Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2002, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2002, Síða 15
14 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 MIÐVKUDAGUR 27. MARS 2002 19 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Aöalritstjóri: Óli Bjðm Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aöstoóarritstjóri: Jónas Haraldsson Fréttastjóri: Birgir Guömundsson Ritstjórn, skrifstofur, augiýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: Þvorholti 11,105 Rvík, simi: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiöir ekki viömælendum fyrir viötöl við þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim. Ósanngjam skattur Með innheimtu erfðafjárskatts er skattlagning í raun tvöföld þar sem búið er að greiða skatt af þeim fjármunum og verðmætum sem erfast. Svo segir meðal annars í grein- argerð frumvarps sem sex þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram um breytingu á lögum um erfðafjárskatt. Fyrsti flutningsmaður er Gunnar I. Birgisson. Frumvarp þetta er tímabært en kemur seint fram á þessu þingi. Þess er því vart að vænta að það fái afgreiðslu fyrir þinglok en flutningsmenn vonast til þess að það verði tekið upp aftur á haustþinginu. Fram kemur hjá fyrsta flutningsmanni í DV í dag að erfðafjárskattar, eins og þeir eru nú, séu afar ósanngjarnir. Um sé að ræða tvísköttun af verstu gerð. Það er ekki ofmælt enda búið að borga margoft af þeim eignum sem fólk erfir. í frumvarpinu er lagt til að hætt verði að miða fjárhæð erfðafjárskatts við sifjatengsl erfingja og arfleiðanda og þess í stað lagður á flatur 5 prósent erfðafjárskattur á alla erfingja, hver sem sifjatengslin eru. Áfram er þó gert ráð fyrir að af arfi sem fellur til þess hjóna eða sambýlisfólks sem lifir hitt verði enginn erfðafjárskattur greiddur. Hið sama gildi um arf sem fellur til kirkna, opinberra sjóða, líknar- og menningarstofnana eða félaga. Sanngjarnt er að erfingjar greiði lága upphæð í skipta- kostnað, t.d. 5 prósent eins og flutningsmenn frumvarpsins leggja til. Samkvæmt núgildandi lögum eru erfingjar látnir greiða mismikla skatta af arfinum. Niðjar hins látna greiða t.d. 5-10 prósent, foreldrar hins látna 15-25 prósent og afi og amma og aðrir fjarskyldari, eða óskyldir aðilar greiða nú 30-45 prósent. Þessar háu skattar hafa leitt til alls konar undanbragða eins og vill verða þegar fólk telur skatta ósanngjarna. Á því þarf að verða bót og slíkt ætti að nást fram verði frumvarp sexmenninganna að lögum, eða frumvarp áþekkt þessu. Þá benda flutningsmenn á að auk þess að erfmgjar greiði mis- háa skatta af arfi sé mörgum dánarbúum skipt á þann hátt að engir skattar séu greiddir. Með frumvarpinu, verði það að lögum, myndi draga úr slíku og fólk greiddi þess í stað 5 prósent skatt. Lcekkun stýrivaxta Birgir ísleifur Gunnarsson, formaður bankastjórnar Seðlabankans, tilkynnti á ársfundi bankans í gær lækkun stýrivaxta um hálft prósentustig. Bankastjórinn sagði ástæðu vaxtalækkunarinnar nú þróun gengis íslensku krónunnar. Aðhald í peningamálum yrði þó áfram mikið en líkur væru á að verðbólguspá bankans stæðist. Bankinn hefur haldið uppi háum vöxtum í baráttunni gegn verðbólgu. Hart hefur verið sótt að honum um lækk- un stýrivaxta enda vaxtabyrðin þung bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Víst má telja að ákvörðun Landsbankans um vaxtalækkun á dögunum, og ákvörðun annarra við- skiptabanka að fylgja í kjölfarið, hafi ýtt á ákvörðun Seðla- bankans nú. Mjög hefur dregið úr þenslu í atvinnulífi hér og atvinnu- leysi hefur aukist. Vaxtalækkunin nú er því tímabær. Frek- ari vaxtalækkanir ættu að fylgja í kjölfarið enda sagði Dav- íð Oddsson forsætisráðherra á ársfundi Seðlabankans í gær að vaxtalækkunarferli væri hafið. Tök hafa náðst á verðbólgu á ný eftir að hún rauk upp. Það ber ekki síst að þakka ábyrgri afstöðu aðila vinnu- markaðarins sem settu sér, í samvinnu við síjórnvöld, stíf verðbólgumarkmið og miðuðu þá við svokölluð rauð strik í maí. Haldi allir vöku sinni er von til þess að þau metnað- arfullu markmið náist og þar með verði áframhaldandi friður á vinnumarkaði tryggður. Jónas Haraldsson DV Skoðun Nú er mál að linni NORAL-ævintýrinu er lokið. Risaálverksmiðjan sem Framsóknarflokkurinn studdur af ríkisstjórn Dav- íðs Oddssonar hefur í nær 5 ár haldið að Austfirðingum reyndist tálsýn. Yfirlýsing- in sem iðnaðarráðherra kreisti út úr Norsk Hydro miðar hins vegar að því að halda blekkingaleíknum áfram og tryggja Lands- virkjun leyfl fyrir Kára- hnjúkavirkjun. Verði sú virkjun einhvern tíma byggð mun hún ekki framleiða raf- orku fyrir stóriðju á Austurlandi heldur annars staðar. Því verður tæpast trúað að Alþingi fari við þessar aðstæður að sam- þykkja heimild fyrir virkjuninni og koma þannig í veg fyrir að Austflrð- ingar og aðrir geti hagnýtt sér víð- emin norðan Vatnajökuls með stofn- un þjóðgarðs. Slíkt væri siðlaust með öllu. Kárahnjúkavirkjun á engan telj- andi stuðning á Austurlandi þegar álverksmiðjan er fyrir bí. Ábyrgö forystumanna Ráðherrar Framsóknarflokksins bera auðvitað mesta ábyrgð á því hvemig komið er. Þeir hafa nú ár eftir ár oftúlkað NORAL-samning- inn við Norsk Hydro sem aldrei snerist um annað af hálfu þess síðamefnda en athugun án nokkurra skuldbindinga um fram- kvæmdir að henni lokinni. Meirihluti sveitarstjórnar- manna eystra hefur látið teyma sig á asnaeyrunum, kynt undir væntingar og hagað sér eins og allt væri i hendi. Verst er ef þeir hinir sömu sjá nú ekki að sér heldur ætla að halda leiknum áfram eins og ekkert hafi í skorist. Fjárfestar em ekki á leiðinni í stað Norsk Hydro. Reyðarfjörður hentar ekki fyrir risaálver, hvað þá að við- bættri rafskautaverksmiðju. Ekkert er brýnna fyrir Austurland en að nú verði fylkt liði um raunsæja kosti til að treysta byggð og efla mannlíf á sjálfbærum forsendum. Togkraftam- ir burt liggja ekki aðeins til höfuð- borgarsvæðisins heldur einnig til Akureyrar, studdir af fráleitri kjör- dæmabreytingu. Hjörieifur Guttormsson fyrrv. alþingismaöur Ég skrapp út fyrir mörk hins málaráðuneytinu, Vestfirði. Fööur- byggilega heims á dögunum, í lands- amma mín varð níræð og hefur hún hlutann sem er ekki til í byggða- samt alið allan sinn aldur í þessum „Hafís, snjóflóð, jarðskjálftar, eldgos, Davíð Oddsson; allt getur þetta breytt búsetuskilyrðum með litlum fyrirvara og þá kann að vera gott að hafa landshluta eins og Vest- firði upp á að hlaupa ..." - Við Hœlavíkurbjarg. „Ráðherrar Framsóknarflokksins bera auðvitað mesta ábyrgð á því hvemig komið er. Þeir hafa nú ár eftir ár oftúlkað NORAL-samninginn við Norsk Hydro sem aldrei snerist um annað af hálfu þess síðarnefnda en athugun án nokkurra skuldbindinga um framkvœmdir að henni lokinni.“ Hefur afhjúpað sig í málum sem þessum skilur milli feigs og ófeigs. Samfylkingin hefur afhjúpað sig rækilega sem flokkur sem stingur umhverfisvemd undir i ' 'M‘ stól fyrir stóriðjubrölt og ímyndaða atkvæðahagsmuni. I þessu máli hef- ur Samfylkingin á síðustu mánuðum farið í kapphlaup við Framsóknar- flokkinn líkt og í Evrópuumræðunni eitt óbyggilega landshluta og reyndar stuðlað að því ásamt öðrum að gera hann byggilegri. Og þó að ýmsir flytji i hina heilögu borg, eins og sumir Vestfirðingar kalla byggðina við Sundin, þá er amma ekki að flytja neitt. Hún á heima fyrir vestan, situr þar em við glugg- ann sinn og horfir út á Pollinn, syrgir trúlega veröld sem var. Gullkistan Langamma mín í föðurætt kom vestur frá Seyðisfirði eystra, senni- lega í atvinnuleit. Mamma kom til tsafjarðar úr Unaðsdal á Snæfjalla- strönd til að setjast á skólabekk, amma kom í Unaðsdal úr Ögurvík- inni hinum megin við Djúpið, endaöi síðan ævina í Reykjavik en hvílir nú í túnfæti eyðibýlisins í Unaðsdal ásamt bónda sínum. Flestir forfeður mínir voru bændur og sjómenn hér og þar við Djúp og fluttu sig gjaman til eftir því hvar vistin var best. Einn langafabróðir minn gafst upp á baslinu um aldamótin þarsíðustu og fluttist til Kanada þó að í útlöndum sé ekkert skjól að mati Laxness. Það er því ekkert nýtt að íslend- ingar flytji sig um set í henni versu, enda töldust þeir einu sinni Norð- menn. Fólk er alltaf að leita að betra lífi og sennilega er það ástæðan fyr- ir því að við erum til. Einu sinni vom Vestfirðir kallaðir gullkista og menn leituðu þangað þegar hart var í ári annars staðar, jafnvel alla leið norður á Homstrandir til Kristrúnar í Hamravik. Nú eru Hornstrandir þjóðgarður og það sem meira er, sömu örlög blasa við öðrum sveitum fjórðungs- ins. Það líður að því að sameina megi öll sveitarfélögin undir heitinu Jaðarbyggð. Út um gluggann sé ég gáma- bíl frá Eimspiki (táknræn ásláttarvilla?) koma með búslóð að vestan. Hvönnin, refurinn og svartfuglinn erfa land ömmu og afa; þjóðgarðsverðir óskast. Sígaunar noröursins Fiskurinn í hafinu umhverfis landið eltir ætið út um víðan sjá - þess vegna tórir hann - en heldur samt tryggð við Islandsmið. Hann lif- ir nokkurs konar sígaunalifi innan síns heims. Getur verið að það sama eigi við um okkur spendýrin? Við séum bara í útilegu víðs vegar um landið, reiðubúin að taka upp tjald- hælana þegar minnst varir? Enda er alltaf hætta á vondu veðri i útilegum á íslandi og eins víst að fyrsti tjald- hællinn fari þá og þegar, sá næsti fylgi skömmu síðar, þó ekki fyrr en eftir umtalsverð átök, og svo fjúki tjaldið ofan af okkur í einni svipan. Hafis, snjóflóð, jarðskjáiftar, eldgos, Davíð Oddsson; allt getur þetta breytt búsetuskilyrðum með litlum fyrirvara og þá kann að vera gott að hafa landshluta eins og Vestfirði upp á að hlaupa; fin mannvirki, gnægð fiskjar í sjó, fugl í björgum, æðar- dúnn í eyjum, urtuböm á útskerjum. - Þjóðgarðsvörðurinn í Hamravík mun taka vel á móti okkur. Rúnar Helgi Vignisson Rúnar Helgi Vignisson rithöfundur Spurt og svarað____Hvað œtlar þú að gera um páskana? og gerst síst ákafaminni en sjálf rík- isstjómin. Tilburðir forystu Samfylkingar- innar til að hlaupa undir bagga með Landsvirkjun og búa til virkjana- þjóðgarð norðan Vatnajökuls verða lengi í minnum hafðir. Heiður sé þeim fáu í þeim ranni sem ekki hafa tekið þátt í leiknum. Auðlindastefna knýjandi NORAL-endileysan undirstrikar hversu brýnt það er fyrir íslendinga að reyna að fóta sig í sjálfbærri auð- lindastefnu til lands og sjávar. Með því er átt við stefnu sem taki mið af umhverfis- og auðlindavernd til langs tíma litið og fái stuðning af hagrænum stjómtækjum. Síaukin tæknivæðing og sókn í fiskveiðum án tillits til áhrifa á líf- ríkið er jafnfráleit og stóriðjustefna sem spillir landi og umhverfi. Kára- hnjúkavirkjun með samveitu jökul- fljóta er eitthvert mesta hervirki sem hugsast getur hérlendis. Þetta heimt- ar Landsvirkjun að fá fyrir ekki neitt líkt og Reyðarál. sem ætlaði sér ókeypis losunarheimildir. Er ekki mál til komið að linni? Hjörleifur Guttormsson Ummæli Ósanngjarnt og óskynsamlegt „Sú staðreynd að afréttarlönd em gengin úr eigu sveitarfélaganna get- ur haft umtalsverða þýðingu þegar frá líður. Ef sveitarfélögin heföu fengið viðurkenndan eignarréttinn heföi það getað styrkt stöðu þeirra gagnvart þéttbýlinu. Ekki verður því rnn það að ræða að íbúar þessara sveitarfélaga hafi forgang að nýtingu auðlinda. Byggðaleg staða þessara sveitarfélaga var veik fyrir úrskurð- ina og enn hefur kvamast úr. Sú staðreynd ætti að vekja menn til um- hugsunar. Hér að framan var niður- staðan nefnd „vamarsigur" en lík- lega er það rangnefni því kröfur hins opinbera voru ekki aðeins ósann- gjarnar heldur líka óskynsamlegar.“ Úr leiöara Bændablaösins. Frelsið og rifrildið „Það sem seinni tíma mönnum hætt- ir til að líta á sem hreint og klárt rifr- ildi getur verið merkileg heimild um það sem gerðist þegar fólk, sem hafði í mörgum til- fellum búið við miklar félagslegar skorður, öðlaðist skyndilega frelsi til að hafa meiri áhrif á umhverfi sitt og samfélag en það hafði nokkm sinni kynnst. Nýfengiö frelsi verja menn oft af meiri hörku en nokkurt annað frelsi og öll umskipti koma eðlilega róti á mannlegt samfélag. Það er ekkert óeðlilegt við það að í kjölfar mikiUa breytinga taki nokkum tíma að útkljá hvemig málum skuli skipað." Steinþór Hreiöarson í Timariti Máls og menningar Guðný Jóhannesdóttir, blaðamaður á Akureyri: Óviðjafnanlegar marengstertur „Þar sem ég er að leggja út í kosningabaráttu ætla ég að nota páskana til þess að slappa af og leika við börnin. Þá förum við fjölskyldan í boð og höldum eitt sjáif. Páskaegg frá Nóa klikka seint og til þess að liggja ekki alveg í leti geri ég líka ráð fyrir að ég muni renna mér á snjóþotu og fara í sund með bömunum. Á páskadag er venjan að stóríjölskyldan komi saman hjá ömmu í sveitinni - og ég vona að sú hefö haldist. Stund- um era þetta allt upp í þrjátíu manns - og stund- in er skemmtileg, þar sem fólk hittist, skrafar saman og borðar hinar óviðjafnanlegu mar- engstertur sem enginn bakar eins og amma.“ Sr. Sveinn Válgeirsson, sóknarprestur á Tálknafirði: Kristur er upprisinn „Eins og gera má ráð fyrir hjá presti verð ég að messa. Áð kvöldi skírdags messa ég í Stóra-Laugadal við Tálknafjörð - og að morgni páskadags verður sungin messa í nýju kirkjunni á Tálknafirði en hún verður vígð nú í vor. Á páskadag er síðan messa eftir hádegi í Haga á Barðaströnd og á annan í páskum á Brjánslæk. Og páskaboðskapurinn er einfaldur; kristur er upprisinn. Ég sé ekki annað en að ailir páskamir fari í þetta, því að mörgu þarf að hyggja fyrir messu við ræðuskrif og annað slíkt.“ Þorbjörg Helga Vigfusdóttir, verkefnisstj. Audar í krafti kvenna: Reykvísk sœluhelgi „Reykvískir dagar í fríi, það era mínir páskar. Göngutúrar í Fossvogsdalnum og við Tjöm- ina eru eitthvað sem er ofarlega á blaði og svo að lita í góðar bækur. Þessa daga er ég heilluð af ævisögum. Síðan er ég hálfnuð með Hallgrím Helgason og skáld- sögu hans, Höfund íslands, sem margra lof hef- ur hlotið. Reykjavík býður upp á marga mögu- leika til skemmtilegrar afþreyingrar um fríhelg- ar - sem fólk á að njóta. Sjálfri finnst mér afar gott að vera stundum heima á frídögum og leggja ekki í langferðir þótt vinnuskyldan sé frá í fáeina daga.“ Jóhann Friðgeir Valdimarsson óperusöngvari: Slappað af og ibúðin skreytt „Ég ætla að slappa af um páskana og njóta lífsins, vona að veðrið verði skaplegt. Þá fer ég út og viðra hundinn. Á páskadagsmorgun klukkan átta er ég síðan að syngja við guðsþjón- ustu í Háteigskirkju hjá séra Helgu Soffiu Kon- ráðsdóttur og Douglas Brotchie, sem verður á orgelinu. Þessi messa er alltaf mjög hátíðleg - og ef til vill verður hún hápunktur páskahátíðar- innar hjá mér. En aðalatriðiö er þó að slappa af um þessa páska, ég er ekki mikið að syngja. Ég hef enga sérstaka páskasiði nema hvað við skreytum íbúðina með gulum fuglum - og föram svo til tengdó í mat.“ Hln helga hátíð, þegar flestlr elga fri, er að ganga í garð. Marglr lyfta sér á krelk - en aðrir taka það rólega. DV-MYND ÞÖK Líf og fjör í Húsdýragarðinum. Kristin þjóð Ýmislegt er á orði haft um kristin- dóm, kirkju, trú og sið um þessar mundir. Það er viðbúið í ljósi þeirra þjóðlífsbreytinga sem við höfum lifað sem komin erum á miðjan aldur eða meira. Hugmyndakerfi liðinnar aldar buðu sum kristninni birginn og leiddu til endurmats en upplýsinga- samfélagið og þjóðablöndun hafa leitt okkur á vit annarra trúarbragða. Ekkert í stað kristindóms Ef við lítum til uppgjörsins við kommúnismann og vís- indahyggjuna þá hefur það verið leitt í ljós að hvorugt hefur megnað að koma í stað krisindómsins. Hann hefur skýrst í eldi þeirrar reynslu og stendur sem kenning sterkari eftir, svo sem lesa hefur mátt í úttektum stór- flölmiðla á borð við Time Átökin á Norður-írlandi, fyrir botni Miðjarðarhafs og viðburðimir 11. sept- ember sl. hafa gert okk- ur ljósan mun hinna ýmsu trúarkerfa og greina kristninnar. Það væri þó hrapað að niðurstöðu ef taliö yrði að ailt kæmi út á eitt í trúarefmmum. Mikilvægt er fyrir heiminn hvað verð- ur ofan á, hvað ræð- ur för okkar á vit framtíðarinnar. Spekingar hafa spáð því að þessi öld markist af átökum um trúarstefnur. Við ís- lendingar komumst vart hjá því að marka okkur stöðu sem ein- staklingar og sem þjóð. Við verð- um að hafa grundvöll til þess að móta afstöðu okkar á og mörg okkar munu finna hann í krist- inni trú í farvegi Þjóðkirkjunn- ar. Þá munum við um leið upp- götva skyldu okkar til að vera brúargerðarmenn milli ólíkra stefna og sérstaka verndara mannréttinda, þar með talið trúfrelsi. Það verkefni liggur í eðli Þjóðkirkj- unnar. í dag er hún sjálfstæð gagnvart ríkis- valdinu. Kristinn arfur Aðskilnaður ríkis og kirkju hefur farið fram í flestum veigamiklum atriðum og litlu mun breyta fyrir þjóðkirkj- una þótt ákvæöið um stuðn- ing ríkis- ins við hana verði feflt úr stjóm- arskrá. Það kynni hins veg- ar að breyta meiru fyrir Kiallari Jakob Agúst Hjálmarsson sóknarprestur Dómkirkjunnar „Mörg af mikilvœgustu mannvirkjum sögunnar eru guðshús og hátíðir og hátíðarsiðir taka mark af kristn- um minnum. Velferðarkerfið byggist á mörkuðum sið- gæðisgrunni. Fremur en flest annað sem mótar samfélag okkar er hann gundvallaður í kristinni lífssýn, kristnum mannskilningi. “ ríki og þjóð og væri þar með lokið því fyr- irkomulagi sem Þor- geir ljósvetningagoði mælti fyrir um fyrir þúsöld og margir hafa talið visku. Kristinn siður mun áfram móta þjóðlífið. Ákvæði laga munu ekki breyta því sem mestu skiptir hvað það varðar. Það er öðrum lögmálum háð. Á grandvelli jafh- réttis og í anda íjöl- menningarsamfélags- ins munu kristnir menn hafa áhrif á skólastefnu, menningar- og velferð- armál og fjöldamargt annað. Skóla- starfi mun fyrir sitt leyti famast best, og það munu menn sjá, ef fræðslu og iðkun trúar af ýmsu tagi verður gefið rúm innan skólastarfs- ins. Tómarúm og afstöðuleysi í þeim efnum er óhugsandi og stenst ekki. Valkosturinn besti er að kenna upp- vaxandi kynslóð að lifa við marg- breytileikann og virða hann, virða sérleika einstaklinga og hópa. Menningin mun áfram rækta hinn kristna arf og skoða minni trúararfs- ins. Kirkjutónlistin, bókmenntirnar og myndlistin eru byggðar á bibl- íutilvitnunum og sögum helgra manna og eru óskiljanlegar ef ekki era rifjaðar upp og kenndar þær sög- ur sem að baki standa. Trúar er þörf Mörg af mikilvægustu mannvirkj- um sögunnar eru guðshús og hátíðir og hátíðarsiðir taka mark af kristn- um minnum. Velferðarkerfið er byggt á mörkuðum siðgæðisgrunni. Fremur en flest annað sem mótar samfélag okkar er hann gundvallað- ur í kristinni lífssýn, kristnum mannskilningi. Bresti sá grunnur er ekki að vita hvað við tekur. Mannúð- arstefnan er eins og aðrar stefnur grundvöfluð á mannlegu samþykki og fer sína leið sem þær, þó góð sé. Trúin byggist að sínu leyti á boð- skap sem við ætlum kominn úr öðr- um heimi og er fyrir þeim sem við taka í grundvallaratriðum algildur. Trúar er því þörf ef við eigum að treysta stoðir samfélagsins með öðru en hentugleikum okkar á líðandi stund. Trú er þó i augum iðkend- anna hentugleikaatriði heldur en grundvallarskýring heimsmyndar, lífs- og mannskilnings, tilkomin fyr- ir opinberan. Gleöilega páska. Jakob Ágúst Hjálmarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.