Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2002, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 2002
11
Utlönd
Minnsta kjörsókn sögunnar í frönsku þingkosningunum:
Hægriflokkarnir tóku
vinstrimenn í bakaríið
Ekkert virðist geta komið í veg
fyrir að mið- og hægriflokkamir í
Frakklandi fái drjúgan meirihluta á
þingi eftir yfirburðasigur þeirra á
vinstrimönnum í fyrri umferð þing-
kosninganna í gær.
Samkvæmt útgönguspám fengu
hægriflokkamir 43,7 prósent at-
kvæða í gær en vinstriflokkamir
36,8 prósent. Þjóðfylkingu hægri-
öfgamannsins Jeans-Marie Le Pens
tókst hins vegar ekki að nýta sér
þann meðbyr sem Le Pen fékk í for-
setakosningunum í apríl og maí.
Flokkurinn fékk 11,6 prósent at-
kvæða, eða nokkru minna en í kosn-
ingunum 1997.
„Við erum vanir kosningakvöld-
um þar sem spárnar eru endurskoð-
aðar þegar kjósendur eru gengnir til
náða,“ sagði Le Pen, sem var sjálfur
ekki í framboði í gær.
Víðast kosið aftur
í flestum kjördæmanna verður að
kjósa milli efstu manna í síðari um-
ferðinni eftir viku. Engu að síður er
því spáð að hægriflokkamir fái
milli 387 og 446 þingmenn af 577.
Vinstriflokkunum, sem hafa verið
með meirihluta síðustu fimm árin,
er spáð 127 til 192 þingsætum. Ekki
er gert ráð fyrir að hægriöfgamenn
fái meira en fjóra menn kjöma,
hugsanlega engan, og vinstriöfga-
menn fá engan mann kjörinn, ef
marka má útgönguspárnar.
Kjörsókn í gær var minni en hún
REUTERSMYND
Forsetinn og eiginkonan velja sér kjörseðla
Jacques Chirac Frakklandsforseti og Bernadette, eiginkona hans, velja sér
kjörseöla áöur en þau greiddu atkvæöi í frönsku þingkosningunum í gær.
hefur nokkru sinni verið og sátu 38
prósent kjósenda heima. Lítil kjör-
sókn þykir meðal annars endur-
spegla þá almennu skoðun að nú-
verandi ríkisstjóm mið- og hægri-
flokkanna færi með sigur af hólmi.
Efnir kosningaloforðin
Niðurstöður fyrri umferðarinnar
í gær virðast til marks um að
Jacques Chirac forseta hafi tekist
það ætlunarverk að sameina alla
lýðræðissinnaða hægrimenn í eina
fylkingu með því að vara við þeim
lamandi áhrifum á stjórn landsins
sem enn ein sambúðarstjóm hægri-
sinnaðs forseta og vinstrisinnaðrar
ríkisstjómar hefði.
Jean-Pierre Raffarin, forsætisráð-
herra bráðabirgðastjórnarinnar,
sem Chirac skipaði eftir síðari um-
ferð forsetakosninganna, hét því í
gær að standa við öll kosningaloforð
forsetans ef niðurstöðurnar eftir
viku yrðu eins og útlit er fyrir.
„Við munum standa við öll lof-
orðin sem forsetinn gaf í baráttunni
fyrir forsetakosningarnar," sagði
Raffarin eftir að útgönguspárnar
höfðu verið birtar í gærkvöld.
Leiðtogar Sósíalistaflokksins,
sem var við völd þar til í maí,
hvöttu vinstrisinnaða kjósendur til
að flykkjast á kjörstað á sunnudag-
inn kemur. Að öðrum kosti væri
hætta á að hægrimenn færu með
óskoruð völd í landinu næstu 5 ár.
REUTERSMYND
Baráttubóndi í Róm
Franski baráttubóndinn José Bové
var í hóþi þeirra sem gengu um
Róm á laugardag og kröföust breyt-
inga á baráttunni gegn hungri.
Hungurvofan
drepur á fjögurra
sekúndna fresti
Fiögurra daga ráðstefna Samein-
uðu þjóðanna um baráttuna gegn
hungri í heiminum hefst í Róm í
dag. Markmiðið er að safna millj-
örðum dollara til að reyna að ráða
niðurlögum hungurvofunnar sem
verður einum manni að bana á fjög-
urra sekúndna fresti.
Ráðstefnan í Róm er framhald
fundar á árinu 1996 þar sem heit-
strengingar voru um að fækka
hungruðum úr 840 milljónum í 400
milljónir árið 2015. Á þeim sex ár-
um sem liðin eru hefur hungruðum
hins vegar aðeins fækkað um 25
milljónir.
„Hvers vegna láta þjóðir heims
það viðgangast á þessum allsnægta-
tímum að 800 milljónir manna
svelti?" sagði Jacques Diouf, for-
stjóri Matvæla- og landbúnaðar-
stofnunar SÞ.
Þúsundir manna fóru um götur
Rómar á laugardag og kröfðust
breytinga á baráttuaðferðunum.
LOKSINS SAMKEPPNI
Til hamingju, kæru landsmenn!
Halló varð í gær fyrst símafyrirtækja til þess að bjóða landsmönnum heimtaug* í samkeppni við Landssímann. Tæplega 100 ára einokun Simans
var rofin. Halló er að setja upp símstöðvar um allt höfuðborgarsvæðiö og víðar um land í kjölfarið. (gær tókum við fyrstu símstöðina í notkun í Hafnarfirði.
Halló býður viðskiptavinum ódýrara fastagjald og 30% lægra mínútugjald innan Halló-kerfisins.
Það er loksins samkeppni um gamla góð a símann.
Ingvar Garðarsson,
framkvæmdastjóri Halló.
*Loksins getur þú fengið heimtaugina hjá Halló. Heimtaug er koparllna
sem tengir heimili þitt við símalögnina í götunni. Halló er fyrst símafyrirtækja
til að bjóða almenningi þessa þjónustu (samkeppni við Landssímann.
aðeins eitt sfmtal...
53 50 500
...og þú sparar!
HALLO 0
SÍMAFYRIRTÆKIÐ ÞITTI
Halló sími: 53 50 500 Skúlagötu 19 hallo@hallo.is
Frjáls Fjarskipti ehf. fax: 55 25 051 101 Reykjavík www.hallo.is