Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Blaðsíða 20
20 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 95 ára ________________________________ I 1 Ragnhildur Pétursdóttir, p 7j|S Hrafnistu, Reykjavlk, varð níutíu og fimm ára I 85 ára_________________________________ Ingibjörg Björnsdóttlr, Suðurgötu 13, Sauðárkróki. Ólafur Júlíusson, Hávegi 3, Kópavogi. 80 ára_________________________________| Guöný Stefánsdóttir, Suðurgötu 4a, Keflavík. Þorbjörg Bjarnadóttir, Kleppsvegi 64, Reykjavík. 75 ára_________________________________ Guörún Jóhannesdóttir, Laxalind 9, Kópavogi. Halldóra Guömundsdóttir, Naustahlein 18, Garðabæ. Jakobína Olsen, Hólagötu 31, Njarðvík. SOJra__________________________________ Eva Ólöf Hjaltadóttir, Hrísrima 11, Reykjavík. Eiginmaður hennar er Eyjólfur Þór Jónsson, fyrrv. verktaki í Hrísey. Áslaug Benediktsdóttir, Auðbrekku 29, Kópavogi. Eggert Ólafsson, Hvanneyrarbraut 25, Siglufirði. Erlendur Hálfdánarson, Sigtúni 36, Selfossi. Guörún Jónsdóttir, Breiöumörk 16, Hveragerði. Jóhanna Sigríöur Sigurðardóttir, Haukanesi 9, Garðabæ. Nanna Ingólfsdóttir, Hlíöartúni 7, Höfn. Ragna L. Ragnarsdóttir, Sunnuflöt 19, Garðabæ. Örn Proppé, Grýtubakka 2, Reykjavík. 50 ára_________________________________ Anna Sigríður Hólmsteinsdóttir, Tjarnargötu 24, Vogum. Gylfi Norödahl, Hvammabraut 14, Hafnarfirði. Hrefna Guömundsdóttir, Eskihlíð 8, Sauðárkróki. Kristbjörg Helga Guölaugsdóttir, Þrastanesi 22, Garðabæ. Maj Britt Pálsdóttir, Drápuhlíð 20, Reykjavík. Pétur A. Halldórsson, Bakkahlíð 10, Akureyri. Sveinbjörn Guöjónsson, Eyrarbraut 10, Stokkseyri. 40 ára_________________________________ Ester Siguröardóttir, Ásholti 20, Reykjavík. Jónína Sigurgeirsdóttir, Furubyggð 28, Mosfellsbæ. Jórunn Rothenborg, Köldulind 3, Kópavogi. Ragnhildur Björg Konráðsdóttir, Gnitaheiði 14a, Kópavogi. Siguröur Ómar Ólafsson, Efstahjalla 11, Kópavogi. Stefán Þorvaldsson, írabakka 16, Reykjavík. Þorvaldur Sævar Blrgisson, Hátúni 10, Reykjavík. Þórhallur Kristinsson, Álfholti 32, Hafnarfirði. Andlát Jóhanna Vilhjálmsdóttir frá Sólbakka, Grindavlk, síðast til heimilis I Víðihlíð, heimli aldraðra I Grindavík, lést á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja 13.10. Ingibjörg Pétursdóttir, Efstalandi 6, Reykjavík, lést laugard. 12.10. Lárus Sumarliöason, Garðvangi, Garði, áður Aðalgötu 5, Keflavík, lést sunnud. 13.10. Slgríður Guöjónsdóttir, Egilsgötu 9, Þor- lákshöfn, lést á heimili sínu að kvöldi föstud. 11.10. Lína Bjarnadóttir Rodgers lést I Hampton, Virginíufylki I Bandaríkjunum, fimmtud. 10.10. Berta Hannesdóttir, Fellsmúla 4, Reykjavík, lést á Landspítalanum fimmtud. 10.10. Ragnar Sverris Ragnars, Hólabergi 4, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtud. 10.10. A. Margrét Ragnarsdóttir andaðist á líknardeild Landspltalans 10.10. María Guörún Sigurðardóttir frá Tungu- gröf I Strandasýslu, til heimilis á Sand- bakkavegi 2, Höfn, lést þriðjud. 1.10. Útför hennar hefur farið fram I kyrrþey. Þorleifur Björnsson yfirflugumferöar- stjóri, Granaskjóli 66, Reykjavík, varð bráökvaddur I Skotlandi mánud. 7.10. Pálmi Karlsson sendibílstjóri, Garöhúsum 37, Reykjavík, andaðist á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut föstud. 11.10. MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 n>v Sjötugur Guðbergur Bergsson rithöfundur Guðbergur Bergsson rithöfundur er sjötugur í dag. Starfsferill Guðbergur fæddist í Isólfsskála en ólst upp í Grindavík. Hann stundaði bamaskóla i Grindavík, lauk gagnfræðaprófi frá Héraðsskól- anum á Núpi I Dýrafirði, lauk kenn- araprófi frá KÍ 1955 og vann síðan i eitt ár áður en hann hóf nám við Háskólann í Barcelona þar sem hann lauk prófum í spænsku, mál- sögu, bókmenntum og listasögu. Guðbergur vann almenn sveita- störf á ýmsum bæjum frá tíu ára aldri, starfaði síðan við skipasmíðar 1947-49, hjá Lockhead-ílugfélaginu á Stapanum 1949-51 og óf gólfteppi 1955-57 og síðar. Þá var hann næt- urvörður á Hótel Borg í þrjú ár og nætur- og hjúkrunarvörður á Kleppi um skeið. Guðbergur hefur stundað ritstörf frá 1960. Eftirfarandi skáldverk hafa komið út eftir hann: Músin sem læðist, skáldsaga 1961; Endurtekin orð, ljóð 1961; Leikföng leiðans, smá- sögur 1964; Tómas Jónsson metsölu- bók, skáldsaga 1966; Ástir sam- lyndra hjóna, skáldsaga 1967; Anna, skáldsaga 1969; Hvað er eldi guðs?, smásögur 1970; Það sefur í djúpinu, skáldsaga 1976; Flateyjar-Freyr - Ljóðfórnir, ljóð 1978; Saga af manni sem fékk flugu í höfuðið, skáldsaga 1979; Saga af Ara Fróðasyni og Hug- borgu konu hans, skáldsaga 1980; Hjartað býr enn í helli sinum, skáld- saga 1982; Tóta og táin hans pabba, skáldsaga fyrir börn 1982; Hinsegin sögur, smásögur 1984; Leitin að landinu fagra, skáldsaga 1985; Trú- in, ástin og efmn, Minningar sr. Rögnvalds Finnbogasonar á Staðar- stað 1988; Maðurinn er myndavél, smásögur 1988; Svanurinn, skáld- saga 1991; Sú kvalda ást sem hugar- fylgsnin geyma, skáldsaga 1993; Æv- inlega, skáldsaga 1994; Faðir og móðir og dulmagn bemskunnar, skáldævisaga 1997; Eins og steinn sem hafið fágar, skáldævisaga 1998; Sæmundur Valdimarsson og stytt- urnar hans 1998;Allir með strætó, bamabók 2000; Vorhænan og aðrar sögur, smásögur 2000; Hundurinn sem þráði að verða frægur, bama- bók 2001; Stígar, ljóðabók 2001. Guðbergur hefur m.a. þýtt eftir- talin rit: Eftir Juan Ramón Jimenez: Platgerð og ég, 1965, og Lazarus frá Tormes, 1972; eftir Cervantes: Króksi og Skerðir, 1973; eftir Jorge Luis Borges: Suðrið, 1975; eftir Gabriel Garcia Márquez: Hundrað ára einsemd, 1978, Liðsforingjanum berst aldrei bréf, 1980, Frásögn um margboðað morð, 1982, Ástin á tím- um kólerunnar, 1986, Saga af sæ- háki Z.Z., 1987, og Hershöfðinginn í völundarhúsi sínu, 1989, Um ástina og annan fjára, 1995; eftir Horacio Quiroga: Ævintýri í frumskóginum, 1981; eftir Alejo Carpentier: Ríki af þessum heimi, 1983; eftir Lygia Boj- unga Nunes; Dóttir línudansaranna, 1983; eftir Cervantes: Don Kíkóti frá Mancha, 1981-84; eftir Juan Rulfo: Pedre Paramo - Pétur heiði, 1985; eftir Émesto Sabato: Göngin, 1985; eftir Raymond Chandler: Svefninn langi, 1987; eftir Mercé Rodoreda: Demantstorgið, 1987; eftir William Kennedy: Jámgresið, 1988; eftir Ju- an Benet: Andrúmsloft glæps, 1988; eftir Eduardo Mendoza: Undraborg- in, 1991; Azuela, Mariano: Lýðurinn; Eftir Goya, Francisco Kenjamar = Los Caprichos, í túlkun Guðbergs Bergssonar 1998. Guðbergur hlaut Bókmenntaverð- laun dagblaðanna 1967, Bókmennta- verðlaun DV 1983; íslensku bók- menntaverðlaunin 1992 og 1998; hlaut tilnefningu til íslensku bók- menntaverðlaunanna 1993 og 1997, og var sæmdur Orðu Spánarkon- ungs, Riddarakross Afreksorðunn- ar. Fjölskylda Bræður Guðbergs: Bjarni, f. 2.7. 1930 skipasmiður; Vilhjálmur, f. 2.10.1937, listmálari; Hinrik, f. 13.10. 1942, vélstjóri. Foreldrar Guðbergs: Bergur Bjamason, f. 1.5. 1903, d. 4.3. 1997, lengst af sjómaður og smiður í Grindavík,, og kona hans, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, f. 28.10.1900, d. 26.9. 1984, húsmóðir. Ætt Bergur er sonur Bjama, b. að Hellnafelli í Grundarfirði, Bjama- sonar, hagyrðings að Gilsbakka í Miðdölum, Jónssonar, b. í Kringlu, Bjamasonar. Móðir Bjarna á Gils- bakka var Guðrún Bergsdóttir. Móðir Bjama á Hellnafelli var Ragnheiður Jósúadóttir, b. á Bæ, Jónssonar. Móðir Bergs var Þorbjörg Jakobs- dóttir, b. á Eiði og á Hallbjamareyri í Eyrarsveit, (Vísinda-Kobba), bróð- ur Bjama á Hraunhólum, langafa Huga Hraunfjörð hagyrðings og Huldu Hraunfjörð rithöfundar. Jak- ob var sonur Jóns, b. í Hallkels- staðahlíð í Kolbeinsstaðarhreppi, Jónssonar. Móðir Jakobs var Ólöf Bjarnadóttir. Móðir Þorbjargar var Salbjörg Pétursdóttir, b. á Hofakri í Hvammssveit, Péturssonar. Jóhanna var dóttir Vilhjálms, smiðs í Miðhúsi í Þórkötlustaða- hverfi í Grindavík, Jónssonar. Móð- ir Jóhönnu var Agnes Jónsdóttir, b. í Vestur-vestur-Bæ í Þórkötlustaða- hverfi, Þórðarsonar frá Þórarins- stöðum í Hrunamannahreppi, og Ingibjargar frá Syðra-Langholti. Móðir Agnesar var Valgerður Gam- alíelsdóttir, ættuð úr Flóanum. Sjötugur i Fimmtug Jón Frímannsson rafvirkjameistari á Akranesi Jón Frímannsson raf- virkjameistari, Esjuvöllum 15, Akranesi, er sjötugur í dag. Starfsferill Jón fæddist á Skriðuklaustri í Fljótsdal. Er hann hafði aldur til gerði hann námssamning við föð- ur sinn, vann hjá Einari Ólasyni, rafvirkjameistara á Egils- stöðum, en stundaði bóklegt nám einn vetur við Iðnskólanum í Reykjavík og þrjá vetur við Iðnskólanum í Nes- kaupstað, tók sveinspróf i rafvirkjun 1953 og fékk meistarabréf 1959. Jón og kona hans fluttu til Reykja- víkur í ársbyrjun 1954. Þar vann hann hjá rafmagnsverkstæðinu Segli þang- að til þau hjónin fluttu tU Akraness 1958. Þar tók hann við starfl eftirlits- manns með raflögnum hjá Rafveitu Akraness og sinnti þvi starfi í eitt ár. Hann varð síðan yflrmaður á Raf- magnsverkstæði Haralds Böðvarsson- ar & Co þar sem hann starfaði tU síö- ustu áramóta en síðustu tvö árin und- ir stjóm Karls Þórðarsonar rafvirkja- meistara. Þegar Jón lét af störfum hjá HB hafði hann unnið hjá öllum þrem for- stjórum fyrirtækisins frá stofnun þess. Jón hefur unnið mikið að orkumál- um á Akranesi um langt árabU. Hann stofnaði, ásamt nokkrum öðrum aðil- um, Hagsmunasamtök orkunotenda á Akranesi og vann mikið starf í þágu orkunotenda þar. Hann varð vara- maður í stjóm Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar og sat þar nokkra fundi. Þá hefur Jón unnið við útgerð á mesta framfaraskeiði hennar frá upp- hafi, í aUt frá 50-60 tonna bátum upp í nýtísku frystitogara og allt þar á mUli, hjá fyrirtæki, sem ávaUt hefur verið í farar- broddi i að tUeinka sér ný- ungar á sínu sviði tU lands og sjávar. Fjölskylda Eiginkona Jóns er Fanney Magnúsdóttir frá Dagverðargerði í Hróars- tungu, f. 10.10. 1931, hús- móðir. Foreldrar hennar voru Magn- ús Friðriksson og Jakobina Oddsdótt- ir. Synir Jóns og Fanneyjar eru Jó- hann Frímann, f. 22.3. 1955, vélstjóri, búsettur á Akranesi, sambýliskona hans er Helga Héðinsdóttir; Eiríkur, f. 11.10. 1956, stýrimaður, kvæntur Ölmu Maríu Jóhannsdóttur; Magnús Axel, f. 22.1. 1962, bUstjóri, kvæntur Elisabetu Svansdóttur; Sigurður Már, f. 30.10.1964, vélvirki, kvæntur Sigríði Hallgrímsdóttur; Guðmundur Jakob. f. 7.4. 1966, sjómaður, sambýiiskona hans er HUdur Sigurðardóttir. Bamabömin eru nú flmmtán tals- ins. Jón á þrjár systur og eina fóstur- systur. Þær eru Þórdís, f. 3.12. 1927, húsmóðir á Selfossi, var gift Magnúsi Aðalbjarnarsyni verslunarmanni en hann er látinn; Anna Arnbjörg, f. 15.1. 1930, húsmóðir, gift Guðmundi Magn- ússyni fyrrv. fræðslustjóra; María f. 28.2.1935, gift Páli Þ. Finnssyni stýri- manni; Unnur G. Jónasdóttir, f. 24.3. 1943, gift Þorsteini Guðmundssyni hljómiistarmanni. Foreldrar Jóns vom hjónin Jóhann Frímann Jónsson rafvirkjameistari, rafveitustjóri á Reyðarfirði 1933-45, f. 2.6. 1898, d. 23.8.1960, og Sigríður Þor- steinsdóttir, f. 9.7. 1901. d. 24.8. 1974, húsmóðir. Jón verður að heiman. Kristbjörg H. Guðlaugsdóttir kaupkona í Gardabæ Kristbjörg Helga Guð- laugsdóttir, Súlunesi 18, Garðabæ, er flmmtug i dag. Starfsferill Kristbjörg fæddist í Búðardal. Hún var í Laugamesskóla og lauk gagnfræðaprófi frá Gagn- fræðaskólanum við Lind- argötu. Á unglingsárunum vann hún hjá Hraðfrystistöðinni í Reykjavík með skóla. Hún stundaði afgreiðslu- og skrifstofustörf á Bifreiðastöð Stein- dórs 1969-72, vann á skrifstofu Öl- gerðar Egils Skallagrimssonar 1972-77, stundaði ýmis hlutastörf til 1981, rak leikfangaverslun við Hlemm 1981-82 og 1982-85, starf- rækri sölutuminn Gjábakka við skiptistöð Kópavogs, vann hjá Hag- kaupum 1985-86, starfrækti mat- vöruverslunina Hvammsval 1986-99 og varð framkvæmdastjóri heild- verslunarinnar Sahara 1999 sem hún starfrækir í dag. Fjölskylda Kristbjörg giftist 25.12. 1976 Krist- jáni Arnfjörð Gúðmundssyni, f. 30.10. 1951, bifreiðarstjóra. Böm Kristbjargar og Kristjáns eru Guðmundur Ingvar Amfjörð, f. 10.4. 1972, kaupmaður í Garðabæ, sambýliskona hans er Guðrún Svava Stefánsdóttir, f. 3.7. 1974, hjúkrunarfræðingur; Díana Guð- laug Arnfjörð, f. 18.3.1977, ritari, bú- sett í Kópavogi, sambýlismaður hennar er Bjöm Hólmþórssson, f. 30.8. 1976, kerfisfræðingur og era börn þeirra Kristófer Hólmþór Am- fjörð, f. 22.6. 1996, og Indíana Ýr Amfjörð, f. 15.7. 2000; Sylvía Arn- fjörð, f. 6.11. 1978, fórðun- arfræðingur, búsett i Reykjavík, sambýlismað- ur hennar er Vignir Öm Oddsson, f. 19.6. 1978, bif- vélavirki, er sonur þeirra Sebastian Georg Amfjörð, f. 26.4. 1999; Ólína Krist- jana Amflörð, f. 12.4.1988, nemi; Sesselja Amflörð, f. 7.6. 1992, nemi; Arnar Gauti Amflörð, f. 8.9. 1993, nemi. Systkini Kristbjargar eru Jón Guðlaugsson, f. 22.8.1945, skipstjóri, búsettur á Akranesi, kvæntur Öldu S. Þórðardóttur og eiga þau flögur börn og sex barnabörn; Jóhannes Kristjáp Guðlaugsson, f. 24.1. 1948, bifreiðasmiður, kvæntur Hildi Steinþórsdóttur og eiga þau flögur börn; Valdimar Guðlaugsson, f. 14.7. 1961, starfsmaður við Húsdýragarð- inn og á hann þrjú börn; Ólína Guð- laugsdóttir, f. 9.6. 1964, ritari, gift Sigurði Borþórssyni. Fóstursystir Kristbjargar er Kristín Jóhanna Valdimarsdóttir, f. 5.8. 1943, hún á fimm börn og flórt- án bamabörn. Foreldrar Kristbjargar eru Guð- laugur Jónsson, f. 30.4. 1914, verka- maður, og Ingibjörg Valdimarsdótt- ir, f. 29.6. 1925, húsfreyja. Guðlaugur er sonur Jóns Hannes- sonar, verkamanns á Skarði, og Ólínu Sesselju K. ívarsdóttur. Ingibjörg er dóttir Valdimars Sigurðssonar, b. í Rúffeyjum, og Ingigerðar Sigurbrandsdóttur. Kristbjörg verður með opið hús á heimili sínu, Súlunesi 18, Garðabæ, laugardaginn 19.10. nk. fyrir þá sem vilja samfagna með henni á þessum tímamótum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.