Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2002, Page 8
8
Fréttir
MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 2002
DV
■r" n&w
DV-MYNDIR NJÖRÐUR HELGASON
Lelklð af hjartans lyst
Krakkarnir á trampólíni og í
jafnvægisleikjum.
Sumarhátíð Hringsins:
Leikið, glaðst
og farið
á hestbak
Þau voru 1 sumarskapi, krakk-
arnir af Barnaspítala Hringsins
sem voru fyrir utan Landspítalann
við Hringbraut í góða veðrinu á
miðvikudag. Krakkarnir voru
ásamt starfsfólki og foreldrum að
halda sumarhátið. Þau voru í leikj-
um, köstuðu í dósir, stukku á
trampólíni og léku i fleiri leiktækj-
um. Nokkur fengu líka að fara á
hestbak á lóðinni við Landspítal-
ann, glaðir krakkar í góðu sumar-
veðri. -NH
Tilboð í stálþil:
20 milljónum
undir áætlun
hönnuða
Sex tilboð bárust í gerð stálþils-
bakka fyrir Seyðisfiarðarferjuna
Norrænu. Gáma- og tækjaleiga
Austurlands hf. var með lægsta til-
boðið; bauðst til að vinna verkið
fyrir 72 milljónir og 968 þúsund
krónur. Var því tilboði tekið en
kostnaðaráætlun hljóðar upp á 93
milljónir og 374 þúsund krónur.
Tilboðið er því 78,2% af kostnaðar-
áætlun og rúmum 20 milljónum
lægra. -KÞ
Utanaðkomandi aðilar styrkja Háskóla íslands:
14 stöður kostaðar
við Háskóla íslands
- jákvætt, segir Svanfríður Jónasdóttir alþingismaður
Svanfriður
Jónasdóttir.
Tuttugu og
tvær kennslu- og
raunvísindastöð-
ur við háskóla
landsins eru
kostaðar af utan-
aðkomandi eða
óskyldum aðil-
um. Þetta kom
fram vegna fyrir-
spurnar Svan-
fríðar Jónasdótt-
ur til Tómasar Inga Olrich mennta-
málaráðherra.
Ef litið er aftur i tímann varðandi
kostun á stöðum við ríkisháskólana
kemur í ljós nokkur aukning, sér-
staklega i Háskóla íslands, en þar
eru afls 14 stööur kostaðar af utan-
aðkomandi aðilum. Ein staða dós-
ents í verkfræðideild er kostuð 50%
af Landsvirkjun. Ein staða dósents í
eðlisfræðiskor er kostuð af Veður-
stofunni og persónubundið prófess-
orsstarf er kostað af umhverfisráðu-
neytinu. Þá er ein staða prófessors í
viðskipta- og hagfræðideild kostuð
af Gunnari M. Björg. Þrjár stöður í
félagsfræðideild eru kostaðar af
Hugviti hf., Félagsþjónustunni í
Reykjavík og Rauða krossinum.
Mest er þó um að stöður séu kostað-
ar í læknadeild en þær eru alls sjö
talsins. Astra Zeneca kostar 37% af
stöðu dósents í klínískri ónæmis-
fræði. Öldrunarsjóður kostar 37% af
stöðu dósents i öldrunarlækning-
um, ísaga kostar 25% af stöðu pró-
fessors i svæfingalækningum,
Pharmaco kostar 25% af stöðu pró-
fessors í svæfingalækningum,
Tryggingastofnun kostar 50% af
stöðu dósents í heilbrigðisfræði og
Landspítali Háskólasjúkrahús kost-
ar 50% af stöðu dósents í gigtar-
rannsóknum og eins prófessors í lyf-
læknisfræði..
Kennaraháskólinn hefur um
langt árabil fengið kostun á einni
lektorsstöðu i dönsku. Um er að
ræða stöðu sem er kostuð af danska
menntamálaráðuneytinu sam-
kvæmt samningi sem danska
menntamálaráðuneytið og hið ís-
lenska gerðu með sér.
Háskólinn á Akureyri undirritaði
nýlega samning við Landsvirkjun
um kostun á prófessorsstöðu til
næstu fimm ára en skólinn er frem-
ur með samstarfssamninga við ut-
anaðkomandi en að kostaðar séu
heflar stöður. Samningur er m.a.
við íslenska erfðagreiningu. Háskól-
inn á Akureyri ræður þrjá starfs-
menn til starfa á upplýsinga- og
tæknisviði skólans og eru þeir jafn-
framt starfsmenn ÍE á Akureyri.
Háskólinn greiðir laun sem svarar
til grunnlauna lektors, dósents eða
prófessors eins og við á en íslensk
erfðagreining greiðir þeim síðan
mismun á framangreindum launum
og markaðslaunum sem endurgjald
fyrir störf í þágu fyrirtækisins.
Hjá Tækniskóla íslands eru dæmi
um að fyrirtæki styrki skólann með
því að taka þátt í áfanga í kennslu.
Af hinu góða
í viðtali við DV sagði Svanfríður
Jónasdóttir að hún hefði kallað eft-
ir þessum upplýsingum vegna þess
að tilfinning hennar og fleiri manna
hefði verið sú að kennslu- og/eða
rannsóknarstöðum við háskólana,
sem væru kostaðar af öðrum en
hinu opinbera, væri að fjölga.
„Viö höfum séð á undanfömum
árum að háskólarnir eru að skrifa
undir samninga við aðila í atvinnu-
lífinu um samstarf af ýmsu tagi,
m.a. um kostun á prófessorsstöðum.
Við eigum að fylgjast með þessari
þróun eins og öðru sem er að gerast
á háskólastiginu nú, þegar það býr
við nýja löggjöf og að mörgu leyti
Auglýsendur,
athugið
nýjar aðstæður vegna samkeppni
bæði innan lands og erlendis frá,“
segir hún.
Svanfríður sagði að henni fyndist
samstarf háskólanna og atvinnulífs-
ins vera jákvætt.
„Það er af hinu góða en ég veit
svo ekki hvort það er i eðlilegu jafh-
vægi núna. Hins vegar þarf líka að
gæta þess að háskólamir hafi
akademískt frelsi og svigrúm og að
þeir séu ekki um of háðir atvinnu-
líftnu eða öflugum hagsmunaaðil-
um. Ef svo færi er hætt við að fram-
þróun yrði minni en við æskjum,"
segir Svanfríður -ss
UV-MYINUIK tVA MKtlNSDÓTTIR
Náttúruvænt hótelherbergl
Þær Katarina og Petra voru stoð og stytta stjórnenda og framkvæmdaaöila
við hótelbygginguna. Hér sitja þær á hrosshársdýnu í einu hóteiherbergjanna.
Umhverfisvænt Hótel Eldhestar í Ölfusi:
Hrosshár í
rúmdýnum
Sumarið er tíminn tii ferðalaga
19. júní næstkomandi fylgir DV blaðaukinn Ferðir innanlands
Dýnumar í nýju hóteli í Ölfusi em
fylltar með hrosshári og allt er hótelið
umhverfisvænt í fyllsta máta. Þetta er
Hótel Eldhestar, rekið á vegum hesta-
leigunnar Eldhestar, en er þó opið öll-
um almenningi, reiðmönnum jaföt sem
þeim sem ekki ríða út en vilja njóta úti-
vera og fagurrar náttúru á annan hátt.
í hótelinu era 10 tveggja manna her-
bergi með baði og er sérstaklega gert
ráð fyrir aðgangi fatlaðra. Dyr inn í
herbergin, sem og innan þeirra á bað-
herbergi, eru breiðar og gólfrými í her-
bergjunum er miöað við fólk i hjólastól-
um.
Sem dæmi um umhverfisvæna að-
stöðu hótelsins má nefna að innrétting-
ar og húsgögn era olíuborin með sér-
stakri oliu, í baðherbergjum era takkar
sem gefa til kynna vatnsnotkun og er
unnt að breyta henni. Lögð er áhersla
á óþarfa notkun handklæða og allur
þvottur er þveginn með vistvænu
þvottaeföi. Rúmin í herbergjunum era
flutt inn frá Svíþjóð og heita Hestur, en
þetta era rúm sem byijað var að fram-
leiða árið 1857 í Svíþjóð. Dýnumar era
fylltar af hrosshárum.
Hótel Eldhestar hefur sótt um svo-
kallað Svansmerki, sem er norrænt
merki um vottun á vistvænum rekstri,
en þetta mun vera í fyrsta sinn sem ís-
lenskt hótel sækir um þessa viðurkenn-
ingu. Að sjálfsögðu era reykingar ekki
leyfðar í hótelinu. Hótelherbergin era
ekki númerað eins og venja er en hvert
herbergi ber nafö hests (t.d. Fluga,
Gammur, Stígandi) sem í uppáhaldi
var, eða er, meðal eigenda og fastagesta
Eldhesta. Saga um hvem hest sem her-
bergin heita eftir er inni á hverju her-
bergi, sem og málverk úr ferðum Eld-
hesta. Garðar Jökulsson er höfundur
listaverkanna.
Eigendur, sto&endur og stjómendur
Eldhesta eru Þorsteinn Hjartarson,
væntanlegur forseti bæjarstjómar
Hveragerðis eftir úrslit úr síðustu
kosningum, Hróðmar Bjamason, fram-
kvæmdastjóri Eldhesta, og Sigurjón
Bjamason, stjómarformaður og skóla-
stjóri að Laugalandi í Holtum. -EH
Félagshyggja og sjálfstæöis-
menn saman á Austur-Héraöi
L-listi Félagshyggju við Fljótið og D-
listi Sjálfstæðisflokksins tilkynntu ný-
lega að náðst hefði samkomulag um
meirihlutasamstarf þessara framboða á
kjörtímabilinu. Soffia Lárasdóttir, efsti
maður á D-lista, verður forseti bæjar-
stjómar en Skúli Bjömsson, oddviti L
listans, verður formaður bæjarráðs. Nú-
verandi bæjarstjóra, Bimi Hafþóri Guö-
mundssyni, var boðin staða bæjarstjóra
en hann haföaði því boði af persónuleg-
um ástæðum. Ákveðið var að auglýsa
stöðuna.
í samtali við fréttaritara DV vildi
Skúli Bjömsson ekki tjá sig nánar um
efaisatriði samkomulagsins fyrr en það
hefði verið kynnt minnihlutanum, en
sagði þó að það væri byggt á stefau-
skrám og málflutaingi þessara tveggja
framboða eins og lýst var í kosningabar-
áttunni. Samkvæmt þvi má búast við
nokkrum breytingum í mörgum mála-
flokkum, t.d. í stjómsýslunni, og þar
verði bæjarráð gert sjálfstæðara varð-
andi framkvæmd alla á samþykktum
bæjarstjómar. Áfram verði unnið að
sameiningu sveitarfélaganna á Héraði
og jafövel víðar en það. Skólastefaa
verði mótuð fyrir hvert skólastig fyrir
sig, svo örfá atriði séu nefnd í fyrirliggj-
andi plöggum. Framsóknarflokkurinn
verður nú i minnihluta. -PG
Auglýsingadeild
550 5720
Síðasti skiladagur
auglýsinga er
föstudagurinn 14. júní