Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2002, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2002
x>v
Fréttir
Landið meira eða minna sambandslaust í níu klukkustundir:
Fjármálamarkaður-
inn lamaðist
- Friðrik Skúlason ehf. flytur hluta starfsemi sinnar úr landi vegna ástandsins
Fjármálamarkaðurinn var lamaður
í allan gærdag vegna bilunar sem varð
í Cantat-3 sæstrengnum laust eftir
klukkan sex í gærmorgun. Engin við-
skipti voru með hlutabréf í Kauphöll
Islands, sem er háð fjarskiptum við
Svíþjóð vegna Norex-samstarfsins, og
engin gjaldeyrisviðskipti voru mögu-
leg á millibankamarkaði.
Landssíminn haíði ekki komið á
varasambandi um gervihnött íyrr en
laust eftir klukkan þrjú síðdegis í gær.
Tjón fyrir markaöinn
Björn Hákonarson á gjaldeyrisborði
íslandsbanka segir þetta klárlega hafa
valdið ijármálafyrirtækjunum tjóni,
enda hafi þau tekjur af viðskiptum með
hlutabréf og gjaldeyri. Heilsdagstekjur
Grafarvogur:
Brotist inn um
bjartan dag
Tveir nítján ára piltar brutust
inn i heimahús í Hamrahverfi í
Grafarvogi skömmu fyrir hádegi í
gær. Þegar lögreglan náði á staðinn
hlupu piltamir eins og eldibrandar
á brott en annar þeirra náðist á
hlaupunum. Hinn náðist svo á
vappi í hverflnu og veitti hann eng-
an mótþróa. Þegar verksummerki
voru skoðuð kom í ljós að þeir
höfðu brotið upp stormjám á glugga
og troðið sér þar inn. Eitthvert fát
hefur komið á strákana þvi þeir
skildu eftir töskuna með þýflnu.-jtr
af þessari starfsemi hafi þama fallið
niður. Velta með gjaldeyri á milli-
bankamarkaði sé að jaínaði um fjórir
milljarðar króna á dag.
Bjöm segir að tjón viðskiptavina
fjármálafyrirtækjanna sé erfltt að
meta; hugsanlega hafi einhveijir haft
hagsmuni af því að kaupa eða selja til-
tekin hlutabréf á þessum degi og óhætt
sé að fullyrða að lömun gjaldeyris-
markaðarins hafi komið sér illa fyrir
fyrirtæki sem stunda inn- eða útflutn-
ing og gátu ekki orðið sér úti um þann
gjaldeyri sem viðskipti þeirra kreQast.
„Þetta kom á mjög óþægilegum tíma
fyrir hlutabréfamarkaðinn þar sem
stór viðskipti höfðu orðið í gær með
hlutabréf í íslandsbanka og við hefðum
átt að sjá viðbrögð við þeim viðskipt-
um í dag,“ sagði Bjöm við DV í gær.
„Þetta var líka á slæmum tíma fyrir
gjaldeyrisviðskipti því eftir lokun i gær
[fyrradag] tilkynnti Seðlabankinn
hvemig hann hygðist standa að kaup-
um á gjaldeyri í varasjóði sína. Mark-
aðurinn túlkaði fréttimar frekar nei-
kvætt og í dag má segja að krónan hafi
veikst í kjölfarið, án þess að nokkur
viðskipti yrðu. Menn breyttu sem sagt
söluverðinu án þess að hægt væri að
láta reyna á það í viðskiptum og það
verður fróðlegt að sjá hvað gerist í
framhaldinu."
Netfyrirtæki flýja land
Bilunin í Cantat hafði víðar slæm
áhrif. Ýmis fyrirtæki eru háð því að
vera í stöðugu netsambandi við er-
lenda viðskiptavini. Friðrik Skúla-
son ehf. síar til dæmis tölvuveirur
Helgi lagði Hannes
Þaö bar til tíðinda á Skákþingi íslands í gær að Helgi Áss Grétarsson lagði
Hannes Hlífar Stefánsson að velli og hleypir með því smáspennu í toppbar-
áttuna. Þá náði Bragi Þorfinnsson þriðja og síöasta áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli með sigri á Sævari Bjarnasyni. Bragi þarf nú að ná 2.400 skák-
stigum til að fá titilinn. Fyrir mótið hafði hann 2.362 skákstig og hefur hækk-
aö um 24 stig. Hannes er efstur með 8 vinninga þegar tveimur umferðum er
ólokið, Helgi annar með 6,5 vinninga og Bragi þriðji með 6 vinninga. Tíunda
og næstsíðasta umferð verður tefld á morgun. Teflt er í hátíðarsal íþrótta-
húss Gróttu á Seltjarnarnesi og eru áhorfendur velkomnir á keppnisstað á
meðan húsrúm leyfir.
AGFA^p fyriraugað
FILMUR & FRAMKOLLUN
STÆKKUM
SETJUM Á GEISLADISKA
YFIRUTSMYND FYLGIR FRÍTT MEÐ
Gæða framköllun HEIMSMYNDIR
...mmmmmmmmmmmmmm.;... i ■■ in i.,
Smiðjuvegi 11,- gul gata -, 200 Kópavogur, sími 544 4131.
„Oþolandi ástand"
Friðrik Skúlason, sem er háður því að geta veitt erlendum fyrirtækjum þjón-
ustu á Netinu, ætlar að flytja hluta starfseminnar úr landi vegna þess hve
ótryggt netsambandið er við útlönd.
úr tölvupósti margra erlendra stór-
fyrirtækja, en getur ekki fylgst með
þjónustunni á meðan Netið liggur
niðri.
Friðrik Skúlason gagnrýnir
ástandið harðlega: „Meðan netsam-
band við útlönd er jafn óstöðugt og
raun ber vitni geta fyrirtæki sem
eiga allt sitt undir að geta veitt þjón-
ustu til erlendra fyrirtækja í gegn-
um Netið á engan hátt staðið undir
þeim væntingum sem til þeirra eru
gerðar. Rökrétt afleiðing þessa er að
fyrirtæki í þekkingariðnaði flytjast
eitt af öðru úr landi svo þeim sé
kleift að standa undir væntingum
erlendra viðskiptavina," segir Frið-
rik og bætir viö að fyrirtæki hans
sé að undirbúa að flytja hluta starf-
seminnar úr landi vegna þessa.
Þá olli bilunin mikilli röskun á
starfsemi í flugstjórnarmiðstöðinni
í Reykjavík. Þó þurfti ekki að tak-
marka flugumferð um íslenska flug-
stjórnarsvæðið fyrir utan minni
háttar takmörkun á umferð á Kefla-
víkurflugvelli í gærmorgun.
„Teleglobe að kennau
Sem fyrr segir kom Landssíminn
ekki á varasambandi um gervihnött
fyrr en síðdegis í gær. Íslandssími
hf. kom hins vegar á varasambandi
um klukkan hálf ellefu um morgun-
inn, sem þýðir að viðskiptavinir
þess fyrirtækis komust í samband
við umheiminn um það leyti.
Heiðrún Jónsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Landssímans, segir fyrir-
tækið engan veginn geta sætt sig
við að það skyldi taka níu klukku-
stundir að koma á fullnægjandi
varasambandi um gervihnött, en
Landssíminn sé háður tæknimönn-
um annars fyrirtækis um varasam-
bandið. Þetta er kanadíska fyrirtæk-
ið Teleglobe, sem jafnframt sér um
rekstur Cantat-3 strengsins.
„Við ákváðum strax um morgun-
inn að óska eftir varasambandi og
munum kanna í framhaldinu hvers
vegna það tók Teleglobe svo langan
tíma að koma því á,“ segir Heiðrún
og bætir við að Teleglobe eigi í fjár-
hagskröggum, sé raunar í greiðslu-
stöðvun, og kannað veröi hvort það
hafi ekki lengur burði til að sinna
þessari þjónustu.
íslensku fjarskiptafyrirtækin
ætla að fjárfesta í nýjum sæstreng
ásamt Færeyingum og er stefnt að
því að lagningu hans verði lokið
áður en næsta ár er úti. Áætlaður
kostnaður er um sex milljarðar
króna en Heiðrún telur að vinnu
við nýja strenginn verði hraðað í
ljósi atburða gærdagsins. -ÓTG
Sala Orcahópsins á hlut íslandsbanka:
Bar mjög brátt að
- lokahnykkur á væringaferli og valdabaráttu
Söluna á ríflega fimmtungshlut
Orca-hópsins í íslandsbanka bar að
með mjög bráðum hætti samkvæmt
öruggum heimildum DV.
Væringar hafa verið um
skeið innan bankans sem
rekja má til mála, tengdra
Tryggingamiðstöðinni, og
valdabaráttu en með söl-
unni er endanlegt skref
stigið.
„Það er nýtilkomið að
þeir skyldu ákveða að
bakka út,“ segir heimildar-
maður DV úr innsta hring
en Bjami Ármannsson, forstjóri ts-
landsbanka, segist ekki geta tjáð sig
um aðdraganda viðskiptanna eða
hvort sexmenningamir sem selja
nú hafi hagnast á viðskiptunum.
Hlutur sexmenninganna verður
brátt boðinn út og mun almenning-
ur fá kost á að kaupa einhvem
hluta. Bjami segir ekki ákveðið hve
hátt hlutfall verði boðið til almenn-
ings að svo stöddu.
Ekkert hámark hefur verið á eign
í íslandsbanka til þessa og
stendur ekki til að breyta
því en Bjami segir að við
fyrirhugaða sölu nú á hlutn-
um, sem losar rúma 11 millj-
arða, muni bankinn leitast
við að tryggja dreifíngu.
„Við munum miða viö það í
okkar sölu að ná fram meiri
breidd í hluthafahópnum og
hyggjumst ná því á næstu
vikum og mánuðum. En
hvað svo verður er ekki i okkar
höndum. Við munum ekki setja
neinar reglur eða takmarkanir um
það,“ segir Bjami.
„Þetta skref hefur engin áhrif á
eiginlega starfsemi bankans heldur
er það einfaldlega hlutverk okkar að
vinna að svona eignasölu," segir
Bjami. -BÞ
Bjami Ármanns-
son
Fær mestan kvóta
Samherja hf. á Akureyri hefur
verið úthlutað mestum kvóta á nýju
fiskveiöiári sem hefst um næstu
mánaðamót. Fiskistofa hefur sent
útgerðarfyrirtækjum veiðileyfi og
tilkynningar um aflaheimildir. Það
skip sem fær mestan kvóta að þessu
sinni er Kaldbakur EA, skip Útgerð-
arfélags Akureyringa.
Nýbrauð hættir
Nýbrauð í Mosfellsbæ hættir
framleiðslu um næstu mánaðamót.
Öllu starfsfólki, 20 manns, hefur
verið sagt upp störfum. Fyrirtækið
var lýst gjaldþrota í júní sl. Ný-
brauð hafa einkum selt sín brauð í
Bónusi en í gær ákvað síðamefnda
fyrirtækið að beina viðskiptum sín-
um annað. Framkvæmastjóri Ný-
brauða sagði í samtali við mbl.is að
þá hefði verið sjálfhætt.
Opna eftir bruna
Verslanir í Fákafeni eru óðum að
komast aftur í gang eftir stórbrun-
ann sem varð í Teppalandi þann 7.
ágúst sl. Húsgagnaverslunin Exó og
innrömmunarverslunin Miró ráð-
gera að opna aftur á mánudag og
Teppaland á þriöjudag. Saumalist
opnar hins vegar fyrir helgina en á
öðrum stað, Síðumúla 15.
Sjómönnum fækkar
Rúmlega 100 sjómenn eru nú á
starfssvæði Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavikur, samanbor-
ið við 229 á sama tíma í fyrra.
Enn uppsagnir hjá OZ
Fjarskiptafyrirtækið OZ sagði í
gær upp átta starfsmönnum á skrif-
stofu fyrirtækisins í Reykjavík. Að-
eins sex starfsmenn eru eftir hjá OZ
hérlendis en meginstarfsemi fyrir-
tækisins hefur veriö flutt til Montr-
eal í Kanada. Guðjón Már Guðjóns-
son, stjórnarformaður OZ, sagði í
samtali við RÚV í gær að aðgerðim-
ar væru til þess fallnar að styrkja
starfsemina í Kanada.
Hækka ekki strax
Hækkun á heimtaugaleigu hefur
verið frestað til 1. desember. Land-
síminn tilkynnti þetta formlega í
gær en heimtaugaleiga nemur 75%
af fastagjaldi sem fólk greiðir vegna
heimilissíma. Frestun hækkunar-
innar er vegna tilmæla Póst- og fjar-
skiptastofnunar.
ísland lítt spillt
ísland telst til minnst spilltu ríkja
heims. Þetta kemur fram í skýrslu
Transparency Intemational. Norð-
urlöndin em í efstu sætum; ísland í
því flórða. -aþ
f ókus
Á MORGUN
Lukkudýrið
I Fókus, sem fylgir
DV á morgun, er rætt
við ungan kvenna-
skólanema, sem hefur
unnið sér helst til
frægðar að klæöa sig
upp sem rauða ljónið
á heimaleikjum KR.
Hilmar Guðjónsson
hefur annars haft það fyrir stafni í sum-
ar að æfa leikrit sem er samvinnuverk-
efhi nokkurra framhaldsskóla á höfuð-
borgarsvæðinu. Þá er rifjuð upp saga
bolsins og nokkrir þekktir einstaklingar
fengnir til að velja sinn uppáhaldsbol.
Rætt er við Gerði Kristnýju Guðjóns-
dóttir sem hefur skrifað bók um þjóðhá-
tíðina í Eyjum og fór Fókus á stjá í
Verzló þar sem hausttíska nokkurra
nemenda var tekin fyrir. Leiðarvísir um
skemmtana- og menningarlífið má svo
finna á sínum vanalega stað.