Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Side 4
4 MÁNUDAGUR 11. MARS 2002 I>V Fréttir Sex mánuðir liðnir frá hryðjuverkaárásinni á Bandaríkin: Kjörorð dagsins er allt fyrir föðurlandið - segir Jón Baldvin Hannibalsson sendiherra DV, Now Yoriu „Andrúmsloftiö er breytt. Kjörorð dagsins er allt fyrir föðurlandið. Sumir segja að allt sé breytt og benda á að þetta er í fyrsta sinn í sögunni eftir árásina á Pearl Harbo- ur sem Bandaríkin verða fyrir árás á heimaslóð. Þetta kann að vera of- mælt en það er mjög margt sem hef- ur breyst," segir Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra Islands í Bandaríkjunum, í tilefni þess að í dag eru 6 mánuöir liðnir frá því árásirnar voru gerðar á Tvíburat- umana á Manhattan og Pentagon- bygginguna í Washington. DV-MYND REYNIR TRAUSTASON Vlð grunninn Jón Baldvin Hannibalsson á Ground Zero. Rústirnar eru aö mestu horfn- ar. Grunnurinn er sem gapandi sár á Manhattaneyju. DV ræddi við Jón Baldvin á Man- hattan, skammt frá grunninum sem er nú það eina sem minnir á tilvist Tvíburatumanna sem hryðjuverka- menn felldu 11. september sl. með því að fljúga farþegaþotum á þá. Á fjórða þúsund manns fórust í árásinni. Búið er að hreinsa brakið ofanjarðar og verið er aö leggja lokahönd á hreinsun á svæðinu. Unnið hefur veriö dag og nótt aö hreinsun síðan í september. Jón Baldvin segir erfitt að meta ástandið. Vinsældir Bush forseta séu skýjum ofar eins og gjaman ger- ist með stríðsleiðtoga. Mikil áhersla sé lögð á vopnaframleiðslu og alla tækniþróun vegna nýrra gerða vopna. Þá hafi traust almennings á stórfyrirtækjum og þar með Wall Unnið dag og nótt Sex mánuöum eftir aö hryöjuverkamenn flugu farþegaþotum á turnana er hreinsunarstarfi aö ijúka. Myndin var tekin í gær en í dag er mikil minningar- athöfn um fórnarlömb árásarinnar. óvart aö Rússland undir forystu Pútíns skipaði sér þar í sveit. í hernaöarrekstrinum í Afganistan hefur hins vegar komið á daginn aö tækniyfirburðir BNA á hemaðar- sviðinu em algjörir og mörgum fmnst að eina risaveldið sem eftir er þurfi lítt á bandamönnum að halda,“ segir hann. Innri naflaskoðun Jón Baldvin segir að margir Bandaríkjamenn velti því fyrir sér hvers vegna andúð gegn þeim virð- ist vera svo djúpstæð í ýmsum heimshlutum. „Eitthvaö er því um innri nafla- skoðun en líka sárindi yfir því sem Bandaríkjamönnum finnst vera ósanngjöm gagnrýni," segir Jón Baldvin sem i dag situr minningar- fund Bush forseta sem tekur á móti fulltrúum erlendra ríkja. Þar mun forsetinn minnast atburðarins og heiðra minningu þeirra sem fórust. Jafnframt verður mikil minning- Upp úr öldudalnum Magnús Bjamason, aðalræðis- maður íslands í New York, segir að lífið sé óðum að færast í sömu skorður. „Fasteignamarkaðurinn í borg- inni er í ákveðinni lægð og menn hafa ákveðnar áhyggjur af því. Hins vegar er enginn sem efast um að New York mun halda áfram að vera miðstöð fjármála og viðskipta í heiminum. Sumir höfðu af því áhyggjur í kjölfar 11. september að bresta myndi á flótti fyrirtækja úr borginni. Það hefur ekki gengið eft- ir og menn sjá fram á það að leiðin mun liggja upp úr öldudalnum," segir Magnús. Mannlífið í New York er nú óðum að taka á sig sömu mynd og var fyr- ir ógnaratburðina 11. september. Flestir þekktu til einhvers þeirra sem fómst eöa voru tengdir þeim með öðram hætti. „Þetta var erfitt mánuðina eftir árásina og jólin voru mörgum hér erfið. En þegar jólahátíðin var að baki var eins og lífið færi aftur að ganga sinn vanagang og fólk heföi unnið bug á sárustu sorginni," sagði kona sem DV ræddi við í neð- anjarðarlestinni á Manhattan. -rt Rjúkandi rústlr Ljósmyndari DV tók þessa mynd dagana eftir aö tvíburaturnarnir uröu fyrir árásum hryöjuverkamanna. arhátíð haldin á Manhattan þar sem í kvöld verður kveikt á leysigeislum sem lýsa eiga upp himininn þar sem tumarnir stóðu áður. Street-markaðnum veikst í kjölfar Enron-hneykslisins. Utanríkismál efst á baugi „Fólk átti von á því að í forsetatíð Bush yrði fyrst og fremst lögð áhersla á innanríkismál. 11. septem- ber breytti þessu öllu og nú eru ut- anríkismálin efst á baugi. Fyrir þessa atburði benti ýmislegt til þess að rikisstjóm Bush myndi ekki reiða sig eins mikið á bandalags- þjóðir og áður var heldur leita eigin lausna. Hann virtist reiðubúinn að segja Bandaríkin frá ýmsum mikil- vægum alþjóðasamningum eins og t.d. Kýótó," segir Jón Baldvin. Hann segir að eftir árásina hafi Bush hins vegar reynt aö byggja upp alþjóðlegt bandalag gegn hryðjuverkum. „Stuðningur bandalagsþjóða í Evrópu var eindreginn og afdráttar- laus í upphafi og mörgum kom á Kvennaþing um þróunar- hjálp Einn af sakborningunum í Svarthamramálinu bar vitni eftir langa bið í gær: Segist hafa komið mál- verkunum fyrir í súlu - undir áhrifum smjörsýru og svefnlyfja - með meðvitund en samt í „black-outi“ Siv Friðleifsdóttir umhverfisráö- herra er einn tuttugu kvenkyns um- hverfisráðherra sem sóttu í gær ráð- stefnu í Helsinki í Finnlandi um kvenleiðtoga, umhverfismál og þró- unarhjálp í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars. Það voru Heimssamtök kvenleiðtoga og finnska umhverfisráðuneytið sem stóðu fyrir þessum fundi en meðal fundarboðenda var Vigdís Finn- bogadóttir, fyrram forseti, sem er einmitt fyrsti formaður Heimssam- taka kvenleiðtoga. Að sögn Sivjar Friðleifsdóttur var samþykkt að stofna til samráðsvettvangs kven- kyns umhverfisráðherra sem héldi áfram samskiptum og reyndi að styrkja sjónarmið kvenna i þessari umræðu. Siv segir ráðstefnuna hafa undirstrikað mikilvægi þess að beina þróunaraðstoð til kvenna.-BG „Ég kom þessu fyrir í súlunni að kvöldi 30. maí,“ sagði einn af þrem- ur sakborningum fyrir dómi í gær sem ákærðir eru fyrir að brjótast inn í galleríið Svarthamra og stela þaðan 12 málverkum sem metin eru á 2,7 milljónir króna. Maður- inn lýsti því þegar hann kom hluta af málverkimum fyrir innan í loft- bita í galleríi sínu i Hafnarfirði. Hann segir andlegt líf sitt hafa ver- ið í rúst eftir að málið kom upp og hafi verið á geðdeild síðastliðnar 9 vikur. Maðurinn lýsti því m.a. að hann heföi aldrei notað eiturlyf fyrr en hann fór að umgangast hina sakborningana tvo, „þessa ógæfumenn", eins og hann orðaði það. „Þaö var alla tíð ásetningur minn að koma þessu til lögregl- unnar," sagði maðurinn um verkin sem hann haföi komið fyrir i lofti gallerísins. Hann kvaðst hafa verið undir áhrifum fikniefna og sagði meðal annars að hann hefði bæði tekið inn smjörsýru og svefnlyf - það virkaði þannig að viðkomandi „væri með meðvitund en samt í „black-outi““. Þegar þar var komið sögu greip Pétur Guðgeirsson hér- aðsdómari inn í og spurði einn verjendanna sem var að yfirheyra ákærða „hvort það væri nokkuð fleira". Mennimir þrír eru ákærðir fyr- ir að hafa brotið sér leið inn í Svarthamra með því að losa stormjám í glugga, taka í sundur jám fyrir innan og taka svo mál- verkin tólf. Einum mannanna er gefið aö sök að hafa svo farið aft- ur inn í galleríið þar sem hann tók fimm málverk með sér og tvær möppur með 41 myndlistar- verki. Einn af mönnunum sat í gæslu- varðhaldi í viku vegna málsins. Þeir hafa viöurkennt mismikla að- ild að því sem þeim er gefið að sök. Aðeins hluti þýfisins komst til skila. -Ótt Hlíðakjör við Eskihlíð. Nikótínþurf- andi þjófar Enn eitt ránið var framið í hverf- isversluninni Hlíðakjör við Eskihlíð um helgina. Að þessu sinni voru það tveir drengir sem á föstudags- kvöldið stálu þónokkru magni af sí- garettum úr versluninni. Annar drengjanna náði að halda athygli af- greiðslustúlkunnar á meðan. hinn lét greipar sópa. Afgreiðslu- stúlkunni var ekki ógnað á neinn hátt og höfðu þjófamir einungis áhuga á sígarettunum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þjófar gera atlögu að Hlíðakjöri. Ekki er liðinn mán- uður síðan tvær unglingsstúlkur ruddust inn í verslunina og ógnuðu afgreiðslustúlku með hníf og hirtu skiptimynt úr kassa. I desember var svo annað vopnað rán framið í- versluninni en þá vora það tveir karlmenn með kylfur sem hirtu gróða dagsins. Ránið um helgina mun vera fimmta rániö í verslun- inni á rúmum tveimur árum. -snæ Suðurlandsvegur: Tvö alvarleg umferðarslys Á laugardag urðu tvö alvarleg um- ferðarslys á Suðurlandsvegi. Um kl. 7.30 um morguninn varð banaslys þeg- ar tveir bUar, jeppl og fólksbifreið, skullu saman I Lögbergsbrekkunni. Stúlka á tólfta ári, Anna Margrét Sig- urðardóttir, sem var farþegi í jeppan- um, lést en tveir voru fluttir alvarlega slasaðir á sjúkrahús. Um klukkan hálfsex um kvöldið varð annað slys á svipuðum slóðum þegar tveir jeppar skullu saman og var annar þeirra með hestakerru aftan í. Fimm voru fluttir á sjúkrahús en enginn þó í lífshættu. Hestamir sluppu ómeiddir. Hálka, skaf- renningur og lélegt skyggni var á svæð- inu þegar seinna slysið varð. -snæ DV-MYND EINAR J. Vlð opnun Sport-Kllnlk stöðvarinnar Forsvarsmenn þeirra fyrirtækja sem aö stööinni standa. Meðferðarstöð fyrir meidda íþróttamenn Ný meðferðarstöð vegna íþrótta- meiðsla sem ber heitið Álftamýri Sport- Klinik var opnuð nú um helgina í Álfta- mýri 1-5. Hún er fyrsta sinnar tegundar á Islandi. Henni er ætlað að vera heild- ar-þjónustumiðstöð við þá íþróttamenn sem eiga við stoðkerfisvandamál að stríða. Nokkur fyrirtæki standa að stöð- inni. Það eru: Læknastöðin Álftamýri, Röntgendeildin Álftamýri, Sjúkraþjálf- un íslands, Heilsuráðgjöf, Stoðtækni, Össur hf. og Borgarapótek. -Gun. Leiö 110 í vandræöum Á laugardagsmorgun lentu fólksbíll og strætisvagn saman á gatnamótum Njarðargötu og Hringbrautar. Kalla þurfti á tækjabíl slökkvfliðsins til að ná farþegum fólksbílsins út, karlmanni og ungu bami. Þau fóm á slysadeild sem og bflstjóri strætisvagnsins sem keyrði leið 110. Nýr strætisvagn var sendur á staðinn tfl að taka við farþeg- unum sem ekki sakaði. -snæ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.