Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2002, Blaðsíða 11
11
MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2002
X>V____________________________________________________________________________________________Menning
ÚR SAFNI DV - JA/1978
Stefán Höröur Grímsson.
Skilur okkur eftir fjársjóð.
leiðin þegar vel tekst til hjá báðum,
skáldi og lesanda.
í huga þeirra sem hafa legið i
ljóðum Stefáns Harðar er hann þó
ekki síður ástarskáld; mörg
fegurstu, rómantískustu og
harmrænustu ástarljóð tungunnar
eru í bókum hans. Ást og gleði, ást
og aðskilnaður, ást og dauði ...
Stefán stundaði meðal annars
sjóinn eftir að hann slapp úr sveit-
inni en sjálfur sagði hann að hann
hefði aldrei litið á sjómennskuna
sem starf, bara fjáröflunarleið þegar
hann var blankur. Það breytir þó
ekki því að farmennskan litar ást-
arljóð hans eins og mörg hin kunn-
ustu bera vott um. í okkar
farandþjóðfélagi hafa margir tekið
undir með Stefáni þegar hann segir
í ljóðinu Að farga minningu í
Tengslum (1987):
Sá sem kemur aftur
er aldrei sá sami
ogfór
Sú sem heilsar
er aldrei sú sama
og kvaddi
Ævintýri
eru eldfim
bœði lífs og liöin
Sagnir um öskufall
vió endurfundi
hefur margur sannreynt
Stefán Hörður varð mikilvirk-
ari með árunum, gaf út fyrri þrjár
bækur sínar frá 1946-1970 en þær
seinniþijár frá 1981-89. Ljóðasafn
hans kom út árið 2000 en nú eru
13 ár síðan síðasta sjálfstæða bók
hans kom út, Yfir heiðan morgun
(1989), sem hann hlaut íslensku
bókmenntaverðlaunin fyrir, fyrst-
ur manna. Við dauða sinn skilur
hann okkur eftir ómetanlegan
fjársjóð, og það er trúa mín að
sama verði með hann og Stein
Steinarr - sem Stefán Hörður átti
margt að þakka í byrjun - að hann
magnist og stækki með þjóð sinni
eftir dauða sinn.
-SA
Stefán
Hörður látinn
Eitt listfengasta skáld 20. aldar,
Stefán Hörður Grímsson, lést á
miðvikudaginn var, 18. september. í
dánarfregninni er einfaldlega
fullyrt að hann hafi verið 83 ára,
fæddur 1919, en sjálfur hélt Stefán
því fram að hann hefði fæðst árið
1920. Því til sönnunar sagðist hann
aldrei hafa fengið afgreitt fæðingar-
vottorð, þótt hann hefði sótt um
það, aðeins skímarvottorð dagsett
30. des. 1920. Nú er vissulega til í
dæminu að böm séu skírð komin
hátt á annað ár, en merkilegt er
þetta samt. í tæknivæddu samfélagi
verður auðvitað að ákveða svona
lagað - allir verða að fá sina kenni-
tölu - en í raun og veru hefði
huldumaður eins og Stefán Hörður
átt að fá að sleppa við öll númer.
Andóf Stefáns hafði það þó í for með
sér að honum vom sparaðar ræður
og hátíðahöld á merkisafmælum og
fyrir það þakkaði hann áreiðanlega.
Kannski var það alltaf tilgangurinn.
Stefán var alinn upp hjá
vandalausum eftir að faðir hans dó
og móðir hans veiktist. Hún var á
sjúkrahúsi í Reykjavík langa ævi en
drengurinn hennar var sendur aust-
ur í sveitir. Þar fór hann á mis við
flest sem bömum er gert til góða, en
það fáa sem hann naut nýtti hann
sér út í æsar. Til dæmis segir hann
frá því í viðtali í Vísi árið 1978 að
vinnukona á næsta bæ hafi gaukað
að honum söngbók stuttu eftir að
hann kom í sveitina og hann lærði
öll kvæðin utanbókar í hvelli.
Einnig sagðist hann muna vel
hvenær hann las Hulduljóð Jónasar
í fyrsta sinn. Kannski þarf ekki
meiri skólun í ljóðagerð en svo ef
hugurinn er frjáls og frjór. í viðtali
við Einar Braga í Birtingi 1959
sagðist hann hafa eytt helmingi
aleigunnar árið sem hann fermdist í
Fögru veröld eftir Tómas
Guðmundsson og aldrei hafa séð
eftir kaupunum. „Fagra veröld
kveikti svo rækilega í mér að ég
brann í logum hennar mörg ár á
eftir.“
Ást og
tortímingarótti
Merki eldri skálda sáust á fyrstu
bók Stefáns Harðar, Glugginn snýr í
norður (1946), en þó em þar líka
nýstárleg ljóð sem bentu fram á veg.
En strax með Svartálfadansi (1951)
tók hann sér stöðu í fremstu röð
skálda og sú röð takmarkast ekki
við nein landamæri. Stefán Hörður
varð stórskáld á hvaða mælikvarða
sem vera skal.
I huga þeirra sem hafa kynnst
ljóðum Stefáns í safnritum er hann
líklega einkum heimsósómaskáld -
þá er ég að hugsa um þekkt ljóð eins
og Bifreiðin sem hemlar hjá ijóðr-
inu og Siðdegi. Enda var Stefáni
annt um jörðina og mannfólkið og
deildi með sínum hætti harkalega á
öfl sem ógna hvoru tveggja. Sjaldan
segir hann þó meiningu sína berum
orðum heldur sýnir myndir og
gefur tilfmningu sem lesandinn
vinnur með uns merking ljóðsins
verður hans eigin. Þetta er albesta
STÆRRI
VERSLUN
Verðdæmi
dömu & herraflfs 5.990 tll 13.990
nú kr. 3.490
dömu a herra
öndunarjakkar 18.990 tll 34.990
nú kr. 9.990
bamaflís 3.890
nú 1.945
bamaúlpur 6.990
nú kr. 3.490
REGATTA B
ÚTIVISTARVERSLUN
Faxafeni 12 • Sími 5331550 • dansol@centrum.is
0pHfbkadagal0-l8oilaugartanl0-l4