Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2002, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002
Fréttir
nv
Rannveig Rist verður stjórnarformaður Landssímans:
Laun til stjórnar-
manna tvöfölduð
- fráfarandi formaður gagnrýndi þingmenn og fjölmiðla harðlega
Ný stjórn var kosin á fjöl-
mennum aðalfundi Landssíma
íslands hf. síðdegis í gær. Er
stjómin skipuð 5 mönnum
samkvæmt tillögu Sturlu
Böðvarssonar samgönguráð-
herra og verður Rannveig
Rist, forstjóri ísal, þar stjórn-
arformaður. Kemur hún í stað
Friðriks Pálssonar sem gaf
ekki kost á sér áfram.
Á fundinum var samþykkt
breyting á samþykktum félags-
ins um að fækka stjórnar-
mönnum úr sjö í fimm. Einnig
var samþykkt að tvöfalda laun
vegna stjómarsetu úr 65 þús-
undum króna í 150 þúsund og
laun stjórnarformanns úr 150
þúsundum í 300 þúsund krón-
ur. Var tillaga þess efnis borin
upp á fundinum, en í prentuð-
um gögnum og fundarboði var
hins vegar gert ráð fyrir
óbreyttum launum stjórnar-
manna. Vakti það mikinn
kurr meðal fundarmanna og
var þetta m.a. gagnrýnt harð-
lega af „litla símamanninum"
svokallaða, Halldóri Egilssyni. Þau
orð máttu sín þó lítils gegn yfir-
gnæfandi atkvæðavægi eignarhluta
ríkisins sem var i höndum ráð-
herra.
Hagnaður Landssímans á síðasta
ári var rúmur milljarður króna,
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnskostnað varð um 6.800 millj-
ónir króna og veltufé frá rekstri um
5.600 milljónir króna. í ljósi þessar-
ar stöðu var samþykkt á fundinum
að greiða 12% arð til hluthafa á ár-
inu 2002, eða samtals 850 milijónir
króna.
Rannveig Rist nýr formaður
Skipt var um alla stjómarmenn
Landssímans og taka þar nú sæti í
aðalstjóm Rannveig Rist, sem for-
maður, Friðrik Már Baldursson
hagfræðingur, Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson framkvæmdastjóri,
DV-MYND E.ÓL
Þau hverfa öll frá stjórn Landssímans
Jónina Bjartmarz, Flosi Eiríksson, Magnús Stefánsson, varaformaöur og Sigrún Benedikts-
dóttir. Einnig ganga úr stjórn Svafa Grönfeidt, Gunnar Ragnars og stjórnarformaðurinn Friðrik
Pátsson, sem gagnrýndi fréttamenn og alþingismenn harðiega í kveðjuræðu sinni á
aðalfundinum í gær.
Tómas Möller, framkvæmdastjóri
markaðssviðs þjónustustöðva Olís,
og Öm Gústafsson viðskiptafræð-
ingur. í varastjóm sitja Kristján
Haraldsson, framkvæmdastjóri
Orkubús Vestfjarða, Drífa Sigfús-
dóttir, Bjarni Sveinbjörn Jónsson,
Sigriður Finsen og Hallur Magnús-
son.
í fráfarandi aðalstjóm sátu Frið-
rik Pálsson, stjórnarformaður,
Magnús Stefánsson, varaformaður,
Flosi Eiríksson, Gunnar Ragnars,
Jónina Bjartmarz, Sigrún Bene-
diktsdóttir og Svafa Grönfeldt.
Föst skot
Nokkur eftirvænting ríkti fyrir
fundinn vegna ræðu Friðrik Páls-
sonar sem fráfarandi stjómarfor-
manns Landssímans. Kom hann
víða við og skýrði þar m.a. greiðsl-
ur sem hann fékk fyrir utan venju-
eins og sumir þingmenn og
fjölmiðlar hafa látið sér
sæma.“
Þá skaut hann fostum skot-
um að alþingismönnum og
sagði að stjómarandstæðingar
hefðu séð sér leik á borði tii að
koma höggi á samgönguráð-
herra og aðra pólitíska and-
stæðinga. Gilti þá einu hver
varð fyrir höggi um leið.
„Jafnvel var í skjóli þing-
helgi talað um sjálftöku undir-
ritaðs, sem í raun er ekkert
annað en hátíðlegt orð yfir
þjófnað."
Síðar í ræðu sinni beindi
hann spjótum aftur að þing-
mönum og sagði:
„Flest þau atriði sem ég hef
nefnt hér að framan, og skýrt í
löngu máli, hafa verið til um-
ræðu á hinu háa Alþingi og
þar hafa menn hvergi dregið
af sér i gífuryrðum. Óhróður-
inn hefur verið tekinn fram
yfir sannleikann og pólitísku
moldviðri þyrlað upp í klass-
ískum átökum meiri- og
minnihlutans á þingi.“
Friðrik Pálsson. Rannveig Rist.
bundin laun stjórnarformanns.
Varðandi samning hans þar að lút-
andi við ráðherrann sem stjómin
var ekki upplýst um sagði Friðrik:
„Enda þótt stjómin sé bundin af
ákvörðunum hluthafa, hefði farið
betur á því að stjóminni hefði verið
skýrt frá þessu samkomulagi. Ég
harma þau mistök, eins og þegar
hefur komið fram á opinberum vett-
vangi, þetta var vissulega yfirsjón
en fráleitt að tengja það lögbroti,
Baunað á fjölmiðla
Fjölmiðlar fengu einnig sinn
skerf í ræðu Friðriks sem talaði
m.a. um krossferð öflugs fjölmiðils,
án þess að nefna hann þó á nafn.
„Öllum er þegar orðið ljóst að
þeir hafa gengið afar iangt í við-
leitni sinni til að koma höggi á Sím-
ann og nokkra einstaklinga sem
honum tengjast. Einskis hefur verið
látið ófreistað til þess að þyrla mál-
inu upp og í einu tilviki hefur bein-
línis verið hvatt til lögbrota til þess
að komast yfir upplýsingar sem
unnt yrði að gera tortryggilegar. -
Vald fjölmiðlanna hefur eina ferð-
ina enn komið í ljós. Ábyrgð þeirra
sem þeim stýra er um leið afar mik-
il. Engum dylst hve stutt er á milli
raunverulegra frétta og innistæðu-
lauss áróðurs." -HKr.
Hugsanleg breyting á æðstu stjórn Símans:
Fjármálaráðherra fari með hlut ríkisins
- samgönguráðherra vill láta meta það á næstunni
Sturla Böðvarsson, samgönguráð-
herra og æðsti yfirmaður Landssím-
ans, sagði i ræðu sinni á aðalfundi
Símans í gær að hann teldi eðlilegt
að meta á næstunni hvort fjármála-
ráðherra ætti í framtíðinni að fara
með eignarhlut ríkisins í Símanum.
„Þar með fengist undirstrikaður
sá vilji minn að ekki ríki tortryggni
annarra fjarskiptafyrirtækja i garð
samgönguráðuneytisins. Hlutverk
ráðuneytisins verði enn sem fyrr að
móta stefnu á svið fjarskipta og upp-
lýsingatækni."
Sagði ráðherrann að með irtækið er að fara í gegnum.
fækkun stjórnarmanna úr Bæði vegna einkavæðingar-
sjö í fimm væri verið að innar og nýrra verkefna. Ég
leggja áherslu á sterkari að- ^ ^ tel að síminn þutíi að takast
komu allra stjómarmanna m á við það mikilvæga verk-
á stefnumörkun og stjórnun M efni að tryggja tengingu
Landssímans. Þótt einka- V okkar við umheiminn með
væðingin hefði ekki gengið ■ sæstreng.
eins og vonir stóðu til þá Það þarf að vinna að því
væri Síminn enn til sölu. g. . að nýta ijósleiðarakerfið og
„Hlutverk nýrrar stjóm- Böðvarsson. allan tæknibúnaðinn sem
ar er að sjálfsögðu að fara * Síminn á nú þegar og er
yfir stöðu mála og móta stefnuna í ekki fullnýttur í þágu sjónvarps-
þessu mikla breytingaferli sem fyr- sendinga með starfrænu tækninni.
Þetta er afar mikUvægt og þarf að
skoða tU að átta sig á hvemig best
verði að staðið. Auk venjulegra við-
fangsefna þarf síðan að búa fyrir-
tækið undir þriðju kynslóð far-
síma.“
- Verður áfram lögð mikU áhersla
á söluna?
„Það er í höndum einkavæðingar-
nefndar og hún mun vinna áfram að
þvi máli,“ sagði Sturla Böðvarsson
sem kvaöst ánægður með mikla
mætingu á aðalfund fyrirtækisins í
gær. -HKr.
Tveir af fjórum sakborningum dæmdir í svokölluðu sjóþotumáli í Seyðisfirði:
Skilorð fyrir á þriðja kíló af hassi í Norrænu
- hafði áður framið líkamsárásir og verið dæmdur fyrir annað fíkniefnabrot
23 ára Reykvíkingur, Ólafur
Hreggviðsson, hefur verið dæmdur í
13 mánaða fangelsi skUorðsbundið
fyrir að hafa veriö höfuðpaur í að
kaupa 2,1 kUó af hassi ytra, henda
þvi fyrir borð farþegaferjunnar Nor-
rænu í ágúst síðastliðnum og fá það
flutt í land með sjósleða. Sakbom-
ingurinn þarf engu að síður að sitja
inni þar sem hann var dæmdur í
tveggja mánaða óskUorðsbundið
fangelsi rúmum mánuði áður en at-
vikið varð.
í því máli var hann sakfeUdur
fyrir tvær líkamsárásir, þar af aðra
stórfeflda. Hann var þá einnig
dæmdur í 5 mánaða skUorðsbundiö
fangelsi sem „dæmt var upp“ með
hassmálmu. Sjö mánaða skUorðs-
dómur er því í raun niðurstaða hér-
aðsdóms í Norrænumálinu hvað
varðar höfuðpaurinn sem einnig
hlaut sekt fyrir annað fikniefnabrot
árið 2000. Annar ungur maður hlaut
3 mánaða skUorðsbundið fangelsi
fyrir sína aðUd að málinu. Ekki hef-
ur náðst að rétta yfir tveimur öðr-
um sakborningum og var ákveðið
að aðskilja þeirra þátt frá og dæma
síðar.
Ólafur keypti efnin í Danmörku,
fór með þau um borð í Norrænu og
flutti þau með sér um Svíþjóð og
Noreg áður en komið var tU íslands.
Utarlega í Seyðisfirði henti hann
tösku með hassinu fyrir borð. Ann-
ar ungur maður kom þá á sjósleða,
hirti töskuna upp og sigldi með
hana tU Mjóafjarðar þar sem aðrir
tveir menn biðu. Lögðu þremenn-
ingamir af stað með hassið en lög-
reglan stöðvaði för þeirra á Mjóa-
fjarðarheiði. Þá höfðu þeir falið
hassið en lögreglan fann það.
Með dómi héraðsdóms var sjó-
sleðinn sem lögreglan lagði hald á
dæmdur upptækur tU ríkissjóðs. í
máli fjórmenninganna hafði komið
fram að hann hafði verið fluttur frá
Reykjavík tU Mjóafjarðar gagngert
tU að fremja framangreint brot.
-Ótt
Eldur í Logalandi
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var
kvatt að raðhúsi við Logaiand síð-
degis í gær. Eldur logaði í kjallara-
íbúð og barst reykur upp á efri hæð.
Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu
gekk slökkvistarf vel en reykræsta
þurfti báðar hæðir hússins. Eldri
kona var ein heima og var hún flutt
á sjúkrahús til skoðunar. Mikið tjón
varð af völdum eldsvoðans á báðum
hæðum raðhússins.
Féll í jökulsprungu:
Heppinn aö
vera ekki inn-
ar á jöklinum
Björgunarsveitimar á Homafirði
og í Öræfum voru kaUaðar út á
sunnudagskvöld vegna manns sem
fallið hafði í sprungu á Svína-
feUsjökli. Fimm menn höfðu haldið
á jökulinn á laugardag og gengið á
Hrútsfjall. Voru þeir á leiðinni ofan
af jöklinum og áttu um 400 metra
eftir að bUastæðinu þegar óhappið
varð. Björgunarmönnum gekk
greiðlega að ná manninum upp úr
sprungunni og koma honum í
sjúkrabU sem flutti hann tU Reykja-
víkur. Talið var að maðurinn hefði
ökklabrotnað.
Einar Sigurðsson í Hofsnesi sem
rekur Öræfaferðir og hefur verið
leiðsögumaður í ferðum á jöklana
tU margra ára og þekkir manna best
aðstæður á þessum slóðum kom
fyrstur á slysstaðinn.
„Mennirnir höfðu samband við
mig áður en þeir fóru á jökulinn tU
að fá ráð um ferðina og ég var bú-
inn að vísa þeim á aUt aðra og betri
leið en þeir svo fóru,“ sagði Einar.
„Þama er jökuUinn mjög erfiður yf-
irferðar á þessum árstíma og ef slys-
ið hefði orðið innar á SvínafeUsjökl-
inum hefði ekki verið hægt að bera
manninn á börum þar sem þar eru
skarpir, háir og flughálir hryggir.
Það voru ekki nema um fimm metr-
ar niður á fast land þegar mannin-
um skrikaði fótur og datt og lenti í
sprungunni sem er um tíu metra
djúp,“ sagði Einar. Þegar lengra
kemur fram á vorið og á sumrin
segir Einar að þessi leið sé greiðfær
því þá sé yfirborð jökulsins orðið
aUt öðruvísi og ekki hált. -JI
Rugvélin
Vélin var flutt til Reykjavíkur í gær
þar sem hún veröur rannsökuö
ásamt því að fara í viðgerð.
Stóri-Kroppur:
Flugvél hafn-
aði á hvolfi
Flugkennari og flugnemi sluppu
ómeiddir þegar flugvél þeirra
hvolfdi á Stóra-KroppsflugveUi síð-
degis í gær. Flugvélin, sem er af
Cessna 152 gerð, tveggja manna og
eins hreyfils, skemmdist nokkuð við
óhappið. Vélin hélt úr Reykjavík
um fimmleytið og var fyrirhugað að
fljúga í háifa aðra klukkustund.
Stundarfjórðungi fyrir sex fékk flug-
umferðarstjórn tilkynningu um að
vélinni hefði hvolft á veUinum þeg-
ar tvímenningarnir voru að æfa
snertUendingu. Orsakir slyssins eru
ókunnar og fóru bæði lögreglumenn
frá Borgamesi og rannsóknarnefnd
flugslysa á vettvang í gær. -aþ