Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Blaðsíða 32
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Sparisjóður Ólafsfjarðar tapar máli vegna óútfyllts tryggingavíxils:
Yfirdrattarskuld a
ábyrgð bankans
Héraðsdómur Norðurlands eystra
hefur dæmt Sparisjóð Ólaí'sfjarðar til
að greiða konu rúmar 5,2 milljónir
með dráttarvöxtum. Málsatvik eru
þau að árið 1989 ritaði konan, að ósk
bróður síns, nafn sitt á víxileyðublað
sem útgefandi og framseljandi. Bróðir-
inn ritaði sem samþykkjandi en víxil-
eyðublaðið var að öðru leyti óútfyllt.
Það var síðan með vitund stefnanda
afhent stefnda til tryggingar yfirdrætti
á tékkareikningi hjá sjóðnum og fjár-
hæð yfirdráttar var á umræddum
reikningi bróðurins í upphafi kr.
100.000.
Yfirdráttarfjárhæðin stóð óbreytt
ailt til ársins 1995, en þá fór hún að
hækka og var komin í 3,7 milljónir
árið 1997. Konan var á sama tíma
aldrei látin vita stöðu yfirdráttarheim-
ildarinnar og reikningsskuldarinnar.
Tekist var á um hvort konunni eða
sparisjóðnum bæri að greiða fyrir
vanskil bróðurins en dómurinn
dæmdi konunni í hag sem fyrr segir.
Jafnframt verður Sparisjóður Ólafs-
fjarðar að greiða málskostnað upp á
750.000 krónur þannig að heildarkostn-
aður sjóðsins er verulegur.
Þetta er ekki eina málið sem kostað
hefur Sparisjóð Ólafsfjarðar peninga
undanfarið. Þannig er nú fyrir dómi
stórt mál gegn fyrrverandi sparisjóðs-
stjóra og tengist það að hluta knatt-
spyrnufélaginu Leiftri. Leiftur var úr-
skurðað gjaldþrota á dögunum. -BÞ
Uppsagnir hjá
Debenhams
Töluverðum fjölda starfsmanna hjá
Debenhams í Smáralind var sagt upp
um mánaðamótin. Ekki náöist í for-
svarsmenn fyrirtækisins til að fá ná-
kvæma tölu á fjölda þeirra sem sagt
var upp en heimildir blaðsins herma
aö 8 af 20 starfsmönnum í snyrtivöru-
deild hafi fengið uppsagnarbréf og
einnig var starfsmönnum úr öðrum
deildum sagt upp. Vinnutfmi verður
styttur hjá einhveijum starfsmönnum
og búist er við fleiri uppsögnum á
næstunni. Um 110 manns voru á launa-
skrá hjá fyrirtækinu. Ástæða uppsagn-
anna er sögð vera skipulagsbreytingar
í fyrirtækinu en þær felast m.a. í því
að framvegis mun versluninni verða
lokað kl. 19.00 f stað 20.00. -ÓSB
180 á æfingu
Með sanni má segja að gríðarlegur
handboltaáhugi hafi fylgt góðu gengi
landsliðsins á EM en á fáum stöðum
hefur hann komið jafn berlega í ljós
og á æfrngu hjá 7. flokki ÍR nú fyrir
helgina. Venjulega mæta 15-20 krakk-
ar á hverja æfíngu en á fóstudaginn
brá svo við að um 100 drengir og nær
80 stúlkur mættu og vildu fá að æfa
þessa skemmtilegu íþrótt. Bömunum
fylgdu svo um 50 foreldrar. -ÓSB
Veöur vikunnar:
Norðlægar áttir
„í vikunni verða norðlægar áttir
ríkjandi og frekar kalt,“ segir Hörð-
ur Þórðarson veðurfræðingur. í dag
er gert ráð fyrir norðlægri átt á
landinu, 5 til 10 metrum á sekúndu.
Við norðurströndina verður élja-
gangur sem og á SA-landi. Annars
staðar verður skýjað með köflum og
úrkomulítið. Hitastig verður frá
frostmarki i niður í tíu stiga gadd.
Éljagangur og norðlægar áttir verða
norðan til á þriðjudag og miðviku-
dag. Sunnan heiða verður aftur á
móti léttskýjað og talsvert frost.
-sbs
Fjölskylda drengs sem lenti í bflslysi í Mývatnssveit:
Sendi kvörtun til Landlæknis
Fjölskylda tveggja ára drengs sem
slasaðist illa í bílslysi á Kísilvegi í Mý-
vatnssveit í síðasta mánuði hefur lagt
fram kvörtun til Landlæknis vegna
meðferðar drengsins á Landspitalan-
um við Hringbraut. Drengurinn, sem
m.a. lærbrotnaði í slysinu, var settur í
svokallaðan strekk en þegar hann
kvartaði sifellt undan honum kallaði
fjölskylda hans til lækna. Þeir sögðu
umbúðirnar í lagi en drengurinn var
mjög kvalinn og hafði aukin gjöf deyfi-
lyfia ekkert að segja. Þegar drengur-
inn var síðar svæfður var litið á fót-
inn. Þá kom í Ijós að slæm sár höfðu
myndast, svo slæm, að sögn móður-
innar, að jafnvel getur farið svo að
græða þurfi nýtt skinn á hluta fótar-
ins. Drengurinn, sem undanfarið hef-
ur legið á sjúkrahúsi á Akureyri, fær
að fara heim í dag, en vegna sáranna
á fætinum mun bata hans seinka tölu-
vert, jafnvel um nokkrar vikur. Á
meðan kemst hvorki hann á leikskól-
ann né móðir hans til vinnu, en faðir
hans lést í slysinu. -ÓSB
Fæddur 020202
Bryndís og Siguröur meö nýburann sem á svo sannarlega flottan afmælisdag sem
auövelt veröur aö muna. Fæöingin sjálf veröur þeim líklega líka ógleymanleg en
stráknum lá svo á í heiminn aö hann fæddist á bílaplani í Breiöholtinu.
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002
DV-MYND SBS
Halldór mokar
Á Noröurlandi var í gær komiö bærilegasta veöur eftir snjókomu og
kafaldsbyl á laugardag. Flestar helstu leiöir voru orönar færar en margir
þurftu aö moka bíla sína út úr sköflunum. Þeirra á meöal var Halldór
Blöndal, forseti Alþingis, sem þurfti aö fara í kjördæmiö um helgina og
lét þá stríða storma ekki stööva sig.
Stálsleginn 12 marka strákur:
Fæddist á bílaplani
í Breiðholtinu
„Hann átti ekki að koma í heiminn
fyrr en 13. febrúar þannig að þetta
kom okkur mjög á óvart,“ segir Sig-
urður Haukdal Styrmisson, bílstjóri
hjá íslandspósti, um fæðingu sonar
síns á laugardagsmorgun. Sonurinn
kom ekki aðeins tæpum tveimur vik-
um fyrr í heiminn en áætlað var held-
ur lá honum svo mikið á að foreldr-
amir náðu ekki einu sinni að komast
á sjúkrahúsið áður en fæðingin var af-
staðin og það á bílaplani í Breiðholt-
inu.
Móðirin, Bryndís Friðjónsdóttir,
fékk hríðir snemma á laugardags-
morguninn og hringdi Sigurður á
sjúkrabíl sem var kominn að heimili
þeirra í Breiðholti um klukkan sjö.
Bryndís var hins vegar ekki fyrr kom-
in inn í bílinn en allt fór af stað og 20
minútum seinna var 48 sentimetra
langur og 12,5 marka þungur strákur
kominn í heiminn.
„Bíllinn var ekki einu sinni lagður
af stað þegar fæðingin fór í gang,“ seg-
ir Sigurður sem segist lítið hafa getað
gert til að hjálpa til við fæðinguna,
nema klippa á naflastrenginn. Sigurð-
ur og Bryndís eru bæði alin upp í
Breiðholtinu og því er kannski ekki
nema von að stráksa hafi fundist til-
valið að líta dagsins ljós á bílaplaninu
i Flúðaselinu og verða þannig borinn
og barnfæddur Breiðhyltingur, í orðs-
ins fyllstu merkingu. Fyrir eiga þau
Bryndís og Sigurður eina dóttur en
hún fæddist á sjúkrahúsi.
„Þegar allt var afstaðið langaði okk-
ur bara til að labba aftur inn i íbúðina
okkar með strákinn, því það var svo
stutt heim. Við fórum samt niður á
sjúkrahús, svona til öryggis," segir
Sigurður sem segir að móður og bami
heilsist vel. Foreldramir era ekki síð-
ur ánægðir með fyrri hluta kennitölu
barnsins sem er 020202 enda verður
ekki erfitt að muna þann afmælisdag.
„Þetta er alveg ógleymanlegur afmæl-
isdagur, en það hefði verið frábært ef
Hagstofan hefði fundið einhverja álíka
flotta endingu handa honurn," segir
Sigurður og hlær. Hinir nýbökuðu for-
eldarar vilja að lokum koma á fram-
færi sínum bestu þökkum til sjúkra-
flutningamannanna sem aöstoðuðu
við fæðinguna. -snæ
ASÍ hittir bæjarstjórn Ólafsfjarðar:
Vonast eftir huggulegu kaffiboði
- þar sem tilkynnt verði um afturköllun hækkana
„Almennt erum við í góðum gir
og stemningin er aldeilis frábær og
okkur væri greiði gerður - og það er
eiginlega fróm ósk frá mér - að þeir
sem ætla ekki að taka þátt í þessu
verkefni, sem er auðvitað grafalvar-
legt mál, stigi fram á völlinn þannig
að við getum snúið okkur aö þeim,“
segir Grétar Þorsteinsson, forseti
ASÍ, um þátttöku sveitarfélaga og
fyrirtækja í átaki til að sporna gegn
verðbólgu. „Viö þetta ágæta sveitar-
félag á Ólafsfirði segi ég að allir geta
gert mistök en ef það gerist er hægt
að leiðrétta þau. Við eigum fund
með þessari
ágætu sveitar-
stjórn kl. 11.00 á
mánudaginn og
ég vona að það
verði huggulegt
kafiiboð þar sem
búið verður að
draga þessar
ákvarðanir .til
baka,“ segir Grét-
ar. Það sem for-
seti ASí er að vísa til er ákvörðun
bæjaryfirvalda að hækka gjaldskrá
hitaveitunnar um tugi prósenta en
yfirvöld á Ólafsfirði hafa gert veit-
una að hlutafélagi og vísa auk þess
til að hitaveitan þar sé með þeim
ódýrustu á landinu. Svæðisráð Ein-
ingar-Iðju í Ólafsfirði hefur einnig
mótmælt harðlega þessum áformum
og skorað á önnur stéttarfélög á
Eyjaíjarðarsvæðinu og ASÍ að fylgj-
ast með og gera viðeigandi ráðstaf-
anir ef „bæjarstjórn Ólafsfjarðar
ætlar, ein af fáum, að þverskallast
við áðurnefndum óskum aðila
vinnumarkaðarins," eins og segir í
samþykkt svæðisráðsins.
-BG
, A ,, A _ A __ A A A A - A .. A .. A .
IGitarinnl
☆ Stórhöfða 27,
Íf s. 552 2125. ^
ik~kickirk^r>r>ck
brother P-touch 9200PC
Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni
Samhæft Windows
95, 98 og NT 4.0
360 dpi prentun
1 til 27 mm letur
Strikamerki
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport