Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2002, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002
Fréttir
DV
Samkomulag bæjarvalda og ÍMS um Áslandsskóla:
Miskabætur upp á
minnst 50 milljónir
- segir Magnús Gunnarsson bæjarfulltrúi
„Mér sýnist að með samkomu-
laginu vegna uppsagnar á rekstr-
arsamningi Áslandsskóla séu
bæjaryflrvöld að greiða íslensku
menntasamtökunum að minnsta
kosti 50 milljónir í hreinar
miskabætur," sagði Magnús
Gunnarsson, bæjarfulltrúi D-lista
og fyrrverandi bæjarstjóri Hafn-
arijarðar.
„Þessi upphæð er fyrir utan
allt annað, yfirtöku á samning-
um, kaup á búnaði og fleira,“
bætti hann við. „Þar sem núver-
andi bæjarstjóri talar um 300
milljónir er um að ræða heildar-
greiðslu sem viðkomandi fær fyr-
ir að sinna verkefninu út sam-
ingstímann. Það er tóm steypa
hjá honum að nefna þá tölu í
sömu andrá og kostnað bæjarins
vegna samkomulagsins við ÍMS.“
Lúðvík Geirsson bæjarstjóri
sagði i DV í gær að heildarkostn-
aður samkomulags bæjaryfir-
valda og ÍMS væri óljós. Hann
myndi kynna þær tölur fyrst í
bæjarstjórn, áður en farið yrði að
fjalla opinberlega um þær.
Magnús sagði að málatilbúnað-
ur meirihlutans væri „í einu orði
sagt skandall“.
„í fyrsta lagi er þetta vald-
níðsla," sagði Magnús. „í raun og
veru eiga hæjaryflrvöld að fara
með ákveðinni hægð þegar verið
er að skoða réttarstöðu þessara
aðila eða einhverra annarra. Það
að fara inn á svæði og tilkynna
yfirtöku áður en búið er að leysa
málið með samningum, það gerir
ekki nokkur einasti maður. í
mínum huga var það grafalvar-
legt mál hvemig staðið var að
þessu.
Eins og bærinn nálgaðist málið
hefur hann miklu verri stöðu
heldur en ella í samningaviðræð-
um á síðari stigum.“
Magnús sagði að mjög mikil
Áslandsskóli
Samiö hefur veriö um miskabætur.
eftirsjá væri að þeirri tilraun sem
ÍMS hefðu staðið fyrir í Áslands-
skóla. Það sýndi sig ekki síst í því
að foreldrar hefðu verið mjög
ánægðir með það sem þar hefði
farið fram, jafnvel þó svo að
ágreiningur hefði verið uppi með-
al starfsfólks. Eftirtektarvert
væri þó, og raunar ánægjulegt, að
jafnvel þótt bæjaryfirvöld hefðu
farið með þvílíku offorsi í málið,
sem raun hafi borið vitni, þá hafi
eini tilgangurinn verið sá að
koma ÍMS frá og losna við Sunitu
Ghandi. Allt annað ætti að vera
óbreytt, skólastefnan, starfsfólk-
ið, kennslugögn og jafnvel skóla-
búningarnir.
„Ég tel að einkum þrennt hafi
komið til þess að svona fór. ÍMS
voru að vinna í mjög erfiðu and-
rúmslofti þar sem óvinveitt yfir-
völd höfðu yfírlýsta stefnu um að
rifta samningnum um leið og
tækifæri gæfist. Yfirlýsingar for-
manns Kennarasambandsins
voru ekki til þess aö auka líkur á
samkomulagi meðal aðila. Loks
var ágreiningurinn í skólanum
sem varð til þess að aðilar höfðu
tækifæri til að láta kné fylgja
kviði, í stað þess að lægja hann
með tiltækum ráðurn." -JSS
DV-MYND ÞÖK
Umferðaröryggisáætlun 2002 til 2007 kynnt
F.v.: Kjartan Mgnússon, formaöur, Arnar Guömundsson og Árni Þór Sigurös-
son. Fjölmargir innlendir og erlendir sérfræöingar komu aö gerö áætlunarinnar.
Umferðaröryggisáætlun 2002 til 2007:
Borgin ver milljarði
til verkefnisins
Samgöngunefnd Reykjavíkur
hefur samþykkt gerð nýrrar um-
ferðaröryggisáætlunar Reykja-
víkur fyrir árin 2002 til 2007.
Áætluninni er ætlað að vera
mikilvægt stýritæki í allri um-
fjöllun um umferðaröryggismál í
Reykjavík á ofangreindu tima-
bili. Áætlunin verður gerð að-
gengileg fyrir borgarbúa ásamt
þeim stofnunum og félagasam-
tökum sem láta sig umferðarmál
varða og gefst þeim kostur að
koma með ábendingar og athuga-
semdir fyrir 1. desember nk. Með
svo víðtæku samráði er ætlunin
að auka aðkomu almennings að
umferðaröryggismálum og
stuðla að jákvæðri viðhorfs-
breytingu í málaflokknum.
Markmið umferðaröryggis-
áætlunarinnar eru m.a. að fækka
alvarlegum slysum og dauðaslys-
um um 50% á fimmtán ára tíma-
bili, 1992 til 2007. Stefnt er að því
að ná fram fækkun úr 72 í 36 al-
varleg slys eða dauðaslys á ári.
Stefnt er að því að fækka minni
háttar slysum um 50% að meðal-
tali árin 2006 til 2007, miðað við
árið 1996, eða fækkun úr 525 í 262
slys. Sérstök áhersla verður lögð
á umferðarörggi barna og ung-
menna og stefnt þar einnig að
50% fækkun.
Reykjavíkurborg mun verja
samtals um 1.000 milljónum
króna á næstu fimm árum, eða
að jafnaði 200 milljónum króna,
á ári í verkefni sem hafa aukið
umferðaröryggi í för með sér.
Það verður m.a. gert með því að
draga úr hraða í íbúðahverfum
og götuhönnun breytt í þvi
skyni. Skynjaratengd gang-
brautaljós og strangara eftirlit
með akstri gegn rauðu gang-
brautarljósi eða gulu blikkandi
ljósi áður en gangandi eru komn-
ir yfir verður innleitt til aukins
öryggis fyrir gangandi vegfar-
endur. Hönnun göngu- og hjól-
reiðastíga verður bætt og reið-
hjólaleiðum fjölgað. Ráðist verð-
ur í sérstakar rannsóknir á or-
sökum slysa á börnum og ung-
mennum. -GG
NYR
Jeep Cherokee Limited 3,1 disil
skráður 8/2002, ekínn 0 km, allt rafdr., minni
á sætum, samlitur, 10 diska CD-magasín,
gler-topplúga, álfelgur, aksturstölva
Einn með öllu.
Höfum einnig Cherokee Laredo til sölu.
Blfreiðavofkstœðl Grofarvogs
Opið á laugardögum
frá kl. 12-16
Til solu og synis hja BilahoKlinni,
Bíldshöfða 5, sími 567-4949/694-3308.
Framkvæmdastjóri FÍB:
Allt sem ég sagði
í DV stendur
„Við erum ánægðir með viðbrögð
okkar félagsmanna sem gera einmitt
það sem við lögðum áherslu á, að
kanna iðgjöldin í okkar tilboði og bera
þau saman við iðgjöld hinna félag-
anna. En það sem olli þessu upphlaupi
um helgina er byggt á misskilningi
sem hefur verið leiðréttur. Ég vona að
neytendur hafi ekki ruglast í ríminu
því allt sem ég sagði í DV á laugardag
stendur, þ.e. að hér er um nýjan, hag-
stæðari valkost á tryggingamarkaði að
ræða,“ sagði Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, við DV í gær.
DV birti á laugardag frétt um að
FÍB hefði náð samningum við nýtt vá-
tryggingafélag, íslandstryggingu, um
að annast tryggingar fyrir félagsmenn.
Umsjón FÍB-tryggingar yrði í höndum
Alþjóðlegrar miðlunar eins og áður en
íslandstrygging annaðist vátrygging-
amar sjáifar. Fagnaði Runólfúr þvi að
hér væri verið að brjóta upp ríkjandi
fákeppni á þessum markaði. Fákeppn-
in hefði stuðlað að mikilli hækkun ið-
gjalda en FÍB-trygging gæti boðið allt
að 20 prósent lægri iðgjöld.
íslandstrygging sendi hins vegar frá
sér fréttatilkynningu í kjölfar fréttar
DV þar sem fram kom að menn könn-
uðust ekki við að FÍB-félagar fengju
allt að 20% lægri iðgjöld hjá félaginu
en annars staðar. Iðgjöld hjá félaginu
væru „alveg á sömu nótum og hjá hin-
um vátryggingafélögunum, enda ekki
tilefni til annars vegna afkomu bif-
reiðatrygginga hér á landi".
Þessar upplýsingar voru í algjörri
mótsögn við fullyrðingar FÍB-manna í
DV á laugardag og komu þeim í opna
skjöldu. Á sunnudag mátti síðan lesa á
vef islandstryggingar viðbót við téða
fréttatilkynningu þar sem afstaðan
hafði mildast nokkuð. Á vef fyrirtæk-
isins má lesa að með þessu samkomu-
lagi fái félagsmenn FÍB hagstæðustu
kjör á bifreiðatryggingum hjá íslands-
tryggingu hf., óháð því hvort þeir hafi
aðrar vátryggingar þar. „Með þessu
bjóðast hagstæð iðgjöld sem eru ekki
háð öðrum viðskiptum. íslandstrygg-
ing veitir félagsmönnum FÍB ofan-
greind sérkjör þar sem FÍB er stór og
sterkur félagsskapur sem eftirsóknar-
verður er í viðskipti að mati félags-
ins,“ segir á vef fyrirtækisins. En í
staö þess að tala um ódýrari trygging-
ar, þ.e. tryggingar með lægra iðgjaldi,
eins og FlB-menn lögðu megináherslu,
er talað um hagstæð iðgjöld og hag-
stæðustu kjör.
Annars kemur fram að íslands-
trygging fagni samkomulaginu við Al-
þjóðlega miðlun ehf. og FÍB og telur
fullvíst að það muni verða öllum aðil-
um samkomulagsins tO heOla. -hlh
Guðni auglýsir lambakjöt
Auglýsing á lambakjöti, sem
hljómað hefur á Útvarpi Suðurlandi
imdanfarið, hefur vakið óskipta at-
hygli. Ekki vegna þess að hún er
öðruvísi uppbyggð en gengur og
gerist heldur fyrir þær sakir að
rödd Guðna Ágústssonar landbún-
aðarráðherra hvetur þar hlustendur
tO að kaupa lambakjöt. DV spurði
Guðna hvort hann hefði lesið aug-
lýsingatexta fyrir framleiðendur
lambakjöts.
„Nei, ég hef ekki lesið inn neinn
auglýsingatexta. Það virðist hafa
verið tekinn bútur úr viðtali sem
Útvarp Suðurland átti við mig og
settur í auglýsingu. En þetta gæti
aOt eins verið einhver eftirherma,"
sagði Guðni þegar DV hringdi í
hann. Hann bætti við að sér þætti
þetta ekki óeðlOegt, Landlæknir
auglýsti tO að mynda mjólk.
- Þú hefur þá ekki gert neinar at-
hugasemdir við auglýsinguna eins
og hún er send út?
„Nei, það hef ég ekki gert.“
- Áttu ekki von á að aðrir um-
bjóðendur þínir, t.d. framleiðendur
fugla- eða nautakjöts, bregðist
ókvæða við?
„Nei, enda er ég góður við þá.“
___________________________-Mh
Ölvaður ökumaður á flótta
Rúmlega tvítugur maður gerði tO-
raun tO að flýja Hafnarfjarðarlögg-
una þegar hann keyrði undir veru-
legum áhrifum áfengis í Suðurbæn-
um um klukkan sex á sunnudags-
morgun.
Fimm ungir menn úr Vogum á
Vatnsleysuströnd veittu manninum
athygli þar sem hann var við að
bakka löskuðum fólksbO sínum upp
á Reykjanesbrautina nærri
Kaplakrika. Hann keyrði svo ýmist
á 20 kOómetra hraða eða 80 og fór
yfir nokkrar umferðareyjur á ferð
sinni um Suðurbæinn. Ákváðu
Vogamenn að tilkynna í lögreglu og
fylgja eftir ferðum ökumannsins.
Þar sem hann stoppaði við nætur-
söluna Holtanesti í Hafnarfirði kom
lögreglan upp að honum og kveikti
á forgangsljósunum.
Þá skipti engum togum að hann
rauk af stað og hóf ferð sem tók
brátt pínlegan enda. Þar sem hann
var eltur af lögreglu með blikkandi
ljós keyrði hann Suöurbrautina í
Hafnarfirði þar tO hann kom að
beygju við Hvaleyrarskóla. Þar láð-
ist pOtinum að beygja og keyrði
hann beint upp í grashól. Lögreglan
hafði fjölmennt á þremur bOum en
þegar að bílnum kom læsti ökumað-
urinn sig inni og sat sem stjarfur
meö hendur á stýri. Lögreglan braut
rúðu á bílnum og færði ökumann-
inn niður á stöð, þar sem hann svaf
vært fram á miðjan dag. -jtr
Skutu málningarkúlum
Allmargar kvartanir bárust lög-
reglunni í Garðabæ vegna ung-
menna sem sögð voru fara um bæ-
inn vopnuð „byssum". Um er að
ræða svokallaðar „paintbaO“-byss-
ur og skutu ungmennin málningar-
kúlum að húsum og bifreiðum viða
um bæiim. Lögregla rannsakar mál-
ið og eru þeir sem hafa upplýsingar
um málið beðnir að setja sig í sam-
band við lögregluna í Garðabæ.
____________________________^aþ
Spurt á taílensku
„Spurt og svarað á taOensku" er
yfirskrift námskeiðs sem haldið
verður síöar í vikunni í tengslum
við Þjóðahátíð Austflrðinga. Þá er
ráðgert að fuOtrúi frá Fjölmenning-
arsetrinu á Vestfjörðum fari austur
á EgOsstaði og stýri námskeiðinu.
Um er að ræða viðbót á símsvörun-
arþjónustu Fjölmenningarseturs
fyrir fólk af erlendum uppruna. Þá
er fyrirhugað að næstkomandi laug-
ardag verði opnuð símalína á taí-
lensku og er númerið 470 470 2.