Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2002, Blaðsíða 16
Stykkishólmur málið?
Glöggir vegfarendur um Miklubraut og
Grensásveg hafa kannski tekið eftir auglýs
ingu sem komin er upp á flettiskiltí á UMFÍ
húsinu. Þar er auglýst fjölskylduhátíð í
Stykkishólmi sem fara á fram um verslunar-
mannahelgina. Fókusi hefur borist það til
eyrna að skiltið hafi verið komið upp þann 2.
janúar þannig það er augljóst að menn eru
snemma á ferðinni á þessum bænum. Vfst má
telja að það er lítill verslunarmannahelgar-
hugur kominn í landsmenn þannig það er
óvíst hvort auglýsingin virki jákvætt eða nei-
kvætt á landann. Fókus hefur líka af því
spurnir að auglýsingin fyrir hátíðina í fyrra
hafi fengið að hanga uppi lengi vel eftir
verslunarmannahelgina þannig að það er
Ijóst að ungmennafélagsmenn ætla að bæta
fyrir það með þessu. Þeir fara sem sagt aðra
átt íöfgunum að þessu sinni.
Isi Á Músík
ísleifur B. Þórhallsson, fyrrverandi mark-
aðs- og dagskrárstjóri á SkjáEinum, var ekki
lengi á vergangi eftir að hann hætti í starf-
inu um síðustu mánaðarmót. Fókus hefur
fengið af þvf spurnir að hann komi fljótlega
til að taka við útvarpsstöðinni Músfk 88,5.
Heimildir Fókuss herma að stöðinni hafi lítið
verið sinnt hingað til en hafi samt verið mjög
vaxandi í hlustun og ísleifur sé fenginn til
teiks til að setja alvöru púður f reksturinn.
Meðal annars má búast við auk-
inni dagskrárgerð á stöðir
með tilkomu ísleifs. Þá ha
líka heyrst sögur um að I
leifur eigi að sjá um mar
aðssetningu á umdeildri
heimildarmynd
Hrannar Sveins-
dóttur og fleiri um
þátttöku hennar í
Ungfrú ísland.i
keppninni en si
mynd verður frum-
sýnd í mars.
Fréttirnar sem fæstir heyra
Klósettferðir kynjanna
Ný svissnesk rannsókn sýnir að konur eyða mun meiri tíma
á salerninu en karlar. Til 82 ára aldurs notar venjuleg kona
376 daga á saleminu á meðan meðalkarlmaður eyðir þar 297
dögum. Konur nota hins vegar styttri tíma í hvert skipti sem
þær fara á klósettið en fara hins vegar mun oftar en karlar.
Karlmenn fara að meðaltali þrisvar á dag á klósettið og eru þar
fimm sinnum lengur en konur, enda lesa þeir mjög oft blöð
þar inni, reykja eða tala við einhvem í farsímann.
Hló of mikið
Leigjanda einum í
blokkaríbúð í Berlín hef-
ur verið hent út fyrir það
eitt að vera of lífsglaður
og hlæja of mikið. Ná-
grannar mannsins hafa
kvartað svo lengi yfir
hlátrinum frá honum að
eigandi íbúðarinnar sá
sig tilneyddan að henda
honum út. Núna er
þessi lífsglaði 59 ára
gamli maður að leita sér
að annarri íbúð þar sem
leyfilegt er að vera í góðu
skapi og hlæja.
Kynlíf á klósettinu
Það varð uppi fótur og
fit um borð í flugvél frá
American Airlines sem
var á leið firá London til
New York í síðustu viku.
Áhöfh vélarinnar tók
eftir því að tveir menn voru alltaf að fara saman á klósettið og
fannst þeim þessar ferðir vera grunsamlegar. Grunaði þá helst
að þarna færu hryðjuverkamenn sem væru að bera saman bæk-
ur sínar á salerninu. Flugmaðurinn tilkynnti flugtuminum
strax um málið og mikill viðbúnaður var settur í gang. Þegar
vélin lenti svo heil á húfi í New York voru mennimir hand-
teknir og yfirheyrðir. Kom þá í ljós að áhöfh vélarinnar hafði
heldur betur rangdæmt þá því það eina sem þeir viðurkenndu
að þeir hefðu verið að gera á saleminu var að fá sér smákrakk og
hafa kynmök.
Árslaun fyrir símasex
Hinn 62 ára gamli Constantin Luican frá Rúmeníu er á leið
í fangelsi vegna þess að hann getur ekki borgað símreikning-
inn sinn. Ástæðan fyrir því er sú að hann var svo óheppinn að
sofna út frá samtali við kynlífslínu. Slíkar þjónustur eru ekki
ódýrar eins og ellilffeyrisþeginn hefur fengið að kenna á þvf
hann fékk símreikning sem nemur árslaunum í Rúmeníu.
Luican segist ekki geta borgað reikninginn og þvf er hann,
eins og áður segir, á leið í fangelsi. Hann hefur líka sagt að þótt
hann ætti peninga fyrir reikningnum þá myndi hann ekki
borga hann þvf hann
segir það lélega kyn-
lífslínu sem maður bara
sofhar út frá af leiðind-
um.
Of sterk táfýla
39 ára gömlum manni
hefur verið meinaður að-
gangur að bókasafhi há-
skólans í Delft í
Hollandi. Ástæðan er sú
að af honum er of mikil
táfýla. Ástandið hefur
verið svo slæmt að þegar
maðurinn hefur birst á
bókasafninu þá hafa aðr-
ir gestir pakkað saman og
farið því táfýlan af hon-
um hefur verið svo
megn. I heilt ár hefur
starfsfólk bókasafnsins
margoft bent manninum
á að það sé of vond lykt af
fótunum á honum og að
hann verði að fara reglulega í fótabað en ekkert hefur virkað.
Því hefúr manninum verið meinaður aðgangur að bókasafninu.
Stal 6000 rósum
Lögreglan í Norður-Karólfnu í Bandaríkjunum leitar nú
logandi ljósi að manni sem braust inn í blómabúð rétt fyrir
Valentínusardaginn. Þjófurinn hafði á brott með sér hvorki
meira né minna en 6000 rauðar rósir úr kæli búðarinnar. Ekki
er vitað hvort þjófurinn hefur verið í svona rómantískum hug-
leiðingum eða hvort hann hefur hugsað sér að selja rósirnar.
Lögreglunni finnst þó seinni skýringin trúlegri.
/
Milli £ lola
Það er algeir skylda að kfkja inn á Ekki dónategt
www.uglypeaple.com á hverjum degi. dress þetta.
Hádegismatur hjá pipulagningamönnum?
Let'sRuxlt yiMmild
fftit hii u nus
tumrmt
00 im -
HM
1EW!
Þorgrfmur verður varla sáttur við
svona auglýsingu.
Skemmtilegur glaðn-
ingur eftir máltfðina -
ætti þetta hafi verið
rotta?
Ólafur örn Haraldsson
alþingismaður.
Froskurinn Kermit.
Engan skyldi furða að ferðagarparnir Ólafur Öm Haraldsson og Kermit
úr Prúðuleikurunum séu nefndir í sömu andrá á þessum ’Stáð, í blaðinu,
enda óhugnanlega líkir og mætti nánast halda að um sarrta manninn
væri að ræða - ef ekki væri fyrir þá staðreynd að annar þeírra er ffoskur.
En þeir eiga fleira sameiginlegt, til að mynda áhuga á ferðalögum eins og
áður segir. Ólafúr er vitanlega alfróður um landsrrætti á íslaridi ag þótt
víðar væri leitað og Kermit hefúr ferðast heimshomanna á milli með
Prúðuleikurunum. Ölíklegt þykir þó að froskurinn káti setjist á þingstól
vestanhafs, eins og Ólafur hefúr gert fyrir Framsóknarflokkinn, en það er
þó aldrei að vita nema hann finni heimili hjá vinstri-grænum.
Anna Ósk Löwe er atferlisfræðingur sem
skrifar um málefni lídandi stundar í Fókus
Ri&andi Rottweilerhundar
Ég fór á kvikmyndina Gemsa fyrir
skemmstu og líkaði vel. Hún hefur allt að bera
- smávegis ofbeldi, nekt, samfarir og auðvitað
fullt af unglingavandamálum sem foreldrar
þeirra skilja ekkert í. Þar heyrði ég líka í fyrsta
skipti í hinum umtöluðu Rottweilerhundum
en þeir em annað fyrirbæri sem foreldrar
skilja ekkert í og af þeirri ástæðu hafa margir
þeirra ákveðið að taka afstöðú gegri þeim.
Ég'sá svo einhverja spekinga í Silfri Egils
vera að þræta um textasmfðar Rottweiler-
hundanna. Einhver bitur kerling á mínurh
aldri var að mótmæla þessu á meðan Ámi
Matt hjá Mogganum var að verja piltana.
Þetta varð til þess að ég fór og keypti um-
rædda plötu til að hlýða á boðskapinn sem
þeir höfðu fram að færa. Gott og vel. Þeir tala
um víðkvæm giæpamál og serðingar, sem
kann kannski að fara fyrir brjóstið á einhveij-
um, en ég tek Rottweilerhundana þó með
mátulegum fyrirvara. Á einum stað segir eitt-
hvað á þessa leið: „Ég ætlaði að ríða mömmu
þinni en hún var ekki heima svo ég reið
pabba þínum.“
Ekki skil ég alveg hvað verið er að fara með
þessum setningum en ég er þess þó fúllviss að
þetta eigi ekki að taka bókstaflega líkt og
sumir foreldrar hafa gert. í þessu er falin
ákveðin óvirðing við þann sem orðunum er
beint að en ég efa þó að nokkur meðlimur
sveitarinnar hafi geð til þess bókstaflega að
eiga endaþarmsmök við feður óvina sinna.
Þetta er greinilega menning sem við eldra
fólkið skiljum ekki. Rétt eins og þegar for-
eldrar mínir skildu ekki þegar eldri bróðir
minn, Emil, lét sér vaxa sítt hár, fór að tala
um frjálsar ástir og hlusta á Jimi Hendrix
ségja: „Scuse me, while 1 kiss the sky.“ Þau
skiídu ekkert í þessu og pabbi kallaði Emil
Emilíu upp frá þessu. I raun ætlaði Jimi ekki
að kyssa himininn, hann var að tala um LSD-
vímu, en auðvitað skildu foreldrar okkar það
ekki. Þess vegna skiljum við ekki hvað
Rottweilerhundamir em að fera með stnum
textum, rétt eins og þeir sjálfir eiga ekki eftir
að skilja um hvað tónlist afkomenda þeirra
mun snúast þegar þeir komast á okkar aldur.
Lítum í eigin barm og hættum að dæma
hluti sem við skiljum ekki - ástandið er ekki
eins slæmt og þið haldið.
f ó k u s
16
22. febrúar 2002