Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2002, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2002, Síða 11
11 FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2002 X>v _______________ Útlönd Andstaða Sádi- araba er fyrirlitleg - segir Ken Adelman, helsti ráðgjafi Donalds Rumsfelds Ken Adelman, fyrrum aðstoðar- framkvæmdastjóri bandaríska þjóð- aröryggisráðsins og núverandi ráð- gjafi Donalds Rumsfelds, vamar- málaráðherra Bandaríkjanna, hefur lýst fyrirlitningu sinni á andstöðu Sádi-araba við fyrirhugaðar hemað- araðgerðir gegn Saddam Hussein íraksforseta. Þetta kom fram í við- tali hans við BBC-fréttastofuna í gær og sagðist Adelman telja að all- ir helstu bandamenn Bandaríkja- manna myndu styðja fyrirhugaðar aðgerðir þegar á reyndi. Aðspurður um ummæli prins Saud al-Faisal, utanríkisráðherrá Sádi-Arabíu í gær, þar sem prinsinn hélt því fram að tilraun til að koma Saddam frá völdum myndi aldrei takast og að það ætti að vera ákvörðun írösku þjóðarinnar hver stjómaði landinu, sagði Adelmann að Sádar óttuðust aðeins öflugt og traust riki íraka eftir Saddam. „Þeir óttast í raun að fá sterkt Donald Rumsfeld Ken Adelman, helsti ráögjafi Rumsfelds, er haröoröur í garö Sádi-araba. lýðræðisríki sem nágranna. Ríki sem er opið, ríkt af olíu og með já- kvæða framtíðarsýn,“ sagði Adel- mann Þær fréttir bárust frá Bretlandi í gær að þarlend stjómvöld hug- leiddu nú að setja írökum algjöra úrslitakosti varðandi kröfur Örygg- isráðs Sameinuðu þjóðanna um vopnaeftirlit í landinu en í yfirlýs- ingu frá bresku ríkisstjóminni í gær kom ekki fram hver viðbrögð Breta yrðu ef írakar yrðu ekki við kröfum ráðsins. Ónefndur embættismaður í Hvíta húsinu sagði í viðtali við Reuters- fréttastofuna í gær að bandarísk stjórnvöld myndu gera allt til að koma Saddam frá völdum, hvort sem vopnaeftirlit yrði leyft eða ekki. „Stjórnarskipti í landinu em ekki aðeins nauðsynleg vegnavopnamáls- ins,“ sagði embættismaðurinn og bætti við að Saddam væri einnig hættulegur stuðningsmaður hryðju- verkaaflanna í heiminum og af hon- um stafaði mikil ógn á svæðinu. REUTERS-MYND Króksi horfir á sjónvarpið Tíu ára gamall taílenskur skóladrengur, Wattana Thongjon, á heldur óvenjulegt gæludýr, rúmlega meterslangan krókódíl sem, hefur fengið nafniö Kheng. Hér má sjá Wattana og fööur hans, ásamt króksa, heima í stofu aö horfa á sjónvarpið. Faöirinn fann krókódílinn nýfæddan í tjörn einni fyrír þremur árum. Fulltrúum á ráðstefnu SP kippt niður á jörðina: Nelson Mandela dregur upp dökka mynd af þorpinu sínu Nelson Mandela, fyrrum forseti Suður-Afríku, kippti fulltrúum á umhveríisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Jóhannesarborg niður á jörðina í gær þegar hann lýsti öm- urlegum aðstæðum í gamla heima- þorpinu sínu í Austur-Höfðahéraði. „Þegar ég fer heim, eins og ég geri oft, til sveitaþorpsins og hér- aðsins þar sem ég ól aldur minn sem bam og unglingur tekur það mig sárt aö horfa upp á fátækt fólks- ins og eyðileggingu umhverfisins," sagði hinn 84 ára gamli Mandela um þorpið sitt, Qunu. „Það sem veldur mestum sárs- auka er skorturinn á hreinu vatni,“ sagði forsetinn fyrrverandi þegar hann opnaði sýningu um leiðir til að útvega fátækum bæjarfélögum hreint vatn. Það er einmitt eitt af REUTERSTUYND Mandela mlnnlr á þorplð sitt Nelson Mandela, fyrrum forseti Suöur-Afríku, talaöi um fátækt í bernskuþorpinu sínu í gær. helstu umræðuefnum ráðstefnu SÞ þar sem tugir þjóðarleiðtoga og tug- þúsundir fulltrúa funda fram í næsta mánuð. Annað helsta mál ráðstefnunnar er hvemig draga megi úr fátækt í heiminum um helming fyrir árið 2015 án þess að valda tjóni á um- hverfmu og þar eru ríkir og fátækir ekki á eitt sáttir um leiðir. Eitthvað miðaði í rétta átt í gær en hins vegar mættust stálin stinn þegar niðurgreiðslur til bænda á Vesturlöndum voru annars vegar. Slíkar niðurgreiðslur takmarka eða koma í veg fyrir innflutning land- búnaðarafurða frá Afriku og Asiu. Um tvö hundruð fátækir bændur frá nágrannahéruöum Jóhannesar- borgar mótmæltu á götum úti í gær og kröfðust aukins verslunarfrelsis. Lokaumferðin > EFTIRLYSTIR!!! * KOMIÐ OG SJÁIÐ ÞESSA MENN SLÁST TIL SÍÐASTA BLÓÐDROPA UM íslandsmeistaratitilinn!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.