Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2002, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2002, Síða 6
fókusmyndir: E.Ól. hár: Svavar Öm Fréttakonan Brynja Þorgeirs- dóttir færði sig yfir á Stöð 2 þeg- ar fréttastofa SkjásEins var lögð niður. Þar sér hún um að lesa fréttirnar í morgunsjónvarpinu auk þess að taka almennar fréttavaktir á daginn. Brynja er ákveðin í að ná langt í starfinu og hefur þegar sett sér það markmið að fá að sjá um viku- legan fréttaskýringaþátt. Hún gerir sér það þó fyllilega Ijóst að það er ekkert grín að vinna vaktavinnu í stressandi um- hverfi verandi einstæð móðir. sjónvarpsfréttamennska væri nokkurs konar poppútgáfa af blaðamennsku. Það hefúr breyst með reynslunni þó hún viðurkenni að þær hafi tilhneigingu til að verða yfirborðskenndar vegna þess hve sjónvarpsfréttir em stuttar. Nú vaknar Brynja klukkan sex á morgnana og er í útsend- ingu frá sjö til níu. Hún segir þetta ágætt fyrir- komulag því götumar séu auðar á leiðinni í vinn- una. Þess utan tekur hún líka almennar ffétta- vaktir á daginn. Er starfið eins og þú hafðir írnyndað þér? „Ég vissi að þetta yrði erilsamt og þessu fylgdi stress en ég þrífst bara vel í því. Starflð er líka þess eðlis að maður getur endalaust lært eitthvað nýtt og þróað sig áfram. Þetta er auðvitað vakta- vinna og álagsvinna og ég get vel skilið marga sem hætta í þessu og fara yfir í almannatengsl þar sem vinnutíminn er frá 9—5 og launin miklu betri. Það er þó ekkert sem ég get hugsað mér að gera.“ En eru fréttir eina sviðið sem þú hefur áhuga á að starfa við? „Já, ég get reyndar reyndar séð mig í annars konar fjölmiðlun en ég er fullkomlega ástfangin af fjölmiðlaheiminum. Mér finnst mjög spenn- andi að vera með puttann á púlsinum, að lesa ( viðburði dagsins, túlka þá og sjá það sem er ekki augljóst." Hvemig hentar þetta fyrir einstæða móður? „Eg er fréttalegur muggi .Þetta eru gjörólík fyrirtæki, það var mikill ba'ráttuandi og frumkvöðlastemning á Skjá ein- um sem ég hef reyndar heyrt að hafi verið svipuð á Stöð 2 þegar hún var byrja. Með tímanum hef- ur þetta breyst og maður finnur fyrir því að allt er komið í fast form á Stöð 2. Stöð 2 býður þó upp á mun betri aðstöðu, þar eru fleiri tökumenn, klipp- arar og betri aðgangur að tækjum. Auk þess eru fleiri reynsluboltar á staðnum sem er ágætt fyrir grænjaxl eins og mig. Á fféttastofu Skjás eins vann ungt fólk, flest með minni reynslu af fjöl- miðlum en gengur og gerist, og stundum lentum við í því að vera ekki tekin alvarlega. Það viðhorf hvarf svo þegar við festum okkur betur í sessi enda var áhorfið farið að jafnast á við keppinaut- inn, tíu fféttir á RÚV. Ég flnn strax muninn hvað það er auðveldara að ná í fólk héma þegar maður kynnir sig sem fréttamann á Stöð 2. Það var þó ákveðinn velvilji í gangi gagnvart Skjá einum - fólki fannst stöðin vera sniðug,“ segir fréttakonan Brynja Þorgeirsdóttir sem vakið hefur athygli fyr- ir ffamgöngu sína í morgunsjónvarpi Stöðvar 2 undanfarið. Ekki auðvelt að vera einstæð móðir Brynja hóf störf á fréttastofu Skjás eins eftir að hafa útskrifast úr mannfræði um áramótin 2000. Hún segist alltaf hafa ætlað að verða blaðamaður, hún hafi verið haldin þeim ranghugmyndum að

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.