Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2002, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2002, Blaðsíða 12
12 Menning Náttúran sem hugmynd Menningarborgarárið 2000 var sérstakt að því leyti að átta borgir, þar á meðal Reykjavík, urðu þá útnefningar aðnjót- andi í stað einnar borgar áður. Var þessi tilhögun réttlætt með tilvísan til þess að borgimar átta mundu fá tækifæri til að skapa og rækta margháttuð menningarleg tengsl sín á milli i bráð og lengd. Eitthvað hafa íslenskir tónlistarmenn og leikarar átt í samskiptum við starfsbræður sína í Santiago de Compostela, Bergen, Helsinki, Kraká og Bologna, en á vettvangi sjónlista hefur afraksturinn verið óverulegur. I bráð man ég einungis eftir hingaökomu ágætrar iðnhönnunarsýningar frá Helsinki og utanferð eins íslensks mynd- listarmanns. Myndlist Þó virðist ekki alveg útséð um árangur þessa menningarborgarsamstarfs því nú hefur verið sett saman sýning þriggja listakvenna, Guðbjargar Lindar Jónsdótt- ur, Guðrúnar Kristjánsdóttur og Kristínar Jónsdóttur frá Munkaþverá, til uppheng- ingar í kirkju Heilags Domingós af Bona- val í Santiago de Compostela; Guð láti gott á vita. En fyrst um sinn hangir sýningin uppi i Ásmundarsal við Freyjugötu. Hiö eilífa og stundlega Sýningin, sem nefnist Andrá, er óvenju haganlega samstillt átak hinna ólíku lista- kvenna. En þótt áherslur þeirra séu ólíkar hverfist listræn vitund þeirra allra um ís- lenska náttúru í einhverri mynd. Fyrir Krist- ínu Jónsdóttur er náttúran fyrst og fremst vagga þjóðmenningar, uppspretta bæði and- legra gilda og þeirra efnislegu verðmæta sem eru forsendan fyrir varðveislu þessara sömu gilda. Hvað Guðrúnu Kristjánsdóttur snertir er náttúran hlutgerving eilífleikans en ber þó í sér stöðuga áréttingu hins stundlega í misjafn- lega gömlum fonnunum fjallanna. Og Guðbjörg Lind finnur í óútskýranlegum en yfirþyrmandi fyrirbrigðum náttúrunnar staöfestingu hins andlega seims. Það sem er kannski óvenjulegt við þetta átak er hve ríka áherslu listakonurnar leggja á hug- læga merkingu íslenskrar náttúru, fremur en efnislega hlið hennar, sem hingað til hefur ver- ið helsta viðfangsefni bæði listmálara og nýlist- armanna á landinu. Hér er hvorki gert út á efn- ismassa hraunsins né litbrigði fjallanna, hvað þá beina þjóðrækni. Kristin bútar náttúruna Verk Guðrúnar Kristjánsdóttur Guörún gaumgæfir hvernig voldug fjöllin missa tengslin viö efnisheiminn um leiö og holtaþokan eöa regnúöinn halda innreiö sína, breytast þá í mótsstaöi óþekktra afla. “ niður í bláa ullarhnoðra og þau nöfn sem við gefum henni þegar við sölsum hana undir okk- ur. Guðrún gaumgæfir hvemig voldug fjöllin missa tengslin við efnisheiminn um leið og holtaþokan eöa regnúðinn halda innreið sína; breytast þá í mótsstaði óþekktra afla. Ljósmettaö flæði í þágu þessara huglægu markmiða hefur Guðbjörg Lind lagt til hliðar tilbrigði sín um eyjar og sker og tekið aftur til við að fjalla um náttúruna sem „flæði" í herakleitískum skiln- ingi: um fossa, ár og vötn. Og til að auka á áhrifamátt þessarar náttúrusýnar lætur lista- konan sér ekki nægja að yfirskyggja okkur með tveggja metra málverkum sínum heldur dregur okkur inn í ljósmettað flæði, innsetn- ingu úr plexígleri þar sem okkur er boðið að skynja á eigin sinni straumþunga og birtu foss- ins fremur en staðsetningu hans og merkingu í landslaginu. Miðað við fyrri verk listakvennanna sætir sennilega mestum tiðindum hvernig Kristín, aldursforsetinn í hópnum, hefur tekið á þessu sýningarverkefni; nefnilega með enn frekari uppstokkun á forsendum sínum og vinnubrögð- um. Sem voru skilvirk og áhrifarík fyrir. Gegn- sæjar plexíglerplötur hennar, uppfullar með fagurlega rituðum staðarheitum og ömefnum, eru nú lagskiptar þannig að áhorfandinn skynj- ar „staði“ hennar í rauntíma, í sögulegum tíma og óendanlegu rými. Og ullarhnoðramir í gryfju hússins, minni himinblámans, era án upphafs og endis, þeir liggja einfaldlega „frá norðri til suðurs", út í garðinn og fjarskann. Kannski alla leið til Santiago de Compostela. Aðalsteinn Ingólfsson Guöbjörg Lind Jónsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir og Krist- ín Jónsdóttir frá Munkaþverá sýna í Listasafni ASÍ viö Freyjugötu. Sýningin hefur yfirskriftina Andrá og stendur yfir til 30. júní. Bruce Noll flytur Leaves of Grass: Frelsun mannsandans Næstkomandi þriöjudagskvöld, 11. júní, flytur bandaríska ljóðskáldið og háskólaprófessorinn Bruce Noll dagskrá í KafFileikhúsinu í Hlaðvarp- anum sem hann nefnir Pure Grass. Dagskráin er byggð á verkum hins mikilsvirta og dáða ljóð- skálds, Walts Whitmans, og sögð fram með leik- rænu ivafi. Dagskráin, sem er um klukkustundar löng, fer fram á ensku og hefst kl. 21.00. Walt Whitman er af ýmsum fræðimönnum tal- inn faðir amerískrar nútímaljóðlistar. Einstakur stíll hans, í bland við persónulegt innihald verk- anna, átti þátt í að umbylta ljóðagerð þar í landi. Tilraunir Whitmans til að skapa sérstakt ritform fyrir hina nýlýðfrjálsu þjóð sína tókst einstaklega vel og bera viðvarandi vinsældir hans vitni um ... mannsgaman Á sjötta bekk í Sviss þann árangur. Enn þann dag i dag er ekki hægt að ljúka bók- menntafræðiáfanga í bandarísku skólakerfi án þess að nemendur hafi lesið ljóð eftir Walt Whitman. Bruce Alan Noll, sem er frá Al- buquerque í Nýja Mexíkó, hefur lengi verið heillaður af verk- um Whitmans. Noll segir m.a.:„Verk Whit- mans hafa sérstakt lag á að frelsa mannsandann. Orð hans syngja sinn söng jafn tært í dag og þau gerðu fyrir eitt hundrað árum, jafnvel enn tærar. Þau bera vott um djúpt innsæi og fela í sér sann- leika sem höfðar til fólks á öllum tímum.“ Um þrjátíu ára skeið hefur Noll verið óþreyt- andi að kynna verk Whitmans. Hann hefur lagt á minnið stóran hluta verksins Leaves of Grass og fléttar það saman við dagskrána. Undanfarin ár hefur Noll flutt PURE GRASS fyrir þúsundir manna í flestum ríkjum Bandaríkjanna og komið fram fyrir hönd Walt Whitman-stofnunarinnar i Camden, á rithöfundaþingum og víðar. Flutningur Bruce Noll í KafFileikhúsinu er frumflutningur á Pure Grass í Evrópu. Dagskráin hefst kl. 21. Húsið er opið frá kl. 20.30 og er miða- sala við dymar. Miðaverð er 1000 krónur. Walt Whitman. Blessunarlega er lifið fullt af furðulegum augnablikum. Og sum svo kostuleg að ekki er hægt að hlæja að þeim fyrr en löngu seinna. Sat um árið á sjötta bekk í Sviss. Það var syðst í landinu þar sem gróin fjöll steypa sér ofan í vog- skorin vötn og langar eyrar geyma aldagömul þorp. Óvíða er fegurra í Evrópu en í rótum Alpanna. Það er eins og allt umhverfi þar kalli á klið úr mannsins munni. Locamo heitir staðurinn. Og hefur heitið um aldir. Sat þar sumsé á sjötta bekk og bíósalurinn býsna smár. Tók svona tvær tylftir manna. Það var sumar og áhorfendur sátu á stuttbux- um og þvölum bolum og horföu á rússneska mynd um angist skálds og unnustu hans í festum ann- ars manns. Þriggja tíma þunglyndi. Gníst og pína. Ein þessara mynda sem ekkert hefur verið klippt. Epikin átakanleg og ofboðsleg. Áhorfendur djúpt sokknir í sjálfa sig. Og þyngsli framvindunnar í námunda við ógleði og yfirlið. Og samt sat fólk í kóFi og svita og fór hvergi af því að það var að horfa á alvöragefna list á virtri kvikmyndahátíð. í hásumri og hitabylgju. Aldrei hef ég kynnst annarri eins samfélags- sömbu. Þarna sátu sígaunar og Finnar og Tyrkir og íslendingar og reyndu að rýna í rússnesk ósköpin sem voru torséð fyrir textafjöld. Neðst á tjaldinu var skýringatexti á ensku, þar fyrir ofan á frönsku og enn ofar á ítölsku. Samtals sex línur þvert yfir tjaldið. Uppi á sviðinu, rétt við tjaldið, stóð svo þéttvaxin kona og þýddi ósköpin jafnóð- um yfir á þýsku eins og maður hefði ekki úr öðr- um tungum að velja. Þarna sat maður sumsé á sjötta bekk í sumrinu í Sviss og hugsaöi á íslensku um það sem maður heyrði og sá á tungum fimm. Varla hefur reynt eins mjög á huga manns í annan tíma. Og upp- gefnari og ruglingslegri áhorfendur hafa sjaldan ráfað út úr litla salnum í Locamo. Blessunarlega er myndin gleymd, altso kvik- myndin, en hin myndin, sem var langtum meira bíó, situr enn í þankanum og fer þaðan hvergi. Enda geymist þar allt sem er gott og galið. -SER MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 2002 ___________________PV Umsjón: Sigtryggur Magnason Listamenn við Hlemm Um langt árabil hefur verið gott samstarf milli nemenda Listahá- skóla Islands og Búnaðarbankans við Hlemm. Nem- ar í Listaháskól- anum hafa sýnt verk sín í útstill- ingarglugga bank- ans sem snýr að Rauðarárstíg og hafa verkin oft vakið mikla og verð- skuldaða athygli og er ljóst að efni- viðurinn er mikill og góður i Lista- háskólanum. Verk hvers nemanda eru til sýnis hverju sinni í tvær vik- ur. í sérstöku hófi í bankanum era á hverju ári styrktir tveir listamenn og þeir valdir með útdrætti. Fyrir skömmu var þetta hóf haldið og voru vinningshafar í ár báðir að út- skrifast með BA-gráðu frá myndlist- ardeild Listaháskóla íslands, Anna Guðmundsdóttir og Rósa E.R. Helgadóttir. Landvinningar Guðbergs JPV-útgáfa hef- ur gengið frá út- gáfusamningi við Steild-forlagið í Þýskalandi um út- gáfu á skáldævi- sögu Guðbergs Bergssonar, Faðir og móðir og dul- magn bemskunn- ar. Þetta er fyrra bindi skáldævi- sögu Guðbergs sem kom fyrst út á íslensku árið 1997. Hún hlaut af- bragðsgóðar viðtökur lesenda og gagnrýnenda. Fyrir bókina hlaut Guðbergur Bergsson íslensku bókmenntaverð- launin árið 1998 og Menningarverð- laun DV fyrir bókmenntir. Hún var jafnframt tilnefnd til Bókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs og Aristeion-verðlaunanna. Framhald verksins hlaut síðan íslensku bók- menntaverölaunin árið eftir og er það I fyrsta sinn í sögu íslensku bókmenntaverðlaunanna að höf- undur hljóti þau tvö ár í röð. Landvinningar Vigdísar Þögnin eftir Vig- dísi Grímsdóttur kom út hjá Alfa- beta Anamma-for- laginu í Sviþjóð nú á vordögum, en Svíar hafa fylgst af áhuga með rithöf- undarferli Vigdís- ar, allt frá þvi Stúlkan í skóginum kom út í þýð- ingu Inge Knutson árið 1994 og vakti verðskuldaða athygli. Síðan hafa önnur verk hennar fylgt í kjöl- farið þar í landi. Það er fyrst og fremst hinn sterki persónulegi still Vigdísar sem hrífur eins og gagnrýnandi Falu Kuriren orðar það: „Megin- styrkur verksins liggur í stílnum, þar er ekki um neinar málamiðlan- ir að ræða, lesandanum er ekki sýnd nokkur miskunn. Þögnin er liklega besta verk Vigdísar fram til þessa en jafnframt hið vægöarlaus- asta. í fyrstu er dregin upp falleg mynd af samskiptum ömmu við bamabam sitt en smám saman dirnmir yfir þeirri mynd. Og að lok- um er svartnættið slíkt að maður fyllist angist." Og gagnrýnandi Kristianstadsbladet bætir um betur og segir: „Með ýmsum vísunum, sem era þnmgnar innri merkingu, ósögðum orðum og brotakenndu púsluspili, ögrar Vigdís Grímsdótt- ir lesandanum á snilldarlegan hátt. Ég hef sjaldan lesið bók sem hefur gert eins miklar kröfur til mín sem lesanda." í ritdómi sem Svenska dagbladet birti er fjallað um sýn höfundarins á hlutverk listarinnar - hverju þarf að fóma til að árangur náist: „Vig- dís Grímsdóttir veit að öllu verður að kosta til - ekkert minna er ásætt- anlegt."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.