Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2002, Blaðsíða 20
>
Á sunnudagskvöld munu gímaldin og hljómsveitin 5ta
herdeildin halda tónleika á Vídalín. Þau segjast spila
þjóðlega þjóðlagatónlist sem mun þó aldrei nokkurn
tima koma út á plötu, enda er það stefna sveitarinnar að
gefa ekkert út.
Þjóðlegir óvextir
„Þetta er þjóðlegt þjóðlagaband
með einhverjum kántríáhrifum,"
segir Loftur S. Loftsson, bassa-
leikari 5tu herdeildarinnar sem
mun leika á Vídalín á sunnu-
dagskvöld. Sonja Lind Eyglóar-
dóttir söngkona er svo hinn
helmingur bandsins en ásamt
þeim verður söngvarinn og gítar-
leikarinn Gísli sem er betur
þekktur undir heitinu gímaldin.
„Ég er nú bara nýkomin inn í
þetta, búin að vera í hljómsveit-
inni einar tvær vikur,“ segir
Sonja. Gímaldin og Loftur hafa
hins vegar verið að starfa saman
síðustu mánuði. „Við tveir byijuð-
um að spila saman í september og
spiluðum á einum tvennum tón-
leikum í Nýlistasafninu í tengsl-
um við sýninguna Margmiðlaður
Megas. Þessir tónleikar á sunnu-
dag eru svo bara til þess að leyfa
fólki að heyra tónlistina og sjá
hvort einhver nennir að hlusta á
þetta,“ segir Loftur. Fyrir þá sem
áhuga hafa er hægt að nálgast lög
með sveitinni á Netinu, undir
slóðinni kistan.is, en sveitin hef-
ur ekki í hyggju að gefa neitt efrii
út á plötu. „Við munum aldrei
gefa neitt efhi út, það er yfirlýst
stefna hljómsveitarinnar. Fólk
getur nálgast okkar tónlist á Net-
inu á kistan.is ef það hefur ein-
hvem áhuga, en við munum
aldrei koma til með að gera „hefð-
bundna“ plötu,“ segir gímaldin.
Loftur segir að hljómsveitin
hafi tekið miklum breytingum á
sfnum stutta starfstíma og hefúr
hún flakkað á milli tónlistar-
stefna frá upphafi. „Ég held ég
hafi aldrei nokkum tíma verið í
hljómsveit sem hefur tekið jafh
miklum breytingum á jafn
skömmum tímum og þessi. Upp-
haflega var ég ráðinn sem bassa-
leikari f rokkhljómsveit en svo
töpuðum við gítarleikara og átt-
um aldrei trommara þannig að
þetra þróaðist út í þjóðlagatónlist.
Þaðan átti stefnan að vera tekin á
flamengotónlist og reggí en við
erum búin að fara þennan hring
núna og emm komnir aftur í
gamla farið, þ.e. þjóðlagatónlist-
ina. Við vomm meira að segja að
spá í að taka eiturlyfin og afgreiða
þau í einum grænum líka en við
íétum nú ekki verða af því.“ Eins
og áður sagði verða gímaldin og
5ta herdeildin með tónleika á
Vídalín á sunnudagskvöldið og
munu þeir hefjast eitthvað upp úr
kl. 21.
Úrslit í hinni geysivinsælu „freestyle-danskeppni*' Tóna-
bæjar fara fram í kvöld og má búast við mikilli keppnis-
hörku hjá þátttakendum.
Hver verður íslandsmeistari?
íslandsmeistarakeppni Tónabæjar í frí-
stældansi hefur verið árlegur viðburður í 21 ár.
Áhuginn á keppninni er mikill og virðist
aukast með ári hverju. Nú hafa undankeppn-
ir farið ffam og verður úrslitakvöldið fyrir ald-
urshópinn 13-17 ára haldið í íþróttahúsi
Fram í kvöld. Alls em um 150 keppendur
komnir í úrslit, 30 hópar og 15 einstaklingar.
Eins og undanfarin ár er búist við harðri
keppni en keppendur eru hvaðanæva af land-
inu. Það er Björgvin Franz Gíslason sem er
kynnir keppninnar að þessu sinni og að sjálf-
sögðu verða ýmis skemmtiatriði á boðstólum.
Herlegheitin byrja kl. 18 og það kostar 500
kall inn. Þess má einnig geta að Islandsmeist-
arakeppnin fyrir 10-12 ára verður haldin á
morgun, laugardag, á sama srað kl. 12.
Hópurinn Textil bar sigur úr býtum í hópakeppninni í fyrra.
•Klúbbar
■ 22 ER OWHWW14 ÁRA GAMAtL 22 heldur
áfram að halda upp á 14 ára afmæli sitt. Plötu-
snúðurinn Benni mun sjá um hreint framúrskar-
andi djammtónlist sem hæfir góöum af-
mælispartíum og afmælistilboö veröa á bam-
um. Frftt er inn til kl. 02.30 laugardag. Fritt er inn
alla nóttina fyrir handhafa stúdentaskírteina.
■ EBÓTIK Á ASIWO Astro ætlar að tileinka
þetta laugardagskvöld erótík. Mættu í þínum fin-
ustu undirfötum innan undir djammgallanum og
upplifðu unaðinn á Astro.
■ MÆTTU í HERMANNAFÖTUM Á SPOTUCHT
Það verður hermannakvóld á Spotlight i kvöld
og vonast starfsmenn staðarins til þess að sjá
sem flesta í hermannafötum. Dj Sesar i búrinu.
500 kall inn.
■ NEIMAD Á PÍANÓBARNUM Plötusnúllinn
Neimad hristir upp i gestum Píanóbarsins og sér
til þess að allir fari sáttir heim. Tilboö á bamum.
■ TECHNO Á DiABLO Diablo, einl tecno-klúbb-
urinn í Reykjavík, heldur uppi merig'um þessarar
tónlistarstefriu í kvöld. ívar og Atll sjá um tónlist-
arvaliö.
•Krár
■ BBH Á GAUKNUM Hljómsveitin Ber heldur
tónleika á Gauki á Stöng í kvöld og veröur húsið
opnaö kl. 23.30. Miöaverð er kr. 1000.
■ BUFF Á VÍDAUN Stórhljómsveitin Buff spilar
á Vídalín í kvöld og mun skemmta fram á nótt.
■ GEIRMUNDUR VALTÝSSON Á CATAUNU
Haldiö ekki aö hljómsveit Geirmundar Valtýs-
sonar verði ekki bara aftur annaö kvöldiö í röð á
Catalínu í Hamraborginni! Gleðin hefst kl. 23 og
stendur til 3. Góða skemmtun!
■ UFANPITÓNUST Á KAFFI LÆK Irts Jóns Qg
Njáll mæta á Kafli Læk I Hafnarfirði ásamt
Ossa saxa.
■ PENTA Á PUBUNEBS Hljómsveitin Penta
mun skemmta þeim sem leggja leiö sína til
Dubliners í Hafnarstræti í kvöld.
■ PÉTIIR CHEZKO Á VEGAMÓTUM Pétur
Chezko mun halda uppi stemningunni á Vega-
mótum í kvöld.
■ S&HÁGULIÖLDINNI Stuðboltamir Svensen
og Hallfunkel halda uppi stuöinu á Gullóldinni
alla helgina. Bolti í beinni og boltaverð á bjór.
■ SCANDALL Á AMSTEHPAM Hljómsveitin
Scandall mun spila í kvöld á Café Amsterdam
og langt fram á nótt.
■ SIXT1ES Á KAFFl REYKJAVÍK Það veröur fjör
á Kaffi Reykjavík í kvöld er hljómsveitin Sixties
mun leika fyrir dansi. Stemningu hennar þekkja
flestir og una vel við.
■ SPÚTNIK Á PLAYERS Drengimir í Spútnik
munu trylla lýðinn á Players í Kópavogi í kvöld og
tjútta langt fram á nótt.
■ THE SGÚTti.RIVER BAND j KAFFILEIKHÚS-
INU Kleifabandalagiö (The South River Band)
býöur til söngkvölds í Kaffileikhúsinu, þar sem
gestum er ætlað að taka lagið, sér og öðrum til
ómældrar skemmtunar.
■ VTTLAUS SKÍFUÞEYTIR Á BAR101 Hinn víö-
frægi og gamalreyndi skífuþeytir Senor Nonsen-
se gerir tóma vitleysu á Bar 101 frá miðnætti og
langt fram eftir nóttu.
•K1a s s í k
■ 15.15 A NÝJA SVK)I BORGARLEIKHÚSS-
INS Ferðalög, tónleikaröð þeirra Daníels Þor-
steinssonar píanóleikara og Siguröar Halldórs-
sonar veröa á dagskrá á Nýja sviði Borgarieik-
hússins kl. 15.15. Að þessu sinni er yfirskriftin
Sígaunaljóð. Anna Sigriður Helgadóttir mezzos-
ópransöngkona mun flytja samnefndan Ijóöa-
fiokk Antonins Dvoráks. Einnig verða á efnis-
skránni sónötureftir bæheimsku tónskáldin Ge-
org Benda og Bohuslav Martinu. Ferðalög settu
þeir Daníel og Sigurður á iaggirnar fyrir réttu ári.
Þar er skyggnst inn f hljóðheim eins lands eða
heimshluta í einu. Efhisskráin byggist átónlist
síðustu aldar fyrir selló og pfanó, sönglögum og
annarri kammertónlist, bæði með og án söngs,
með hjálp gestaflyfjenda f fremstu röð.
■ PAGUR TÓNUSTARSKÓLANNA Dagurinn
byrjar á opnu húsi i Hraunbergi frá 13-15, þar
sem hljóðfærakynning verður fyrir áhugasama,
en sérstakir tónleikar verða í salnum frá 13.30-
14. Þá verða lokatónleikar Eliasardaga í sal
skólans á Engjateigi 1, kl. 14, og tónleikar
framhaldsnema verða haldnir f tvfgang f Víði-
staðakirkju, kl. 15 og 17. Allir velkomnir.
■ LAUGARDAGSKVÖLD Á GIU Skemmtikvöld
í Ými, Laugardagskvöld á Gili, verður haldiö kl.
22.00 í kvöld en þar er stefnt saman mörgum af
bestu og frumlegustu sönghópum og listamönn-
um landsins. i kvöld verður valsasveifia um vetr-
arkvöld, þar sem Guðlaugur Viktorsson mun
bjóöa upp á dans og kynna góöa gesti. Þeirra á
meðal má nefna Skagfirsku söngsveitina,
Kariakór Reykjavíkur, Signýju Sæmundsdóttur
og 3 tenóra aö hætti hússins, þá Gústav H.
Gústavsson, Halldór Guðnason og Ólaf Magn-
ússon.
Í .KÖPÁVöa Kl. 13
verða nemendatónleikar á vegum Tónlistar-
skóla Kópavogs í Salnum, Kópavogi.
■ STQBSÖNS-VARAR Á _ARÍ1F flfl PÚETTA-
TrinmKiiM Vegna fjölda áskorana hefur verið
ákveöiö aö efha til aukatónleika með Gunnari
Guðbjómssyni, Kristni Sigmundssyni og Jónasi
Ingimundarsyni i Salnum, Kópavogi, kl. 17. Á
efnisskránni verða sem fyrr arfur og dúettar.
•Sveitin
■ BINGO Á AKUREYRI Hin vinsæla hljómsveit
Bingo veröur á Oddvitanum Akureyri þessa helg-
ina. Kannski einhverjir fái heila röð á þessu balll
■ BUTTERCUP Á SJALLANUM Stórballahljóm-
sveitin Buttercup verður i gifuriegu stuði á SjalF
anum á Akureyri f kvöld og um aö gera fyrir
Norðlendinga að flölmenna á staðinn sem
endranær.
■ GABRÍEL Á EYRINNI Stuðbandið Gabriel
spilar á Eyrinnl á ísafirði i kvöld.
■ HLYMON OG ÞORFUNKEL í EGILSBÚÐ Þeir
Hlymon og Þorfunkel munu halda uppi sykur-
sætri stemningu I kvöld, frá kl. 2303, i Egllsbúö
í Neskaupstað. Aðgangseyrir er enginn fyrir miö-
nætti en rukkaö um 500 kall eftir það.
■ MÁT Á GRUNDARFIRPi Reykviska hljóm-
sveitin Mát verður á Kristjáni níunda í Grundar-
firði í kvöld en þessir drengir eru hvaö þekktast
ir fyrir aö vera strékamir sem mættu með gftar i
Djúpu laugina og fluttu hiö vinsæla Djúpu laug-
ariag sem flestir eru nú famir að kunna.
■ PAPAR Á BREHHNNI Hljómsveitin Papar
verður á Akranesi í kvöld, nánar tiltekið á Breiö-
inni.
■ VH) POLUNN. AKUREYRI Stulli og Sævar
Sverrisson skemmta eins og þeim einum er lag-
ið á Við Pollínn á Akureyri.
•Leikhús
■ BOPORÐIN 9 f kvöld sýnir Borgarieikhúsið
leikritið Boðorðin 9 eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Söngur, gleði, tregi, taumlaus harmur. Sígild
dæguriög, óperuariur, sfgaunamúsfk. Allt i einni
beiskri blöndu. Leikrit um nútfmafólk í kröppum
dansi. Leikstjórí verksins er Viðar Eggertsson en
sýningin hefst klukkan 20.
■ FYR5TERAÐFÆPA5T Leikritiö Fyrst þarf nú
að fæöast (Farst bli'r man jo fpdt) fiallar um Axel
sem var aö skilja við Dúllu, þvf hann bæði elsk-
ar hana og elskar hana ekki. Sissa hefur þann
undariega galla aö þola ekki að sjá laufiö falla af
trjánum og fólk yfirgefa hvert annað og getur
ekki stillt sig um að spyrja hvers vegna, en syst-
ur hennar, sem kallast Pissa, finnst hún of
svartsýn. Viktor er mfgrenisjúklingur sem fær
gjama köst ef fólk talar of mikið en Volgeir reyn-
ir pð sjá samhengi hlutanna. Sama hvað minni-
máttarkennd og óhagstæðu útliti líður, dreymir
alla um aö finna þann sem getur gægst inn f sál
þeirra. Verkið er sýnt á Nýja sviðl Borgarielk-
hússins og hefst sýningin kl. 20.
■ GESTURINN í kvöld sýnir Borgaríeikhúsið
verkið Gesturinn á litla sviðinu. Á þessari vit-
firrtu en alvartegu nóttu reynir Freud að átta sig
á hinum furðulega Gesti. Trúleysinginn Freud
sveiflast á milli þess að halda aö hann standi
frammi fyrir Guöi og grunsemda um aö gesturinn
sé geðsjúklingur sem sloppið hefur af geðveikra-
hæli þá um kvöldiö. Þeir tveir velta fyrir sér ýms-
um heimspekilegum spumingum sem snerta
m.a. tilvist Guðs, ábyrgð og frelsi mannanna,
grimmdina og hið illa. Höfundur er Eric-Emmanu-
el Schmitt en helstu leikendur eru þau Gunnar
Eyjólfsson, Ingvar E. Sigurðsson, Jóna Guðrún
Jónsdóttir og Kristján Franklín Magnús. Leik-
stjómi er Þór Tulinius
■ KARÍUS OG BAKTUSI dag sýnir Þjóöleikhús-
ið hib margjyekkta barnaleikrit Karius og Baktus
eftir Thorbjöm Egner. Sýningar dagsins heflast
kl.14 og 15 en sýnt er á Smíðaverkstæðinu.
■ SLAPPAÐU AF! Nemendamótsnefnd Verslun-
arskóla islands sýnir f kvöld söngleikinn Slapp-
aðu af! f Borgarieikhúsinu. Leikstjóri er Gunnar
Helgason, tónlistarstjóri Jón Ólafsson og dans-
höfundur Guðfinna Bjömsdóttir. Handritið skrif-
aði Felix Bergsson en söngleikurinn gerist á ís-
landi á sjöunda áratugnum og er tónlist þess
tíma, soul-tónlistin, allsráðandi I sýningunni.
Sýningin hefst kl 14 f dag.
■ SLAVAR í kvöld sýnir Leikfélag Akureyrar
verkið Slavar eftir Tony Kushner. Leikstjórn, leik-
mynd og búningar eru f höndum Halldórs E. Lax-
ness en sýningin hefst kl. 20 f kvöld.
■ SYNQJANDI í RIGNINGUNNI Leikritið Syngj-
andi í rigningunni verður sýnt f kvöld á stóra
sviði Þjóöleikhússins en sungið er af hjartans
lyst. Þetta mun vera einn frægasti söngleikur
aldarinnar og nú f fyrsta sinn á íslandi. Viö erum
stödd f Hollywood jjegar fyrsta talmyndin lítur
dagsins Ijós. Þöglu myndirnar hverfa á auga-
bragði og gömlu stjörnumar fá skyndilega málið.
Meðal leikenda í sýningunni eru Selma Björns-
dóttir og Stefán Kari Stefánsson en sýningin
hefst kl. 20 stundvíslega.
•Fyrir börnin
■ ÍSLANDSMEISTARAKEPPNIN í FRÍSTÆL
Krakkar á aldrinum 10-12 ára keppa f fristæF
dansi i íþróttahúsi Fram frá kl. 12 f dag.
•Opnanir
■ LIFVANA í ASÍ Kl. 16 veröur opnuð sýning í
Ásmundarsal sem ber nafnið Lífvana. Þar sýnir
Inga Sólveig Friðjónsdóttir Ijósmyndaseríu.
Myndirnar eru sviösettar dauðasenur og fjalla
um endalok nokkurra kvenna. í myndunum er
ýmislegt gefið f skyn með klæðnaði, útliti og um-
hverfi sem setur áhorfandann að nokkru leyti
inn f lif kvennanna. Áhorfandinn fær þannig
tengingu sem fær hann til umhugsunar um að-
stæður og orsakir atburðarins. Sjá nánari um-
fjöllun hér framar í blaðinu.
■ OPALERNAIANDEMOOKA i dag verður opn-
uð f Hafnarborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfiarðar við Strandgötu, sýningin Sviflð
seglum þöndum en á sýningunni er fjallað um
sfðustu seglskútumar á heimshöfunum og sigl-
ingar þeirra fyrir Homhöfða. Sýningin kemur frá
Álandseyjum og er unnin í samvinnu við Sjó-
minjasafnið f Ástralíu. Við opnun sýningarinnar,
kl 16 mun Anders Berdtsson flytja einleikinn
Opalema I Andemooka. Leikritiö er skrifað af Ro-
bert Liewendahl, sem byggir frásögn sína af sjó-
manninum Gústaf á Skáldsögunni Katarina eftir
Sally Salminen.
■ S.VIFIP SEGLUM ÞÖNPÚM í dag veröur opn-
uð f Hafnarborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjaröar, sýningin Sviflð seglum þóndum. Á
sýningunni er fjallaö um sfðustu seglskútumar á
heimshöfunum og siglingar þeirra fyrir Hom-
höfða. Sýningin kemur frá Álandseyjum og er
unnin i samvinnu við Sjóminjasafnið f Ástraliu.
Við opnun sýningarinnar, kl. 16.00, mun Anders
Berdtsson flytja einleikinn Opalema I
Andemooka.Leikritið er skrifað af Robert
Liewendahl, sem byggir frásögn sfna af sjó-
manninum Gústaf á Skáldsögunni Katarina eftir
Sally Salminen.
■ TEXTÍLVERK í RÁÐHÚSINU Þórey Eyþórs-
dóttir opnar myndlistarsýningu f Ráðhúsi
Reykjavíkur og á Hominu viö Hafnarstrætl kl.
16. Sýninguna nefnir Þórey Frá þræði tll heildar
og byggir hana einkum á vefnaðar- og textílverk-
um sem hún hefur unnið að á undanfömum
árum. Þetta er tólfta einkasýning Þóreyjar en sú
fyrsta í Reykjavík. Auk sýningarinnar í Ráðhúsi
Reykjavíkur sýnir Þórey olíu- og vatnslitamyndir
í Veitingahúsinu Horninu við Hafnarstræti, kaffi-
galleriinu. Báðar sýningamar standa til 10. mars
næstkomandi.Við opnunina í Ráðhúsinu mun
söngkonan Ólöf Sigriður Valsdóttir syngja nokk-
ur lög við undirieik Zsuzsanna Budai.
■ VATNSLfTAMYNDIR Á CAFÉ PRESTO Maja
Loebell, þýskukennari f MR, opnar sýningu á
vatnslitamyndum á Café Presto, Hlíðarsmára
15, kl. 15 i dag. Maja hefur stundað vatnslita-
málun frá 1993. Sýningin stendur til 22. mars.
■ ÍR»$ ELFA í GRYFJU ASÍ íris Elfa Friðriks-
dóttir opnar sýningu í Gryfju Ustasafns ASÍ við
Freyjugötu kl. 16 í dag. Um þessar mundir
stendur einnig yflr sýning á verkum irisar á
Mokka við Skólavöröustíg. Kveikjan að verkurv
um sem hún sýnirf Listasafni ASÍ og á Mokka er
sótt f prjónaaðféröir og fatamerki. Iris Elfa hefur
á undanfömum árum einbeitt sér aö einföldu sí-
mynstri í verkum sínum. Símynstrið sækir hún í
sitt nánasta umhverfi og hefur efnisvalið veriö af
ýmsum toga. Verk hennar hafa veriö steinsteypt,
mótuð í járn og polýester og saumuð f pappfr.
Framleiðsluferlið f verkunum er oftar en ekki í
höndum iðnaðafólks. Þá skapast í verkin ófýrir-
sjáanleg sérkenni sem gera hverja mynd ein-
staka. Þannig má segja að sfmynstrið sé taktur
verksins og fjölbreytileikinn tónar jjess.
■ ÞETTA VIL ÉG SJÁ í OERPUBEROI Vatn,
grjót, hrosshár, útsaumur, Ijósmyndir og olíu-
málverk, þetta allt er nokkuð sem sjónvarpskon-
an Eva Maria Jónsdóttir vill sjá á samnefndri
sýningu f Geröubergl.Aldrei hefur flölbreytnin ver-
ið jafn mikil! sýningarröðinni Þetta vil ég sjá. Á
henni verða Ijölmörg splunkuný myndverk auk
eldri verka sem ekki hafa áður komið fyrir augu
almennings f bland við þekktari verk. Listamenn-
imir sem hljóta þann heiður að vera valdir af
EvuMaríu eru:Anna Líndal, Flnnbogi Pétursson,
Georg Guðni, Guðmunda Andrésdóttir, Guðrún
Marinósdóttir, Halldór Ásgeirsson, Helgl Þor-
gils, Hrafnkell Sigurösson, Húbert Nói, llmur
Stefánsdóttir, Kristinn G. Haröarson, Ólöf Nor-
dal, Ósk Vilhjálmsdóttir, Óskar Jónasson, Páll
Guðmundsson, Ragna Sigurðardóttir, Sigriöur
Salvarsdóttir, Úlfur K. Grönvold, Valgaröur
Gunnarsson.Sýningin stendur til 23. mars.
•Fundir
■ MÁIWNO UM MAGNÚS STEPHENSEN Fé-
lag um átjándu aldar fræði heldur málþing um
Magnús Stephensen dómstjóra i dag i Þjóðar-
f ó k u s
20
15. febrúar 2002