Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2002, Síða 14
14
MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 2002
MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 2002
35
DV
Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf.
Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson
Adalritstjóri: Óli Björn Kárason
Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson
Aðstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Ritstjörn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift:
Skaftahlið 24, 105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001
Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf.
Plötugerð og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins i stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiöir ekki viömælendum fyrir viötöl viö þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Evróputrúboðið
Fylgjendur aðildar íslands að Evrópusambandinu hafa tek-
ið skýrslu Hagfræðistofnunar um kostnað af aðild illa. Með
dylgjum um vanþekkingu og ásökunum er vega að heiðri
starfsmanna Hagfræðistofnunar er reynt að gera skýrsluna
ótrúverðuga.Forsætisráðherra hefði ekki verið liðið að ganga
fram með sama hætti og Evrópusinnar í gagnrýni sinni á
eina af stofnunum Háskóla íslands.
Því miður virðist sem Evrópusinnar ætli sér að berja nið-
ur alla umræðu og gagnrýni á Evrópusambandið harðri
hendi. Allar upplýsingar og rannsóknir sem eru þeim ekki
þóknanlegar skulu tortryggðar. Rétthugsun Evrópusinna
skal fá yfirhöndina og jafnvel rektor Háskólans hefur ekki
þor í sér að verja stofnanir skólans.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hefur lengi gælt við
Evrópusambandið en yfirleitt af hófsemd. Á síðustu mánuð-
um virðist hins vegar hafa orðið á nokkur breyting. Ráðherr-
ann hefur gagnrýnt skýrslu Hagfræðistofnunar harðlega og
haldið því fram að þar vanti „grundvallarþekkingu“. Jafn-
framt hefur Halldór Ásgrímsson sagt það ekki trúverðugt „að
taka mið af skýrslu banka í austurhluta Þýskalands, sem er
sett fram sem plagg til að skapa umræðu um það versta sem
gæti gerst“, og vísar þar til skýrslu Dresdner-bankans um
kostnað af stækkun Evrópusambandsins. Sérfræðingar bank-
ans komast að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir að allar boðað-
ar breytingar á styrkjastefnu sambandsins gengju eftir yrði
óhjákvæmilegt að hækka núverandi þak á útgjöldum sam-
bandsins til þess að standa straum af stækkun þess. Hag-
fræðistofnun Háskóla íslands byggði skýrslu sína að mjög
miklu leyti á skýrslu Dredners-bankans.
Annaðhvort af vanþekkingu eða misskildum sniðugheitum
gefur utanríkisráðherra í skyn að ekki sér hægt að treysta
sérfræðingum Dresdner-bankans vegna þess að hann sé í
austurhluta Þýskalands. Staðreyndin er hins vegar sú að höf-
uðstöðvar bankans eru í Frankfurt. Dresdner-bankinn er
þriðji stærsti banki Þýskalands, með um 50.000 starfsmenn í
1.200 starfsstöðvum í 70 þjóðlöndum. Umrædd skýrsla, sem
ráðherrann treystir sér til að kasta rýrð á - í trúboði þess
sem fundið hefur Stórasannleik - er unnin af rannsóknar-
deild bankans í hagfræði. Rannsóknardeildin hefur það hlut-
verk að móta skoðun bankans á hagfræðilegum málefnum.
Skýrslan felur því í sér opinbera skoðun bankans á því hvaða
áhrif líklegt er að stækkun Evrópusambandsins hafi á fjárlög
sambandsins. Höfundar skýrslunnar eru fimmtán sérfræð-
ingar í rannsóknardeild bankans í hagfræði, þar af sjö með
doktorsgráðu.
í skýrslunni er ekki aðeins reiknuð út „versta niðurstaða".
Gerðar eru tvær spár um þróun fjárlaga Evrópusambandsins.
Önnur byggist á því að allar boðaðar endurbætur á styrkja-
stefnu sambandsins gangi eftir. Hin miðast við óbreytt ástand.
Sérfræðingar bankans telja að þrátt fyrir að boðaðar end-
urbætur gangi eftir verði ekki nægilegur afgangur af fjárlög-
um Evrópusambandsins til að fjármagna stækkun. Þess
vegna verði óhjákvæmilega að hækka núgildandi fjárlagaþak
nema til komi enn róttækari endurskoðun en rætt hefur ver-
ið um. Reynslan sýnir að þetta er ólíklegt. Miklu líklegra er
að kostnaðurinn af stækkun sambandsins verði nær þeirri
spá sem gerir ráð fyrir óbreyttri stefnu. „Versta spá“ bank-
ans er því um leið sú sem hann telur líklegri niðurstöðu. Hún
fæli að mati bankans í sér að auka þyrfti fjárframlög árið
2005 um næstum því 50% frá því sem nú er ráðgert.
Við þetta miðar Hagfræðistofnun Háskóla íslands. Ekkert
sem utanríkisráðherra eða aðrir Evróputrúboðar hafa sagt
síðustu daga gefur tilefni til að ætla að sérfræðinga Hagfræði-
stofnunar eða Dresdner-bankans skorti grundvallarþekkingu
á málefninu. Evróputrúboðið mun ekki vinnast með þeim
hætti sem reynt hefur verið að undanfórnu.
Óli Björn Kárason
I>V Skoðun
í nafni guðs, föður, sonar og
Mannanafnanefndar
„Að gefa bömum nöfn getur vafist fyrir foreldrum og verið mikið tilfinningamál.
Ríkisnafnaformúla þriggja manna rikisnefndar ætti ekki að flœkja málið, sœra fólk
né valda óþarfa þjáningum“ Andri Ámason hrl., form. Mannanafnanefndar.
verkfræöingur
r w
Kjallari
Það þykir nú orðið frétt-
næmt þegar hin svokail-
aða Mannanafnanefnd
heldur fundi og ákveður
hvaða nöfn við höfum leyfi
til að gefa börnum okkar
og hvaða nöfn við getum
ekki notað.
Þú mátt skíra...
Þú mátt skíra son þinn: Ljótur,
Drengur eöa Hrærekur, Smiður og
dóttur Ljótunn, Mey eöa Þula og Tala
- samkvæmt Mannanafnanefnd! í
lagi er að heita Eiiífur Friður og
Guðmundur Falk Jónsson en hvorki
má heita Lárentsinus Jónsson né
Guðmundur Múli Jónsson - af
hverju er ekki gott að segja! Þú mátt
heita Hreinn Bolli, Barði Ögmundur
Blöndal, Ölver, Kaldi, Krummi,
Svanmundur, Franz, Fólki, Júníus,
Júlí, Ágúst, Jörgen, Júrek, Sörli,
Stormur, Lousie, Lúsinda, Lydia,
Randalín, Rán, Rósmarý, Dendý,
Nansý, Ilmur, Ann, Anne, Arína, íva,
lunn, Nellý, Njála, Norma, Hertha og
Ingimaría. En þú mátt ekki heita El-
íza, Annarósa, Ýrena, Apríl, Maia,
Maj, Jennifer, Guri, Grethe, Veron-
ica, Jóhan, Leo, Regin, Hanz, Arnar-
steinn, Ben, Jón Eðvald, Jón Bær-
ings eða Jón Gautur.
Þú mátt ekki skíra ...
Sem dæmi um nöfn sem ekki má
skíra, en eru samt mörg hver borin
af íslendingum í dag, eru: Anthony,
Bjarnar, Bil, Bjarkar, Siv, Aaron,
Isabella, Kristofer, Alexsandra og
Heiðaringi. Hvers vegna ekki má
heita þessum ágætu nöfnum hlýtur
flestum að vera hulin ráögáta, sér-
staklega ef þau eru borin saman við
mannanafnaskrá (þ.e. skrá um eig-
innöfn og millinöfn sem teljast heim-
il), þar sem t.d. má finna eftirfarandi
löglegu og liklega frekar sjaldgæfu
karlmannsnöfn: Aage, Ormur,
Fenrir, Fabrisíus, Falk, Fólki, Frey-
viður, Álfur, Adíel, Adolf, Fjörnir,
Ásgautur, Ás, Alrekur, Arent.
Af sérstæðum kvenmannsnöfnum
mætti nefna: Aagot, Alfifa, Alvilda,
Aris, Arín, Assa, Axelma, Ásla, Ás-
röður. Ætli bömum með mörg þess-
ara nafna yrði ekki frekar strítt en
t.d. bömum sem bera nöfnin Ant-
hony, Bjamar, Siv, Ólaf, Aaron, Isa-
bella, Kristofer, Alexsandra eða Apr-
íl sem öll eru á bannlista Manna-
nafnanefndar?! En ein meginregla
um íslenskt mannanöfn er einmitt að
„það má ekki vera þannig að það geti
orðið þeim sem ber það til ama“.
Nefndin hefur ákveðið
Mannanafnanefnd hefur enn frem-
ur ákveðið fyrir oss hvaða nöfn séu
karlmannsnöfn og hvað teljist til
kvenmannsnafna. Sem dæmi má
nefna Blær og Öm sem teljast til
karlmannsnafna þótt sjálfur Laxness
hafi talið Blæ til kvenmannsnafna og
Öm hafi upphaflega verið kvenkyns-
orð og táknað kvenfugl arnarins en
Ari var orðið yflr karlfuglinn. Kona
má heita Dagmar en ekki Dalmar þvi
það er nafn fyrir karlmenn, segir
nefndin. Erlendis era mörg dæmi
um að karlmenn og kvenmenn beri
sömu nöfn. Sem dæmi má nefna
nafnið María í spænskumælandi
löndum (sbr. forsætisráðherra Spán-
ar sem heitir José María Asnar).
Millinöfn sem Mannanafnanefnd
hefur hafnað frá 1. janúar 1997 eru
meðal annars: Bjamar, Bærings,
Dalmar, Eðvald, Gautur, Laxdahl,
Múli, Skagfjörð. Skagfjörð er hafnað
en samt stendur í meginreglum um
mannanöfh: „Millinöfn eru eins og
ættarnöfn að því leyti að bæði karlar
og konur geta borið sama nafnið.
Dæmi: Jón Amfjörð Guðmundsson,
Guðrún Amfjörð Hallgrímsdóttir.“ -
þ.e. Amfjörð er í lagi, en Skagfjörð
ekki. Hvernig á fólk að skilja þetta?
Úr takti við tímann
Ein meginregla um mannanöfn er
að enginn má taka upp nýtt ættar-
nafn hér á landi. Þessi hluti laganna
er auðvitað líka úr takti við tímann.
Að bera ættamafn - hvort sem það
er af erlendum eða íslenskum upp-
runa - eiga ekki að vera forréttindi
fárra eins og er í dag.
Hér á landi eru til einstaklingar
sem bæði eru kenndir við móður og
föður. Fólk hefur látið á það reyna að
sækja um til nefndarinnar, að böm
þeirra fái að bera bæði eftimöfn for-
eldranna (ef annaö foreldrið ber ætt-
amafn) og þá nota t.d. Unnarson eða
Tryggvason sem „millinöfn“ - þó svo
slíkt sé algengt erlendis og ætti að
vera auðvelt að skilja hvers vegna
hefur okkar mannananafnanefnd
ekki skilið það og hafnað slíkum
nöfnum.
Hins vegar segir nefndin að í lagi
sé að hafa Bíldsfells, Laufland og
Hafnflörð sem millinöfh!
Að gefa börnum nöfn getur vafist
fyrir foreldrum og verið mikið til-
flnningamál. Ríkisnafnaformúla
þriggja manna ríkisnefndar ætti
ekki að flækja málið, særa fólk og
valda óþarfa þjáningum.
Brýtur í bága við lög
Að lokum má nefna að það er mat
margra lögfróðra manna að manna-
nafnalögin brjóti í bága við lög um
mannréttindasáttmála Evrópu (1994),
Stjómarskrána (1944), Samning Sam-
einuðu þjóðanna um réttindi bams-
ins (1992) og Mannréttindayfirlýs-
ingu Sameinuðu þjóðanna (1948).
Alþingismenn átta sig vonandi á
þessu og fella lögin um mannanöfn
úr gildi, það er kominn tími til að
afmá þetta form af forsjárhyggju og
afdalamennsku. - Varla er það vOji
Alþingis að við séum eins og gang-
andi þjóðminjasafn.
Evrópudansinn dunar
Björgvin G.
Sigurösson
framkvæmdastjóri
Samfylkingarinnar
Evrópudansinn dunar á
fullu þessa dagana. For-
sætisráðherra semur af
krafti við sjálfan sig um
að ganga ekki í ESB og
utanríkisráðherra þokar
flokki sínum nær því að
samþykkja aðildarum-
sókn.
Samfylkingin er stödd í miðri
Evrópukynningu sinni og lýkur
henni með því að blað verður brotið
í sögu flokkslýðræðisins á Islandi.
Þá kjósa flokksmenn um það hvort
aðildcurumsókn verði sett á stefnu-
skrá flokksins.
Á lágu plani
Evrópuumræðan hefur mestan-
part verið á afar lágu „með eða
móti“-plani. Málið er miklu flókn-
ara en það hvort hægt sé að vera
fyrirfram „með eða móti“. Þjóðar-
hagsmunir kalla á vandaða, yfirveg-
aða og itarlega umræðu þar sem far-
ið er upp úr hjólforum flokkastjórn-
málanna. Pólitískt pantaðar skýrsl-
ur eða hlægilegar skoðanakannanir
þjóna engum tilgangi öðrum en að
drepa þessu mikilvæga máli á dreif
og fresta því að íslendingar komist
að niðurstöðu um það hvort við eig-
um að freista þess að ná samnings-
stöðu sem fullnægir hagsmunum
okkar. Svo einfait er það mál.
Heiðarleg umræða
Rauði þráðurinn í Evrópukynn-
ingu Samfylkingarinnar er að
kynna og kanna ítarlega hverjir
kostimir og gallamir við hugsan-
lega aðUd að ESB eru á heiðarlegan
og hreinskUinn hátt. Kostimir eru
flölmargir og gáUamir líka. Einung-
is opin og vönduð umræða skUar
okkur á leiðarenda, sem er sá hvort
við látum reyna á aðUdarumsókn.
Það er langt í það að fólk þurfi að
skipta sér upp í hatrammar já- og
nei-fylktngar. Málið er ekki komið
það langt.
Pólitískur hugarburður
Nú erum við stödd þar í Evrópu-
ferlinu að draga fram kostina og
gaUana. Evrópuúttekt Samfylking-
arinnar liggur fyrir í bókinni ísland
í Evrópu. Með slíkum vitrænum og
yfirveguðum vinnubrögðum náum
við farsæUi niðurstöðu. Ekki með
vitleysislegum fullyrðingum og
ímynduðum veruleika. Slík umræða
er óheiðarleg og vinnur gegn hags-
munum þjóðarinnar. Lok málsins
eiga síðan að verða þjóðaratkvæða-
greiðsla um hugsanlegan samning.
Þá fyrst er hægt að taka endanlega
afstöðu, byggða á staðreyndum en
ekki pólitískum hugarburði.
Innganga I Evrópusambandið
- jafn margir vilja inngöngu í ESB og eru á móti
60
50
40
30
20
10
0
Fylgjandi
Andvígir
49,9%
50,1%
Þeir sem afstöðu tóku
í þessari könnun.
Október 2000
Júní 2002
„Pólitískt pantaðar skýrslur eða hlœgilegar skoðanakannanir þjóna engum til-
gangi öðmm en að drepa þessu mikilvœga máli á dreif.“
Sandkom
Týnda foreldrið
Athygli hefur vakið harkaleg fram-
ganga Halldórs Ásgrímssonar gegn
Hagfræðistofnun Háskóla íslands i
kjölfar skýrslu stofnunarinnar um
kostnað af ESB-aðild. Þegar forsætis-
ráðherra lét fyrir nokkrum mánuð-
um í flós efasemdir um að Þjóðhags-
stofhun hefði ávallt rétt fyrir sér
fannst mörgum kaffihúsaspekingn-
inn ómaklega vegið að heiðri stofiiun-
arinnar. Sú gagnrýni komst þó ekki í hálfkvisti við
gagnrýni Halldórs á Hagfræðistofnun, sem hefur þó
ekki raskað ró á kaffihúsum með sama hætti. Ekki frek-
ar en þegar Össur Skarphéðinsson sagði á Alþingi að
forseti Hæstaréttar íslands væri „vildarvinur ríkis-
stjórnarinnar". Annaðhvort hlýtur Hagfræðistofnun
því að njóta meiri viröingar á kaffihúsum landsins en
Hæstiréttur og Þjóðhagsstofnun eða þá hitt, að gestum
þar finnist ekki svaravert annað en það sem kemur frá
sjálfum forsætisráðherra.
Gagnrýni samfylkingarfólks á skýrslu Hagfræðistofn-
unar hefur einnig komið ýmsum í opna skjöldu í ljósi
þess að annar höfunda hennar er einlægur Evr-
ópusinni, var frambjóðandi fyrir Alþýðuflokkinn í þing-
kosningum 1995 og síöan forystumaður í hreyflngu
ungra jafnaöarmanna. Sem sagt týndi sonurinn með öf-
ugum formerkjum.
Skýrsla forsætisráðherra sem upp-
lýsti um óheyrilegan kostnað sem
fylgja myndi hugsanlegri aðild ís-
lands að ESB hefur vakið óskipta at-
hygli. Bryndís Hlöðversdóttir, Sam-
fylkingu, gagnrýndi hana mjög og
sagði það kæk hjá forsætisráðherra
að koma með svona skýrslu um ESB
þegar Halldór Ásgrimsson væri „ó-í-
náajilegur“. Varð þá þessi vísa til hjá
Ólafi á Syðri-Reykjum:
Birtir skýrslu bossinn hér
í bandalagió tregur
þegar Halldór Ásgríms er
ó-í-náanlegur.
O-í-náanlegur
Frasar og misheppnaðir brandarar
„Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur gert nokkrar
brotakenndar tilraunir á undanfornum vikum og mán-
uðum til að gera sig gildandi í umræðunni um stöðu Is-
lands gagnvart Evrópusambandinu. Að mínu mati hef-
ur honum ekki tekist þaö sem skyldi. Þar kemur ýmis-
legt til. Helstu veikleikar hans í pólitískri umræðu hafa
birst þegar Evrópusambandsumræðuna hefur borið á
góma. Frasar, útúrsnúningar og misheppnaðir brandar-
ar hafa einkennt málflutning hans öðru frekar.“
Gunnlaugur Júlíusson á Hrifla.is
Takmörkin og HM
„Ásetningur minn í upphafi heimsmeistaramóts, sem
haldið er í Japan og Kóreu, er að halda ró minni. Ef ég
einsetti mér að horfa á allar beinu útsendingarnar
myndi ég liggja flatur innan skamms ... Mér er sem
sagt smám saman að lærast aö sefla mér takmörk. Ein-
hverra hluta vegna tel ég mér trú um það. Ég ætla að
bíða og sjá hvemig leikirnir í riðlunum þróast. Velja
mér lið þegar að því kemur og halda með því. Efnilegir
kandiídatar eru Englendingar, jafnlélegir og þeir era,
og Danir en ég áskil mér rétt til þess að halda með
hverjum sem er eftir því hvernig úr spilast."
Kristján Þorvaldsson ! Séð og heyrt.
Völtum yfir Framsókn
„I fyrsta lagi verður að svipta Framsóknarflokkinn
landbúnaðarráðherraembættinu. I öðru lagi verður að
skipa sjálfstæðismann i embættið. 1 þriðja lagi þarf að
valta yfir stefnu Framsóknarflokksins i íandbúnaðar-
málum og skera kerfið upp að rótum. Hagræðingu
verður að koma á í íslenskum landbúnaði þvi hann er
í fyrsta lagi rekinn á kolvitlausum og skekktum for-
sendum og í öðru lagi fullkomlega fær um að útvega
neytendum sínar uppáhaldsfæðutegundir án aöstoðar
og vorkunnar alþingismanna."
Geir Ágústsson á frelsi.is
Evrópusambandið af dagskrá
Friðrik
Daníelsson
efnaverkfræöingur
Kjallar 1
Þegar yfirgangur gömlu
heimsveldanna í Evrópu-
sambandinu hefur fariö úr
hófi fram höfum við getað
treyst á góða nágranna,
oft Bandaríkjamenn,
Rússa og jafnvel Norð-
menn þegar þeim
hefur runnið blóðið til
skyldunnar.
En nú eru Norðmennimir orðnir
svo hvumpnir út af stórveldisstefnu
ESB að þeir treysta ekki lengur
frændum og samherjum. Um daginn
héldu Norðmenn að íslendingar ætl-
uðu að skjóta þeim ref fyrir rass á
fiskmarkaðinum í Evrópu með því
að ganga í ESB. Davíð varð sjálfur
að fara utan á fund manna Noregs-
konungs til þess að leiðrétta mis-
skilninginn sem var eðlilegur.
Skilja ekki íslensku
Norðmenn era löngu hættir að
skilja sitt upprunalega tungumál og
skildu ekki „skoðanakönnunina“ til
að vita að þar hefðu bara verið ein-
hver félagasamtök úti í bæ að reka
á eftir að fá lægri vexti handa fyrir-
tækjum félagsmanna og notuðu til
þess sérhannaða „skoðanakönnun"
til að fá fyrirfram gefin jákvæð svör
um ESB. Þeim varð ljóst að íslend-
ingar ætluðu sér ekki að undirgang-
ast ofurskattheimtukerfi ESB og
þaðan af síður að leiða evrópska
stjórnarhætti yfir landið og miðin.
Norskir frelsiskerar
Norðmenn urðu fegnir enda hafa
þeir aðeins verið sjálfstæðir 39 árum
lengur en íslendingar og langar ekki
aftur i klærnar á einhverju Evrópu-
veldi. Þeir áttu skilið að fá hrein-
skiptna greinargerð um stöðu mála.
Þeir standa stundum með okkur þeg-
ar í haröbakkann slær, eins og þegar
Evrópusambandsveldin reyndu að
troða á okkur í þorskastríðunum,
eða þegar alþjóðlegar umhverfistrú-
arstofnanir (t.d. Alþjóða hvalveiði-
ráðið) brjóta á okkur þjóðarrétt.
Þeir eru, líkt og íslendingar, •
bjargráða smáþjóð og ein af þeim
tekjuhæstu í heimi, ásamt með evr-
ópsku smáþjóðunum sem hafa haft
vit á að standa utan ESB (Svisslend-
ingum og Islendingum). Þeir létu
ekki véla sig í ESB og stóðu óhagg-
aðir þegar Svíar voru flæmdir inn
1994 meö útilokunardylgjum. Þjóð-
aratkvæðagreiðslan um ESB-aðild í
Sviþjóð var höfð á undan þeirri í
Noregi beinlinis til þess að reyna að
þvinga Norðmenn inn. Svíamir
höfðu minna mótstöðuafl.
Kjarkurinn að bresta?
Það er ekki að vita hvenær Norð-
menn missa kjarkinn og gefast upp
fyrir útflokunarofríki ESB og drag-
ast inn. Það væri reyndar ekkert
Fylgjendum fjölgar milli kannana - mest andstaða meðal framsóknarmanna
Afstaða eftir stuðningi við flokka
Fylgjandi
21,5%
32,7%
45,8%
20,4%
38,6%
41%
21,1%
36,8%
42,1%
24,6%
Andvígir
38,4%
Óákv/sv. ekki
37%
Samfylkingin
14%
48%
38%
„Tilskipanirnar frá ESB gegnum EES-samninginn em þegar teknar að draga ís-
land niður að stöðnunarstigi ESB og um leið rýmar kjarkurinn og sjálfstœðisvilj-
inn, samanber skoðanakannanirnar, sem þó em oft marklausar, enda almenningur
rangt eða illa upplýstur. “
slæmt fyrir íslendinga því þá gæt-
um við líklega fengið tvihliða við-
skiptasamning við ESB og losnað úr
viðjum EES-samningsins sem við
álpuðumst til aö samþykkja með
Norðmönnum.
Tilskipanimar frá ESB gegnum
EES-samninginn eru þegar teknar
að draga ísland niöur að stöðnunar-
stigi ESB og um leið rýmar kjarkur-
inn og sjálfstæöisviljinn, samanber
skoðanakannanirnar, sem þó eru oft
marklausar, enda almenningur
rangt eða illa upplýstur.
Hættan ekki liðin hjá
Af viðbrögðum Norðmanna er
ljóst að Islendingar verða að fara að
gera ráðstafanir til þess að verjast
stórveldisdraumum ESB. Norðmenn
eru í verri aðstöðu eftir að bæði Sví-
ar og Finnar lentu í ESB. Finnamir
gátu ekki staðið á móti eftir að þeir
misstu Rússaviðskiptin við fall Ráð-
stjómarríkjanna og Svíamir voru
orðnir of hrjáðir af velferðarveiki
jafnaðarmennskunnar til að standa
á móti. Það gætu orðið áratugir
áður en ESB leysist upp.
Á meðan verða Islendingar að
tryggja sig. Það verður best gert
með því að styrkja EFTA og WTO og
gera betri viðskiptasamninga við
Bandaríkin, Kanada, Asíu- og Suð-
ur-Ameríkuríki - og efla og undir-
byggja viðskiptin við Rússana. Efna-
hagur þeirra þróast nú hratt. ís-
lensk fyrirtæki vinna þegar að
þessu.
Það þarf að gera skurk í að
styrkja þessa viðskiptauppbyggingu
með rikjasamningum, enda liggur
það beint við - hlutdeild ESB í
heimsviðskiptunum heldur liklega
áfram að þverra.
En fyrst þegar búið er að breyta
EES-samningnum í tvíhliða við-
skiptasamning og afnema tilskip-
anavald Brussel yfir íslandi verður
hægt að taka ESB-aðild endanlega
út af dagskrá.
-4-