Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2002, Qupperneq 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002
Fréttir
JOV
Öldrunarskoðun hjá Hjartavernd leiddi óvæntar staðreyndir í ljós:
Riffilkúla fannst í
læri Bjarna eftir 60 ár
- kom í sveitinni í Gnúpverjahreppi þegar leikfélagi var að skjóta á fisk
DV-MYND GVA
Bjarnl skoðar kúluna með gelslafræðingnum.
Siguröur Sigurðsson geislafræöingur, til vinstrí, spuröi Bjarna Matthíasson hvort hann
heföi fariö í aögerö þegar aöskotahluturinn sást á yfirlitsmyndinni. „Nei, " svaraöi
Bjarni. „Ég spurði þá hvort hann gæti hafa fengiö i sig byssukúlu, “ sagöi Siguröur.
„Þetta kom mjög á óvart, ég haffii
ekki hugmynd um að kúlan væri
þarna," sagði Bjami Matthíasson lög-
reglumaður, 68 ára, sem hefur fengið
úr því skorið að hann hefur verið
með riffilkúlu í lærinu allt frá því
árið 1942, þegar hann var 8 ára í
sveitinni í Gnúpverjahreppi. Hann
var þá á ferð með félaga sínum sem
var mun eldri.
„Félagi minn var mjög góður í að
skjóta rottur,“ segir Bjarni. „Það var
hálfgeröur faraldur í sveitinni. Eitt
sinn gengum við niður að á og hugð-
umst fara að veiða. Félagi minn sá þá
fisk á grynningum, miðaði og skaut
niður í vatnið. Ég stóð handan árinn-
ar þegar ég fann skyndilega högg og
sársauka og féll við. Augljóst var að
kúlan hefur fleytt kerlingar og skot-
ist í mig. Þegar félagi minn kom
sáum við að ég hafði særst við
mjaðmakúluna hægra megin. Ég hélt
þetta væri bara sár og datt ekki í hug
að kúlan hefði farið inn,“ segir
Bjarni.
Urðum að búa til sögu
Bjarni segir þá félaga hafa ákveðið
strax að spinna upp sögu þegar heim
kæmi til að fá ekki skammir frá hús-
bændum enda átti ekki að nota riffil-
inn til annars en að skjóta rottur.
„Við sögðum báðir að ég hefði rek-
ið mig í gaddavírsgirðingu og fengið
sárið þannig. Síöan greri þetta og ég
kenndi mér aldrei meins þarna," seg-
ir Bjami.
Fyrir skömmu, 60 árum síðar, tók
Bjarni þátt í öldrunarrannsókn
Hjartaverndar sem er samvinnuverk-
efni við Bandarísku heilbrigðisstofn-
unina, NIH.
Sigurður Sigurðsson, geislafræð-
ingur hjá Hjartavernd, sagði við DV
að tilfelli Bjama sé sérstakt, þó svo
að af og til komi aðskotahlutir í ljós
þegar teknar era röntgenmyndir. Sig-
urður hélt fyrst að Bjarni hefði farið
í aðgerð og nagli verið skilinn eftir.
„Þegar hann sagðist ekki hafa geng-
ist undir aðgerð þama spurði ég
Bjama hvort verið gæti að hann
hefði fengið í sig byssukúlu."
„Þegar Sigurður spurði mig að
þessu rifjaði ég upp þennan atburð
úr sveitinni fyrir 60 árum og var satt
að segja talsverðan tíma að átta mig
á þessu," segir Bjarni.
Byssukúlan frá 1942 er 1,34 sentí-
metrar að lengd og 0,93 sentímetrar í
þvermál. Hún liggur grannt í lærinu,
umvafin fituvef, 3 sentímetra frá
lærisslagæð.
„Ég hef aldrei fundið fyrir þessu,“
segir Bjami þegar þessar tölur liggja
fyrir. Það eina sem gert var að við
hreinsuðum sárið og það hvorki
bólgnaði eða gróf í þessu. Svo fór ég
bara að hlaupa á eftir rollunum í
sveitinni."
Engin ástæða þykir til að fjarlægja
Yfirlitsmynd sem sýnir kúluna
vinstra megin.
kúluna úr læri Bjarna. Vefur mynd-
aðist í kringum kúluna og er hún alls
ekki talin munu há honum. Sigurður
segir að markmið öldrunarannsókn-
arinnar sé að mæla ýmsa þætti:
„Það er von manna að þær rann-
sóknir sem framkvæmdar verða í
öldrunarrannsókninni gefi upplýs-
ingar um samband milli mælanlegra
þátta snemma á ævi einstaklinga og
þróun sjúkdóma i ellinni. Rannsókn-
in sem sýndi byssukúluna var ein af
fjölmörgum rannsóknum sem til-
heyra öldranarrannsókninni," sagði
Sigurður. -Ótt
Vestmannaeyingar vilja hraöskreiðari ferju:
Meiri hraði kostar milljarða
- og leiðir til stóraukins rekstrarkostnaðar
Mikill áhugi er fyrir bættum
samgöngum i Vestmannaeyjum
og þá er ekki síst rætt um að
stytta ferðatímann, t.d. með mun
hraðskreiðari ferju. Ekkert hefur
þó verið lagt fram um hversu
mikið slíkt gæti kostað. Sam-
kvæmt upplýsingum skipahönn-
uða myndi ný hraðskreiðari ferja
kosta nokkra milljarða króna auk
stóraukins rekstrarkostnaðar
vegna öflugri véla.
Norskt tveggja skrokka herskip
kom i gær til Vestmannaeyja og
vakti mikla athygli. Ekki síst í
ljósi umræðu um betri samgöng-
ur milli lands og eyja og vegna
þess hversu hraðskreytt þetta
skip er. Skipið gengur um 55 sjó-
mílur við bestu aðstæður og var
t.d. aðeins rúma þrjá tíma að sigla
Ölvaðir á stolnum bíl
Betur fór en á horfðist er tveir ölv-
aðir menn sem stálu bíl í Bolungar-
vík enduðu ökuferðina á ljósastaur
aðfaranótt sunnudags og eyðilögðu
bílinn.
Lögreglunni í Bolungarvík var til-
kynnt um atburðinn rétt fyrir klukk-
an funm á sunnudagsmorguninn. Þá
höfðu tveir ölvaðir menn tekið bíl
ófrjálsri hendi og ekið áleiðis til ísa-
fjarðar. Þegar mennimir vora komn-
ir rétt út fyrir bæjarmörkin óku þeb*
á ljósastaur og festist farþeginn í flak-
inu. Þurfti lögregla að beita klippum
til að losa hann úr bílnum. Að sögn
lögreglu sluppu mennimir ótrúlega
vel úr þessum glæfraakstri og mega
þakka fyrir að hafa ekki orðiö öðrum
vegfarendum að fjörtjóni. Bifreiðin er
hins vegar gjörónýt. -HKr.
Hraðskreltt norskt herskip i Eyjum
Vestmannaeyingar vilja bættar samgöngur, meö meiri
feröatíöni og styttri feröatíma.
UV-MYNU ÍjHjUKÖVtllNIY PUrtL/AKoUIV
frá Reykjavík til Eyja eða álíka
tlma og það tekur Herjólf að sigla
til Þorlákshafnar. Heijólfur geng-
ur 17 sjómílur og er því 2 klst. og
45 mín. á milli Vestmannaeyja og
Þorlákshafnar. Hámarksfjöldi far-
þega er 524 manns.
Kröfur um samgöngubætur
Haldinn var mjög fjölmennur
fundur í Eyjum i síðustu viku og
þar kom greinilega fram að Vest-
mannaeyingar gera stífar kröfur
um bættar samgöngur, aukna
ferðatfðni og styttri ferðatíma,
ekki síst sjóleiðina. Eyjaskeggjar
líta á það sem skyldu fjárveitinga-
valdsins að sjá til þess að haldið
sé uppi samgöngum með þeim
hætti sem Vestmannaeyingar
telja nauðsynlegt. Sjóðleiðin sé
þeirra þjóðvegur.
Bárður Haf-
steinsson, skipa-
hönnuður hjá
Skipatækni, sem
hannaði núver-
andi Heijólf, seg-
ir óraunhæft að
ætla að ferja af
svipaðri stærð-
argráðu geti náð
meiri siglingar-
hraða en 25 míl-
um á klukku-
stund. Herjólfur,
sem er um 70,5
metrar að lengd,
gengur um 17 mílur með 7.400
hestafla vélarafli. Bárður telur að
til aö ná meiri hraða, um 20 sjó-
mílum, þyrfti skipið að vera um
100 metrar að lengd og með
12-14.000 hestafla vélarorku. Með
því væri hægt að stytta feröatím-
ann milli lands og Eyja um
kannski kortér til hálftíma en
kostnaðurinn við það yrði grfðar-
legur. Þar yrði um að ræða stór-
aukna olíunotkun, aukinn kostn-
að við viðhald og fleira.
Leiða má líkur aö því, miðað
við smíðaverð nýju Færeyjaferj-
unnar, að ný og hraðskreiðari
feija og um 100 metra löng gæti
kostað á bilinu 3-5 milljarða
króna. Ganghraði yrði þá um 20
sjómílur. Meiri hraði með svo
mikilli burðargetu næst varla
nema með allt annarri og dýrari
hönnun og mun meira vélarafli.
Þess má geta að nýja ferjan Nor-
röna mun kosta um 7 milijarða
króna. Mesti ganghraði hennar
verður um 21 sjómíla sem næst
með 30.000 hestaíla vélarorku.
-HKr.
DVWYND KK
Eldur við hesthús
Slökkviliö höfuöborgarsvæöisins var kallaö út á tíunda tímanum í gærkvöld
vegna elds viö hlööu í hesthúsi í Víöidal. Vel gekk aö slökkva eldinn en engir
hestar né menn voru í húsinu sem stendur viö Faxaból.
Lögreglan innherjar
Þórður Friðjóns-
son, forstjóri Kaup-
hallar íslands, segir
engan vafa leika á
því að starfsmenn
efnahagsbrotadeildar
lögreglunnar geti
verið innheijar í
Baugi samkvæmt
lögum fyrirtækisins og þar með
óheimilt að eiga viðskipti með hluta-
bréf i fyrirtækinu. Stofnanir sem hafa
slikar uppiýsingar þurfa að tryggja að
þær séu ekki misnotaðar. - RÚV
greindi frá.
Vatnajökull þynntist hægar
Vatnajökull þynntist að meðaltali
um 37 cm á því jökulári sem nú er að
ljúka, eða frá síðasta hausti, sem er
besta afkoma jökulsins frá árinu 1996.
Jökullinn hefur verið að þynnast sam-
fellt frá árinu 1995, á því tímabili hef-
ur jökullinn ails rýrnaö um 1%. - Mbl.
greindi frá.
Sojasósa innkölluö
Hollustuvemd rikisins hefur inn-
kallað sojasósu frá Filippseyjum. I sós-
unni, sem nefnist DATU PUTY SOY
SAUCE, er mikið umframmagn eftiis-
ins 3-MCPD - mörg hundruð sinnum
meira en leyfilegt er. Efnið er talið
krabbameinsvaldandi.
■rr w v
Fimm í jarðgangaforvali
Vegagerðin hefur valið funm verk-
taka eða verktakahópa af þeim sjö sem
tóku þátt í forvali á Evrópska efna-
hagssvæðinu fyrir jarðgangagerð milli
Fáskrúðsfjarðar og Reyðarftarðar ann-
ars vegar og Siglufjarðar og Ólafsfjarð-
ar hins vegar.
Vill lög Sigur Rósar
Danshöfundurinn Merce Cunning-
ham, sem staddur er hér á landi og
samnefndur dansflokkur flytur tvö
verk eftir í Borgarleikhúsinu í kvöld,
vonast til að íslenska hljómsveitin Sig-
ur Rós muni semja tónlist við eitt
verka sinna á næstunni. - Mbl.
greindi frá.
„Fear Factor“ á íslandi
Mikill áhugi er á nýrri íslenskri
keppni sem kölluð er Hörkutól. Hún á
að vera í anda sjónvarpsþáttarins Fear
Factor sem hefur verið sýndur á Stöð
2. í gærkvöld höfðu um 150 manns
skráð sig í keppnina, en sex þátttak-
endur verða valdir úr hópnum. Keppn-
in verður haldin í tengslum við bikar-
mót Kraftlyftingasambands íslands 2.
nóvember.
Gott á Flæmingjagrunni
Ástand rækjustofnsins á Flæm-
ingjagrunni er gott að mati NAFO,
Fiskveiöistoftiunar Norður-Atlants-
hafsins. Óbreytt stjóm veiðanna á ár-
inu 2003 var samþykkt á ársfúndi
stofhunarinnar sem haldin var um
síðustu helgi í Santiago de Compostela
á Spáni.
Tafir í Þjóðminjasafni
Allt stefhir í að framkvæmdir við
Þjóðminjasafnið tefjist enn frekar en
veriö hefur þar sem beðið hefur verið
um gjaldþrotaskipti vegna verktaka-
fyrirtækisins sem ljúka átti verkinu. -
RÚV greindi frá.
Bíóborgin ekki rifin
Óttar Felix Hauksson athafnamaður
hefur tekið Bíóborgina á leigu af verk-
tökunum sem keyptu húsið sem áður
hét Austurbæjarbíó. Hugmynd verk-
taka var að rífa húsið og reisa þar
stórhýsi með þjónustuíbúðum. Óttar
hyggst nýta húsið áfram fyrir fjöl-
breytilega starfsemi. -HKr.