Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2002, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2002, Síða 24
44 MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 2002 Tilvera dv R. Kelly með ungri stúlku R&B söngvarinn R. Kelly er kominn í hann krappan. Hann var fyrir skömmu handtekinn fyrir að framleiðslu á bamaklámi og að eiga kynmök við 15 ára gamla stúlku. Verður hann þar af leið- andi einnig kærður fyrir nauðg- un. Chigaco Sun-Times komst í febrúar síðastliðnum yfir mynd- band sem sýnir R. Kelly og um- rædda stúlku í heitum ástarlotum og er það bamaklámið sem hann er kærður fyrir að hafa gert. R. Keliy hefur þó staðfastlega neitað að vera maðurinn á umræddu myndbandi sem hefur farið um Netið eins og eldur í sinu. Verði hann sakfelldur gæti hann átt yfir höfði sér 15 ára fang- elsisvist. Nýjung Framþróun í eyrnagatagerð Hárgreiðslustofan | Klapparstíg i Sími 551 3010 | 12 ) 33 Alltaf á miðvikudögum Jókertölur mlðvlkudags 2 2 2 3 1 Ánægö með sýnlnguna Listunnendurnir Herdís Þorvaldsdóttir, Tinna Gunnlaugsdóttir og Egill Ólafs- son eru ekki vön aö láta sig vanta þegar stórsýningar eru annars vegar. Brosandi út að eyrum Kjell H. Havorsen, norski sendiherrann á íslandi, og Matthías Kristiansen þýöandi kunnu vel aö meta sumarsýninguna. Menningarsinnaöir þulir Dóra Ingvadóttir, Pálína Oddsdóttir og Hrafnhildur Jónsdóttir hafa allar veriö þulir hjá RÚV og þær skoluöu listinni niöur meö Ijúffengum drykk. Kvartett í stuði Kvartett Kára Ámasonar hélt tónleika í Stúdentakjallaranum síð- astliðið laugardagskvöld. Vel var mætt og þótti kvartettinn fara á kostum. Á efnisskránni voru meðal annars vel þekktir og minna þekkt- ir djassópusar eftir Wayne Shorter, Sonny Rollins og John Coltrane, svo einhverjir séu nefndir. Færri komust að en vildu svo að það væri ánægjulegt ef Kári og félagar héldu aðra eins uppákomu íljótlega. Maður og borg Margt var um manninn á opnun sumarsýningar Kjarvalsstaða síð- astliðinn fostudag. Að þessu sinni samanstendur sýningin af fígúratíf- um verkum í ýmsum miðlum úr eigu safnins þar sem viðfangsefniö er maðurinn i borginni og upplifun hans á borgarlandslaginu: götum og húsum og borgarlífinu; sambýlinu við annað fólk, samkennd, ein- manaleika, hópkennd og einstak- lingshyggju. Sýningin, sem nefnist Maður og borg, stendur til 25. ágúst. i syngjandi sveiflu Kvartett Kára Árnasonar trommuleikara hélt uppi mikilli stemningu i Stúdentakjallaranum. Meö Kára spila Siguröur Flosason á saxófón, Ómar Guöjónsson á gítar og Þorgrímur Jónsson á kontrabassa. Biógagnrýni Háskólabíó - Curse of the Jade Scorpion Ekki nógu dáleiðandi Allen ★ ★■i Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Sumir elska Woody Allen en aðr- ir skilja ekki hvað þessi rindilslegi, síkvartandi, taugatrekkti maður er að gera í kvikmyndum. Sumir sem elska hann halda mest upp á dramatísku myndimar hans sem byggja meira á persónusköpun en söguþræði, eins og Hanna og syst- umar, Manhattan og Annie Hall. Aðrir eru hrifnastir af gamanmynd- unum hans og vitna þá gjarnan í fyrstu myndirnar, eins og Take the money and run og Play it again Sam. Spurningin er hvort Allen finnist að hann hafi ekki sinnt gam- anmyndaaðdáendunum nægilega á undanfómum árum og það sé þess vegna sem hann einbeitir sér núna að kómík frekar en drama - því Curse of the Jade Scorpion leitar á sömu grínmiðin og síðasta mynd hans, Small Time Crooks. Curse of the Jade Scorpion gerist á Manhattan árið 1940 og Allen leik- ur sjálfur spæjarann C.W. Briggs sem vinnur fyrir tryggingafyrir- tæki. Hann hefur orð á sér fyrir að geta leyst erfiðustu mál og fengið allar konur í rúmið með sér - þang- að til Betty Ann Fitzgerald (Helen Hunt) er ráöin á skrifstofuna til að hagræða störfum og auka afköst. Henni fmnst aö Briggs og hans að- ferðir hefðu átt að deyja út með risaeðlunum þannig að þeirra sam- skipti eru vægast sagt eitmð. í vinnustaðapartii á veitingastað fær dávaldur óvinina tvo upp á svið, lætur þau falla í trans og fær þau til að tjá hvort öðru ást sína. En brand- arinn er ekki búinn þvi hann leysir þau aldrei alveg undan dáleiðslunni heldur hringir í þau, segir leyniorð- in og fær þau til að gera alls kyns kolólöglega hluti. Allen getur skrifað alveg óskap- lega fyndinn texta og samtöl. Rifr- ildi þeirra Hunt eru sum hver óborganlega fyndin og helst myndi maður vilja læra þau utan að og bauna á einhvem sem manni er illa við því það krefst listamanns að setja þvilikan dónaskap saman. Hunt er sannfærandi í hlutverki hinnar eitilhörðu Fitzgerald og deplar ekki auga þegar hún snarar út úr sér setningum eins og „hvað ert þú að gera hér, ormétandi skrið- dýrið þitt, drífðu þig út áður en þú færð hjartaáfalT. Hún minnir skemmtilega á kventöffara í kvik- myndum funmta áratugarins, eins og Rosalind Russel og Katharine Hepbum, með harðan skráp en mjúk eins og búðingur undir niðri. Dan Ackroyd er líka ágætur í hlut- verki eiganda tryggingafyrirtækis- ins og Charlize Theron er æðisleg sem hin forríka Laura Kensington sem verður smáskotin í Briggs. Svipmyndir úr ofurkrimmanum The Big Sleep koma upp í hugann þegar Theron tekur á móti Allen í náttslopp með viskíglas, eins og Bacall gerði við Bogart forðum. Með þeim eru leikaramir Brian Markin- son og Wállace Shawn sem trygg- ingasölumenn og David Ogden Sti- ers sem dávaldurinn ógurlegi, stað- góðir eins og enskur morgunverður. Sagan er ágæt þótt hún ríghaldi manni ekki allan tímann og Man- hattan á því herrans ári 1940 hefur sjaldan litið betur út. En þótt brand- aramir renni áfram á færibandi hlær maður ekki oft upphátt og það skiptir mann ekki öllu máli hvemig fer fyrir aðalpersónunum. Aðalgallinn við myndina er eigin- lega Allen sjálfur. Hann er á sjötugs- aldri, orðinn fullgamall til að leika rómantískt aðalhlutverk, og ég er þess fullviss að myndin hefði orðið sterkari ef t.d. Sean Penn, sem stóð sig svo frábærlega i Allen-myndinni Sweet and Low Down, hefði fengið að spreyta sig sem spæjarinn C.W. Briggs - áhorfendur hefðu örugg- lega farið dáleiddari heim. Lelkstjóri og handritshöfundur: Woody Allen. Kvikmyndataka: Zhao Fei. Aöal- leikarar: Woody Allen, Helen Hunt, Dan Aykroyd, Brian Markinson, Wallace Shawn, David Ogden Stiers, Charlize Theron.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.