Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2002, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2002, Qupperneq 28
# www.intersport.is VINTERSPORT m spokí Viðbótarlífeyrissparnaður á ■ Allianz(ííi)p FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ - Loforð er loforð y BÍLDSHÖFÐA SMÁRALIND s. 510 8020 s. 510 8030 Flóttamennirnir: Sóttu um hæli í Færeyjum Albönsku flóttamennimir firnm, sem voru sendir af landi burt með ferjunni Norrænu fyrir helgi, hafa “■fc nú beðið um pólitískt hæli í Færeyj- um, að því er færeyska útvarpið greindi frá í gær. Færeyska lögreglan beið eftir mönnunum á hafnarbakkanum í Þórshöfn þegar Norræna kom þar að landi á fóstudagsmorgun og hneppti þá þegar í varðhald. Þar sem málefni útlendinga eru í hönd- um danskra stjómvalda í Kaup- mannahöfn verða mennimir vænt- anlega sendir þangað í dag og hafð- ir þar í gæslu á meðan tekin er af- staða til beiðni þeii-ra um pólitískt hæli i Danaveldi. Albanamir komu til Seyðisfjarð- ar með Norrænu á fimmtudag og óskuðu eftir pólitísku hæli hér á ^ u landi. íslensk yfirvöld höfnuðu hins vegar ósk þeirra og sendu þá til baka með skipinu. Einn flóttamann- anna henti sér fyrir borð þegar Nor- ræna var á leið út Seyðisfjörð en áhöfn ferjunnar tókst að bjarga hon- um. -gb Kona slasaðist í Esjunni Kona féll í hlíðum Esjunnar og slasaðist á hendi og brjóstkassa rétt 3«öeftir hádegi á laugardaginn. Til- kynnt varð um slysið til neyðarlin- unnar rúmlega klukkutíma síðar og var þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF- LÍF, gert viðvart. Þyrlunni gekk erf- iðlega að athafna sig í fyrstu vegna ókyrrðar í lofti. Neyðarsveit slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kölluð út og hún færði konuna neðar i fjallið þar sem þyrlan gat at- hafnað sig. Konan var flutt á Sjúkrahús Reykjavíkur í Fossvogi og er hún á batavegi. Tiðindalítið í miðbænum Skemmtanalif Reykvíkinga gekk að mestu snurðulaust fyrir sig um helgina. Lögreglan í Reykjavík sagði vaktina hafa verið mjög ró- lega og aöeins fáein minni háttar vandamál komið upp. Þá voru þrír ökumenn teknir, grunaðir um ölv- un við akstur, auk þess sem ein minni háttar líkamsárás var til- kynnt lögreglunni. FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot. sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö i hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 SELFOSSI s.482 1000 MANUDAGUR 10. JUNI 2002 Sími: 533 5040 www.allianz.is Vísindamenn ÍE boða merka uppgötvun: Nákvæmt kort af erfðamengi Vísindamenn Islenskrar erfða- greiningar hafa lýst fyrsta nákvæma kortinu af erfðamengi mannsins og tilurð þess. Kortið er taliö það ná- kvæmasta sem gert hefur verið um erfðamengi mannsins, sem eru gen og litningar líkamans. Vísindatímaritið Nature Genetics fjallar um málið í júlíhefti sínu. Kári Stefánsson, forstjóri íslenskr- ar erfðagreiningar, var að vonum ánægður með árangur sinna manna í gærkvöld þegar DV ræddi við hann. „Þetta er myndarlegur áfangi í rannsóknum í mannerfðafræði og við erum mjög stolt af því að geta nú gert þetta kort aðgengUegt vísindamönn- um um allan heim,“ sagði Kári Stef- ánsson. Hann segir að kortið staðfesti hvers megnugir vísindamenn fyrir- tækisins séu. „Þetta erfðakort er næsta skref til að kortleggja nákvæmlega þann erfða- fræðilega breytileika sem gerir menn- ina svo margvíslega og með því hafa menn öðlast nýja og merkilega þekk- ingu á því hvemig erfðaupplýsingam- ar berast frá einni kynslóð til þeirrar næstu. Þetta er mjög mikilvægt til að geta fundið þá erfðavísa og stökk- breytingar sem hafa áhrif á sjúkdóma, annaðhvort með því að gera ákveðna einstaklinga líklegri en aðra til að fá sjúkdóma, eða með því að veita vöm gegn sjúkdómum," sagði Kári. Hann segir að með útgáfú erfðamengiskorts- ins sé verið að undirstrika forskot okkar í rannsóknum á erfðafræði al- gengra sjúkdóma. Markmiðið sé að finna sjúkdómsþætti og þróa nýja kynslóð lyfja og greiningarprófa. Talið er að tíðindin muni hressa við gengi fyrirtækisins sem verið hef- ur lágt að undanfómu. Gengi deCODE genetics á verðbréfamörkuðum í Bandarikjunum féll I 3,70 dali fyrir helgi. -JBP Sjá nánar á bls. 2 íslensk stjórnvöld hefta komu meðlima Falun Gong til landsins: Þetta er fullkomlega löglegt - segir Björn Friðfinnsson ráðuneytisstjóri Stjómvöld á íslandi hafa ákveð- ið að reyna að hefta för meðlima kínversku hreyfingarinnar Falun Gong hingað til lands í tengslum við heimsókn forseta Kina til ís- lands 13. júní. Vegabréfaeftirlit hefur veriö tekið upp á Keflavikur- flugvelli og þeir sem bera kínversk eða taívönsk vegabréf verða teknir sérstaklega til skoðunar. Þetta er gert af ótta við að meðlimir Falun Gong reyni að komast hingaö til lands gagngert til aö mótmæla þeg- ar forseti Kína kemur til landsins í opinbera heimsókn næsta fimmtu- dag. í yfirlýsingu, sem kom frá höfuð- stöðvum Falun Gong í New York, segir að með þessu séu íslensk stjómvöld að vinna með þeim Kín- veijum sem brjóta mannréttindi og kúga fijálsa hugsun meðal þegna í landinu. „Þetta em fullkomlega löglegar aðgerðir. Það eru mjög rúmar heimildir fyrir því að veita fólki ekki leyfi til að koma inn í landið og jafnvel vísa því úr landi, þó svo að það sé þegar komið inn í land- ið,“ segir Bjöm Friðfmnsson, ráðu- neytisstjóri dómsmálaráðuneytis- ins, um lagalegar forsendur fyrir aðgerðum stjómvalda. „Nýju út- lendingalögin hafa ekki enn tekið gildi en heimildin er til staðar í lögum frá 1965. Þetta er aðeins flóknara þegar um er að ræða fólk sem kemur frá Shengen-svæðinu en aðgerðimar em samt sem áður löglegar," segir Bjöm. Nánar um sögu Falun Gong á bls. 4. -áb Akurevri: Akureyi Sprenging í spennistöð Eldur kviknaði í spennistöð við Hvannavelli á Akureyri á laugar- dagskvöld og urðu íbúar í fjórum húsum á Eyrinni að yfirgefa híbýli sín um tíma vegna hættuástands. Sigurður Sigurðsson, varðstjóri hjá Slökkviliði Akureyrar, segir að reykurinn hafi verið baneitraður og því hafi menn ekki tekið neina áhættu. „Ég kom fyrstur á staðinn og var nýkominn þegar sprenging varð. Við vildum ekki leggja til at- lögu fyrr en búið væri að taka raf- magnið af öllu en þegar því var lok- ið vorum við eldsnöggir að slökkva eldinn," segir Sigurður. Óheppilegt er, að sögn varðstjórans, að spenni- stöð sé svo nálægt íbúðabyggð. Rafmagn fór af hluta Akureyrar í kjölfar brunans og varð töluvert tjón í spennistöðinni. -BÞ Ferðamaður í sjálfheldu Ekkert lát á blíöunni Mikil blíða var um allt land um helgina. Að sögn veðurfræðings á Veðurstofu íslans í gærkvöld verður ekkert lát á hlýindunum. Búast má við góðviðri nokkra daga í viðbót á öllu landinu. Mestu hlýindin voru á Vestfjöröum, Vesturlandi og Norðurlandi í gær og mældi Veðurstofan 22 stiga hita á fjölmörgum veðurathugunarstöðvum. Þessir ferðalangar nutu veöurblíðunnar á útikaffihúsi á Akureyri í gær. 27 ára gamall sænskur ferðamaður lenti í sjálfheldu í gærkvöld við foss- inn Glym í Botnsdal. Maðurinn var hálfnaður niður bjargið þegar hann lenti í sjálfheldu á syllu. Faðir hans var með í för og tókst að gera viðvart. Lögreglan í Borgarnesi kom fljót- lega á staðinn og björgunarsveitir voru látnar vita og þær settar í bið- stöðu meðan lögreglan talaði við manninn. Dauðaslys hafa orðið á þessu svæði þannig að lögregla hafði allan varann á. Maðurinn komst að lokum upp af sjálfsdáðum. Hann var mjög þrekaður og skelkaður en ómeiddur. -vig Víkurvegur opinn umferð að nýju Víkurvegur var opnaður að nýju í gærkvöld, eftir að hafa verið lokað- ur í viku vegna byggingar mislægra gatnamóta. Mikið umferðaröng- þveiti hefur myndast daglega á álagstímum umferðarinnar, og þá sérstaklega á morgnana, þegar fólk er á leið til vinnu, þar sem eina leið- in inn og út úr Grafarvogi hefur verið yfir Gullinbrú. En nú er fram- kvæmdum lokið og ætti því öll um- ferð að falla í ljúfa löð að nýju, enda komnar helmingi fleiri leiðir inn og út úr þessu 20 þúsund manna hverfi sem Grafarvogurinn er. -vig Talaðu við okkur um yíílasv MITCHELL 40% AFSLATTUR Sportvörugerðin hf. Skipholti 5, s. 562 8383 / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / /

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.