langt í það. Það er enda ekki um neitt að ræða á þess- um vettvangi annað en að koma verð- bólgunni út úr myndinni fyrst. En hvað með verðbótaþáttinn á vexti og höfuð- stól? Þeir tala ekki um þetta, þessir efnahagsspekingar. DV Lesendur Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn I síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangiö: gra@dv.is Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.