Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 Rafpostur: dvsport@dv.is Trappatoni undir pressu Það er ekki oft tekið út með sældinni að vera lands- liðsþjálfari. Giovanno Trappatoni á undir högg að sækja í starfi sinu með ítalska landsliðið og í kvöld gæti skýrst hvort hann verður í starfmu eftir leikinn. ítalir sækja Walesbúa heim í Cardiíf og ef ítalir vinna ekki sigur eru dagar hins 63 ára þjálfara senn taldir. ítalir þóttu ekki leika sannfærandi þegar þeir gerðu jafntefli við Júgóslava í vináttuleik á heimavelli um siðustu helgi. Marcello Lippi, þjálfari Juventus, hefur verið nefndur sem næsti þjálfari ítala en hann sagði í gær að hann hefði ekki áhuga og ætlaði að þjálfa Juventus áfram. -JKS Það er að duga eða drepast - segir Brynjar Björn Gunnarsson Atli Eðvaldsson landsliösþjálfari talar til sinna manna á æfingu í gær á Valbjarnarvelli. Stórt verkefni bíöur liösins í kvöld þegar það etur kappi við Litháa sem unnu góðan sigur á Færeyingum um síðustu helgi. Á sama tíma lágu íslendingar fyrir Skotum. DV-mynd Pjetur „Það eru þrjú stig í boði og þau verðum við að taka. Það er að duga eða drepast fyrir okkur, leik- urinn við Skota er að baki og við verðum að hugsa fram á við. Við verðum að leggja okkur 100% fram eins og við ger- um reyndar alltaf en við ætlum að gera okkar besta. Við vitum ekki eins mikið um styrkleika Litháanna eins og skoska liðsins en þeir eiga að vera veikari. Þeir eru neðar á styrkleika- listanum en við en það verð- ur ekki spurt að því þegar út í baráttuna er komið. Það er engin spurning um að þetta verð- ur erfiður leikur en lið frá Austur- Evrópu eru alltaf sterk og leika boltanum vel á milli sin. Við verð- um að gefa allt sem við eigum í Brynjar Björn. þennan leik og vona að það sé nóg,“ sagði Brynjar Björn Gunn- arsson í samtali við DV eftir æf- ingu liðsins á Valbjarnarvelli i Laugardal í gærkvöld. Verðum að taka stig „Það verður bara að segj- ast eins og er að það kemur ekkert annað til greina en sigur gegn Litháum. Við er- um að leika á heimavelli og þar verðum við að taka stig. Það þýðir ekkert að svekkja sig á Skotaleiknum í nokkr- ar vikur en í dag er nýr leik- ur og þar þurfum við að sanna okkur. Við verðum að bæta fyrir leikinn gegn Skotum og sýna fólki íívað býr í liðinu," sagði Brynjar Björn Gunnarsson. -JKS íslendingar mæta Litháum í Evrópukeppninni í knattspyrnu: Allt lagt í sölurnar - segir Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari i knattspyrnu, um leikinn í kvöld islenska landsliðið í knatt- spyrnu leikur sinn annan leik í undankeppni Evrópumóts lands- liða á Laugardalsvelli klukkan 18.10 í kvöld. íslenska liðið hóf keppni í þessum riðli illa um síð- ustu helgi þegar það lá fyrir Skot- um i leik sem olli miklum von- brigðum. í kvöld verður liðið að bæta fyrir það sem aflaga fór í siðasta leik og í raun kemur ekk- ert annað en sigur til greina. Stefnt var hátt áður en riðla- keppnin hófst og ætli liðið aö blanda sér í baráttuna i þessum riðli verður leikurinn við Litháa að vinnast i kvöld. - En hvernig hefur landsliðs- þjálfaranum gengið að undirbúa liðið fyrir leikinn í kvöld í kjölfar ósigursins gegn Skotum? „Mér sýnist að það hafi gengið ágætlega og leikmenn hafa lofað því að laga sinn leik og bæta fyr- ir það sem fór fyrir ofan garð og neðan í siðasta leik. Sendingarnar verðum við að laga og ef það geng- ur eftir verðum við í betri málum en í leiknum við Skota. Litháarn- ir leika allt öðruvísi en Skotar en þeir eru líkamlega sterkir, hraðir en ekki eins sterkir í loftinu. Lit- háar eru sterkir í návígjum og þeir leika af skynsemi. Ég er bú- inn að sjá þá í leikjunum við Þjóð- verja og Færeyinga og við verðum einfaldlega að sýna okkar besta leik eigi okkur að takast að vinna þá,“ sagði Atli Eðvaldsson, þjálfari landsliðsins. - í þínum huga kemur ekkert annað til greina en að vinna. Þrjú stig eru farin í súginn á heima- velli og með það á bakinu verður ekki að leggja Litháana að velli í kvöld? „Á laugardaginn var gegn Skot- um kom ekkert annað til greina en sigur og áformin eru ekki önn- ur gegn Litháum. Frá fyrstu mín- útu til þeirrar síðustu í kvöld verður hver einn og einasti í lið- inu að gera allt til þess að gera betur en siðast. Það hefur þjappað okkur saman og styrkt okkur í öllum undirbúningi fyrir leikinn við Litháa að við höfum fengið fullt af baráttukveðjum frá fólki víðs vegar að. Við leggjum allt í sölurnar í kvöld og ég veit að strákarnir munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að knýja fram hagstæð úrslit. Ef við lögum sendingarnar og baráttan verður til staðar hlýtur uppskeran að verða eftir því,“ sagði Atli Eð- valdsson. -JKS Rúnar tæpur - ræðst í dag hvort hann er leikhæfur Rúnar Kristinsson, fyrirliði ís- lenska landsliðsins í knattspyrnu, á við meiðsli að stríða í nára og er óvíst um þátttöku hans í leiknum við Litháa í dag. Þetta eru meiðsli sem Rúnar hefur oft barist við en þau tóku sig upp í leiknum við Skota á laugardaginn var. „Ég er ekki alltof bjartsýnn og við sjáum hvort lækni liðsins tekst að koma mér í gang. Ég hef barist við þetta lengi en það er eins og vöðvinn í náranum stífni. Ég þarf nudd og meðhöndlun og þá getur þetta orðið í lagi en það verður að koma í ljós hvort það tekst í tíma. Við sjáum hvað best er að gera i stöðunni en auðvitað er betra að hafa heilan mann inná sem getur gefið sig allan í leikinn. Ég ætla ekki að leika nema ég treysti mér til þess en á þessari stundu er ég er ekki bjartsýnn,“ sagði Rúnar Kristinsson í samtali við DV í gær- kvöld. -JKS Rúnar Kristinsson skokkaöi á meöan landsliöiö æföi í gær. Birkir Kristinsson hljóp nokkra hringi meö honum. DV-mynd Pjetur Það veröur pólskur dómari sem dæmir viðureign íslands og Litháa á Laugardalsvelli í kvöld. Eftirlitsmaður dómara kemur frá Svíþjóð en eftirlitsmaður leiksins er bosnískur. Það er ekki jafnstór hópur fréttamanna sem kemur frá Lit- háen eins og var frá Skotlandi um síðustu helgi. Sex litháiskir íþróttafréttamenn hafa tilkynnt komu sína á leikinn. Skoska landsliðió í knatt- spymu gerir það ekki endasleppt en í gærkvöld sigraði liðið Kanadamenn, 3-1, í vináttu- landsleik á Eastem Road í Edin- borg. Stephen Crawford skoraði tvö mörk í leiknum og Steven Thompson eitt. De Rosario kom Kanada yfir í leiknum með marki úr víti á 9. mínútu. Skoska liðinu hefur verið hrósað í hástert eftir sigurinn gegn íslandi og ekki minnkar lof- ið eftir sigurinn á Kanadamönn- um. Berti Vogts sagði eftir leik- inn í Edinborg í gærkvöld aö leikurinn væri beint framhald frá leiknum á íslandi. Liðið væri komið á brautina eins og hann orðaði það. Berti Vogts fer um víðan völl þessa dagana. Eftir leikinn í Edinborg hélt hann til Glasgow og flýgiu- um hádegið til íslands en hann ætlar að njósna um litháíska liöið í kvöld. Goran Kristófer Micic hefur verið endurráðinn þjálfari HK í knattspymu en félagið komst upp í 1. deild nú í haust. Samn- ingurinn gildir til tveggja ára. Goran hefur komið liðinu upp um tvær deildir á tveimur árum. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.