Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Síða 10
10
Útlönd
DV
Saddam Hussein.
Saddam bætir
viö í kvennabúrið
Saddam Hussein, hinn 65 ára ein-
valdur í Irak, er ekki við eina fjölina
felldur þegar konur eru annars vegar
og hefur nú bætt fjórðu eiginkonunni í
kvennabúr sitt. Sú hamingjusama heit-
ir Imam Husweish, 27 ára gömul og
dóttir eins af ráðherrum í ríkisstjóm
íraks. Húner bæði litfríð og ljóshærð
eins og móðir hennar sem er þýsk að
uppruna. Hún er samt engin venjuleg
ljóska þvi hún er verkfræðingur að
mennt. Það er samt fyrsta kona Sadd-
ams, Sadia, sem skipar fyrsta sætið í
hjarta einræðisherrans. Hún hefur
boðið Imam velkomna í hópinn en hún
fær þó ekki að sænga með Saddam
nema hún sé sérstaklega tilkölluð.
Hinar tvær eiginkonur íraksforseta
eru Samira Shahbandar, sem var gift
einum af flugsljórum Iraqi Airways,
þegar Saddam gimtist hana. Flug-
stjórinn gaf hana þá eftir fyrir ein-
ræðisherranum. Sú þriðja í rööinni
er síðan Nehal al-Hamdani. Ekki er
vitað annað um hana en að hún er
ættuð frá bænum Mosul. -GÞÖ
Kosið á Græn-
landi í desember
Jonathan Motzfeldt, formaður
grænlensku heimastjómarinnar,
boðaði í gær til þingkosninga á
Grænlandi hinn 3. desember næst-
komandi.
Boðað var til kosninganna eftir
hótanir frá stjórnarandstöðuflokkn-
um Inuit Ataqatigiit um vantrausts-
tillögu á stjórnina vegna annarrar
umræðu um ríkisreikningana fyrir
árið 2001. Þar var framúrkeyrsla á
nokkrum sviðum.
Inuit Ataqatigiit sat í grænlensku
heimastjóminni með Siumut, flokki
Motzfeldts, fram á haustið 2001. Með
ákvörðun Motzfeldts hefur kosning-
unum á Grænlandi verið flýtt lítið
eitt því að öllu eðlilegu hefði ekki
átt að kjósa fyrr en í febrúar.
Franz Fischler
Sjávarútvegsstjóri ESB á ekki auö-
velt verk fyrir höndum aö jafna
ágreining um fiskveiöistefnuna.
ESB íhugar mála-
miðlun í fisk-
veiðistefnudeilu
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins ætlar að leggja fram mála-
miðlunartillögu á fundi í nóvember
í þeirri von að jafna megi ágreining
suðurrikjanna annars vegar og
norðurrikjanna hins vegar um
breytingar á fiskveiðistefnu sam-
bandsins.
Til stendur að gera róttækar
breytingar á fiskveiðistefnunni og
einn af homsteinunum er að fækka
mjög flskiskipum í lögsögu ESB, ef
það mætti verða til að vemda fiski-
stofnana. Ef það nær fram að ganga
munu þúsundir togarasjómanna
missa vinnuna.
Leyniskyttumorðin í Bandaríkjunum:
Bandaríski herinn
kemur til hjálpar
Donald Rumsfeld, vamarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, hefur samþykkt
að láta bandaríska herinn taka þátt í
leitinni að leyniskyttunni sem myrt
hefur níu manns og sært tvo á síðustu
fjórtán dögum í nágrenni höfuðborg-
arinnar Washington og er ætlunin að
nota njósnavélar hersins til þessarar
mestu leitar sem fram hefur farið að
morðingja í Bandaríkjunum.
Um er að ræða njósnavélar búnar
hátæknibúnaði sem festa minnstu
hluti á filmu á jörðu niðri og ætti það
að auðvelda mjög leitina að
leyniskyttunni sagði einn talsmanna
hersins sem vildi ekki láta nafns síns
getið. „Við gefum sem minnstar upp-
lýsingar um málið til að spilla ekki
fyrir rannókninni," sagði talsmaður-
inn.
Eftir tilræðið i fyrrakvöld, þar sem
47 ára gömul kona, Linda Franklin,
starfsmaður alríkislögreglunnar FBI,
var skotin til bana úti fyrir verslunar-
Vísbendinga leitað
Bandaríski flugherinn mun taka þátt
í leitinni aö leyniskyttunni sem myrt
hefur níu manns og sært tvo á síö-
ustu fjórtán dögum.
miðstöð í bænum Falls Church, hafa
þrjú vitni gefið sig fram og herma
óstaðfestar fréttir að eitt þeirra hafi
séð mann, dökkan á hörund, stíga út
úr ljóslitum sendiferðabíl í bíla-
geymslu verslunarmiðstöðvarinnar i
aðeins fjörutíu metra fjarlægð frá
morðstaðnum og yfirgefa vettvang
strax eftir árásina. í fréttinni sagði
einnig að vitnið hefði getað gefið ein-
hverjar uppiýsingar um númersplötu
bílsins.
Lögreglan hefur þó ekkert viljað
staðfesta, en sagðist þó hafa fengið
mikilvægari upplýsingar vitna heldur
en áður, sem vonandi leiddu hana á
sporið. Fjöldi upplýsinga hefði borist
og væri nú verið aða vinna úr þeim. í
kjölfarið birti lögreglan myndir af
tveimur gerðum bíla, Chevrolet Astro
og Ford Econoline, í viðbót við mynd-
imar af boxbilnum með brotna aftur-
ljósið sem birtar voru um helgina.
REUTERSMYND
Hugsað um gamla fólkiö
Taílensk skólabörn fengu tækifæri í morgun til aö æfa sig í aö mæla blóöþrýstinginn í gömlu fólki sem liggur á sjúkra-
húsi einu í Bangkok. Um þrjátíu krakkar tóku þátt í eins dags umönnunarnámskeiöi fyrir gamalmenni og alzheimer-
sjúklinga. Krakkarnir gera sér vonir um aö geta látiö gott af sér leiöa í mánaöarskólafríi fram undan.
Afganskir flóttamenn streyma
aftur heim til ættjarðarinnar
sem dvalið hefur I útlegð svo árum
skiptir og eiga sumir erfitt með að
dylja harm sinn þegar þeir sjá hve öm-
urlegt ástandið er í gamla heimaland-
inu eftir hörmungar áralangra átaka.
Flestir eru þó ánægðir með að vera
komnir aftur heim og horfa bjartsýnir
til framtíðarinnar þrátt fyrir litla von
um atvinnu eða húsnæði.
Hamid Karzai, forseti landsins, er
nýkominn frá efnahagsráðstefnu Mið-
Asíuríkja sem fram fór í Istanbúl í
Tyrklandi, en þar samþykktu þátt-
tökulöndin og þar á meðal Pakistan,
Irán, Tyrkland og Aserbaidsjan að
stofna hjálparsjóð til hjálpar uppbygg-
ingunni í Afganistan. Auk þess var á
ráðstefnunni samþykkt ályktun þess
efnis að alþjóðasamfélagið stæði við
gefin loforð um milljarða efnahags-
aðstoð við afgönsku þjóðina, en þau
loforð hafa aðeins verið efnd að hluta
til á þessu ári.
Þegar um það bil ár er frá falli tali-
banastjómarinnar í Afganistan eru
flóttamenn famir að streyma í stríð-
um straumum aftur inn til landsins og
er talið að allt að tíu þúsund manns
bætist í hópinn vikulega af þeim millj-
ónum sem flúið höfðu stríðshrjáð
landið síðustu áratugina eða allt frá
því í Sovétstríðinu og síðan í grimmi-
legri borgarastyijöld áður en ógnar-
stjóm talibana tók völdin.
Flestir hafa hingað til komið yfir
landamærin frá Pakistan, en að sögn
talsmanna Flóttamannahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna, er nú aukinn
straumur yfir landamærin frá íran.
Fyrsta stopp þeirra sem koma i yfir-
hlöðnum rútum frá íran er í móttöku-
búðum nálægt borginni Herat, en þar
hafa verið reistar tjaldbúðir í löngum
röðum sem flóttamennimir verða að
gera sér að góðu í fyrstu. Það hljóta að
vera ömurlegar móttökur fyrir fólkið
Ungur flóttamaöur
Um tíu þúsund flóttamenn snúa
aftur heim til Afganistans á viku
hverri frá nágrannaríkjunum.
Þrýstingur á IRA
John Reid, Norð-
ur-írlandsmálaráð-
herra bresku stjóm-
arinnar, sakaði írska
lýðveldisherinn og
Sinn Fein, pólitískan
bandamann hans,
um að draga úr
trausti manna á
heimastjóm héraðsins og þrýsti á IRA
og aðra vopnaða hópa lýðveldissinna
að leggja niður vopn.
Lítið miðar gegn hungri
Fátækt, styrjaldir og pólitískt
skeytingarleysi hafa gert að engu tO-
raunir til að draga úr hungri í heim-
inum um helming fýrir 2015, að því er
segir í skýrslu SÞ.
ísraelsher heldur burt
Gyðingalandnemar sögðu í morgun
að ísraelski herinn myndi yfirgefa
landnemabyggð nærri Vesturbakka-
borginni Nablus.
Herða tökin á kakóborg
Stjómarherinn á Fílabeinsströnd-
inni herti tök sín á kakóframleiðslu-
borginni Daloa í gær eftir að þeir
náðu henni úr höndum uppreisnar-
manna eftir harða bardaga.
Samkeppni um farsíma
Færeyingar geta vænst þess að far-
símareikningar þeirra lækki í næsta
mánuði þegar nýtt fyrirtæki, Kali,
ætlar að fara að keppa við færeyska
landssímann á farsímamarkaðinum.
Solana vill meiri vöid
Javier Solana, ut-
anríkismálastjóri
Evrópusambandsins,
hvatti i gær til þess
að embætti hans
fengi aukin völd inn-
an sambandsins til
að auka vægi þess í
aþjóðamálum. Sol-
ana sagði að hann væri að reyna að
efla traust manna á utanríkisstefhu
ESB en fjárframlög til þess væru
hlægileg.
Grunaður um aðstoð
Finnska lögreglan sagði í gær að
hún hefði handtekið unglingspilt sem
grunaður væri um að hafa aðstoðað
feiminn efnafræðinema við að búa til
sprengjuna sem varð sjö að bana í
verslanamiðstöð skammt frá Helsinki
í síðustu viku.
Maturinn ekki skoðaður
Saksóknari í París
tilkynnti í gær að
hann myndi ekki
hefja rannsókn á um
tvö hundruð millj-
óna króna matar-
reikningi Jacques
Chiracs, núverandi
forseta, og eiginkonu
hans frá því hann var borgarstjóri
Parísar.
Kosningarnar ógildar
Yfirkjörstjórn í Serbíu hefur form-
lega ógilt forsetakosningarnar um
helgina en flokkur Kostunica
Júgóslaviuforseta lýsti engu að síður
yfir sigri og hét að berjast gegn úr-
skurðinum.
Mikið veltur á Irum
Anders Fogh Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, sem fer með
forsæti í ESB, sagði í gær að stækkun
þess væri í uppnámi ef írar sam-
þykktu ekki Nice-sáttmálann í þjóðar-
atkvæðagreiðslu um helgina.