Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2002, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2002, Blaðsíða 1
r / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / DAGBLADID VÍSIR__________ 196. TBL. - 92. ÁRG. - FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2002 VERÐ í LAUSASÖLU KR. 200 M/VSK Tuttugu manna hópur sendur á ráðstefnuna í Jóhannesarborg: Kostar skattgreiðendur um hálfa milljón á dag íslenska sendinefndin á ráöstefnu Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem haldin er í Jóhannesar- borg í Suður-Afríku, er skipuð tuttugu fulltrúum; tveimur ráðherrum, fjórum þingmönnum, átta embættismönnum úr ráðuneytum, tveimur frá Reykja- víkurborg, einum sendiherra, tveimur frá fijálsum félagasamtökum og einum frá Þróunarsamvinnustofnun íslands. Hjá utanríkisráðuneytinu fengust þær upplýsingar að kostnaður við fór aðalskipuleggjanda fararinnar sé um 400 þúsund krónur fyrir þá 14 daga sem hann dvelst í Jóhannesarborg en um 250 þúsund fyrir þá 10 daga sem sendiherrann dvelst þar. Hjá Land- vemd er gert ráð fyrir að það kosti um 300 þúsund krónur að senda formann félagsins á ráðstefnuna, en för hans er fjármögnuð með styrk frá umhverfis- ráöuneytinu. Kostnaður við för hvors fulltrúa Reykjavíkurborgar er ríflega 430 þúsund krónur. Af þessum upplýsingum að dæma má gera ráð fyrir að kostnaður við för hvers og eins sé að jafnaði um 3-400 þúsund krónur. Eftir því sem næst verður komist er kostnaður allra greiddur úr opinberum sjóðum, utan að skrifstofa Alþingis telur að þrir þingmannanna ferðist á eigin kostnað. Samkvæmt því kostar hópurinn skatt- greiðendur fimm til sjö milljónir króna, eða að minnsta kosti hálfa milljón á dag þá tíu daga sem ráðstefn- an stendur. Talsverðar efasemdir hafa verið uppi um gagnsemi ráðstefnunnar. Hún hefur þannig verið uppnefnd „Ráðstefna hinna útvöldu" í fjölmiðl- um í Suður-Afríku og minnt er á erfið- leikana sem bæði Evrópusambandið og Bandaríkin valda fátækari ríkjum heims með hvers kyns viðskiptahindr- unum, einkum hvað varðar viðskipti með landbúnaðarafurðir. Alls verða fulltrúar á ráðstefnunni um sextíu þúsund og fuUyrt er að kostnaður við hana sé ekki undir tíu miUjörðum króna. Tryggvi Felixson, framkvæmda- stjóri Landvemdar, segist vona að ráð- stefnan stuðli að verulegum framför- um í umhverfisvemd og efnahagslegri veUerð fátækra í heiminum. Það dragi hins vegar nokkuð úr vonameistanum að Bandaríkin virðist ekki ætla að sirrna því leiðtogahlutverki sem þeim sé ætlað. Spurður hvort nauðsynlegt hafi ver- ið að senda svo stóran hóp svarar Tryggvi: „Ég efast ekki um að menn heföu sloppið fyrir hom með minna. En það þarf ákveðinn fjöida tU þess að geta fylgst með og sérstaklegá tU að geta rekið mál á borð við orkumál og málefni hafsins sem við íslendingar ætlum að vinna að á ráðstefnunni." Tryggvi undirstrikar mikilvægi þess að forsætisráðherra sæki ráðstefnuna; það séu skUaboð inn í íslenskt samfé- lag um mikUvægi málsins. íslensku sendinefndina skipa Davíð Oddsson forsætisráðherra og Siv Frið- leifsdóttir umhverfisráðherra; þing- mennimir Katrin Fjeldsted (D); Kol- brún HaUdórsdóttir (U); Kristján Páls- son (D) og Þórunn Sveinbjamardóttir (S); Þórir Ibsen frá utanríkisráðu- neyti; Magnús Jóhannesson, HaUdór Þorgeirsson og Hugi Ólafsson frá um- hverfisráðuneyti; Guðmundur Áma- son og IUugi Gunnarsson úr forsætis- ráðuneyti; Þorgeir örlygsson og Helgi Bjamason frá iðnaðarráðuneyti; Bjöm Dagbjartsson, sendiherra í Suður-Afr- íku, og Sighvatur Björgvinsson, fram- kvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofn- unar íslands; Ellý Katrín Guðmunds- dóttir, forstöðumaður Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkurborgar, og Kolbeinn Óttarsson Proppé, for- maður umhverfis- og heUbrigðisnefnd- ar Reykjavíkur; Ólöf Guðný Valdi- marsdóttir, formaður Landverndar, og Hjörleifur Guttormsson, formaður Náttúravemdarsamtaka Austurlands. -ÓTG Móðir og tveir synir létu lífið Fjórir palestínskir borgarar, þar af þrír úr sömu fjölskyldunni, móðir og tveir synir, 17 og 23 ára, létu lífið í skriðdrekaárás ísraelsmanna á þorpið Sheikh Ajli á Gaza-strönd í nótt. Að sögn sjónarvotta réðust ísraelar á þorpið í skjóli myrkurs á einum ellefu skriðdrekum með aðstoö árásar- þyrlna og munu fjórar sprengjur hafa lent á húsi al-Hajeen-f]ölskyldunnar þar sem fólkið lést. Sá fjórði sem lést var 20 ára gamaU gestkomandi frændi fjölskyldunnar. Þetta var önnur árás Israelsmanna á Gaza-svæðið á síðustu þremur dög- um og ein sú harðasta sem gerð hefur verið síðan yfirstandandi ófriður hófst fyrir nær tveimur árum, en fyrri árásin var gerð á þriðjudaginn af sjó. ísraelar drógu herlið sitt tU baka þegar leið á morguninn, en að sögn palestinskra yfirvalda var ekki hægt að huga að hinum særðu fyrr en her- liðið var horfið á brott, þar sem aUar aðkomuleiðir voru lokaðar. Á myndinni hér tU hliðar sjáum við palestínska sjúkraliða flytja særa landa sína á sjúkrahús í morgun. ■ NÁNARI UMFJÖLLUN Á BLS. 10 ENSKA ÚRVALSDEILDIN: Leeds tapaði óvænt HAUSTTÍSKAN í DV-INNKAUPUM: Grófar peysur og skinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.