Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2002, Blaðsíða 28
28
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2002
Sport
Lokaumferðin í motokrossi fer fram um helgina:
Hnífjöfn keppni
- átta stig skilja Qóra efstu menn
Lokaumferðin í KFC-DV-Sport ís-
landsmótinu i motokrossi fer fram
um helgina og hefur spennan sjald-
an eða aldrei verið meiri. Fjórir
ökumenn eru í einum hnapp á
toppnum og geta þeir allir tryggt sér
sigur samanlagt i síðustu umferð-
inni.
Einar Sigurðsson á KTM er efstur
fyrir lokaumferðina með 144 stig,
Viggó Öm Viggósson á TM er með
143 stig, Ragnar Ingi Stefánsson á
Kawasaki er með 142 stig og í fjórða
sæti Reynir Jónsson á Hondu með
136 stig. Það eru því aðeins átta stig
sem skilja fjóra efstu mennina að en
sigurvegarinn í lokaumferðinni get-
ur fengið alls 60 stig í sinn hlut.
Allir þessir fjórir kappar hafa ek-
ið mjög vel í sumar og verður fróð-
legt að fylgjast með þeim í síðustu
umferðinni.
Viggó Öm Viggósson keyrði mjög
vel í síðustu keppni og vann með
fullu húsi stiga en það hefur enginn
annar leikið eftir í sumar.
Mikilvægt aö eiga startiö
Einar Sigurðsson á KTM er boru-
brattur fyrir keppnina um helgina.
„Þetta er fin braut en hún er rosa-
lega drullug núna. Hún mun þó
batna fyrir helgina því að það á að
keyra meiri sand í hana. Ég ætla að
eiga startið en það er mikilvægt
núna í drullunni."
Viggó Öm Viggósson, sem keppir
á TM, hefur litlar áhyggjur af drull-
unni.
„Mér líst bara vel á að það sé
drulla í brautinni enda skemmti ég
mér sjaldan betur en þá. Þetta er
með skemmtilegri brautum og það
verður mikilvægt að fá gott start til
að fá hreina braut og góðar línur,“
sagði Viggó.
Ragnar Ingi Stefánsson, sem
keppir nú á Kawasaki, er varkárari
í yflrlýsingunum.
„Það er búið að rigna mikið sem
er frekar slæmt þegar keppnin er
svona jöfn. Þegar á líður keppnina
myndast djúp fór og því verður að
ná góðu starti svo maður fái ekki
drulluna frá öðrum yfir sig og geti
keyrt með hrein gleraugu.“
Reynir Jónsson, sem hóf keppni í
vor fyrir Honda, telur sig eiga
jafngóða möguleika og hinir.
„Ég tel mig eiga góða möguleika
um helgina enda gekk mér vel í
brautinni siðast og átti hröðustu
hringi, þannig að mig vantar ekki
hraðann í þessari braut. Svo er það
bara spuming um úthaldið og að
klára hvert mótó.“ -ósk/NG
Ragnar Ingi Stefánsson, fyrrum íslandsmeistari, veröur eflaust í sviösljósinu á Kawasaki-hjólinu sínu um helgina
þegar siöasta umferö íslandsmótsins í motokross fer fram á Selfossi. Ragnar er f þriöja sæti fyrir síöustu umferöina
en hann er aöeins tveimur stigum frá efsta manni, Einari Sigurössyni á KTWI. ----------*
Asgeir Böövarsson meö laxinn sem hann veiddi á bananafluguna sem
Þóröur Pétursson hnýtti, en hann hefur hnýtt flugur af stakri snilld fyrir mörg
fyrirtæki landsins. DV-mynd Magnús
Laxá í Aðaldal veik fyrir ákveðinni gerð af flugu:
Stenst ekki
bananafluguna
„Hún hefur gefið vel, flugan sem
Þórður Pétursson hnýtti fyrir Ban-
ana-fyrirtækið, enda eru litimir í
henni veiðilegir, gulur og blár,“
sagði Magnús Jónasson, en hann
var að koma af bökkum Laxár í Að-
aldal þar sem hann hefur leiðbeint
veiðimönnum i sumar.
Veiddi 19,6 punda fisk
„Ásgeir Böðvarsson veiddi 19,6
punda lax á þessa flugu og það var
fjörug barátta við fiskinn sem var
virkilega gaman að fylgjast með.
Laxinn tók Qugu númer sex.
Helgi Héðinsson var á svæði fjög-
ur fyrir skömmu og veiddi þar þrjá
laxa á þessa Qugu,“ sagði Magnús
Jónasson enn fremur í samtali við
blaðamann DV-Sport í gær.
Laxá í Aðaldal er að skriða í
sömu töluna og hún var i fyrra en
þá endaði áin í 1.042 löxum.
Meira af laxi en í fyrra
Veiðimenn sem DV hefur rætt við
segja að heldur meira sé af laxi í
Laxá en var fyrir ári.
Maðkurinn hefur verið bannaður.
Hann tíndi ekki upp nýja laxinn
sem gekk í ána í sumar fyrir neðan
Æðarfossa.
Það hefur verið nóg að gera hjá
honum Þóröi Péturssyni við að
hnýta Qugur fyrir fyrirtæki, milli
þess sem hann leiðbeinir veiði-
mönnum á árbakkanum í Aðaldal.
„Það hefur verið nóg að gera við
að hnýta Qugur fyrir fyrirtæki og
leiðbeina veiðimönnum,“ sagði
Þórður er við hittum hann við Laxá
fyrr í sumar þar sem hann var með
veiðimenn.
„Hann hnýtti Qugu fyrir okkur
hjá Ingvari Helgasyni og hún hefur
verið reynd víða í sumar, falleg
Quga,“ sagði Helgi Ingvarsson veiði-
maður í samtali við DV, en hann
hefur veitt i nokkrum laxveiðiám í
sumar með góðum árangri.
-G. Bender
Serena Williams í banastuði á Opna bandaríska
Bandaríska tennisdrottningin Serena Williams var í banastuöi á Opna bandaríska meistaramótinu í gær og vann
rússnesku stúlkuna Dinuru Safinu örugglega, 6-1 og 6-0. Reuters