Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2002, Blaðsíða 8
8
Útlönd
MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2002
T-fcV
Tvísýnustu kosningar í Þýskalandi frá stríðslokum:
Schröder áfram í
kanslarastólnum
REUTERSMYND
Schröder ánægöur
Gerhard Schröder Þýskalandskanslari getur verið ánægður með að hann
mun áfram sitja í ríkisstjórn. Samsteypustjórn jafnaðarmanna og græningja
fékk nauman þingmeirihluta í kosningunum í gær.
REUTERSMYND
Vatnselgur á Kúbu
Mikill vatnselgur var á vestanverðri
Kúbu um helgina eftir að fellibylur-
inn ísidór fór þaryfir án þess aö
valda manntjóni.
Tugir þúsunda
flýja fellibylinn
Sjötiu þúsund íbúar á Yucatan-
skaga í Mexíkó þurftu að flýja heim-
ili sín í gær undan fellibylnum ísi-
dór sem fór þar yfír með úrhellis-
rigningu og stormi. Skaginn er
þekktur fyrir fomar rústir frá tíma-
bili Maya og baðstrandarbæi sína.
Vitað er að ijórir fórust í umferð-
arslysum á Yucatan sem rekja má
til veðurofsans í gær.
ísidór fór yfir vestanverða Kúbu
um helgina og hófu íbúarnir þar
hreinsunarstarf í gær. Ekkert
manntjón varð og áhrif feliibylsins
á bágborinn efnahag Kúbu munu
vera fremur lítil.
Rökrétt að hafna
nýrri ályktun SÞ
írösk stjómvöld sögðu í gær að
með ákvörðun sinni um að hafna
öllum nýjum ályktunum Öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna væru þau
ekki að bjóða umheiminum birginn,
heldur væri það rökrétt afstaða sem
meirihluti aðildarríkja ráðsins
deildu með þeim.
Bandaríkin og Bretland hafa auk-
ið þrýsting sinn á Öryggisráðið um
að samþykkja nýja harðorða álykt-
un um írak áður en vopnaeftirlits-
menn færu aftur til Bagdad í leit að
gjöreyðingarvopnum.
írakar hafa aftur á móti heitið því
að setja sig upp á móti öllum álykt-
unum sem væru í andstöðu við sam-
komulag sem þeir hafa gert við Kofi
Annan, framkvæmdastjóra SÞ. Ekki
greindu þeir þó frá þvi hvað fólst í
umræddu samkomulagi.
Gerhard Schröder Þýska-
landskanslari og Joschka Fischer,
utanríkisráðherra hans, sögðu i
nótt að þeir myndu halda áfram
samstarfl jafnaðarmanna og græn-
ingja og að stjómarmyndunarvið-
ræður myndu hefjast fljótlega.
Schröder og Fischer, með hand-
leggi um axlir hvor annars, sögðu
ofsakátum stuðningsmönnum sín-
um i Berlín að þeir ætluðu að halda
samstarfi sinu áfram eftir að kosn-
ingaspár sýndu fram á að kratar og
græningjar myndu ná naumum
þingmeirihluta eftir þingkosning-
arnar í gær.
„Við munum leiða stjómarmynd-
unarviðræðumar,“ sagði Fischer.
Schröder ljómaði þegar hann
sagði stuðningsmönnum sínum að
samvinna flokkanna yrði byggð á
sameiginlegum grunni. „Hún verð-
ur sanngjöm," sagði kanslarinn.
Spáir ekki langlífi
Edmund Stoiber, kanslaraefni
ihaldsmanna í Þýskalandi, spáði því
í nótt að ríkisstjóm jafnaðarmanna
og græningja undir forystu Ger-
hards Schröders kanslara myndi
ekki endast árið. Þar með játaði
hann óbeint ósigur sinn.
„Ef við getum ekki myndað ríkis-
stjórn mun stjórn Schröders aðeins
geta stjórnað í mjög skamman
tíma,“ sagði Stoiber við stuðnings-
merm sína í Múnchen. Góður rómur
var gerður að máli hans.
Stoiber spáði þvi að ríkisstjórn
krata og græningja, með mjög
nauman þingmeirihluta á bak við
sig, yrði mjög völt í sessi.
„Innan árs mun ég mynda nýja
ríkisstjóm," sagði Stoiber.
Kosningamar í gær voru þær tvi-
sýnustu í Þýskalandi frá stríðslok-
um. Þegar eftir að fyrstu útgöngu-
spár birtust lýstu bæði Schröder og
Stoiber sig sem sigurvegara. Sam-
steypa kristilegu flokkanna, undir
forystu Stoibers, jók fylgi sitt um
fjögur prósentustig og fékk aðeins
meira en jafnaðarmannaflokkur
Schröders. Kristilegir og Frjálsir
demókratar fengu hins vegar ekki
meirihluta á þingi. Stoiber sagði að
engu að síður væri hann siðferðileg-
ur sigurvegari kosninganna.
Veikara Þýskaland
Þegar ljóst var hvemig rúmlega
níutíu prósent þingsætanna höfðu
fallið spáði sjónvarpsstöðin ARD
því að jafnaðarmenn og græningjar
fengju 305 þingmenn en kristilegir
og bandamenn þeirra 294. Sjón-
varpsstöðin ZDF spáði 'stjórnarlið-
inu 307 mönnum kjörnum en kristi-
legum 296.
Kristilegu flokkamir bættu við
sig rúmlega þremur prósentustigum
en kratar töpuðu rúmlega tveimur
prósentustigum. Græningjar bættu
aftur á móti við sig tæpum tveimur
og gerði það gæfumuninn fyrir
stjórnarflokkana.
Gerhard Schröder sagði við
stuðningsmenn sína að það væri
sársaukafullt að tapa fylgi og að
hann tæki á sig ábyrgðina.
Alþjóðlegir fréttaskýrendur sögðu
að Þýskaland væri veikara í kjölfar
kosninganna og að þörf væri á að
bæta hið fyrsta samskiptin við
Bandaríkin. Andstaða Schröders
við fyrirhugaðar stríðsaðgerðir
Bandaríkjamanna í írak hafa spillt
mjög fyrir samskiptum ríkjanna
tveggja.
Fréttaskýrendur sögðu að naum-
ur meirihluti gerði stjórninni erfið-
ar fyrir um að hrinda í framkvæmd
brýnum umbótum á vinnumarkað-
inum og velferðarkerfmu til að örva
hagvöxtinn.
Stjórnarandstæðingar hafa áfram
meirihluta í efri deild þingsins og
þeir munu því geta sett sig upp á
móti lagafrumvörpum stjómarinn-
ar eða útþynnt þau.
vsr
Sultartangavirkjun.
VST er elsta verkfræðistofa landsins og veitir trausta
og góða þjónustu. Það er ekkert nýtt fyrir okkur að
hanna mannvirki, en alltaf spennandi.
vsr
Ve rkfræðistofa
SigurðarThoroddsen hf.
VST Ármúla 4 • 108 Reykjavík - Sími: 569 5000 • Fax: 569 5010* vst@vst.is
■Lmt\
70AR
Ellemann styöur Fogh
Uffe Ellemann-
Jensen, fyrrum
leiðtogi hægri-
flokksins Venstre í
Danmörku og fyrr-
um utanríkisráð-
herra, lýsti í gær yf-
ir stuðningi sínum
við eftirmann sinn í
flokksforystunni, Anders Fogh
Rasmussen forsætisráðherra. Þá
hrósaði Uffe ríkisstjóminni fyrir
framgöngu hennar í forystuhlut-
verkinu innan Evrópusambandsins.
Samkynhneigðir fá vernd
Turid Debes Hentze, formaður
færeyska jafnréttisráðsins, vill að
lögfest verði bann við að mismuna
samkynhneigðum. Lögþingið myndi
með því senda boð sem hefðu mikla
þýðingu í lýðræðislegu samfélagi.
Sveitamenn mótmæla
Rúmlega 350 þúsund langþreyttir
sveitamenn fóru í mótmælagöngu
um götur London í gær þar sem þeir
héldu fram rétti sínum til refaveiða
og mótmæltu upplausn sveitalífsins.
Gangan var einhver sú fjölmenn-
asta í sögu Bretlands.
Atvinnuleysi aldrei minna
Atvinnuleysi í Færeyjum hefur
aldrei verið minna en nú, eða 2,3
prósent af vinnufærum mönnum,
helmingi minna en um áramót.
Grænir horfa til hægri
Svo kynni að fara
að Göran Persson
yrði að standa upp
úr stól forsætisráð-
herra Svíþjóðar í
kjölfar kosning-
anna í síðustu viku.
Áform Perssons um
að mynda nýja
stjóm voru í uppnámi um helgina
þegar græningjar, sem eru í oddaað-
stöðu.’ ákváðu að halda áfram við-
ræðum sínum við frjálslynda um
hugsanlega stjómarmyndun. Slíkri
stjórn er þó ekki spáð langlífi.
Flóttamenn geri gagn
Bertil Haarder, ráðherra innflytj-
endamála í dönsku stjóminni, vill
að flóttamenn verði skikkaðir til að
vinna og gera gagn frá fyrsta degi í
landinu, ella verði þeir sviptir dag-
peningum á meðan fjallað er um
mál þeirra.
horn
Mikulas Dzur-
inda, forsætisráð-
herra Slóvakíu, sit-
ur væntanlega
áfram í embætti þar
sem hægriflokkam-
ir þrír í samsteypu-
stjórn hans fengu
nægilega mörg atkvæði i kosning-
unum um helgina til að mynda nýja
stjóm, hliðholla ESB. Óttast var að
þjóðernissinninn Valdimir Meciar
kynni að sigra og þá hefði stækkun
ESB til austurs verið í uppnámi.
Konungur tekur sér brúöi
Konungur Svasílands hefur valið
18 ára stúlku úr hópi þúsunda jóm-
frúa sem tíundu konu sína.
Óttast um áttatíu
Vonir björgunarmanna hafa dofn-
að um að fmna á lífi áttatíu manns
sem saknað er eftir að jökulbrot fór
yfir nokkur þorp í sunnanverðu
Rússlandi.
Slapp fyrlr