Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Blaðsíða 13
13 MÁNUDAGUR 11. MARS 2002__________________________________________ DV Útlönd Aðgerðum gegn al-Qaeda-liðum í Shahi Kot-fjöllum að ljúka: Bandaríkjamenn byrjaðir brottflutning hermanna Bandaríkjamenn hófu í gær brott- flutning fjögur hundruð hermanna sinna frá átakasvæðunum í Shahi Kot-fjölium í austurhluta Afganistans, þar sem alþjóðaherinn hefur setið um bækistöðvar liðsmanna al-Qaeda og talibana, sem hreiðrað höfðu um sig á hellasvæði hátt í fialllendinu. Að sögn talsmanna hersins eru aðgerðir nú á lokastigi eftir að hafa staðið í níu daga, eða frá því á fóstudaginn í síð- ustu viku, og aðeins eftir að hreinsa til á svæðinu. Herþyrlur fluttu hermennina tO Bagram-flugvallar norður af höfuð- borginni Kabúl og var á þeim að sjá að þeir væru ánægðir með að vera lausir úr kuldalegri fjallavistinni, en enn eru um 1600 bandarískir hermenn á svæðinu. Talsmenn hersins sögðust efa að aðrir yrðu sendir á svæðið í staðinn þar sem bardögum væri að mestu lok- ið, en nú sé verið að fmkemba svæðið í leit að liðsmönnum andstæðinganna sem enn fara þar huldu höfði. Ákvörðun um brottflutning her- mannanna var tekin eftir haröar loft- árásir á hellavirkin um helgina, en eftir þær sýndu liðsmenn talibana ekkert viðnám. Þá mun slæmt veður og næturkuldi hafa flýtt brottflutningi hermannanna. Um 500 liðsmenn al-Qaeda og tali- bana munu hafa fallið í átökunum og að sögn bandarísku hermannanna sýndu þeir harða mótspymu, þá mestu sem sést hefur í aðgerðum til þessa. Að sögn talsmanna alþjóðahersins, munu liðsveitir al-Qaeda og talibana aðallega vera skipaðar erlendum múslimum frá Tsjetsjeníu, Pakistan og Úsbekistan og munu þeir sem enn halda áfram heilögu stríði vera algjör- lega einangraðir og umkringdir. Ekki er talið að háttsettir liðsmenn al-Qa- eda séu meðal þeirra né þeirra follnu. Fjölmennar hersveitir afganska hersins tóku virkan þátt í aðgerðun- um í Shahi Kot-fjöllum og vom um þúsund hermenn tO viðbótar sendir á svæðið í lokasókninni sem fram fór um helgina. Var þar aðaOega um her- menn úr röðum tadsjeka að ræða, fyrrum liðsmenn Norðurbandalags- ins, en þeir hafa að undanförnu verið sakaðir um ofsóknir gegn liðsmönn- um pashtúna í suðurhluta landsins, en liðsmenn talibana voru flestir af þjóðflokki pashtúna. Foringjar hersveita heimamanna í Gradez-héraði, sem berjast með al- þjóðaherliðinu, mótmæltu komu her- sveita tadsjeka, en þeir óttast að þeir muni krefjast yfirráða yfir Gardez- héraði eftir að aðgerðunum gegn tali- bönum lýkur. Þeir segjast einfærir um að elta liðsmenn talibana uppi og leggja því mikla áherslu á að vera í fararbroddi í átökunum, en sjö liðs- menn þeirra munu hafa faOið í átök- unum, auk þeirra átta bandarísku hermanna sem fórust þegar talibanar skutu niður bandariska þyrlu á upp- Bandariskir hermenn fríinu fegnir Bandaríkjamenn hófu i gær brottflutning fjögur hundruð hermanna frá átakasvæðunum í Shahi Kot-fjöiium í austurhluta Afganistans eftir að andstaða liðsveita al-Qaeda og talibana hafði verið brotin á bak aftur eftir níu daga átök. AÐALFUNDUR Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur verður haldinn mánudaginn 25. mars kl. 19:30 á Grand Hótel Reykjavík. Dagskrá: • Venjuleg aðalfundarstörf • Lagabreytingar Tillögur um lagabreytingar þurfa að berast 4 dögum fyrir aðalfund. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Brúökaupssiöir - minningar óskast! Á þjóðháttadeild Þjóðminjasafns íslands er verið að safna upplýsingum um brúökaupssiði nú- tímans og síðustu áratuga. Spurningaskrá um efniö er á heimasíöu safnsins www.natmus.is þar sem fólk er m.a. beðiö að segja frá eígin eða annarra brúðkaupum. Þátttakendur geta einnig fengiö spurningaskrána senda. Þjóðháttadeild Þjóðminjasafns íslands. Nánari upplýsingar gefa Sigrún, simi 530 2224 eða Hallgerður, simi 530 2226. >JÓÐM1N)ASAFN fSLANDS Leyniskýrslan lak til fjölmiðla Bandaríska dagblaðið LA Times sagði frá því um helgina að bandarísk stjórnvöld hefðu í lok síðasta árs fyr- irskipað ráðuneyti varnarmála í Pentagon að undirbúa áæfianir um hugsanlegar kjarnorkuárásir á sjö þjóðir. Vitnað er í leyniskýrslu vam- armálaráðuneytisins frá því í byrjun árs, þar sem Kina, Rússland, Irak, Norður-Kórea, íran, Libýa og Sýrland eru nefhd sem hugsanleg skotmörk. Blaðið segir að leyniskýrslan tO- greini þrjár hugsanlegar ástæður fyr- ir nokun vopnanna, sem séu gagn- árásir gegn hugsanlegum kjamorku- eða eiturefnaárásum á Bandaríkin, tO að veikja vamir hugsanlegra árásar- aðOa og tO fyrirbyggjandi aðgerða gegn ófyrirséðum árásum og frekari uppbyggingu og þróun kjamorku- vopna hjá óvinveittum þjóðum, eins og þeim sem Bush kaOar öxulveldi hins Ola. Þar að auki kemur fram að stjórnvöld hafi falið hernum gerð léttra kjarnorkuvopna tO notkunar í landbardögum. Að sögn blaðsins var skýrslan kynnt þingmönnum á fóstudaginn og er henni lýst sem mjög „eldfimri" og því ekki ætlunin að hún læki út tO fjölmiðla. Colin PoweO, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði í viðtali við CBS-sjónvarpsstöðina i gær að skýrslan væri aðeins hugmyndalegs eðlis og aOs ekki hluti af stefhu eða áætlunum stjórnvalda og því aðeins hugleiðingar um það hvað gæti gerst. „Við erum aOtaf að skoða málin og verðum að vega og meta hugsanlega ógnun," sagði PoweO og bætti við að bandarísk stjómvöld mæltu ekki með frekari þróun nýrra kjarnavopna. Verð • Opel Corsa í einn dag, kr. 3.300. Innif. 100 km, vsk. og tryggingar. • Opel Corsa helgartilboð (lágm. 3 dagar), kr. 9.000. Innif. 350 km, vsk. og tryggingar. • Suzuki Jimny í einn dag, kr. 6.500. Innif. 100 km, vsk. og tryggingar. • Suzuki Jimny helgartilboð (lágm. 3 dagar), kr. 18.000. Innif. 350 km, vsk. og tryggingar. Tilboðin gilda til 1. april 2002. Hafðu samband og fáðu upplýsingar um önnur frábær tilboð sem EUROPCAR getur boðið þéri! <0 591 4050 Europcar á íslandi: Dugguvogur 10,104 Reykjavlk • Slmi 591 4050 • Fax 591 4060 • europcar@europcar.ls • www.europcar.ls Aðrir afgreiðslustaðir: Keflavíkurflugvöllur, Reykjavikurflugvöllur, Akureyri, Egilsstaðir, Vestmannaeyjar, Sauðárkrókur, Höfn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.