Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2002, Page 10
Breakbeat veisla frá Talkin’ Loud
Breska hryllingsmyndin
Long Time Dead, sem frum-
sýnd var f október sl., er talin
frekar slök og þykir sýna og
sanna að Bretar verði seint
góðir i þessari tegund kvik-
mynda. En sé kvikmyndin
slöpp þá verður það sama ekki
sagt um tónlistina íhenni. Það
er breska fyrirtækið Talkin’
Loud sem á heiðurinn af tón-
listinni en þvf er sem kunnugt
er stjórnað af eðalplötusnúðn-
um Gilles Petersen. Á kvikmyndaplötunni Long Time Dead, sem
er nýkomin fverslanir hérlendis, eru m.a. lög með MJ Cole, Layo
b Bushwacka, Raw Deal, Zero 7, St Germain, Roni Size og Neil
Barnes og svo ný útgáfa af lagi Davids Bowies, Cat People, gerð
af drum & bass-hetjunni Krust (mynd) og söngkonunni Leonie
Laws úr Breakbeat Era. Kraftmikið safn af flottri breakbeat-
tónlist eins og við var að búast frá Talkin’ Loud.
Kanadíska hljómsveitin Godspeed You Black Emperor! nýtur mikillar
virðingar í tónlistarheiminum. Trausti Júlíusson kynnti sér þessa ein-
stöku sveit í tilefni af komu hennar til tónleikahalds hérlendis í næsta
mánuði og skoðaði plötufyrirtækið hennar, Constellation.
Tónleikaplata með Sade
Söngkonan Sade Adu á
sér marga trygga aðdáend-
ur. Sfðasta plata hennar,
Lovers Rock, sem kom út
seint á árinu 2000, sýndi að
Sade-stfllinn, sem er búinn
að vera óbreyttur sfðan
hún kom fram á sjónarsvið-
ið á nfunda áratugnum, er
löngu orðinn klassfskur. í
kjölfar plötunnar, sem seld-
ist sérstaklega vel vestanhafs, fór Sade f tónleikaferðalag um
Bandarfkin sem stóð frá þvf f júlf og fram f september f fyrra.
Það var hennar fyrsta tónleikaferð f 10 ár. Fyrir nokkrum dög-
um kom út tónleikaplatan Lovers Live sem er tekin upp á tón-
leikaferðalaginu. Á Lovers Live eru 13 lög. Fimm þeirra eru tek-
in af Lovers Rock en hin eru eldri, m.a. smellirnir Smooth Oper-
ator og The Sweetest Taboo.
Annasamt hjá Dan the Automator
Dan Nakamura, sem
er þekktari undir nafn-
inu Dan the Automator,
er örugglega einn af eft-
irsóttari pródúserunum f
dag. f fyrra pródúseraði
hann m.a. Gorillaz-plöt-
una og gerði plötuna
Lovage í gervi ástmög-
ursins Nathanial
Merriweather en honum
hefur verið lýst eins og Serge Gainsbourg og Tom Jones rynnu
saman í einn ofur-rómantfskan hip-hop sjarmör. Fram undan
hjá Dan eru ótal verkefni, m.a. ný Handsome Boy Modeiling
School-plata (með Prince Paul), ný Deltron 3030 plata (með Del
the Funky Homosapien og Kid Koala) og sólóplata með honum
sjálfum sem verður að stórum hluta instrúmental. Þessa dag-
ana er líka að koma út mix-platan Wanna Buy a Monkey þar sem
Dan spllar m.a. lög með Gorillaz, Air, Tortoise, Doves og De La
Sout. Svo er hann Ifka að vinna með Beck á næstu plötu þess
sfðarnefnda.
J to Tha L-O beint á toppinn
Velgengni dfvunnar með breiða botninn, Jennifer Lopez, ætl-
ar engan enda að taka. Nýja platan hennar J to Tha L-0, sem
inniheldur endurgerðir af
áður útgefnum lögum, fór
beint f fyrsta sæti banda-
ríska vinsæidalistans. Það
er ffyrsta sinn sem remix-
plata fer á topp Billboard
listans. J to Tha L-0, sem
er væntanleg á markað í
Evrópu f næsta mánuði,
inniheldur m.a. hin geysi-
vinsælu remix af l'm Real
og Ain’t It Funny sem eru
unnin af rapparanum Ja
Rule (á myndinni með J-
Lo) og svo remix-gerð af
Trackmasters, Dark Child,
P. Diddy og Pablo Flores.
Það vakti nokkra athygli þegar það seldist upp á tónleika
kanadísku hljómsveitarinnar Godspeed You Black Emperor!
nánast áður en byrjað var að auglýsa þá. Það hafa margir heyrt
minnst á GYBE! en samt þekkja fæstir hljómsveitina. Það
hljómar eins og mótsögn en skýrist af því að sveitin starfar alger-
lega fyrir utan hinn hefðbundna tónlistariðnað, þau veita sjaldan
viðtöl og það eru engar kynningarvélar malandi á bak við plöt-
umar þeirra. Þess vegna er hljómsveitin nánast eins og goðsögn,
þekkt en um leið falin. Meira að segja í heimaborginni Montréal
er talað um sveitina sem „best varðveitta leyndarmálið".
Stofnuð af atvinnuleysincjum fyr-
IR ÁTTA ÁRUM
Godspeed You Black Emperor var
stofnuð fyrir átta árum f Montréal af þeim
Efrim gítarleikara og Mauro bassaleikara
sem þá voru atrvinnulausir. Nafnið er titill
japanskrar kvikmyndar eftir Mitsuo
Yanagimatchi sem fjallar um mótorhjóla-
gengi. Fyrst gaf sveitin út kassettuna All
Lights Fucked on the Hairy Drooling
Amp árið 1994 í 33 eintökum en næsta
útgáfa var vínylplatan f#a#(infinity) sem
kom út hjá Constellation-útgáfúnni
1997 en var endurútgefin af bandaríska
fyrirtækinu Kranky ári síðar. í dag gefúr
Constellation út plötur Godspeed á vín-
yl, Kranky gefúr þær út á geisladiskum
vestanhafs en sveitin hefúr samstarf við
ýmis óháð plötufyrirtæki um útgáfú ann-
ars staðar í heiminum. 1999 kom út plat-
an Slow Riot For A New Zero Canada og
haustið 2000 kom tvöfalda platan Lift Yr
Skinny Fists Like Antennas To Heaven,
meistarverk GYBE! hingað til. Þá er von
á nýrri plötu með sveitinni seinna á árinu
en hún var tekin upp af sjálfum Steve Al-
bini.
Macnaðar huómkviður
GYBE! er í dag skipuð 9 meðlimum. Það
eru gítarleikaramir Efrim og Roger,
trommuleikaramir Bruce og Aidean,
bassaleikaramir Mauro og Thierry, selló-
leikarinn Norsola, fiðluleikarinn Sophie
og David sem spilar á gítar og segulbönd.
Þau nota helst ekki eftimöfn. Goðsögnin
segir að þau búi saman í yfirgefinni jám-
brautarstöð í Montréal þar sem þau æfa
og taka upp allt efni sveitarinnar. Tónlist
GYBE! er öll instrúmental. Henni hefur
stundum verið líkt við Sigur Rós. Það sem
þessar tvær sveitir eiga sameiginlegt er
ákveðin dramatísk uppbygging, tónlist
þeirra beggja virkar beint á tilfinninga-
sviðið. Lögin með GYBE eru flest ffá 10
mínútum og upp í 40 mfnútur. Þetta em
eiginlega verk frekar en lög og þau byggj-
ast mörg upp á stigmögnun, byrja
kannski rólega og lágstemmd en þróast
upp í magnaðar hljómkviður sem láta eng-
an ósnortinn sem á þær hlýðir. Þessi stig-
mögnun er sögð hálfu áhrifameiri á tón-
leikum heldur en á plötunum sem þó eru
helvíti magnaðar. Tónlist GYBE! er í
c
o
O \Q
o
+-»
co
*o
<u
senn einföld og flókin. Dramatíkin virkar strax, en þegar betur
og oftar er hlustað er tónlistin margslungin og útpæld.
Hugsjónamennska oc heimilisiðnaður
Auk þess að vera í GYBE! starfa meðlimirnir í ýmsum hliðar-
verkefnum. Þar á meðal má nefna A Silver Mt Zion, Fly Pan
Am, Exhaust og 1-Speed Bike. Þessar aukasveitir eru mismun-
andi samsettir hópar félaganna úr GYBE! og spila ólíka tónlist
sem þó á yfirleitt eitthvað sameiginlegt með afurðum móðurskips-
ins. Tónlist A Silver Mt. Zion hljómar t.d. stundum eins og nú-
tímahljómsveitarverk í klassíska geiranum en það er eitt af
mörgu sem leynist f tónlist GYBE!
Oll aukaverkefni GYBE! eru gefin út af plötufyrirtækinu
Constellation sem starfar í Montréal og gefúr út verk ýmissa
annarra tónlistarmanna, t.d. Do Make Say Think, Sofa,
Re:mnant og Frankie Sparo. Tónlistin er ólík en það er ákveð-
in tilraun og hugsjónamennska sem sameinar alla þessa tónlist-
armenn. Constellation er engin venjuleg útgáfa. Hún er rekin
af þeim Don og Ian. Þeir starfa eftir fyrirfram ákveðnu mani-
- festói (sem hægt er að finna á Netinu). Það eru t.d. engir skrif-
legir samningar við tónlistarmennina og markmiðið er að halda
sig utan við tónlistariðnaðinn. Eitt af því sem maður tekur eftir
þegar maður skoðar útgáfúr Constellation eru plötuumslögin
sem öll eru handgerð úr endurunnum pappír. Oll líming og sam-
setning er unnin af hljómsveitunum og vinum þeirra. „Þó að út-
gáfan sé alltaf að stækka þá reynum við að halda þessu eins heim-
ilislegu og hægt er. Við gætum alveg fengið eitthvert fyrirtæki til
þess að gera þetta en við viljum frekar borga vinum okkar. Vö
þekkjum enn fullt af fólki sem á ekki peninga," segja þeir Don
og Ian. Constellation eru líka mjög vandlátir þegar þeir velja sér
samstarfsaðlia erlendis. Það er engin tilviljun að það er Kiddi í
Hljómalind sem er að flytja inn afúrðir Constellation og stend-
ur fyrir tónleikum GYBE!
hva ð fvrir skemmtileaar niSurstaSa
plö^udómar hvern? staðreyndir
'S> **** Flytjandi: Exos - fjNjNk: Platan: My Home Is Útgefnndi: Æ Recor p "jM| 1 dings/Thule - "JB&' Lengd: 75.22 mín. Exos er alter-egó Arnvióar Snorrason- ar. My Home Is Sonic kom út rétt fyrir jól í fyrra og er önnur tveggia platna í fullri lengd sem hann sendi frá sér á árinu 2001, hin var platan Strength sem þýska fýrirtækið Force Inc gaf út í febrúar. Tónlist Exos er istrúmental teknótón- list. Þó aö þaö sé kraftur i tónlistinni á My Home Is Sonic er hún þó töluvert vægari heldur en tónlistin á Strength sem er mjög hörö og þung keyrsla. Tónlist Exos er fyrir þá sem vilja teknóiö sitt óÞlandaö og án tilslakana. My Home Is Sonic er þriöja Exos plat- an í fullri lengd. Hinar tvær, Eleventh og Strenght, komu út hjá Force Inc. Arnviður er fæddur 1980 en kynntist teknótónlistinni þegar hann var 14 ára. Hann er undir áhrifúm frá Detroit teknói, dub-tónllst og þýskri naum- hyggju. Þetta er mjög flott plata sem sýnir enn og aftur að Exos er einn af okkar fremstu raftónlistarmönnum. Rest lög- In hér eru frekar mínímal og fönkí teknó keyrsla en inn á milli eru stutt og róleg lög sem brjóta formiö upp. Einstakur hljómurinn gefur plötunni sterkan heildarsvip. trausti júliusson
■L Flytjandi: Marc Almoud Platan: Strangerr Things Utgefandi: XIII Öís Ítyw&ay Lened 1 Stranger Thlngs er þrettánda sóló- plata Marc Almond. Hún kom út hjá franska fyrirtækinu XIII Bis 1 fyrra en er nýkomin í sölu hériendis. Platan er unnin meö Jóhannl Jóhannssyni úr Lhooq sem semur nokkur laganna, tekur upp og forritar. Stranger Things er auövitaö vel þegin fyrir fslenska Marc Amlond-aödáendur, t.d. þá sem mættu á tónleikana í ís- lensku óþerunni I lok janúar. Auk Jóa koma Sigtryggur Baldursson, Sara Guömundsdóttir, Sammi úr Jagúar, Pétur Hallgrims, Höróur Braga og fleiri íslendingar aö gerö plötunnar. Þó aö sölóferill Marc Almonds sé glæsilegur þá eru margir sem muna aðallega eftir honum sem hluta af el- ektró-diskó dúóinu Soft Cell. Þeir Marc Almond og Dave Ball hafa nú endur- vakið sveitina og eru að taka upp nýja plötu sem væntanleg er hjá Cooking Vinyl seinna á árinu. Þetta er ágæt plata. Það er greinilegt aö Jóhann hefur mjög gott skynbragó á tónlist Marcs Almonds því tónsmíö- arnar og útsetningarnar falla sérstak- lega vel aö rödd hans og söngstíl. Þaö eru mörg fin lög hér en í sum þeirra vantar smá karakter. traustl júlíusson
10
f ó k u s 22. febrúar 2002