Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 27 DV Sport Vonbrigðin leyna sér ekki í andliti Gunnars Heiðars Porvaldssonar, íslenska liðið er enn án stiga í riðli sínum í Evrópukeppninni. Á innfelldu myndinni má sjá landsliðsþjálfarann Ólaf Pórðarson kalla skipanir til sinna manna. DV-myndir ÞÖK Ólafur Þórðarson þjálfari: Gríðar- leg von- brigði „Þetta eru gríðarleg vonbrigði," sagði Ólafur Þórðarson, þjálfari landsliðsins, eftir leikinn. „Það er alveg númer eitt, tvö og þrjú í svona leikjum að við verðum að nýta færin okkar. Við vinnum enga leiki ef við skorum ekki úr færunum sem við sköpum okkur. Það er algjört lykilatriði." Um leikinn í heild sagði Ólafur: „Fyrri hálfleikurinn var í jámum og við keyr- um leikinn á háu tempói. í seinni hálf- leik voru þeir að springa á þessu tempói og þá náum við virkilega yfirhöndinni og vöðum í færum. En því miður þá skoruðum við ekki úr þessum fær- um og gefum þeim svo eitt mark eftir einu mistök- in okkar. En þetta er eng- in ný saga hjá íslenska landslið- inu; svo framarlega sem við höld- um ekki haus og nýtum ekki fær- in okkar er okkur refsað.“ Ólafur telur stöðuna í riðlinum nú vonlitla. „Það er alveg ljóst eft- ir tvo tapleiki á heimavelli að við erum hvorki fugl né fiskur í þess- um riðli eftir það. Við verðum bara að einbeita okkur að þvi að klára dæmið í næsta leik í - vor.“ Eins og svart og hvítt - íslenska 21 árs landsliðið með yfirburði í síðari hálfleik en tapaði samt, 1-2 Ísland-Litháen U-21 árs 1-2 Lið íslands: Ómar Jóhanns- son - Hjálmur Dór Hjálmsson, Ármann Smári Bjömsson, Guð- mundur Viðar Mete, Haraldur Guðmundsson (46. Helgi Valur Daníelsson (86. Jökull Elísabet- arson)), Ellert Jón Bjömsson (46. Magnús Sverrir Þorsteinsson), Indriði Sigurðsson, Grétar Rafn Steinsson, Hannes Þ. Sigurðsson - Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Sigmundur Kristjánsson. Lið Litháens: Marius Rapalis - Tomas Mikuckis, Andrius Pet- reikis, Gediminas Paulauskas, Elnaras Tarvydas, Darius Miceika (87. Karolis Jasaitis), Mantas Savenas (68. Netijus Maciulis), Tomas Tamosauskas, Giedrius Slaviskas, Aurimas Kucys, Valeritus Mizigurkis (46. Vitalius Miliskevicius). íslenska landsliðið skipað leik- mönnum 21 árs og yngri sýndi á sér tvær ólíkar hliðar í leiknum gegn litháískum jafnöldrum sínum á Akranesi í gær. Fyrri hálfleikur var afspymuslakur, reyndar af hálfu beggja liða en Litháar fengu þó fleiri færi. Það skrýtna var að tvö mörk litu þó dagsins ljós í leiknum, eitt frá hvoru liði. í seinni hálfleik má segja að aðeins eitt lið hafi ver- ið á vellinum fyrstu 35 minúturnar því Islendingar höfðu töluverða yf- irburði en gegn gangi leiksins skor- uðu Litháar sigurmarkið tæpum tiu mínútum fyrir leikslok og lokatöl- urnar urðu 2-1 þeim í hag. Það er ekki hægt að fara mörgum orðum um fyrri hálfleikinn sem var afspymulélegur á að horfa. Það var fyrst á 28. mínútu sem eitthvað fór að gerast og þá voru það gestirnir sem tóku sig til. Þeir fengu þá tvö góð færi en skutu yfir í bæði skipt- in en á 32. mínútu kom fyrsta mark leiksins. íslendingamir töpuðu þá boltanum á slæmum stað á miðj- unni með þeim afleiðingum að Tom- as Tamosauskas skoraði með skoti sem breytti um stefnu af Hjálmi Dór Hjálmssyni og fór í boga upp í markhomið án þess að Ómar Jó- hannsson ætti möguleika á að verja. Eftir þetta datt leikurinn aftur nið- ur og hvorugt liðið virtist líklegt til að skora fyrir hlé en íslendingar uppskáru jöfnunarmark úr sínu fyrsta færi í leiknum. Markvörður Litháens missti þá háa aukaspymu inni í teignum, Grétar Rafn Steins- son náði boltanum en markvörður- inn fefldi hann og réttflega dæmd vítaspyma. Úr henni skoraði Hann- es Þ. Sigurðsson með föstu skoti upp í þaknetið. Þetta mark var mikilvægt og ís- lensku strákarnir náðu að byggja á því í seinni hálfleik. Þá hafði Ólaf- ur Þórðarson þjálfari reyndar gert tvær breytingar á liðinu, sett Helga Val Daníelsson og Magnús Sverri Þorsteinsson inn í liðið, og þeir komu báðir mjög sterkir inn. íslend- ingar fengu tvö góð færi strax á fyrstu tveimur mínútum hálfleiks- ins og átti Helgi Valur þátt í þeim báðum. Magnús var einnig mjög sprækur, og reyndar má segja að allt íslenska liðið hafi tekið hressi- lega við sér eftir hlé. Gunnar Heið- ar Þorvaldsson og Ármann Smári Björnsson fengu bestu færi íslend- inga á þessum kafla. Fyrst skaut Gunnar Heiðar yfir úr upplögðu færi og síðan varði markvörður Lit- háens skalla Ármanns af stuttu færi. íslendingar fengu einnig fiöl- mörg hálffæri sem ekki nýttust og það átti eftir að reynast þeim dýr- keypt. í einni af fáum sóknum Litháa á 81. mínútu skoraði nefnilega Andri- us Petreikis sigurmark þeirra eftir gott spil í gegnum íslensku vörnina, sem svaf reyndar illilega á verðin- um. Þetta slökkti í íslensku strákun- um og þó að þeir hafi reynt að sækja og knýja fram jöfnunarmark virtist vonleysið hafa heltekið þá og Litháar fögnuðu innilega í leikslok þegar sigurinn var i höfn. Miðað við gang leiksins eru úr- slitin alls ekki sanngjörn en með betri frammistöðu í fyrri hálfleik og að sjálfsögðu betri færanýtingu hefðu úrslitin orðið hagstæð. Besti maður íslenska liðsins var Indriði Sigurðsson, sem var sterkur á miðj- unni í fyrri hálfleik og átti einnig góðan leik í þeim seinni þegar hann var fluttur í stöðu vinstri bakvarð- ar. Varamennirnir Helgi Valur og Magnús áttu einnig mjög góða inn- komu. Miðverðimir Ármann Smári og Guðmundur Mete voru hins veg- ar óöruggir og lentu yfirleitt í vand- ræðum þegar Litháar brutust fram í sókn. Staðan í riðlinum verður að teljast vonlítil eftir tvo tapleiki á heimavelli og spurning hvernig Ólafi tekst að rífa strákana upp þeg- ar átökin hefiast aftur í vor. -HI Færeyinga bíður erfitt verkefni: Ballack verður með Þjóðverjum Það bíður Færeyinga erfitt verk- efni í kvöld en þá mæta þeir Þjóð- verjum í Evrópukeppni landsliða í Hannover. Færeyingar töpuðu á dögunum fyrir Litháum í Litháen, en Þjóðverjar léku vináttuleik við Bosníu á föstudag þar sem þeir gerðu jafntefli. Þeir áttu þó i vand- ræðum með að hefia undirbúning fyrir leikinn í kvöld þar sem þeir urðu veðurtepptir vegna mikilla rigninga í Bosníu og gátu ekki flog- ið heim fyrr en á sunnudag. Það eru vondar fréttir fyrir leik- menn Færeyja að Michael Ballack verður með Þjóðverjum að nýju eftir meiðsli, en það hljóta að sama skapi að vera góðar fréttir fyrir Þjóðverja. Þjóðverjar eru bjartsýnir og seg- ir Karl Heinz Rumenigge, fyrrum framherji þýska liðsins, að þeir muni skora sex tfl átta mörk í leiknum. Þetta verður stór stund hjá Færeyingum þar sem búast má við 50-70 þúsund manns, sem er svipað og meira en íbúafiöldi í Færeyjum. -PS Haustmót í pool á Players Haustmót í pooi fór fram á veitingastaönum Players í gærkvöld. Mót þetta er orðinn árviss viðburöur á veitingastaðnum en íþrótt þessi er oröin vinsæl á svokölluöum íþróttakrám á höfuöborgarsvæöinu. Nokkur fjöldi tók þátt í mótinu. DV-mynd PÖK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.