Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2002, Side 29
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002
29
Þyngdar sinnar virði í rækjum
Norska knattspymufélagið
Vindbjart hefur samþykkt að
selja framherjann Kenneth
Kristensen til Flekkeroy, en bæði
liðin leika í sama riðli í norsku 3.
deildinni sem er fjórða deildin í
Noregi.
Sala þessi væri ekki fréttnæm
nema vegna þess að Vindbjart,
gamla félag Kristensens, óskaði
eftir því að fá kaupverðið greitt i
rækjum og vilja þeir fá þyngd
knattspymumannsins í þeim
„gjaldmiðli".
Fulltrúi seljanda segir að hann
hafi gert góða sölu þarna því
þrátt fyrir að leikmaðurinn hafi
verið í toppformi í vor, þá hafi
hann slappað vel af i sumar, etið
vel og því þyngst töluvert.
-PS
Rafpostur: dvsport@dv.is
Góður árangur íslendmgs á júdómóti í Bandaríkjunum:
Vignissigur
Vignir Grétar Stefánsson, 26
ára gamall júdómaður úr Ár-
manni, sigraði á opnu júdómóti í
Norður-Karólínuríki í Bandaríkj-
unum um síðastliðna helgi.
Sigur Vignis var nokkuð sann-
færandi, en hann vann allar
glímumar í sínum þyngdarflokki
með fullnaðarsigri.
Hann lenti þó i nokkmm vand-
ræðum í úrslitaghmunni. Þegar
um mínúta var eftir af úr-
slitarimmunni var Vignir undir á
stigum en náði fullnaðarsigri með
bragði eftir misheppnaða sókn
andstæðings síns.
í mótinu tóku þátt júdómenn
frá háskólum, en Vignir er við
nám í Clemson-háskólanum í
Suður- Karólínuríki og keppir þar
fyrir hönd háskólaliðsins. -PS
Enska úrvalsdeildin:
Chelsea í þriðja sætið
Fulham tók á móti grönnum sínum
í Chelsea á Loftus Road í gærkvöld og
skildu liðin jöfn, 0-0. Eiður Smári
Guðjohnsen vermdi varamanna-
bekkinn. Hann kom inn á á 74. mín-
útu, en hann náði ekki að setja mark
SVIÞJOÐ
Urslit
Elfsborg-Örgryte............2-1
Atli Sveinn Þórarinsson var l liö Örgryte.
Gautaborg-AIK...............2-0
Hjálmar Jónsson var á varamannabekk
Gautarborgar en Guömundur Mete var
ekki í leikmannahópi liðsins.
Halmstad-Helsingborg.........2-2
sitt á leikinn. í framlínunni byrjuðu
þeir Hasselbank og Zola, en sá síðar-
nefndi hefur gert fimm mörk í deild-
inni í haust.
Chelsea átti í hinu mesta basli með
sprækt lið Fulham í fyrri hálfleik og
áttu heimamenn skilið að hafa forystu
í hálfleik. Það sama var upp á ten-
ingnum i síðari hálfleik, leikmenn
Fulham voru mun sterkari aðilinn og
áttu vamarmenn Chelsea fullt í fangi
með spræka sóknarmenn Fulham.
Þessi úrslit þýða að Chelsea tyllir
sér í þriðja sætið með 13 stig, á eftir
Arsenal og Liverpool, en Fulham
kemst upp í 6. sætið með 11 stig,
jafhmörg og Middlesbro og Man. Utd
en betri markatölu. -PS
Knattspyrnuleikur í Urúgvæ endaði með ósköpum:
Dómarinn myrtur
Knattspymudómari í Úrúgvæ
var myrtur þegar hann var að
dæma knattspyrnuleik þar í
landi. Atburðurinn gerðist í borg
skammt frá höfuðborginni
Montevideo. Þar áttust við tvö lið
frá borginni og byrjuðu lætin þeg-
ar dómarinn gaf leikmanni ann-
ars liðsins rautt spjald.
Við það þustu aðdáendur liðs-
ins inn á völlinn og réðst einn
þeirra á dómarann með jámstöng
og barði hann í höfuðið með fyrr-
greindum afleiðinum. Þegar æst-
ur múgurinn gerði sér grein fyrir
þessu hvarf hann á braut, en áður
náöist að þekkja brotamanninn.
Fjöldi vandamála tengd áhorf-
endum á knattspymuleikjum hef-
ur verið að aukast en þetta er þó
komið sem fyllir mælinn.
-PS
Meistaradeildin í knattspyrnu heldur áfram í kvöld:
Bæjarar mæta Lens
Átta leikir fara fram í E-, F-, G- og
H-riðlum meistaradeildarinnar i
knattspymu í kvöld.
í E-riðli tekur Newcastle á móti
Feyenoord og verður athyglisvert
að sjá hvort lærisveinar Bobby Rob-
sons geta haldiö áfram á þeirri
braut sem þeir vom á á laugardag
þegar þeir sigruðu Sunderland
sannfærandi. ! hinni viðureigninni
í riðlinum tekur Juventus á móti
D^mamo Kiev á heimavelli sínum.
I F-riðli halda leikmenn Man. Utd
í víking til Leverkusen, en það hef-
ur gengið á ýmsu í herbúðum
beggja liða það sem af er þessu
tímabili. Leverkusen, sem lék til úr-
slita i meistaradeildinni í fyrra,
hefur byrjað illa í þýsku deildinni,
en liðið seldi tvo af sínum bestu
leikmönnum fyrir tímabilið sem
greinilega hefur tekið sinn tofl.
Vandræði Man. Utd em flestum
kunn, en þeir em án tveggja lykil-
manna sinna, þeirra Roy Keane og
Paul Scholes. í sama riðli mun ísra-
Þeir Paolo Maldini og Rui Costa verfia í eldlfnunni í kvöld þegar AC Milan
mætir Deportivo Coruna í meistaradeildinni.
elska liðið Maccabi Haifa reyna að
sækja sín fyrstu stig þegar þeir taka
á móti Olympiakos frá Grikklandi,
en leikurinn fer fram á Kýpur þar
sem UEFA leyfir ekki að leikið sé i
ísrael vegna ástands mála þar í
landi.
Evrópumeistaramir frá árinu
2001, Bayem Múnchen, sem töpuðu
á dögunum fyrir Deportivo á heima-
velli sínum í Múnchen, freista þess
að ná í sin fyrstu stig þegar liðið
sækir Lens heim. Liðin tvö eiga það
sameiginlegt að hafa tapað sínum
fyrsta leik í riðlakeppninni en Lens
tapaði fyrir AC Milan. Tap Bayem
Múnchen var það fyrsta á heima-
velli í meistaradeildinni í fimm ár.
Leikmenn AC Milan fara til
Spánar þar sem þeir mæta
Deportivo og verður róðurinn
væntanlega þungur fyrir AC Milan
ef marka má frammtistöðu
Deportivo gegn Bæjurum á
dögunum. Rivaldo, sem keyptur var
til AC Milan fyrir tímabilið, mætir
þama sínum gömlu félaögum en
hann lék með Deportivo áður en
hann gekk til liðs við Barcelona
í H-riðli bíður liðsmanna
Barcelona erfítt verkefni en þeir
mæta Galatasaray á hinum erfiða
heimavelli tyrkneska liðsins og í
sama riðli mætast Club Bragge og
Lokomotiv Moskva í Belgiu.
-PS
Blcand í noka
Svo gœti fariö að viðureign Michaels
Chang, tenniskappans geðuga, gegn Al-
ex Corretja í fyrstu umferð opna Hong
Kong-mótsins í tennis verði sú síðasta
hjá Chang, en hann hefur lýst því yfir
að hann muni hætta keppni eftir þetta
mót. Hinn 30 ára gamli tennisleikari
hefur verið mjög vinsæll utan vallar
sem innan og á að baki farsælan feril á
tennisvellinum.
Nú er Ijóst að Klly Gonzales, leikmað-
ur Valencia í knattspymu, verður frá í
tvær til þrjár vikur vegna meiösla. Fyr-
ir utan það að missa af tveimur leikjum
í spænsku deildinni er víst að hann
mun ekki leika gegn Spartak Moskvu
og Basel í meistaradeildinni.
í umfíöllun blaösins um leik Vals og
Hauka í Essó-deild kvenna í handknatt-
leik kemur fram að Ragnheiður Guð-
mundsdóttir hafi skorað sex mörk fyrir
Hauka. Rétta nafn hennar RagnhUdur
Guðmundsdóttir og er beðist velvirð-
ingar á mistökunum.
Nú hefur loks verið ákveðið hvenær
Roy Keane
kemur til yfir-
heyrslna vegna
ásakana sem
bomar hafa ver-
ið á hann í kjöl-
far útkomu ævi-
sögu hans, þar
sem hann lýsir
því hvemig
hann hafi vilj-
andi reynt að
slasa Alf Inge Haaland í knattspyrnu-
leik, en yfirheyrslumar verða þann 15.
október næstkomandi.
Meira af Roy Keane, en hann hefur
ekkert getað leikið að undanförnu
vegna meiðsla. Nú er talið að Keane,
sem fór í aðgerð á mjöðm, geti leikið að
nýju með liðinu eftir mánuð, eða í lok
oiúóber. Þetta er mánuði fyrr en áætlað
var í fyrstu.
Arnar Gunnlaugsson var ekki í leik-
mannahópi Dundee Utd á laugardag
þegar liðið tapaði fyrir Hearts í skosku
úrvalsdeildinni, 2-0.
Á heimasióu KA er fréttum þess efnis
að Þorvaldur Örlygsson, þjálfari KA,
hafi gert átta breytingar á liðinu gegn
Fram til að hjálpa sínum gömlu félög-
um, vísað á bug. Þar segir að aðeins ein
breyting hafi verið gerð á liðinu frá sig-
urleik gegn Keflavík þar sem Dean
Martin var í leikbanni og gat því af
eölilegum ástæðum ekki verið með.
Taliö er líklegt að Peter Reid, fram-
kvæmdastjóri enska úrvalsdeildarliðs
Sunderland, fái að fjúka nái þeir ekki
að sigra Aston Villa um komandi helgi.
Staða Sunderland er slæm og hefur Pet-
er Reid orðið fyrir harkalegri gagnrýni
vegna frammistöðu liðsins. -PS
Reykjavíkurmót kvenna:
KR-konur með
aðra hönd á bikar
KR-konur eru með aðra hönd á
Reykjavíkurmeistaratitlinum í
körfúbolta eftir 46-65 sigur á
Stúdínum í Kennaraháskólanum í
gærkvöld. Stúdinur héldu aðeins í
við KR-konur í upphafi leiks en í
hólfleik stóð 21-32 fyrir KR. KR
hefur nú unnið þrjá leiki og má
tapa siðasta leiknum með 18 stig-
um án þess að missa Reykjavíkur-
meistaratitilinn en hann er á
heimavelli gegn ÍS.
Hildur Sigurðardóttir skoraöi
17 stig fyrir KR, Hanna B. Kjart-
ansdóttir var með 12 stig og 6 frá-
köst og Tinna Björk Sigmunds-
dóttir skoraði 10 stig, tók 8 frá-
köst, stal 4 boltum og gaf 4
stoðsendingar. Þá voru þær Guð-
rún Arna Sigurðardóttir og Gréta
María Grétarsdóttir með 6 stig
hvor og stal Gréta auk þess 4 bolt-
um.
Hjá ÍS skoraði Hafdís Helga-
dóttir 12 stig og tók 8 fráköst,
Lára Rúnarsdóttir skoraði 10 stig
á aðeins 14 minútum og Þórann
Bjamadóttir gerði 7 stig. -ÓÓJ