Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2002, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2002, Qupperneq 35
4 fimmtudagur IJ 19/9 •Kr ár MTónleikar á Kringlukránni Þóra Jónsdóttir og Pétur Þór Benediktsson halda tónleika á Kringlukránni í kvöld. Þau eru tónlistarnemar sem eru að prófa nýja en þó gamla hluti. Á efnisskránni eru m.a. lög eftir Neil Young, Tom Waits, Tori Amos, Lennon og Mc Cartney og reyna þau að setja eigin svip á lögin. Tónleikarnir hefjast kl. 22. BBuff á Gauknum Hinir eldhressu og þrælskemmtilegu strákar í Buffi spila á Gauki á Stóng í kvöld milli kl. 21 og 1. Pétur, Hannes og Beggi í þanastuði. •Klassík ■Á leið til Vesturheims Ingveldur Ýr söngkona og Guðriður St. Sigurð- ardóttir píanóleikari eru á förum til Kanada í lok septembermánaðar. í tilefni þess munu þær halda tónleika ! Tíbrá-tónleikaróðinni i Salnum í Kópavogi kl. 20.00. Tónleikana nefna þær „Á leið til Vesturheims" en þar flytja þær m.a. kanadísk lög eftir tónskáldið Jean Coulthard við Ijóð Haida indíana; þekkt lög eftir Sibelius; lagaflokkinn Haugtussa eftir Grieg og nýleg íslensk lög eftir ýmsa höfunda, auk blöndu af frönskum kabarettlögum. Tónleikaferðin til Kanada er skipulögð af Þjóð- ræknisfélagi Islendinga í Norður-Ameriku og hefur fengið myndarlegan stuðning ýmissa að- ila. Þær stöllur munu ferðast um íslendinga- byggöir í Kanada og halda tónleika með fjöl- breyttri dagskrá íslenskra og evrópskra laga i öllum helstu borgum vestanhafs auk Minnea- polis í Bandarikjunum. Þá munu þær jafnframt vera með sérstakar dagskrár fýrir nemendur á leikskóla- og grunnskólaaldri þar sem þær kynna islenska tónlist auk þess sem þær verða með fyrirlestur við háskólann í Man- itoba. •Leikhús ■Fullkomitt brúftkaup Framhaldsskólasýningin Fullkomið brúðkaup er sýnd í Loftkastalanum kl. 20 í kvöld. Hér er á ferðinni dúndurfarsi sem fjallar um vand- ræði brúðguma sem er á leið upp að altarinu. Það er Magnús Geir sem leikstýrir hópnum sem er settur saman af rjómanum af leiklist- arlífj framhaldsskólanna. Pör í giftingarhug- leiðingum ættu ekki að láta þessa sýningu fram hjá sér fara. Miðasala i sima 5523000. ■Gesturinn í kvöld kl 20 sýnir Borgarleikhúsið verkið Gestinn á litla sviðinu. Á þessari vitfirttu en al- varlegu nótt reynir Freud að átta sig á hinum furðulega Gesti. Trúleysinginn Freud sveiflast Talsvert hefur verið rætt og ritað um frumburð hljómsveitarinnar Leaves sem kom út ó dög- unum. Sumir vilja meina aó Breathe sé úrvalsplata en aórir segja hana einfaldlega eftiröp- un á því sem veriö hefur í gangi í breskri tónlist síóustu ár. Nú gefst þér tækifæri til aó leggja dóm á þetta því Leaves halda útgáfutónleika í kvöld. Útgáfutónleikar Leaves á Nasa í kvöld Frumburður Leavés, Breathe, kom út hér á landi í byrjun mán- aðarins. Hafa íslenskir plötu- kaupendur strax tekið henni vel og fór platan í þriðja sæti sölu- listans í fyrstu vikunni. Lögin Breathe, Race og Catch hafa þar hjálpað talsvert til enda hafa þau fengið að hljóma talsvert í ís- lensku útvarpi undanfama mán- uði. Næsta smáskífa af plötunni er Silence og kemur hún út 28. október. Stór túr um Bretland og Evrópu Undanfarna mánuði hefur Lea- ves verið dugleg við tónleikahald víða um heim. Þeir piltar eru hvergi nærri hættir og framund- an er stór túr um Bretland og Evrópu. Þar eru þeir aðalnúmer- ið á öllum tónleikum. Leaves byrja í Liverpool og færa sig svo yfir til Newcastle, Edinborgar, Middlesborough, Leeds, ShefEI- eld, Manchester, Bristol og enda svo í London. Þá fara þeir yfir til Skandinav- íu og spila í Osló og Stokkhólmi þaðan sem þeir fara til Þýska- lands og leika á þrennum tón- leikum. 8. nóvember leika Lea- ves í Kaupmannahöfn þar sem íslendingar fjölmenna væntan- lega, daginn eftir fara þeir til Amsterdam, þá Parísar og svo enda þeir í Brussel. Koverlag í kvöld? Útgáfutónleikar Leaves verða svo haldnir á Nasa í kvöld. Hús- ið opnar klukkan 21 og er forsala í verslun Japis á Laugavegi. Miðaverð er 2.000 krónur og seg- ir í fréttatilkynningu að tak- markað magn af miðum verði í boði. Öruggt má telja að hljóm- sveitin renni í gegnum plötuna eins og hún leggur sig I kvöld og hver veit nema áhorfendur verði gladdir með eins og einu kover- lagi en þeir piltar hafa nokkrum sinnum verið staðnir að því áður. Strákarnir í Leaves kynna plötuna sína fyrir landanum á útgáfutónleik- um á Nasa í kvöld. á milli þess að halda að hann standi frammi fyrir Guð og grunsemda um að gesturinn sé geðsjúklingur sem sloþþið hefur af geðveikra- hæli þá um kvöldið. Höfundur er Eric - Emmanuel Schmitt en helstu leikendur eru þau Gunnar Eyjólfsson, Ingvar E. Sigurðsson, Jóna Guðrún Jónsdóttir og Kristján Franklin Magnús. Leikstjóri er Þór Tulinius en miða- pantanir fara fram í síma 568 8000. ■Beyglur með öllu Leikverkiö Beyglur með öllu verður sýnt í Iðnó í kvöld, kl. 21. Það er tilvalið að skella sér á Tjarnarbakkann á undan þar sem boðið er upp á sérstakan beyglumatseðil. Miðaþantanir í síma 5629700. Hér er á ferð kvennahúmor eins og hann gerist bestur i boði Skjallbanda- lagsins. ■Sellófon Sellófon er kærkomin innsýn inn I daglegt líf Elinar sem hefur tekið að sér það hlutverk í líf- inu að halda öllum hamingjusömum, nema ef til vill sjálfri sér. Á gamansaman hátt er skyggnst inn i líf Elínar sem er tveggja barna móðirí ábyrgðarstöðu hjá tölvufýrirtæki á milli þess sem hún tekur til sinna ráða til þess að viðhalda neistanum í hjónabandinu. Björk Jak- obsdóttir er handritshöfundur en hún er jafn- framt eini leikarinn í sýningunni. Verkið er sýnt i Hafnarfjarðarleikhúsinu í kvöld kl 21. Upp- selt er á sýningu kvöldsíns. •Opnanir ■Hildur i Gallerí Gangur Hildur Bjarnadóttir opnar sýningu í Gallerí Gangur, Rekagranda 8. Opnunarathöfnin er milli kl. 17 og 19. Sýningin nefnist „The Yarn Twirel". ■Upplifun í Kringlunni Kl. 19 verða opnaðar i Kringlunni tvær sýning- ar á verkum fimm listamanna. Hér er annars vegar um að ræða skúlptúrsýningu Gerðar Gunnarsdóttur, Guðrúnar Oyahals, Ingu Elínar Kristinsdóttur og Sörens S. Larsen og hins vegar sýningu Péturs Gauts Svavarssonar á nýjum olíumálverkum. Sýningarnar eru hluti af dagskrá þemadaga í Kringlunni, Upplifun n Hönnun, lífsstill, tíska og munu verkin standa á mismunandi stöðum í Kringlunni. Þaö er Gallerí Fold i Kringlunni sem stendur aö sýningunni. Guðrún 0yahals er verslunar- stjóri gallerisins í Kringlunni en hún á jafn- framt verk á sýningunni Upplifun í Kringlunni lýkur þann þann 29. sept- ember. Verkin á sýningunni eru öll til sölu. •Fyrir börn ■Foreldramorgnar Foreldrarmorgnar í Bústaðarkirkju hefjast á ný í dag og eru milli kl. 10 og 12 í umsjón Lovísu Guðmundsdóttur. | — í f* 1 m L ! ™ 1 •Fundir og fyrir- lestrar ■Origins of autobiographical memory Á vegum sálfræöiskorar Háskóla íslands flytur Katherine Nelson, Ph.D., prófessor viö New York háskóla, erindið: Origins of autobiograp- hical memory. Þar verður meöal annars fjallað um þróunarfræðilegan og menningafræðileg- an mun á starfsemi minnis. Katherine Nelson hefur langan og glæsilegan feril að baki í rann- sóknum í sálfræði og árið 1999 hlaut hún við- urkenningu fyrir rannsóknarstörf sín frá Soci- ety for Research in Child Development. Hún hefur einnig verið ritstjóri og setið í ritsjórn timarita á borð við Cognitive Development, Child Development og Developmental Psychology. Fyrirlesturinn verð- ur haldinn kl. 16.30 til 17.30 í hátíðasal Há- skóla íslands, Aöalbyggingu, og er öllum op- inn. |£°kusa. Ifokus-is StendurþlJ fyrir^ einhverjuy

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.